Morgunblaðið - 22.02.1976, Blaðsíða 10
ÞAÐ var eins og öll Vestur-Evrópa væri að fara á skíði eins og
venjulega á þessum árstíma að áliti útlendingaeftirlitsins Dög-
um saman hafði fólk streymt til Austurríkis til að dveljast við
íþróttaiðkanir þá löngu jólahelgi sem nú fór í hönd Við sumar
landamæraeftirlitsstöðvarnar voru biðraðirnar svo langar að
eftirlitsmönnunum þótti óvmnandi vegur að athuga skilríki hvers
og eins, heldur leyfðu bílunum að aka í gegn hindrunarlaust
Sömu sögu var að segja á járnbrautarstöðvunum og jafnvel á
flugvellinum í Vínarborg var eftirlitið slælegt Blaðamaður frá
íran var hálfergilegur yfir því að hafa eytt tima og fyrirhöfn í að
útvega sér vegabréfsáritun, sem enginn hirti svo um að athuga
MEÐAL þeirra þúsunda, sem fóru framhjá útlendingaeftirlit-
inu var 26 ára gamall maður frá Venezuela, llich Ramirez
Carlos. Eitt sinn hafði hann stundað kennslu í við-
skiptaspænsku í einkaritaraskóla í Mayfair og gert sér far
um að manga til við nemendur sína án þess að
hafa erindi sem erfiði. Það var áður en hann fór að skjóta
á enska Gyðinga, varpa sprengjum á veitingahús í París,
kasta eldvörpum að flugvélum og drepa franska
leyniþjónustumenn. Brezku blöðin voru farin að kalla
hann Sjakalann eftir hrollvekju Freddy Forsyth, og sennilega
kann hann þeirri nafngift mæta vel
Hann og fimm vinir hans komu til Austurrikis um svipað leyti
Það hefði þurft heila rannsóknarstofu til að finna eitthvað
athugavert við skilríki þeirra Og Austurriki er heldur ekkert
lögregluriki eins og Bruno Kreisky kanslari sagði siðar við
iranska blaðamanninn, sem fyrr um ræðir Erindi hans til
Austurrikis var að fylgjast með fréttum af ráðstefnu Samtaka
oliuútflutningslandanna OPEC, sem haldin er á tveggja ára
fresti í aðalstöðvum samtakanna í Dr. Karl Lúger byggingunni
andspænis gömlu háskólabyggmunni Dvöl hans varð allnokkuð
lengri en hann hafði qert ráð fyrir.
Rauðar stáldyr
ÞÓTT OPEC séu öflug og mikilvæg samtök er ekki miklum
iburði fyrir að fara við aðalstöðvar þeirra Þær eru á annarri og
þriðju hæð i nýtizkulegri 7 hæða byggingu úr gleri og steyn-
steypu yfirlætislausu og sviplausu húsi, sem hefur verið byggt
upp úr rústum frá striðinu, en alls staðar í kring eru iburðarmikl-
ar byggingar, sem minna á forna frægð Habsborgarakeisara-
dæmisins Texaco er þarna einnig til húsa, eins og stórt
Ijósaskilti þar framan við segir til um, þannig að flestir leigu-
bílstjórar kalla húsið Texaco-bygginguna Ef maður segist hins
vegar ætla að fara til bækistöðva OPEC á maður á hættu að
bílstjórinn aki til Óperunnar
Þrjár lyftur og tveir stigar liggja upp á aðra hæð bygg-
ingarinnar, þar sem er móttökusalur Samkvæmt austurrískum
eldvarnarreglum eru þungar, rauðar stáldyr framan við stiga-
gangana Þegar maður er kominn upp á fyrstu hæð blasir við
gler frá gólfi til lofts og frá móttökusalnum liggja gangar til
hægri og vinstri Þegar maður stendur fyrir framan móttöku-
borðið og snýr baki f lyfturnar, fer maður ganginn til vinstri inn í
fjarskiptaherbergið, en ganginn til hægri inn í ráðstefnusalinn
Það voru fremur fáir fréttamenn viðstaddir ráðstefnuna, sem
haldin var á köldum sunnudagsmorgni 21 desember sl Tveir
menn frá fréttastofum, Sidney Weiland frá aðalskrifstofu
Reuters í Vínarborg og maður frá skrifstofu Associated Press í
Róm, stóðu og ræddust við framan við lyfturnar. Rétt þar hjá
stóð bandarískur blaðamaður, Ron Taggiasco að nafni, en hann
er fréttaritari Business Week i Milanó
Hópur ungs fólks, þar af þrfr eða fjórir hörundsdökkir, gengu
til Taggiasco og spurðu, hvort ráðstefnan stæði ennþá yfir.
Síðan gekk fólkið framhjá Weiland og félaga hans og hélt upp
stiga, sem lá upp á aðra hæð, beint andspænis ráðstefnusaln-
um Tóku fréttamennirnir eftir því að fólkið bar allt iþróttatöskur
frá Adidas. Einn var með baskahúfu á höfði og í hvitum frakka
utan yfir brúnum leðurjakka Þar var einnig smávaxin, ung
stúlka í jakka með skinnkraga og gráa ullarhúfu á höfði, sem
huldi allt hár hennar. Einn karlmannanna, smávaxinn og dökkur
yfirlitum, hafði loðhúfu á höfði Fannst Weiland fólk þetta harla
ólfkt fulltrúum OPEC
Miðaldra menn
Tveir miðaldra lögreglumenn önnuðust öryggis-
gæzlu á annarri hæð. Hétu þeir Janda og Tichler og
voru frá ríkislögreglustöðinni. Þeir voru borgaralega
klæddir og voru báðir vopnaðir Walter PPK skamm-
byssum, sem þeir báru undir jökkunum. Josef Janda
lögregluforingi er mikill maður að vallarsýn og gæti
eftir útlitinu að dæma verið efnaður bóndi. Félagi hans, Anton
Tichler, var smávaxinn og hvftur fyrir hærum. Hann var grennri
en flestir menn um sextugt og hálfgerður fylgifiskur OPEC. Það
var ekki að ófyirsynju, því að hann hafði lært bæði arabísku og
persnesku, enda ákafur áhugamaður um sögu landanna fyrir
botni Miðjarðarhafs Þegar Persakeisari kom til Austurríkis til
lækniseftirlits, en það var vani hans á hverju ári var Tichler
ævinlega fenginn til að annast öryggisvörzlu hans.
Tichler átti aðeins eftir fáa daga í starfi, því að hann hefði
komizt á eftirlaun í árslok og ætlaði þá að fara í langt orlof til
Miðausturlanda En á þessari stundu var hann með hugann við
skemmri ferð, því að að loknum vinnudegi ætlaði hann að aka til
Sviss með konu sinni, þar sem þau gerðu ráð fyrir að dveljast
um jólin Aðeins klukkutími og tuttugu mínútur voru eftir af vakt
hans, þegar unga fólkið með íþróttatöskurnar kom upp stigann
Hann stóð við dyrnar inn í móttökusalinn og ræddi við Janda
Síðan gekk hann í átt að lyftunum, því að aðgát skyldi jafnan
höfð á lyftunum.
Stúlkan i móttökunni, Edith Heller, reyndi að halda sér
vakandi. Þessi hávaxna, Ijóshærða stúlka hafði verið lengi á
fótum kvöldið áður Ljós kom á skiptiborðið hægra megin við
skrifborð hennar OPEC „OPEC. Góðan daginn,” sagði hún á
ensku. og andartak horfði hún niður Þegar hún leit upp aftur.
stóðu tveir menn við dyrnar á móttökusalnum. Annar þeirra var
með baskahúfu i leðurjakka, en hinn hafði loðhúfu á höfði. Sá
fyrrnefndi var vopnaður vélbyssu en hinn hélt á skammbyssu og
spurði „Hvar er ráðstefnusalurinn?” Hún sá skyndilega bregða
fyrir Tichler, þar sem hann stóð við lyfturnar með uppréttar
hendur Síðan hófst skothríð Á næstu fjórum mínútum höfðu
þrir verið skotnir til bana Stúlkan sem sagt var frá hafði séð fyrir
tveimur en maðurinn með baskahúfuna, er kynnti sig sem
Carlos, drap þann þriðja
Edith Heller fannst hann fremur myndarlegur maður, búldu-
leitur fremur en feitlaginn með jarpt, hrokkið hár Innan undir
leðurjakkanum var hann i Ijósgrárri peysu með V-hálsmáli og
þar innan undir i Ijósbláu rúllukragapeysunni, sem hann tekur
gjarnan fram, að hann hafi fengið að gjöf frá dr. George
Habash, leiðtoga Alþýðufylkingarinnar fyrir frelsun Palestínu en
hann er einn sá herskáasti allra palestínuskæruliða sem hafa
svarið þess dýran eið að semja aldrei við ísraelsmenn.
Sex manns höfðu setið og staðið í móttökusalnum. Flestir
voru þeir fulltrúar ýmissa sendinefnda og höfðu gengið út úr
ráðstefnusalnum til að reykja og spjalla saman. Nú sátu þeir í
litlu skoti bak við svartan leðurbekk og stóla úti við vegg Edith
Heller sat eins og dáleidd og horfði á manninn með byssuna.
Sendifulltrúi nokkur reyndi að fá hana til að leggjast niður, og
hún rankaði við sér Um leið og hún beygði sig niður greip hún
símann af skrifborði sínu með vinstri hendi og með lofsverðu
hugrekki tókst henni að ná sambandi við lögregluna, þar sem
hún sat með símann á gólfinu á bak við skrifborðið sitt. „Þetta er
OPEC,” sagði hún „Það er verið að skjóta hér út um allt." „Hver
ert þú?” var sagt og raddblærinn lýsti vantrú.
Skothríð
„OPEC! OPEC! Þetta er OPEC ' Skothriðin dundi og hún varð
að æpa svo að til hennar heyrðist. Það varð til þess að einn
hryðjuverkamannanna veitti henni athygli Hann gekk að skrif-
borðinu og miðaði byssunni að höfði stúlkunnar, en því næst
breytti hann um skotmark og byssukúla þaut i gegnum símann
og niður á gólf Síðan skaut hann annari kúlu í gegnum símtólið
og skiptiborðið (Edith Heller geymir nú tólið sem minjagrip).
Skelkaður írani, sem fylgzt hafði með skothríðinni fyrir aftan
stól, var sannfærður um, að stúlkan væri ekki lengur í tölu
lifenda En hún stóð hægt upp og neri eyrun, því að hún var
hálfærð eftir skothríðina.
Sá fyrsti sem féll fyrir hryðjuverkamönnunum var lögreglu-
maðurinn menntaði, Anton Tichler. Lögreglumenn í Austurríki
læra júdó og ættu að geta afvopnað menn, sem miða á þá
vélbyssu eða rifli. Það munaði heldur ekki miklu að Tichler hefði
tekizt að ná vélbyssunni af Carlos en Carlosi tókst þó að hrista
hann af sér og síðan hljóp hann inn í móttökusalinn.
Tichler hefur sennilega gert sér grein fyrir því að hann var
ofurljði borinn og ætlaði hann að komast undan með því að fara
inn í eina af lyftunum. Þar var fyrir kona, sem sá um kaffihitun,
en hún hafði heyrt skothríð inn í eldhús og lagt á flótta. Hún
stóð andspænis Tichler, er hann gekk inn. í sama bili kom þar
að stúlkan í skæruliðahópnum. en hún hafði séð viðureign
þeirra Tichlers og Charlosar. Hún spurði Tichler að því hvort
hann væri lögreglumaður. Tichler kvað svo vera og rétti upp
hendur. Þá miðaði stúlkan byssu sinni gætilega og skaut hann í
hálsinn að aftanverðu á rúmlega metra færi. Lögreglumaðurinn
hné jiiður I dauðateygjum. Þá kippti stúlkan konunni,
dauðskelkaðri út úr lyftunni, og skreið hún í felur undir skrifborð
Edith Heller, þar sem var fyrir önnur kona. Síðan tróð hryðju-
verkakvendið lögreglumanninum lengra inn í lyftuna, og sendi
hana niður á jarðhæð Þegar lík hans fannst þar, var byssa hans
ennþá i hulstrinu og engu skoti hafði verið hleypt af.
Særði skæruliðinn
Næsta fórnr rlambið var 27 ára gamall lífvörður ollumálaráð-
herra íraks, Ala Hassan Saeed Al Khafari að nafni. f bækistöðv-
unum gekk hann undir nafninu Hassan Öryggisvörður OPEC,
írakmaður Nial að nafni, sem var óvopnaður að því er virtist,
þegar árásin var gerð, segist hafa séð Hassan á hlaupum eftir
Gabriele Kroechev-Tiedeman, stúlkan sem drap
tvo menn í atlögunni, rekur hér glsl á undan sér
út úrbyggingunni.
Carlos og gísl bfða eftir bllnum sem átti að
flytja þá á flugvöllinn.
ganginum og hafi hann reynt að ná byssu undan jakka slnum.
Ekki er fullljóst hvað um hann varð
Mögulegt er að það hafi verið Hassan sem særði skæruliða,
er slðar reyndist vera Vestur-Þjóðverji að nafni Hans Joachim
Klein með kúlu sem kastaðist af skotfærahylkinu I vélbyssu hans
og splundraðist I kviðarholi hans Hins vegar telur austurrlska
lögreglan að hún hafi sært Klein, og munum við koma slðar að
þeim rökum sem hún telur hnlga að þvi. En það er öruggt að
Arabinn mun mjög fljótt hafa komizt I kast við ungu konuna,
sem þá hafði nýlega lagt Tichler að velli.
Það mun aldrei verða Ijóst hvort hann skaut úr byssu sinni og
tæmdi hana eða hvort hann af arabiskri kurteisi gat ekki
hugsað sér að skjóta á konu, eins og aðstoðarmaður arabisks
sendiráðsritara hefur talið llklegt. (Lögreglan hefur siðar hallazt
að því að hann hafi alls ekki verið vopnaður enda hafi byssa
hans aldrei fundizt þótt langllklegasta skýringin á því sé
auðvitað sú að skæruliðarnir hafi tekið hana). Hvernig sem þvl
hefur vikið við fór Hassan að kljást við stúlkuna og greip um
hægri handlegg hennar, þannig að hún gat ekki beytt byssunni.
Þegar hún sá að hann var að ná yfirhöndinni dró hún fram aðra
byssu með vinstri hendi og skaut manninn með kúlu sem fór I
gegnum olnbogann og lenti I andliti hans. Siðar um daginn, er
samningaumleitanir fóru fram, bað hún verzlunarfulltrúa fraks
afsökunar á þessu framferði, en kvað það hafa verið nauðsyn-
legt, þar sem Hassan hefði reynt að afvopna hana.
Eftir átökin við Tictiler náði Carlos taki á Janda lögreglufor-
ingja og hljóp með hann i járngreipum slnum eftir ganginum og
skaut upp i loftið á hlaupunum. Hann hæfði leiðslur, þannig að
ÖH Ijósin I ganginum slokknuðu. Einn af félögum Carlosar var
Þetta var eins og í lélegri kvikmynd