Morgunblaðið - 21.02.1976, Síða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
IHorgunlilatito
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Ittorganblitbid
LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
Líkur á undan-
þágu fyrir mjólk
MIKLAR lfkur voru taldar á þvl í gærkvöldi, að undanþága fengist
fyrir takmarkaðri mjðlkursölu á höfuðborgarsvæðinu. Er talið að hægt
verði að selja 16—18 þúsund lftra á dag en það er það magn, sem
kemur úr nærsveitum Reykjavfkur.
Fundur borgarlæknis, forráða-
manna Mjólkursamsölunnar,
mjólkurfræðinga og fulltrúa úr
undanþágunefnd ASI hófst á Hót
el Loftleiðum um klukkan 22.30 i
gærkvöldi. Fyrir fundinn sagði
Skúli Johnsen borgarlæknir í
samtali við Mbl. að reynt yrði að
skipuleggja á fundinum hvernig
hægt yrði að koma þessum málum
fyrir. Sér skildist á mjólkurfræð-
ingum, fulltrúum ASB og undan-
þágunefnd ASl að ekkert væri til
fyrirstöðu af þeirra hálfu að
koma á skömmtun. Magnið gæti
ekki orðið mikið, þvf útilokað virt-
ist að opna mjólkurbú Flóamanna
á Selfossi eða mjólkurbúið i Borg-
arnesi.
Þá náði Morgunblaðið tali af
Stefáni Björnssyni, forstjóra
Mjólkursamsölunnar. Hann sagði
að Mjólksamsölumenn hefðu ver-
ið hart leiknir í þessum leik með
því að gera þeim upp skoðanir
sem þeir hefðu aldrei haft. En
þegar borgarlæknir hefði komið
að máli við þá hefðu þeir ákveðið
að gera allt til þess að leysa þetta
mál. „Við- gefum kost á þvf að
veita þá undanþágu, sem farið er
fram á. Að mínu mati er þetta
óframkvæmanlegt en reynslan
verður samt að skera úr um það.“
Áfenginu lokað
vegna ástandsins'
„ÉG veit ekki á hvaða forsendum
dómsmálaráðuneytið hefur látið
loka áfengisverzlunum og vínveit-
ingum á vinveitingastöðum. Ef
lokun er gerð á þeim grundvelli,
að þeir sem nú eru í verkfalli
gerist einum of djarftækir í
kaupum á veigum bæði f Á.T.V.R.
og á vínveitingastöðum, þá er ég
hræddur um að grundvöllurinn
fvrir hærra kaupi sé farinn að
riðlast. Og hvernig verður
ástandið þá eftir verkfall, þegar
fólk verður búið að fá kauphækk-
anir og um leið rýmri fjárráð til
áfengiskaupa," sagði Konráð Guð-
mundsson hótelstjóri á Sögu, er
Fundur með
sjómönnum
og útvegs-
mönnum
FUNDUR í kjaradeilu útvegs-
manna og sjómanna hófst í húsa-
kynnum sáttasemjara ríkisins í
gær klukkan 17. Fundarhlé var
gefið í gærkveldi og áttu aðilar að
hittast aftur klukkan 22. Aðilar
vörðust allra frétta af viðræðum.
Morgunblaðið spurði hann í gær
hvernig augum veitingahúseig-
endur litu á þá ákvörðun dóms-
málaráðunevtisins að loka
áfengisútsölum og banna vínsölu
á veitingastöðum.
Dómsmálaráðuneytið sendi
eftirfarandi til lögreglustjóra í
gær: „Ráðuneytið hefur ákveðið
með vísun til 6. greinar reglugerð-
ar um sölu og veitingar áfengis
nr. 118 1954 og 14. gr. áfengislaga
nr. 82 1969 að áfengisútsölum
skuli lokað frá hádegi í dag að
telja. Jafnframt hefur ráðuneytið
ákveðið, að bannaðar skuli vin-
veitingar á vínveitingastöðum,
sem leyfi hafa til vínveitinga. Þó
skal heimilt að láta fara fram
einkasamkvæmi, sem heimild
hefur verið gefin fyrir. Ákvörðun
þessi er tekin vegna þess sérstaka
ástands er nú ríkir og gildir þar
til annað verður ákveðið. Er yður
herra lögreglustjóri hér með falið
að annast framkvæmd þessa.“
Morgunblaðið spurði Ólaf W.
Stefánsson, deildarstjóra í dóms-
málaráðuneytinu, í gær, hver
væri höfuðástæðan fyrir lokun-
inni, þar sem lögreglan segðist
hafa átt mjög náðuga daga að
undanförnu, eða hvort óvenju-
lega mikil sala hefði verið í
Framhald á bls. 27
FOK OG FLÓÐ — Mikið rok var um allt land í gær
og fór vindhraðinn víða í 10 stig og þar yfir. Nokkuð
bar á því að þakplötur fykju svo og mótauppsláttur.
Mikið regn fylgdi rokinu þannig að vatnselgur var
víða töluverður. Myndirnar voru teknar í Reykjavík
í gær.
5% hækkun
á þorskblokk
á Bandaríkja-
markaði
NVLEGA hækkaði þorskblökkin
á Bandarfkjamarkaði um 5%, eða
úr 62 sentum pundið í 65 sent. Að
sögn Eyjólfs Isfelds hjá SH hefur
ekkert verið selt á þvf verði
ennþá, en næsti farmur sem
héðan fer verður á þessu verði.
Sigurður Markússon hjá StS
sagði að næsta afskipun þar yrði
ekki fyrr en í marz og væri ekki
hægt að segja á hvaða verði sá
farmur seldist. Það yrði kannski
þetta verð, 65 sent og kannski
hærra verð.
Markaðurinn hefur verið
heldur á uppleið í Banda-
ríkjunum á undanförnum
mánuðum, og þorskblokkinni
hefur verið afskipað svo til jafn-
óðum vegna góðrar sölu. Hvorki
Eyjólfur né Sigurður vildu spá
um framþróun markaðsmálanna
vestra en sögðu að margt benti til
þess að markaðurinn þar væri
stöðugt að styrkjast.
Hlaðmenn á
Heathrow
setja bann á
Flugleiðir
FLUGLEIÐUM barst f gær skeyti
frá umboðsaðila sfnum á
Heathrow-flugvelli, British Air-
ways, þar sem tilkynnt er að hlað-
menn B.A. á Heathrow hafi
ákveðið að stöðva alla afgreiðslu á
fragt og farþegafarangri um borð
f vélar Flugleiða á flugvellinum f
7 daga eða frá 21. febrúar að
telja.
Er þarna um að ræða mótmæla-
Framhald á bls. 27
Bjöm Jónsson í samtali við Mbl. um tilboð viimuveitenda:
Jákvætt svo langt sem
það
„ ASI samþykkir tvær áfangahækkanir,
en ágreiningur er um fyrstu
kauphækkunina og sitthvað fleira
FORYSTA Alþvðusambands Is-
lands svaraðf f fyrrinótt tilboði
vinnuveitenda, sem þeir lögðu
fram rétt fyrir miðnætti og byggt
var á sáttatillögu sáttanefndar
rfkisins, eins og getið var f Mbl.
Bændur hella niður mjólk fyrir 12 millj. kr. á dag:
r
„Oskaplegt að hella
svona niður mjólkinni
— segir stærsti kúabóndi landsins við Morgunblaðið
AÐ SÖGN Agnars Guðnasonar
hjá Búnaðarfélaginu er
ástandið orðið slfkt hjá all-
flestum bændum, að þeir eru
byrjaðir að hella niður mjólk
vegna verkfallsins. Dagsfram-
leiðslan á mjólk er nú um 215
þúsund lítrar og nemur tap
bænda f heild um 12 milljónum
kr. á dag.
„Það er óskaplegt að þurfa að
hella svona niður mjólkinnf,“
sagði Haukur Halldórsson
bóndi í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd við Morgun-
blaðið i gær, en hann er stærsti
kúabóndi landsins. „Ég er með
milli 80 og 90 mjólkandi kýr og
dagsframleiðslan hjá mér er
900 til 1000 lítrar. Ef ég þarf að
hella því öllu niður þýðir það 50
þúsund króna tap á degi hverj-
um. Og við bændur stöndum
verr í verkfalli en aðrir af því
leyti að við töpum ekki bara
tekjum heldur verðum við að
halda kúnum á fullri gjöf og get
ég sem dæmi tekið, að bara
kjarnfóðrið kostar 10 þúsund á
dag og er það bara einn
iiðurinn."
Haukur sagði að hann hefði
gripið til þess ráðs að tína til öll
þ^iu ílát sem tiltæk voru. Til
dæmis keypti hann 10 tvö-
hundruð lítratunnur, fyllti þær
af mjólk og gróf út i skafli í von
um að verkfallið leystist nógu
snemma til að hægt væri að
Framhald á bls. 27
í gær. ASt hafnaði tilboðinu, taldi
aðalkauphækkunina, 4% of lága,
svo og láglaunauppbótina. Hins
vegar samþykkti ASl áfanga-
hækkanir tvær og lét f ljós þá
skoðun á þvf að setja þyrfti tvö
rauð strik, um mitt ár og næsta
haust. Þá telur forysta ASI samn-
ingstfmann of langan og ekki
koma til greina að semja nema til
áramóta.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Björn Jónsson, forseta ASI. Hann
sagði, að samninganefnd ASI
hefði þegar svarað tilboði at-
vinnurekenda og hefði nefndin
vísað til aðalsvara sinna við hug-
myndum sáttanefndarinnar, enda
kvað hann beint samhengi vera
milli tillagnanna. „Við teljum
samningstímann í tilboði vinnu-
veitenda allt of langan,“ semja
nema til næstu áramóta. Á þeim
tíma þurfum við að fá tvö kaup-
máttaruppgjör, svokölluð rauð
strik, hið fyrra um mitt ár, en hið
síðara í haust.“
Björn kvað samninganefnd
ASI geta sætt sig við tvær áfanga-
hækkanir, sem tilgreindar væru i
tilboði atvinnurekenda, 5% hinn
1. júlí og 4% hinn 1. október.
Framhald á bls. 27