Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 28

Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976 ] Saga Gratefnl Dead: II. hlnti I ■ ■ I ■ ■ ■ ■ Forsaga hljómsveitarinnar er venjulega miðuö við tímabil hinna mikiu tónlistarlegu og andlegu tilrauna. Þetta tímabil má rekja allt aftur til áranna skömmu fyrir 1960, þó raun- verulegt upphaf þess sé ekki fyrr en um 1965—1966. Lok tímabilsins miðast við útkomu plötunnar Live/Dead eða ára- mótin 1969—70. Samt sem áður er mín skoðun sú, að tónlistar- tilraunir Grateful Dead séu fyrst að ná ákveðinni ímynd nú í dag, fólginni í úrvinnslu og þróun á vinnu fyrri ára og þá einkum í því er hljómsveitin gerði fyrir árið 1970. En fjallað verður nú um þann hluta sög- unnar er greinir frá aðdragandanum að stofnun Dead. Saga meðlima Grateful Dead er í fyrstu all aðskilin. Hún festir rætur á ólikum stöð- um, þar sem samankomið er hið ólíkasta fólk. Líklegast er best að byrja söguna, með því að rekja rætur hins persónulega tákns hljómsveitarinnar, gítar- leikarans Jerry Garcia. Hann er, eins og yfirbragð hans bend- ir til, af mexikönskum ættum, enda þar borinn i þennan heim í janúar árið 1942 i borginni Magatlan. Fyrstu tónlistar- kynni Garcia voru af rokki.sem fyllti hugi allra ungmenna á áratugnum 1950—1960. Rokk’n’Roll var hin vilita og áhrifamikla tónlist þess tíma og vitanlega tók Garcia að leika rokktónlist, þegar hann 15 ára eignaðist sinn fyrsta gítar. Jafnvel á þessum tíma þekkti Jerry Garcia, Ron McKernan (öðru nafni Pigpen, síðar hljómborðsleikari Dead) hvers faðir var rythm og blues leik- ari, en meir um hann siðar. Tveimur árum síðar eða 1959 fór Garcia í herinn, þar sem hann staldraði við í 9 mán. Það tók Garcia þessa niu mánuði að skilja hvað hann hafði leitt sjálfan sig í. Lífsfyllingin bjó annars staðar, þar sem lifsskoð- uninni eða leitinni að henni var fullnægt. Þegar Garcia hafði fengið þessa niðurstöðu af til- veru sinni í hernum, hitti hann náunga að nafni Robert Hunter (síðar textahöf. Dead), sem hafði orðið fyrir líkri lífs- reynslu og hann sjáifur. Flæktust þeir um i nokkurn tíma, aðgerðalausir og án nokkurrar ákveðinnar lífs- stefnu. Gerðu þeir Hunter og Garcia nú báðir tilraun til að stunda nám við ákveðinn skóla i San Mateo i San Fransisco, þ.e. San Mateo Jr. College. 1 Bob Hunter (vinstri), Jerry Carcia í miðju ásamt einhverjum ónafngreinum náunga árið 1961. Hinir upprunalegu Grateful Dead. Talið frá vinstri til hægri: Jerry Garcia, Bob Weir, Phil Lesh, og Pigpen. Fremst stendur svo Biíl Kreutsman (BilI Sommers). sama skóla steig Phil Lesh (bassaleikari Dead) fyrstu skref tónlistarnáms síns. 1 kringum 1959 og 60 tók að gæta mikils áhuga upprenn- andi tónlistarmanna í San Fransisco og þar um kring á þjóðlagatónlist. Menn eins og Jim McGuinn og Country Joe McDonald komu nú fram á sjónarsviðið sem leiðtogar þess hóps. Aftur á móti tók Garcia að leiðast inn á brautir bandarískrar þjóðlegrar sveita- tónlistar (country music). Sú tónlistarlega ládeyða og auðnu- leysið, sem Garcia hafði hrærst í, var að hverfa. Hin stefnu- lausu, dauðu öfl þjóðfélagsins voru að rísa upp. Þau eru tákn „grateful-dead þjóðfélagsins". Garcia tók nú að leika all mikið á kaffihúsum víða i San Fransisco. Þar kynntist hann fljótlega margvíslegum og margbreytilegum manngerðum sem settu sinn fjörlega svip á borgina á þessum tíma. Ýmsir fyrrverandi kunningjar komu til að hlýða á hann og fylgjast með honum. Tveir þeirra urðu síðar félagar hans i Dead, þ.e. Bob Weir og hinn gamli kunningi hans Ron McKernan (pig Pen). Pigpen hélt venju- lega heim á leið eftir að hann hafði horft á Garcia og hóf æfingar. Hann lék á gítar I nokkurn tíma, en sneri sér svo yfir á munnhörpu og hljóm- borð. Árið 1962 lék Pigpen enn eingöngu sem sólóarlisti og þá í Boston, þar sem honum varð á að halda út mjög harðan vetur heldur mjósleginn til rifja, uns haldið var heimleiðis með vor- inu frá horinu til gleði og nægt- ar, að þá hóf hann að spila með Paul Foster nokkrum og nafna hans Kantner (núverandi Jeffersons Airplane meðlimur) I „Utangátta klúbbnum” (Off- Stage) I San Jose. Um þetta leyti kynntist hann svo söng- konunni Janis Joplin og urðu þau ágætir drykkjufélagar. Siðar þetta sama ár í lok 1962 krækti Pigpen sér I vinnu I Swans Music Store I Palo Alto. I Palo Alto á þessum tima má segja að hlutirnir hafi tekið að skýrast og frumdrögin að sköp- un Grateful Dead hafi átt sér stað. Á árunum 1961—62 má segja með sanni að hlekkir I keðju atburðarásanna hafi sópað að. Jerry Garcia kynnist trommu- leikara að nafni Bill Kreutzman I partíi, en Kreutzman varð skömmu siðar meðlimur I hljómsveitinni Zodiac. Hún var nokkurs konar hugarfóstur manns að nafni Troy Weiclen- heimer, en þessi Weiclenheim- er var eigandi Swans Music Store, þar sem Pigpen starfaði. I þessari hljómsveit var eins og gefur að skilja Pigpen, en Garcia lék þarna með á bassa, svona af og til. Þetta var um svipað leyti og þeir Garcia og Hunter voru að þreifa fyrir sér í „bluegrass og jug-músík" og stofnuðu hinar ýmsu hljóm- sveitir af þeirri gerð. Nefndist sú fyrsta „Wildwood boys“, sem varð síðan „The Black Mountain Boys“, sem varð síðan „Thunder", sem varð siðan „The Hard Walby Drifters”. Svo varð það ekki fyrr en árið 1964 að Garcia kom á laggirnar hljómsveitinni „Mother Macreés Uptown Jug Champions”, sem á ný samein- aði þá félaga frá Chateau og Palo Alto, að minnsta kosti um stundarsakir. En jafnvel þessi hljómsveit var bara nokkurs konar millibilsástand. Hljómsveitin var skipuð eftir- töldum mönnum: Jerry Garcia (gitai; banjó, söngur) Pigpen (munnharpa, píanö, söngur) John Dawson (taktgítar, söngur (núverandi meðlimur New Riders )), Bob Matthews (gitar, söngur) og svo loks Bob Weir (jug, kazoo). Tónlistarbak- grunnur Bob Weirs var á’þess- um tíma mjög takmarkaður, enda Weir ungur að árum. A gítar tók Weir ekki að leika Opinbert brét til Morpnblaðsins trá Magnnsi Þór Sipnndssyni Ritað í London 1. jan. 1976. Háttvirt ritstjórn Morgun- blaðsins. Ég get því miður ekki orða bundist vegna skrífa í Morgunblaðinu 21. des. 1975. Hljómplötudómar „Allra meina bót“ á Stuttsíðu blaðsins bls 43. Þar segir einn blaðamanna blaðsins að nafni Ásmundur Jónsson m.a. um efni plötunn- ar: ... fyrirbæri náð til viðtæks hóps hlustenda, en persónulega get ég engan veginn komist að niðurstöðu hvaða aldurshópur geti lagst niður við að hlýða á >vAHra meina bót“, þó svo flytj- endur plötunnar virðast stíla hana á markað samkv. fréttatil- kvnningu til allra aldurshópa. Kemur þetta einkum til af mjög einkennilegu vali laga á plötuna og fáránlegum textum, sem ég get ... (tilv. lokið.) Vil ég svara þessu svo til, að fjöldi manns hefur keypt og hlustað á efni þessarar umræddu plötu og iátið vel af. Það er min skoð- un, að þeir sem eru ungir í anda og hafa kimnigáfu og hug- arflug til að bera láta ekki stirða skapsmuni spilia fyrir sér og öðrum geti iagst niður við að hlusta á „Allra meina bót“. Einnig segir Ásmundur í dómum sinum: ... Textarnir eru að mfnu mati óbirtingar- hæfir og vægast sagt skaðlegir hinum þroskandi hugarheimi ungra barna. I textunurn er sem sagt ekki gerð minnsta til- raun af hálfu listamannsins til að virkja hug barnsins og hafa þroskandi áhrif á það. Ljóðin virðast i flestum tilfellum vera merkingarlaust bull, byggt á vonlausum húmor og eiga sér engan grunn. Lögin eru einnig í flestum tilfellum of þung eða flókin, þannig að yngri krakkar geta ekki lært þau né sungið eftir þeim. Svo við víkjum ... (tilv. lokið.) Ég vii benda á að texti Sigrúnar Guðjónsdóttur var birtur í Morgunblaðinu á árinu sem leið á menningarsíðu að mig minnir, og hefur þá væntanlega verið birtingarhæf- ur. Þessi texti heitir „Kisa- þula“, og er frábær að minu mati, enda hefði ég ekki samið við hann lag að öðrum kosti. Einnig vil ég benda á að texti „Jesú nafn um aldir alda“ (höf. ókunn.) er texti sem var á bak- siðu jólablaðs Kristilegs safnað- ar á Islandi jólin 1973, að mig minnir. Blað þetta var og er prentað i þúsundum eintaka og dreift um landsbyggð alla, þar á meðal inn á mitt heimili, sem ég var og er þakklátur fyrir, því textinn er gullfallegur og hefur góðan boðskap að flytja, að mfnu mati, og eru því skrif Ásmundar Jónssonar óraun- hæf, og óhæf með öllu á köfl- um. I sambandi við aðra texta plötunnar er lifshamingja og léttur húmor alls ráðandi i flestum textum og á Jóhann Helgason þar mikinn þátt í. Því miður samdi ég bara einn texta „Barnabæn" og átti þátt i öðr- um, „Nag (Vænakona)“. „Barnabæn” er samin yfir sof- andi barni í vöggu, sem ég vil vel. Reyndar vil ég öllum börn- um vel, þ.á m. Asmundi Jóns- syni. Barn er ekki aldur, heldur hugarástand. Barninu i vögg- unni er helgað þetta lag, ásamt öllum guðsbörnum. Texti lags- ins er einföld bæn, sem allir meðalgáfaðir menn skilja, lítil bending til allra barna á öllum aldri um eilift líf sem lifir innra með okkur öllum, bæði hér á jörðinni og annars staðar. Hins vegar er „Nag“ ádeila á grimmd og óánægju heimsins í dag, nöldur og nag. Einnig seg- ir Ásmundur Jónsson að lögin séu of þung og flókin. Ég á þriggja ára gamla stúlku, sem er honum ekki sammála, einnig er Halldór Andrésson, blaða- í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.