Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 7

Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976 7 Komdu inn á islenzkt al- þýðuheimili, og komdu inn á hliðstætt heimili í öðru landi, heimili þar sem ekki býr langskólagengið fólk. Þú munt veita því athygli, að þar er sérstaklega eitt atriði, sem á milli greinir og sýnir sér- stöðu íslenzka alþýðuheimil- isins. Þetta atriði er bóka- skápurinn. Hann geymir ákaflega oft íslendingasögur- nar og fleira góðra bóka inn- lendra og erlendra. Þetta greinir okkur í sérstakan flokk meðal menningarþjóða heims. Við erum bókmennta- þjóð. Ef við skoðum svo nánar í bókaskápa íslenskra alþýðu- heimila, þá getum við verið nærri viss um að mikill meiri hluti þeirra geymir bók bók- anna, Bibliuna — Ég hef skoðað þá marga, þessa skápa, og það er mér gleði- efni, hve víða kjölur hennar blasir við. En þó er þar ekki allt sem skyldi. Kjölurinn er yfirleitt of fallegur. Hann hef- ur ekki náð að lýjast við not- kun harðra handa íslenska alþýðumannsins. Biblían hans er miklu frekar orðin stássgripur bókasafnsins, sá stimpill, sem vottar, að hér er ekki aðeins bókmenntalega sinnað menningarheimili, heldur einnig kristið heimili, sem vill lúta þeirri leiðsögn, sem hin mikla bók geymir. En er þessi stimpill þá nokkurs virði, sé bókin sjald- an opnuð, heldur látin ryk- falla f skápnum? Ekki má vanþakka þá vilja- yfirlýsingu, sem felst í því, að Biblían á sitt heiðurssæti í bókaskáp heimilisins. Eig- andi hennar er Ifka að mörgu leyti kunnugurefni hennaraf Biblfusögunum, er hann lærði sem barn, og af þvf sem hann kann að hafa til- einkað sér á kirkjugöngu sinni eða af þvf, sem til hans hefur verið talað i útvarps- messum, helgistundum sjón- varpsins og kirkjudálkum blaðanna. Á ýmsan annan hátt kann líka margur fróð- leikur af síðum hennar að hafa náð eyrum hans. Hann veit því vel, hvað hann gerir, þegar hann kaupir Biblfu og stingur henni í skápinn sinn sem merki þess, að heimilið hans sé og éigi að vera kristið heimili. Hann veit, að hann er að helga það hæstu og göfugustu hugsjónum mann- Iffsins, hann er að tengja það Guði og áhrifum frá honum. En fallegi kjölurinn? Ég veit, ég má ekki áfellast hann um of. Biblían í bókaskápn- um er oftast f stóru broti og er því ekki hentug til einka- lesturs. Vasaútgáfan er þar miklu handhægari og ekki sist Nýja testamentið með stóra letrinu, sem Hið ís- lenska Biblíufélag gaf út fyrir nokkrum árum. Auk þess eru svo litlu testamentin, sem Gí- Bók bókanna deonsfélagið, alþjóðasamtök kristinna verslunarmanna, gefa nú hverju 1 1 ára varni á íslandi. Margur, sem á í skápnum sinum stóra, fall- ega bók, á líka á náttborðinu sinu litla, lúna bók, sem er daglegur förunautur hans á lífsveginum. Það er hlutverk Biblíunnar. Hún þarf að vera þér daglegt Ijós. Það, sem þú lærðir um trúmál sem barn, var flutt til þín f umbúðum við barna hæfi. Það væri því illa farið, ef við það væri látið sitja. Trúarlegur þroski þinn mundi bera því glöggt vitni, þótt þú fyndir það ekki sjálfur, að barnslegar hugmyndir hefðu staðnað í sál þinni. En til þess að svo verði ekki, þurfa menn að hugleiða og ræða trúmál hlustandi á rödd hinn ar helgu bókar eftir þeim leiðum, sem hér hafa verið nefndar, en ekki síður af sjálfsnámi i bók trúarinnar sjálfri milliliðalaust. Þess vegna er ég vanur að ráð- leggja fermingarbörnum mfnum að hafa litla testa- mentið sitt liggjandi á nátt- borðinu og lesa i því, þótt ekki sé nema fáein vers á kvöldi hverju. „Hvað ungur nemur, gamall temur," og getur orðið mikill styrkur fyrir manninn i hinum ólíklegustu kringumstæðum. Fátt er betra, þegar erfiðleikar sækja að í lífinu, en að gripa til tveggja handhægra hluta, sem eru vfgðir reynslu kyn- slóðanna. Þeir eru Bókin og bænin. Bók bókanna og einlæg bæn geta gert þér mikið gott og f sumum tilfellum betra en læknislyf þau, sem oft eru ráðlögð, þegar þér virðist of dimmt eða of bratt fram und- an. Dagurinn í dag, 2. sunnu- dagur í 9 vikna föstu, er hinn árlegi Biblíudagur. Hann á að minna á starf Hins ís- lenska Bibliufélags. Með út- breiðslu Guðs orðs vill það efla bæn og trú okkar á með- al. Ef þú vilt styðja slíka starfsemi og gera þína eigin þjóð andlega sterkari, þá læt- ur þú þetta málefni þig ein- hverju skipta. Þú veist, að i dag er safnað fé i kirkjum landsins, já, fé og félögum til að efla útbreiðslu þess orðs, sem hefur verið lampi fóta okkar og Ijós á vegum okkar. Já, það er því að þakka, að íslensk þjóð lifir. Ef þú vilt efla framtíð hennar með því, sem best reyndist f fortíðinni, þá legg- ur þú hönd á plóginn f dag með einhverjum hætti, e.t.v. með þvf að koma i kirkju og taka þátt í bæn og beinum stuðningi safnaðarins. Erindi um sænskar kvik- myndir í Norræna húsinu. VILGOT SJÖMAN kvikmyndaleikstjóri og HARRY SCHEIN forstöðumaður sænsku kvik- myndastofnunarinnar halda erindi í Norræna húsinu MÁNUDAGINN 23. FEBRÚAR KL. 1 7:30. Þar talar Vilgot Sjöman um kvikmyndir sínar og Harry Schein ræðir. sænska kvik- myndagerð. Umræðurað erindum loknum. íslensk-sænska félagið Allir velkomnir. Norræna húsið NORRTNA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS lcefood ISLENZK MATVÆLI Hvaleyrarbraut 4—6, HafnarfirSi. Eigum fyrirliggjandi: c .0 REYKTAN LAX GRAVLAX REYKTA SÍLD REYKTA ÝSU REYKTAN LUNDA HÖRPUFISK Tökum lax í reykingu og útbúum gravlax. Kaupum einnig frosinn lax til reykingar. Sendum í póstkröfu VAKÚM PAKKAÐ EF ÓSKAÐ ER. íslenzk matvæli Sími 51455 lítnynair ÞAÐ SÉR ENGIN BÖRNIN SÍN BARA í SVÖRTU OG HVÍTU GEYMIÐ ÞVÍ MINNINGARNAR UM BERNSKU BARNANNA Á LITMYND barna&fjölskyldu- Ijósmyndir m\ ^ ÁU5TURSTRT Tl 6 SIMI12644 sérgrein barnaljósmyndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.