Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976
Einar Gíslason forstöðumaður Fíladelflusafnaðarins og Stig Anthin.
Um Japan, Hong Kong og
Thailand til Islands
f BOÐI Filadelflusafnaðarins á fs-
landi er nú staddur sænski verkfræð-
ingurinn Stig Anthin. Hefur hann
starfað sem kristniboði vlða um
heim I meira en áratug. Þetta er
önnur heimsókn hans til fslands en I
fyrra skiptið sem hann var hér á
landi heimsótti hann Vestmanna-
eyjar, Sauðárkrók og Akureyri.
Heldur Stig fyrirlestra tvisvar á dag
sem hlotið hafa góðar undirtektir.
Morgunblaðið ræddi stuttlega við
Stig um starf hans og komuna til
íslands
— Vinnuveitandi minn er hvíta-
sunnusöfnuðurinn Smyrna í Gauta-
borg sem hefur yfir fjögur þúsund
meðlimi. I fyrstu var ég fastur trúboði i
ákveðnu landi en nú er ég ferðatrúboði
sem þýðir að ég á heimili mitt i Svíþjóð
og svo ferðast ég um á mismunandi
kristniboðsökrum Þar heimsæki ég
sérstaklega biblíuskóla, en starfið er
svo til eingöngu í fyrirlestraformi
— Á slðastliðnu ári fór ég til
Japans, þaðan til Hong-Kong, siðan til
Singapore, þaðan til Thailands og
endaði I Shri Lanka
— Hér á fslandi mun ég dveljast í
einn mánuð í boði Fíladelfíusafnaðar-
ins en halda slðan til Þýzkalands og
Grikklands
— Öll veröldin er okkar vinnusvæði
— Helzta hlutverk okkar er að veita
menntun innlendum starfskröftum en
starfið fer annars mikið fram á sviði
hins ritaða máls og útvarps.
— Ég hef mjög mikið álit á starfsemi
Fíladelfíusafnaðarins hér Fyrst og
fremst eiga þeir mjög vandað guðþjón-
ustuhús og bókaútgáfa þeirra er ris-
mikil.
— Það er einnig gaman að komast í
kynni við það tungumál sem Ansgar,
trúboði Norðurlanda, talaði þegar hann
kom til Svíþjóðar árið 832.
— Þá hafið þið hér á íslandi eitt sem
er sérstaklega gott en það er hið góða
loft og hreina vatn sem ég met mikils
og þess vegna umber ég rokið!
— Ég fer í laugarnar á hverjum degi
og er alveg einstakt að geta sótt svo
góðan stað
— Merkilegast þótti mér þó að
borða svið, bæði augu og eyru.
Einar Gíslason, forstöðumaður Fíla-
delfíusafnaðarins, taldi það mikinn
feng að fá Stig Anthin til landsins þar
sem hann væri framúrskarandi ræðu-
maður.
„Maðurinn okkar í London”
Var lengi
sendiherra
í Moskvu
SENDIHERRA Noregs f Bret-
landi, Frithjof Halfdan
Jacobsen, sem nú mun gæta
hagsmuna Islands I Bretlandi
eftir stjórnmálaslitin, tók við
starfi sfnu I London í fvrra.
Jacobsen er fæddur 1914 og
stundaði nám i Öslóarháskóla
og London School of
Economics. Hann hefur verið
starfandi í norsku utanríkis-
þjónustunni síðan 1938.
Hann starfaði í París,
Moskvu og London unz hann
varð yfirmaður stjórnmála-
deildar norska utanríkisráðu-
neytisins 1955. Því starfi
gegndi hann til 1959.
A árunum 1959 til 1961 var
Jacobcen sendiherra í Kanada.
Hann var sendiherra í Sovét-
ríkjunum 1961 til 1966.
Jacobsen tók við starfi
aðstoðarutanrikisráðherra
1966 og gegndi þvi í fjögur ár.
Þá tók hann aftur við sendi-
herrastarfinu í Moskvu og
gegndi því þar tii hann var
skipaður sendiherra í London
1975.
r _ __
Olafur B. Thors um stórmarkað
KRON á hafnarsvæðinu:
w
„Opólitísk stefnu-
markandi ákvörðun”
KRON fær lóð í
nýja miðbænum
VEGNA blaðaskrifa undan-
farna daga, um að borgarvfir-
völd hafi með þeirri ákvörðun
sinni að leyfa ekki rekstur stór-
markaðs KRON í húsnæði SlS
við Sundahöfn, komið f veg
fyrir, að hægt verði að lækka
stórlega vöruverð, og að þessi
ákvörðun eigi sér annarlegar
ástæður, sneri Morgunblaðið
sér til Ölafs B. Thors, formanns
hafnarstjórnar, og bað hann að
skýra frá þvf hvað lægi að baki
þessari ákvörðun. Ölafur sagði:
— Ég vísa þeirri staðhæf-
ingu, að hér sé um að ræða
pólitiska afstöðu, algjörlega
heim til föðurhúsanna, því að
af tali minnihlutamanna í
borgarstjórn má einmitt skilja,
að afstaða þeirra sé umfram
allt pólitísk. Sú afstaða, sem
hafnarstjórn og siðar borgar-
stjórn tók í málinu, stafar ein-
göngu af þvi, að á hafnarsvæð-
inu er ekki gert ráð fyrir ann-
arri starfsemi en þeirri, sem
beinlinis tengist eðlilegum at-
höfnum á hafnarsvæði. Höfnin
hefur yfir takmörkuðu land-
svæði að ráða og eftirspurn
eftir aðstöðu vegna hafnar-
starfsemi er mjög mikil. Þvi
væri óhyggilegt að þrengja að
slikri starfsemi með þvi að
leyfa þar aðra óskylda. Þegar
SÍS fékk lóðina á sínum tíma
var það að sjálfsögðu fullkom-
lega eðlileg og sjálfsögð ráðstöf-
un með tilliti til þeirrar starf-
Ölafur B. Thors
semi, sem þar átti að fara fram,
en hins vegar gegnir allt öðru
máli um smásöluverzlun. Aðrir
aðilar, Eimskip og fleiri, hafa
fengið þarna lóðir, en væri SlS
leyft að framleigja aðstöðu sina
á þessum stað til annarra nota
en ráð var fyrir gert i upphafi,
er líklegt að fleiri kæmu á eftir.
Slíkt mundi hafnarstjórn aldrei
fallast á.
—Hefur KRON sótt um lóð
fyrir verzlunarrekstur i
Reykjavik?
— Já, og KRON fær ióð í
fyrsta áfanga nýja miðbæjar-
ins. Sá áfangi verður líklega
byggingarhæfur þegar á þessu
ári. Þess vegna m.a. er athyglis-
vert hve mikla áherzlu KRON
virðist leggja á það að fá leyfi
til að reka stórmarkað á hafnar-
svæðinu. Því er haldið fram, að
með þvi að hafa stórmarkað í
beinum tengslúm við vöru-
geymslur og uppskipun megi
takast að lækka vöruverðið til
almennings verulega. Það er
þvi ekki úr vegi að spyrja hvort
KRON muni þá hækka vöru-
verð um það sem slíkri verð-
lækkun nemur þegar það flytur
verzlunina, en aðeins hefur
verið sótt um að verzlunar-
rekstur þessi verði á hafnar-
svæðinu til bráðabirgða.
— Þvi er lika borið við, að
SlS þurfi ekki á öllu því hús-
næði, sem nú er í byggingu, að
halda i einu, og þurfi þvi að
nýta það með einhverjum
öðrum hætti. En eins og ég
sagði áðan er ásókn í aðstöðuna
á þessum stað svo mikil af þeim
aðilum, sem eru með atvinnu-
rekstur beinlinis tengdan höfn-
inni, að SlS ætti ekki að verða
skotaskuld úr þvi að fá leigj-
anda, sem uppfyllir sett skil-
yrði.
— Það er ástæðatil að leggja
áherzlu á, að þessi ákvörðun er
stefnumarkandi. Önnur starf-
semi en sú, sem beinlínis teng-
ist höfninni, verður ekki leyfð á
hafnarsvæðinu, hver sem í hlut
á, sagði Olafur B. Thors að
lokum.
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur
I FRÉTT okkar I gær um starf-
semi Krabbameinsfélags Reykja-
vfkur féllu síðustu Ifnurnar
niður. Niðurlag fréttarinnar átti
að vera svohljóðandi:
Stjórnina skipa nú, auk Gunn-
laugs: Frú Alda Halldórsdóttir,
hjúkr.fr. — Baldvin Tryggvason,
framkv.stj. — Guðmundur S.
Jónsson, dósent — Jón Oddgeir
Jónsson fv. framkv.stj. — Páll
Gislason, yfirl. — Tómas A.
Jónasson læknir.
Fundarstjóri var Helgi Elíasson
fv. fræðslumálastj Voru honum i
lok fundarins færð blóm í þakk-
lætisskyni fyrir 10 ára fundar-
stjórn á aðalfundum, svo og þeim
Gunnl. Snædal fyrir 10 ára for-
mennsku og Jón Oddgeiri Jóns-
syni fyrir langan starfsferil.
Níels afhenti
Scheel embættis-
skilríki
NlELS P. Sigurðsson afhenti í
fyrradag, föstudaginn 20. feb.
1976, hr. Walter Scheel forseta
Sambandslýðveldisins Þýska-
lands embættisskilriki, sem sendi-
herra Islands í Bonn.
Ferðaalmanak
wnaK
(Jtsýnar § Ö
FERÐAÞJÓNUSTAN
VIÐURKENNDA:
Costa del Sol
Lignano
Costa Brava
APRÍL
MAÍ
JÚNÍ
JÚLÍ
ÁGÚST
SEPTEMBER
OKTÓBER
14.
2. 23.
6. 20.
4. 18. 25.
1.8. 15. 22. 29
5. 12. 19. 26.
MAÍ
JÚNÍ
JÚLÍ
ÁGÚST
SEPTEMBER
10.
19.
2. 23.
7. 21.
4. 1 1. 18. 25.
MAÍ
JÚNÍ
JÚLÍ
ÁGÚST
SEPTEMBER
1.8.
13.28.
18.
2. 16. 30.
13. 20. 27.
3. 10.
Allir farseðlar innanlands og utan
☆
Tjæreborgarferðir — einkaumboð
☆
American Express — einkaumboð
&
Ráðstefnur heima og erlendis
☆
Skipulagðar ferðir fyrir einstaklinga
og hópa hvenær sem er
og hvert sem er
Pantið réttu ferðina tímanlega
AUSTURSTRÆTI 17.SÍMI 26611
Útsýnarferð — ódýr
en 1. flokks