Morgunblaðið - 21.02.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
27
Ráðstefna Varðar um
verðbólgu hefst í dag
I DAG laugardag kl. 9:30 árdegis
hefst að Hótel Loftleiðum, ráð-
stefnusal, ráðstefna Varðar um
verðbólgu.
Ráðstefnan veróur sett kl. 9:30
en því næst flytur Jónas H.
Haralz, bankastjóri, erindi um or-
sakir og afleiðingu verðbólgu og
svarar stuttum fyrirspurnum.
Björn Þórhallsson, viðskiptafr.,
Gunnar J. Friðriksson, iðnrek-
andi, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson,
framkvstj. SH, og Hjörtur Hjart-
arson, stórkaupm., flytja stutt
erindi um áhrif verðbólgu á at-
vinnurekstur og heimili. Kl. 11
Tónleikum Kamrner-
sveitarinnar frestað
TÖNLEIKUM Kammersveitar
Reykjavikur, sem vera áttu i
Menntaskólanum í Hamrahlíð á
morgun klukkan 16 hefur verið
frestað um óákveðinn tíma vegna
þess að skólanum hefur nú verið
lokað af hreinlætisástæðum. Eru
það afleiðingar verkfallsins.
Vegna
popp-sýningar
Af gefnu tilefni og vegna
fjölmargra fyrirspurna vil ég
upplýsa að ekki var leitað til
mín um þátttöku i popplistar-
sýningu þeirri, sem nú stendur
yfir í Listasafni íslands.
Einar Hákonarson.
„Stjörnur
vorsins”
GREININ um bók Tómasar
Guðmundssonar, „Stjörnur vors-
ins“, sem birtist I blaðinu á
fimmtudag er eftir Jóhann
Hjálmarsson en ekki Erlend
Jónsson eins og misritaðist. Eru
þeir beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Germanía sýnir
þýska kvikmynd
FÉLAGIÐ Germania sýnir í dag
kl. 14 eina af hinum frægu þýsku
UFA myndum, sem gerðar voru
skömmu eftir 1930. Myndin
verður sýnd í Nýja Bíói og er heiti
myndarinnar „Ich bei Tag, Du bei
Nacht“ en ieikarar i myndinni
eru Willy Fritsch og Kathe von
Nagy. Einnig verður sýnd ný
mynd frá Berlín.
r
— Afenginu lokað
Framhald af bls. 28
áfengisútsölunum í gærmorgun.
Ölafur sagði, að ákvörðunin
hefði einungis ’verið tekin vegna
hins sérstaka ástands i þjóðfé-
laginu.
Konráó Guðmundsson hótel-
stjóri sagði, að í kvöld hefðu tvö
starfsmannafélög verið búin að
panta mat og borð í Súlnasal.
Sennilega yrði ekki af þvi, þar
sem ekki yrði hægt að veita nein
vínföng með. Hins vegar vissi
hann til að um helgina yrðu tvær
árshátiðir, önnur i Domus Medica
og hin í félagsheimilinu á Sel-
tjarnarnesi, þar sem í raun væri
bannað að hafa áfengi um hönd.
Samkvæmt ákvörðun ráðuneytis-
ins væri allt í lagi að halda þessar
árshátíðir, þar sem þær færu ekki
fram á opinberum vinveitinga-
stað.
„Að sjálfsögðu munum við veit-
ingahúseigendur biðja um skýr-
flytur Jóhannes Nordal, seðl f
bankastjóri, erindi um aðgen
til lausnar verðbólguvandanu
og svarar stuttum fyrirspurnum.
Hávegisverður verður kl. 12:30.
Eftir hádegi starfa umræðu-
hópar en kl. 16:00 hefjast panel-
umræður. Geir Hallgrímsson, for-
sætisráðherra, flytur stuttan inn-
gang og tekur þátt í panel-
umræðum ásamt framsögumönn-
um.
Ráðstefnunni lýkur kl. 18:00.
Ráðstefnustjóri er Magnús
Gunnarsson, viðskiptafr., en
panelstjóri er Bjarni Bragi Jóns-
son, hagfr.
ingu á þessari lokun og um leið
ástæðuna. Við hér á Sögu erum
t.d. með á þriðja hundrað starfs-
menn, sem nú allt i einu hafa lítið
sem ekkert aó gera. Stjórnvöld
sýndu okkur ekki skilning í
þjónaverkfallinu ’73. I raun er
þessi ákvörðun hlægileg," sagði
Konráð.
Nokkrir fréttaritarar Morgun-
blaðsins úti á landi höfðu sam-
band við blaðið í gær og sögðu að
gifurleg óánægja ríkti vegna þess-
arar ákvörðunar. Hér væri verið
að vantreysta fólki. Fréttarit-
arinn á Siglufirði sagði, að þar
hefðu útsölumenn ríkisútsöl-
unnar orðið að flýja að heiman
eftir hádegi, því þeir hefðu ekki
haft frið fyrir fólki, sem ætlaði að
gera sér dagamun um helgina.
Fóru útsölumennirnir á skíði
eftir hádegið.
— Bændur hella
niður mjólk
Framhald af bls. 28
nýta mjólkina. „En það er lik-
lega borin von. Það virðist ekki
hilla undir lausn á verkfallinu
og auk þess hefur hláka komið
siðan ég gróf tunnurnar svo lík-
lega er allt saman ónýtt," sagði
Haukur.
Hann sagði að bændur væru
orðnir langþreyttir á þessum
verkföllum, og þeir virtust
alltaf fara verst út úr þeim.
„Það eru gefnar undanþágurtil
að vinna fiskafla, sem kominn
er á land, en annað er uppi á
teningnum þegar við bændur
eigum i hlut. Ég átti t.d. tveggja
daga birgðir á tönkunum hjá
mér þegar verkfallið byrjaði og
enginn kom að sækja þær. Þá
má geta þess að ekki er nema
rúmt hálf ár síðan við bændur
máttum bíða í margar vikur
eftir áburði vegna verkfalla."
Haukur sagði að lokum, að
bændur hefðu verið hvattir til
að draga sem minnst úr
mjólkurframleiðslunni á vet-
urna svo ekki yrði mjólkur-
skortur. „Ég er einn af þeim
sem orðið hef við þessum
óskum," sagði Haukur, „og sit
nú uppi með það að þurfa að
hella meiri mjólk en annars
hefði verið. Verkföll eru orðin
svo tíð á þessum árstíma að
líklega er bezt að hætta þessu
og leyfa fólkinu að sitja uppi
með mjólkurskortinn."
— Björn Jónsson
Framhald af bls. 28
Almenna kauphækkunin 4% 1.
marz telur nefndin hins vegar
vera allt of lága, svo og láglauna-
uppbótina 1.500 krónur. Þá kvað
Björn Jónsson tilboð vinnuveit-
enda vera gallað að þvi leyti, að
það væri mjög skilyrt og hann
kvað ASI ekki geta fallizt á að
strikað yrði yfir aRar sérkröfur
félaga og landssambanda, end?
væri það ekki I valdi samninga
nefndarinnar, heldur aðildar-
félaganna sjálfra að taka ákvörð-
un um það. Þá kvað Björn gert
ráð fyrir því i tilboði vinnuveit-
enda að kjör iðnnema yrðu ekki
afgreidd. Björn sagði: „Það er
skilyrði frá okkar hálfu, að eng-
inn sé skilinn eftir, þegar upp
verður staóið. Það verður að finna
lausn á kröfum iðnnema eins og
öðrum ágreiningsefnum.
Björn Jónsson, sagði ennfrem-
ur að með tilboði atvinnurekenda
teldi forysta ASI að mjög nærri
væri höggvið starfi ýmissa
nefnda, sem unnið hefðu aé
undanförnu að lausn ýmissr
mála. Nefndi hann sem dæmi
'’eikinda- og slysatrygginga-
:fnd. Kvaðst .hann ekki vilja að
. ■ í starfi yrði kastað fyrir róða.
Með tilboði vinnuveitenda frá i
nótt — sagði Björn, höfum við
hins vegar fengið staðfest nokkur
atriði og teljum við það jákvætt
svo langt sem það nær. Nokkur
bót hefur fengizt i slysatrygginga-
málum og öðrum minni háttar
atriðum. Á hinn bóginn eru i til-
boðinu einnig atriði, sem við
getum ekki fallizt á og atriði, sem
ekki er tekin afstaða til.
Blaðamaður Morgunblaðsins
varð mjög var við það, er hann
ræddi almennt við samninga-
menn, að menn óttuðust að ein-
hver pólitísk kergja væri komin í
gang samningamálanna. Sagt var
að hópar meðal samningamanna
hefðu eigi áhuga á að samn-
ingarnir tækjust á meðan van-
trauststillaga á ríkisstjórnina
hefði ekki verið rædd á Alþingi
en hún verður til umræðu á
mánudagskvöld. Morgunblaðið
spurði Björn Jónsson um þetta
atriði. Hann svaraði: „Mér er
ókunnugt um nokkrar slíkar hug-
renningar i okkar hópi. Á meðal
okkar samningamanna ASl held
ég að ég geti fullyrt, aó fullur vilji
sé á að leysa deiluna og ég held aó
hann sé gagnkvæmur. Mikið verk
er óunnió, unz samningar takast
og ég hef ekki orðið þess var að
vantrauststillagan hafi haft áhrif
á málin, enda tel ég ekki hættu á
siíku, þar sem samningsgerð yrði
ekki lokið á mánudag þótt vel yrði
unnið.“
Að lokum kvaðst Björn vart
geta sagt að hann væri bjartsýnni
en áður. Hann kvaðst líta á tilboð
vinnuveitenda sem nokkra hreyf-
ingu, sem að vísu væri skilyrt.
Skilyrði tillögunnar kvað hann
nánast hafa verkað ögrandi á sitt
fólk og þvi 'væri ekki auðvelt að
dæma stöðuna, hvort menn væru
nær samkomulagi eða ekki.
Þess ber að geta, að þegar
Morgunblaðið ræddi við Björi
höfðu samningsaðilar ekki hit •.
til þess að ræða málin. Lítið mai
vert geróist á samningafundum >
gær, sem hófust klukkan 14. Um
klukkan 19 varð gefið matarhlé til
klukkan 21.30. Dagurinn leið með
því að einstakir hópar ræddusí
við'um sérkröfur og kjaradeila
Flugleiða og flugfreyja, flug-
manna, flugvirkja og flugvél-
stjóra var sérstaklega á dagskrá,
en hún stendur utan við aðal-
kjarasamningana.
I GÆRKVÖLDI hófust einnig við-
ræður milli bókagerðarmanna og
Félags prentiðnaðarins.
— Flugleiðir
Framhald af bls. 2
— að ailar starfsstéttir flugsins,
bæði þær sem í verkfalli eru og
hinar sem lausa samninga hafa og
ekki hafa boðað verkfall, gangi
frá kjarasamningum sínum á
sama tíma og aðrir aðilar hins
íslenzka vinnumarkaðar, f eðli-
legu samræmi við þá heildar-
stefnu, sem mótuð verður í yfir-
standandi kjarasamningum.
Þannig verði félaginu forðað frá
hinni hættulegu þróun kjara- og
samningamála, sem upp kom á s.l.
sumri sem alkunna er.“
— Hlaðmenn
Framhald af bls. 28
aðgerð hlaðmannanna vegna
þorskastríðsins og stjórnmáiaslit-
anna, að því er segir í skeytinu.
Umboðsaðili Flugleiða hyggst
taka upp viðræður við hlaðmenn-
ina vegna þessa, en er ekki
trúaður á að hlaðmönnum verði
þokað frá ákvörðun sinni, en
hyggst þá senda málið áfram til
yfirvalda.
Þessar aðgerðir hafa engin
áhrif þessa stundina vegna
verkfallsins, en hins vegar er ljóst
að þegar flug kemst í eðlilegt
horf, getur ekki orðið af neinu
fragtflugi og að farþegar verðí
sjálfir að bera töskur sina frá og
um borð i vélarnar.
Afhendir líkön
af leikvöllum
JUNIOR Chamber 1 Hveragerði
efnir til almenns borgarafundar
f Hótel Hveragerði f dag laugar-
dag, kl. 14, og er efni fundarins
tengt alþjóðlegu verkefni JC-
hrevfingarinnar, „Maðurinn og
umhverfi hans“. Verða á fundin-
um flutt 6 framsöguerindi um
eftirfarandi málaflokka: Leik-
vallamál, skrúðgarðamál, um-
hverfismál, atvinnumál, menn-
ingar- og siðferðilegt umhverfi
barna og unglinga og heilbrigðis-
mál.
Á fundinum afhendir Byggða-
málanefnd JC-Hveragerði
Hreppsnefnd Hveragerðis líkön
af tveimur leikvöllum, sem fyrir-
hugaðir eru samkvæmt skipulagi
hver í sínum hluta þorpsins.
— Mexíkó
Framhald af bls. 1
utanrfkisráðuneytið gæti
gert við Mexfkóstjórn og
önnur ríki, sem hafa lýst
yfir 200 mflna fiskveiði-
lögsögu.
Þingið f Mexíkó sam-
þykkti sem kunnugt er
fyrir áramót að færa fisk-
veiðilögsögu landsins út f
200 mflur þar sem mjög
nærri væri gengið fisk-
stofnum á hinum auðugu
miðum landsins.
— Væri nær
Framhald af bls. 1
hótunina um úrsögn úr NATO og
hvort það muni hafa áhrif á
Keflavíkurstöðina, segir frétta-
ritarinn.
A það ^r bent af hálfu NATO að
í miklum umræðum Atlantshafs-
ráðsins á undanförnum vikum
hafi aðild Islands ekki verið til
umræðu, segir fréttaritarinn að
lokum.
ERFIÐLEIKAR
Á það er bent af hálfu NATO að
íslenzka ríkisstjórnin standi and-
spænis veruiegum pólitískum
vandamálum, meðal annars vegna
verkfallanna, aó því -er segir í
Reuters-fréttum frá BrUssel.
Þess vegna er ekki talið tíma-
bært að NATO beiti áhrifum sín-
um gagnvart Islendingum þannig
að lausn finnist á fiskveiðideil-
unni.
Á það er lögð áherzla að starf-
semi varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli sé með eðlilegum hætti.
Á það er einnig bent að íslend-
ingar haldi áfram störfum sinum
innan NATO þrátt fyrir stjórn-
málaslitin.
NORÐMENN FÚSIR
Norðmenn eru reiðubúnir að
gegna hlutverki milligöngumanns
f deilu Breta og Islendinga ef
báðir aðilar fara þess á leit sagði
Knut Frydenlund utanríkisráð-
herra á blaðamannafundi í dag.
En Frydenlund kvaðst telja að
Islendingar vildu heldur að lausn
fyndist á deilunni innan Atlants-
hafsbándalagsins en fyrir milli-
göngu Norðmanna.
Hann kvaðst einnig telja að
Bretar teldu Norðmenn ekki
algerlega hlutlausa i deilunni
vegna þess að þeir hefðu „stöðugt
hamrað á því að Bretar yrðu að
kalla freigátur sinar út fyrir 200
mílurnar."
Frydenlund skýrði frá því að
hann hefði frestað fyrirhugaðri
ferð til Svalbarða um helgina svo
að hann yrði við höndina ef hann
þyrfti aó miðia málum.
„VILJA MÁLAMIÐLUN“
Seinna vildi talsmaóur brezka
utanríkisráðuneytisins ekki svara
beint spurningu um afstöðu Breta
til yfirlýsingar Frydenlunds er
sagði að Bretar mundu fagna
hvers konar ráðstöfunum banda-
manns i NATO er gætu leitt til
raunverulegra samningavið-
ræðna.
Hins vegar kvað talsmaðurinn
alls ekkert benda til þess að Is-
lendingar væru reiðubúnir til
slikra viðræðna. Hann benti á
árangurslausar tilraunir dr. Josef
Luns og sagði að Bretar hefðu
nokkrum sinnum fallizt á milli-
göngu í málinu en Islendingar
hefðu vísað sliku á bug.
ÖTTAST AHRIF
Forseti Evrópuþingsins,
jafnaðarmaðurinn Karl Czernetz
frá Austurriki, lét I ljós alvarleg-
an ugg vegna þess að deila Islend-
inga og Breta hefði harðnað.
Hann kvaðst óttast að slit stjórn-
málasambands þjóðanna gæti
„þar með stofnað samstarfi
Evrópuþjóða i alvarlega hættu.“
Czernetz skoraði á Islendinga
og Breta að halda áfram viðræð-
um og vinna að lausn sem báðir
gætu við unað. Hann taldi að
Evrópuþingið gæti orðið góður
umræðu vettvangur, ekki sízt
stjórnmálanefnd þess og land-
búnaðar- og fiskveiðinefndin.
— Frjálsar hendur
Framhald af bls. 3
að brezka freigátan Yarmouth F-
101 setti skyndilega á fulla ferð
og stefndi á Tý miðskips. Guð-
mundur Kjærnested skipherra
setti vélar Týs á fulla ferð áfram
og gat með naumindum forðað
árekstri. Fréttamaðurinn Uli
Schmetzer, sem er um borð i Tý
sendi nákvæma frétt um atburð-
inn og var það ekki neinn vafi i
hans huga hvað freigátan ætlaðist
fyrir. I fréttinni hefur Schmetzer
það eftir Guómundi skipherra, að
þetta hafi verið mjög gróf ásigl-
ingartilraun og ef freigátan hefði
rekist á Tý hefði hún gert varð-
skipið ósjófært.
Á þriðja timanum I fyrrinótt
komst varðskipið Þór að brezka
togaranum Ross Leonis H-322 og
gat klippt á báða togvíra hans.
Gerðist þetta 25 milur suð-austur
af Hvalbak. Gerði togarinn tvær
ásiglingartilraunir á varðskipið
eftir klippinguna en þær mistók-
ust. Skipherra á Þór er Þorvaidur
Axelsson.
— Námskeið
Framhald af bls. 5
rænar, félagslegar og lifeðlislegar
leiðir til lausnar sálrænna vanda-
mála og til stjórnar vitundarinnar
verði hagnýttar í langtum meiri
mæli en nú tíðkast.
Námskeiðið sem lýst var hér að
framan er þannig í tengslum við
útkomu þessarar skýrslu.
— Borun
Framhald af bls. 5
eru á að nú í sumar verði tilbúnar
6 íbúðir í fjölbýlishúsi. Patreks-
hreppur hefur gengist fyrir þess-
ari byggingu, sem er byggð sam-
kvæmt reglugerð um byggingu
1000 leiguíbúða á landsbyggðinni,
en í byggingaráætlun þessari
munu eiga að koma 20 íbúðir í
hlut Patreksfjarðar.
Borað eftir heitu vatni
Nýlokið er reynsluborun Orku-
stofnunar rikisins samkvæmt
áætlun um leit að heitu vatni.
Borað var á svokölluðu Drengja-
holti, fast vió bæinn, og var borað
niður á 397 metra dýpi. Fengust
þar 2Ví—3 sekúndulitrar af 29
gráða heitu vatni. Er þetta talið
lofa góðu og likur taldar á að
nægilegt heitt vatn fáist ef borað
er niður í 1000—1200 metra. Bor-
menn luku starfi sínu hér í fyrra-
dag og var borinn þá fluttur inn i
Vatnsfjörð á Barðaströnd að Hót-
el Flókalundi, en þar gengst Gest-
ur hf. fyrir ieit að heitu vatni.
Rétt við hótelió i Flókalundi eru 3
volgrur með 26—28 gráðu heitu
vatni. Það mundi gerbreyta allri
aðstöðu í Vatnsfirði ef þar fengist
nægt heitt vatn. Er Vatnsfjörður-
inn mikið sóttur á sumrin af fólki
á öllum Vestfjörðum. Til dæmis
eru Petreksfirðingar þar með
9—10 hjólhýsi yfir sumarið og
Alþýðusamband Vestfjarða er
með hugmyndir um að koma þar
upp aðstöðu til orlofsdvalar fyrir
meðlimi sína. I Vatnsfirði er mjög
sumarfallegt og gróðursælt og
mikil veðursæld. Ef heitt vatn
finnst er mikill áhugi fyrir því að
koma upp sundlaug f svonefndum
Sýslumannshvammi.
—Páll.