Morgunblaðið - 21.02.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
Þóra J. Magnúsdótt-
— Minningarorð
ir
Þann 7. febrúar lést í Land-
spítalanum Þóra J. Magnúsdóttir,
Otrateigi 3, Reykjavík. Var hún
jarðsett 13. febrúar s.l. Þóra var
fædd að Staðarhóli í Höfnum 9.
ágúst 1910 og var því sextiu og
fimm ára er hún lést. Foreldrar
Þóru voru hjónin Magnús Pálsson
hreppstjóri og Kristín Jósefs-
dóttir ljósmóðir. Börn þeirra
voru, auk Þöru, Guðrún móðir
mín og Guðmundur sem lést 1939
rúmlegátvítugur að aldri.
Þó að við vitum öll, að einhvern
tima komi að því að við verðum að
kveðja þetta líf og dauðinn taki
við, held ég að við séum aldrei
viðbúin að taka honum, þó erum
við misjafnlega viðbúin, það fer
nokkuð eftir styrkleika hvers og
eins. Þann styrkleika hafði Þóra
til að bera. Hún hélt sinni sálarró,
þó hún vissi í hvaða átt stefndi,
vissi að hún gekk með þann sjúk-
döm, sem læknavísindunum
hefur gengið erfiðiega að sigrast
á. Hún reyndi að halda því leyndu
fyrir sínum nánustu, að minnsta
kosti þeim, sem hún hélt að
erfiðast ættu með að taka því. Eg
kom á Otrateiginn stuttu eftir
nýár og beið Þóra þá eftir
spítalaplássi. Þá mátti sjá að
henni leið ekki vel en maður fékk
samt kaffi og góðgerðir eins og
alltaf þegar maður kom. Rædd
voru mál, sem tilheyrðu liðandi
stund, bæði þau er snertu fjöl-
skylduna og einnig önnur mál.
Dáðist ég að þeirri sálarró, sem
mér fannst hún sýna, þó sjá mætti
á andliti hennar, að henni leið
ekki vel. Brá þó fyrir brosi ef svo
bar undír, fannst mér það vera
meira til að dylja hve illa henni
leið, frekar en henni væri bros í
hug.
Þöra kvæntist eftirlifandi
manni stnum Guðmundi Jónssyni
varðstjóra árið 1934. Hófu þau
búskap í Hafnarfirði og vann þá
Guðmundur við vörubílaakstur.
Fáum árum seinna gekk
Guðmundur í raðír
lögreglumanna Reykjavíkur og
starfaði þar til fyrir einu eða
tveimur árum, að hann var
kominn á þann aldur sem opin-
berir starfsmenn hætta störfum,
en síðan hefur hann starfað sem
þingvörður. Fyrst eftir að þau
Þöra og Guðmundur fluttust til
Reykjavikur, áttu þau heimili að
Seljavegi 17. Síðar byggðu þau
sér hús að Otrateigi 3. Það heimili
ber þeim báðum fagurt vitni bæði
fyrir þá hlýju sem allir áttu og
eiga þar að mæta sem þangað
koma og fyrir þá snyrtimennsku,
sem þar er ríkjandi, bæði úti og
inni og vakið hefur athygli ekki
aðeins þeirra sem kunnugir eru á
heimilinu, heldur einnig borgar-
yfirvalda sem oft hafa veitt
þeim viðurkenningu fyrir sinn
snyrtilega og fallega garð. Þar
eyddu þau mörgum frístundum
og voru þar samhent eins og í öllu
sem þau lögðu hendur að. Eftir
mínu viti var hjónaband þeirra til
fyrirmyndar byggt upp af gagn-
kvæmri virðingu og hlýju hvors
til annars. Þeim Þóru g
Guðmundi varð fjögurra barna
auðið, sem eru Kristín, gift
Valsteini Guðjónssyni skipstjóra
og eiga þau eina dóttur, Olafur
Valdimar rafvirki, kvæntur
Guðnýju Steingrímsdóttur og eiga
þau þrjá syni og dóttur misstu
þau unga, Guðmundur Magnús
slökkviliðsmaður, kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur og eiga þau
tvo syni. Þorbjörg sem er nú í
hjúkrunarnámi og reyndist
móður sinni einstaklega vel í
vetkindum hennar með sinni
hlýju og traustvekjandi fram-
komu, sem ég held að hafi styrkt
alla fjölskylduna í þessum
erfiðleikum. Einn son átti Þóra
áður en hún giftist, Þórð Helga-
son vélstjóra. Hann ólst upp hjá
ömmu og frænda á Staðarhóli og
átti þar heima þar til hann stofn-
aði sitt eigið heimili. Hann er
kvæntur Huldu Þórðardóttur og
eiga þau fimm börn.
Það er mikill harmur kveðinn
að fjölskyldu Þóru við fráfall
hennar, þó sárastur harmur sé
kveðinn að Guðmundi sem misst
hefur tryggan og traustan lífs-
förunaut og einnig að börnum og
barnabörnum, sem sóttu margar
ánægjustundir til mömmu og
ömmu á Otrateigi. Þó að ég viti að
heimilið að Otrateigi 3 verði enn
um sinn miðdepill fjölskyldunn-
ar, veit ég að þar hefur myndast
það tóm við fráfall Þóru sem allir
mun finna mikið fyrir. Ég kom oft
á Otrateiginn. Þar fannst mér ég
geta komið hvernig sem á stóð, af
því að ég fann að þar var ég alltaf
velkominn. Eg veit að svo mun
verða áfram, þó Þóra sé horfin.
Við hér heima tökum öll þátt í
söknuði ykkar og vonum að Guð
styðji ykkur og styrki um ókomna
framtíð.
Guðmundur Gemil.
I dag felldu blómin min blöðin
sín, — og húmið kom óvænt inn
til mín. Eg hélt þó að enn væri
sumar og sólskin. Þessar ljóðlínur
Tómasar upphaf kvæðisins
Kveðja, komu upp í hug minn
þegar ég frétti lát móðursystur
minnar Þóru Magnúsdóttur.
Fregn um lát kemur venjulega
óvænt og of snemma, við væntum
lengra sumars lengra lífs. Okkur
sortnar fyrir augum það er sem
sól byrgist sýnum, þegar þeir eru
kallaðir á fund feðra vorra sem
hafa verið oss kærir.
Þóra var sem sólgeisli, hvar sem
hún fór ljómaði af henni, hvað
sem hún gerði voru hugur og
hendur græðandi og bætandi á
umhverfið. Ég þarf ekki að hafa
um þetta hástemmd orð, verkin
sýna merkin. Þau eru til og verða
lengi, nægir þar að benda á heim-
ilið sem hún ásamt manni sinum,
Guðmundi Jónssyni fyrrverandi
lögregluvarðstjóra, annaðist utan
sem innan dyra af svo mikilli alúð
og fágun, að engum gat dulist að
þar færi saman smekkvísi, natni
og ástúð til alls sem augað gleður(
og lifir.
Lóðin eða blómagarður fjöl-
skyldunnar á Otrateig 3, er fjöl-
mörgum Reykvikingum löngu
kunnur fyrir fegurð og hirðu-
semi. Það er mín trú og mín vissa
að Þóra fann hamingju lífsins við
hlið mannsins síns við að rækta
garðinn sinn. Já og það i orðanna
fyllstu merkingu, því að þó garð-
urinn og blómin utan dy ra væru til
fyrirmyndar voru blómin innan
dyra ,,börnin“ ekki vanrækt. Þau
hvort fyrir sig bera þess hugljúft
vitni, að þar var lögð rækt við að
ala upp menn og konur sem alls-
staðar er sómi að. Heillaríkara
starf getur vart nokkurt foreldri
unnið.
Þóra var mér og okkur systur-
börnunum hennar kærleiksrík
frænka, sem af rausn sinni var
okkur ávallt veitandi, fyrst á
bernskuárum okkar með því að
senda á hverjum jólum einhvern
glaðning, sem í þá daga var fátíð-
ari en nú á seinni tímum. Síðan er
ég fór að leita atvinnu út fyrir
heimahagana fannst mér ómetan-
legt að mega ávallt koma heim til
þeirra Guðmundar og Þóru og
finna sig svo velkominn að mér
fannst, sem ég væri kominn heim.
Þessu mun ég aldrei gleyma
ásamt svo mörgu öðru sem ég á að
þakka, eins og til dæmis hugul-
seminni og ástúðinni sem börnin
mín nutu og mættu ávallt hjá
heimilisfólkinu á Otrateignum.
Nú er það svo sem ávallt að
missir hugljúfrar eiginkonu er
mestur og bið ég Guð að gefa
Guðmundi styrk og heilsu til að
njóta hérvistar daganna í návist
elskuríkra barna.
Um ætt og uppruna Þóru hefi
ég verið hljóður, v.eit að þess verð-
ur af öðrum minnst.
Ég vissi að Þóra var mikill aðdá-
andi Tómasar Guðmundssonar
(skálds Reykjavíkur) og þykir
mér því viðeigandi að grípa enn
til orða hans.
Hún er konan, sem
kyrrlátust fer
og kemur þá minnst
þig varir,
og les úr andvaka
augum þeim
hvort angur, sem til
þín starir.
Blessuð sé minning Þóru Magn-
úsdóttur.
Magnús Þórðarson.
Minninq:
Ölver Guðmunds-
son útgerðarmaður
Þann 11. þ.m. lést á sjúkra-
húsinu í Neskaupstað Ölver
Sigurður Guðmundsson útgerðar-
maður. Hann var fæddur 6. apríl
1900 í Sandvík í Norðfjarðar-
hreppi S-Múl. Foreldrar hans
voru Guðmundur Magnússon
bóndi á Imastöðum í Vaðlavík og
kona hans Solveig Benjamíns-
dóttir. Hann gerðist útgerðar-
maður á Norðfirði 1921 og rak
fyrst útgerð á ára- og trillubátum,
en árið 1925 lét hann smíða i
Noregi vélbátinn Freystein
fagra, sem þá bar einkennisbók-
stafina SU 444, 8 smálestir að
stærð. Það var myndarlegt átak
og heppnaðist sá bátur vel og varð
til þess að Ölver gaf sig að vél-
bátaútgerð af miklum áhuga alla
ævi síðan. 1936 eignaðist hann
v/b Þráin NK 70, 22 smálestir að
stærð, sem byggður var í Dan-
mörku úr eik, vandaður bátur og
1948 keypti hann enn á ný vélbát
59 smálestir, sem bar einnig
nafnið Þráinn og einkennisbók-
stafina NK 70. Aður hafði hann
þó gerst meðeigandi í v/b
Magnúsi NK 84, 77 smálestir, og
rak þann bát í félagi við aðra um
nokkur ár. Arið 1964 lét hann svo
splíða i Noregi v/s Magnús NK 72
U74 smálestir að stærð. Auk
þeirra báta sem hér voru taldír
átti Ölver v/b Jón Guðmundísön
25 smál. (1947) og v/b Laxinn NK
71 (1965) 9 smál. og rak þá um
nokkur ár.
Fiskverkun var einn þáttur í
beinum tengslum við bátaútveg-
inn og í þeirri grein var þáttur
Ölvers mjög athyglisverður.. Hanr,
byggir myndarleg fiskverkunar-
hús og þar á meðal fisk-
þurrkunarhús. Verkaði hann fisk
sinn að mestu leyti sjálfur og
þurrkaði jafnvel fyrst fyrir aðra.
Það hlaut og að verða að Ölver
Guðmundsson tæki mikinn þátt í
félagsmálum sinnar stéttar. Hann
var einn af stofnenduin Sam-
vinnufélags útgerðarmanna í Nes-
kaupstað og í stjórn þess um
skeið. Hann var formaður Út-
gerðarmannafélags Norðfjarðar
um margra ára bil. Fulltrúi var
hann á aðalfundum S.I.F.
Ölver Guðmundsson átti sæti á
Fiskiþingi 1949 til 1951 og átti þar
sæti í sjávarútvegsnefnd.
Ölver kvæntist 2. des. 1926
Matthildi Guðrúnu Jóhönnu, f. 16
sept. 1904 dóttur Jóns Jakobs-
sonar útvegsmanns í Mjóafirði.
Hún er alsystir Þórarins Jóns-
sonar tónskálds.
Börn þeirra Ölvers og Matthild-
ar eru:
1. Sólveig, fædd 11/1 1927 gift
Bjarna Jónssyni, búsett i U.S.A.,
2. Margrét, fædd 14/2 1929 búsett
í Kefiavík; 3. Jón skipstjóri,
fæddur 20/4 1930, kvæntur Unni
Sigfinnsdóttur, búsettur í
Neskaupstað; 4. Guðmundur,
fæddur 7/7 1931 búsettur 1
Neskaupstað; 5. Olga, fædd 3/10
1933, gift Jim La Marche, búsett í
U.S.A.; 6. Þráinn, fæddur 3/3
i935, kvæntur Kristrúnu
Kristinsdóttur, búsettur í
Reykjavík; 7. Magnús, fæddur
29/7 1937 kvæntur Margréti Jóns-
dóttur, búsettur i Hafnarfirði; 8.
Þóra fædd 3/8 1939, gift Olafi
Thorarensen, búsett á Seltjarnar-
nesi; 9. Lovísa, fædd 13/9 1940
gift Garðari Halldórssyni. búsett í
Rvk. 10. Þórarinn, fæddur 28/10
1941 kvæntur Jónu Sigríði
Gunnarsdóttur, búsettur í
Neskaupstað; 11. Sigurður,
fæddur 13/2 1943, búsettur í
Neskaupstað.
Ölver Guðmundsson var mætur
maður og með þessum kveðju-
orðum eru mér efst í huga þakkir
fyrir samstarfið við hann.
Konu hans og fjölskyldu sendi
ég samúðarkveðjur.
Nfels Ingvarsson
Kristinn S. Sigurðsson
rakarameistari — Minning
F. 20. maí 1914.
D.9. feb. 1976.
Frændi minn Kristinn S.
Sigurðsson er látinn. Hann hafði
lengi átt við vanheilsu að stríða,
en bar veikindi sín með þeirri
sömu ró er einkenndi lif hans allt,
þess vegna var samferðafólki
hans ekki alltaf ljóst, að hann
gekk ekki heill heilsu.
Fjölskylda Kidda bjó lengst af i
vesturbænum, þó höguðu atvik
t Eiginkona min t Útför,
RAGNHEIÐUR KONRÁÐSDÓTTIR. JÓNASAR GUDMUNDSSONAR,
hjúkrunarkona. Kirkjustræti 2,
lézt i Borgarspitalanum 20 þ m fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24 febrúar kl. 4.
Fyrir hönd vandamanna
Skúli Matthíasson. Aðstandendur.
t Jarðarför,
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma. INGVARS G. KOLBEINSSONAR,
GUÐLAUG BIRNA BJÖRNSDÓTTIR, verkstjóra.
Heiðargerði 43, Gnoðarvogi 18,
Reykjavlk, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. febrúar kl. 1 3:30.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23 febrúar kl 3 Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Kristniboðið I Konsó,
e.h skrifstofa Amtmannsstíg 2B
Benjamln Jónsson, Kolbeinn ívarsson.
Steinar Benjamlnsson, Lilja Hjörleifsdóttir. Þóra Kolbeinsdóttir, ívar Kolbeinsson,
Sigurður Benjamlnsson. Steinunn Marinósdóttir, Jóhanna Kolbeinsdóttir, Ingi Ólafsson,
Elsa Benjamínsdóttir, Ólafur Gunnarsson Ingibjörg Kolbeinsdóttir, Sigursteinn Hersveinsson,
og barnaböm. Ingibjörg Júllusdóttir, Samúel Ólafsson.
því svo, að hann stundaði rakara-
iðn sína alla tíð i austurbænum.
Það kom þvi af sjálfu sér, að
frændurnir ungu á Hverfisgötu
fóru á stofuna til Kidda.
Eftir að Kiddi og Siggi fluttu
rakarastofu sína á Hverfisgötu
jukust gömul kynni okkar ár frá
ári, aldursmunur okkar minnkaði
Við ræddum ekki alltaf um gamla
góða K.R. er við að afloknu starfi,
hvor á sínu sviði, fengum okkur
ökuferð vestur með höfn út í
Örfirisey, eða vestur á Kapla-
skjólsveg, þar sem Esther og
Kiddi höfðu búið sér snoturt
heimili.
Ég þekkti því hug þessa hljóð-
láta og nægjusama frænda míns
ætla mætti að hann hafi haft hæst
er hann fylgdi sínu gamla félagi
K.R. á völlinn.
Af slíkum mönnum mættum við
eiga fleiri.
Af slíkum mönnum skyldum
við læra.
Er ég sagði einum frænda okk-
ar andlát Kidda, sagði hann „Eg
syrgi ei þá látnu; þeir hafa það
miklu betra en við.“ Með þeirri
sannfæringu kveð ég Kidda, ferð-
in sem við töluðum um að fara, er
ég heimsótti hann siðast, verður
ekki farin, þar sem hann hefur
tekist aðra ferð á hendur.
Um leið og við þökkum vináttu
og kynni af góðum dreng sendum
við Esther og systrum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Ásgeir Einarsson.