Morgunblaðið - 22.02.1976, Side 29

Morgunblaðið - 22.02.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976 29 Alllangt er nú liðiS frá þvl, aS hluti sá hinn fyrsti birtist hér á Stuttsfðunni úr sögu Grateful Dead. Birtist hann I rauninni ( upphafi jólakauptlðar (auglýsingaflóðs jólanna) og reyndist þvt ekki unnt að fylgja honum eftir fyrr en nú. I þessari umræddu grein var einkum fjallað um þá llfsspeki sem llfiB I Dead-kommúnunni byggBist á, svo og þróun hins andlega Kfs innan hennar. Lýsing þróunarinnar var aðallega bundin upphafsárum blómamenningarinnar fram til ársins 1973, þegar þeir I Grateful Dead ákváðu að taka sér tlmabilsbundið frl frá tónleikahaldi og snúa sér að eigin hugðarefnum. Leitast var við að lýsa þjóðfélagslegu tengslum Grateful Dead við hinar tvær mótandi kyn- slóðir hippamenningarinnar. En þær voru annars vegar hippaleið- togarnir, hugsjónaleiðtogar hippanna (the hippsters) sem yfirleitt voru frekar sérstæðir rithöfundar, þá starfandi I Kalifornlu, og svo hins vegar uppvaxandi kynslóð, Woodstock-kynslóðin. Hljómsveitin Grate- ful Dead hafði þvl ásamt öðrum mikil áhrif sem hugsjónamiðill milli hippaleiðtoga. svo sem Alans Ginsburg. Neil Cassadys og Gary Snyder, og svo áður nefndrar Woodstockkynslóðar. Þessu er hvað best lýst I ritverki Hank Harrisons. The Grateful Dead. Jerry Garcia maður Þjóðviljans honum ósammála en hann segir i grein sinni: ......Það er hægt að syngja með öllum lögunum, og eru það meðmæli með barna- plötu og einnig segir Örn Pedersen i Vísi: ( ... Platan venst efalaust vel f eyrum barna ... ), og seinna í sömu grein segir Örn: (... Þótt „Allra meina bót“ flokkist und- ir barnaplötu má njóta hennar allt að nfræðu, svo vönduð er hún ...) Að lokum vil ég bæta við sem ábyrgur aðili fyrir útgáfu þess- arar umræddu hljómplötu, að sá, sem sér eitthvað skaðlegt við þessa plötu, hefur aðeins sína skaðlegu hugsanir að miða við, og ætti að passa sig á að láta þær ekki of mikið í ljós, en nota frekar tækifærið sem þessi plata býður upp á, en það er að vikka hug og þroska á ákveðnum sviðum og veita um l.eið sjó hugans inn á aðeins léttari og jákvæðari brautir, burtu frá þrælbundnu kerfi heimsku og stressi þess jarðrík- is sem við lifum í dag. Þessi plata er aðeins örlítill sólar- geisli, 39 mínútna langur; með- al til þess gert að gleyma dags- ins önn í jafnlangan tíma, öll- um aó skaðlausu, hvort sem þau eru lítil börn, fullorðin eða gömul börn. Með beztu- kveðjum og ósk um farsælt komandi líf, Magnús Þór Sigmundsson. fyrr en hann kynntist Jorma Kaukonen (gítarleikari Jeff- erson Airplane) sem varð eins konar tónlistarleiðtogi Weirs og áhrifamaður. „Mother Macree Uptown Jug Champions“ tóku nú að leita fyrir sér á atvinnumarkaðinum en án árangurs. Eftir skamma hrið komu upp raddir innan hljómsveitarinnar um breytingu á tónlistarstefnu hennar. Pig- pen hafði áhuga á blues og vildi breyta stefnunni yfir í raf- magnaða bluestónlist. Með breyttri hljóðfæraskipan, breyttri liðsskipan og breyttri tónlistarstefnu varð nauðsyn- legtað breyta nafni hljómsveit arinnar, sem nú hlaut nafnið Warlocks.En þá voru þeir Dana Morgan (bassi) og Bill Kreutz- man (trommur) komnir i hljómsveitina. Phil Lesh kom ekki inn fyrr en tveimur árum siðar, þegar Warlocks lék all mikið i klúbbnum „Magoos", enda höfðu þeir félagarnir komist fyrir löngu að raun um að þessi Dana Morgan var als- endis óhæfur hljóðfæraleikari. Phil Lesh var hinn nauðsynlegi liður í hljómsveitinni. Hann bjó yfir góðri tónlistarmenntun og kunnáttu. Phil Lesh var sem sagt sá eini af þeim félögunum sem hafði stundað tónlistar- nám, og varð því fljótt til þess að lyfta tónlistinni upp á hærra pian. Með tilkomu Phil Lesh var i raunfyrstaútgáfa Gratéful Dead komin fram: Jerry Garcia (gitar, söngur), Bob Weir (taktgitar, söngur) Pigpen (hljómborð, söngur) Bill Kreutzman (trommur), og Phil Lesh (bassi, söngur). Þannig skipuð léku Warlocks víða næstu sex mánuði undir stjórn gamals félaga Phil Lesh að nafni Oddcuck, en á hann var lítillega minnst i síðustu grein. A þessu tímabili gerðu þeir undir nafni Warloks prufu — („derno") upptöku fyrir Autumn Records: Fire In The City / Your Sons And Daughters. Tónlist Warlocks, sem þróaðist yfir i aó vera tónlist Dead, tók að myndast þegar þeir léku í klúbbnum Belamont. Þessarar tónlistar- breygingar fer að gæta um svip- að leyti og notkun þeirra hefst á ofskynjunarlyfinu L.S.D. I næstu og siðustu grein minni um Dead verður tónlist Dead og kannski einkum „phsykadelic-rokkið" helst til umræðu. A.J. SAMKVÆMT fréttatilkvnn- ingu, sem Stuttsíðunni barst, hefur verið stofnuð hin merki- legasta gladrakarlahljómsveit. sem leikur elexírtónlist (0) og stendur auk þess fyrir galdra- brennum (uppákomum, happenings). Hljómsveitin Bláber, sem hóf leik fyrir u.þ.b. einu ári, er upphafið af Galdrakörlum, en í nóvember s.l. bættust þrir hljóðfæraleikarar við hana og breyttist þar með öll stefna hljómsveitarinnar. Æft hefur verið af kappi þrisvar til fjórum sinnum f viku í bæki- stöðvum hljómsveitarinnar I Vesturborginni, og hafa æfingar gengið vel enda öll lög skrifuð og allir lesa nótur. Þá hefur verið útbúið ljósa- kerfi, sem þeir félagar hafa gert. Búningana hönnuðu þeir einnig sjálfir. Hljómsveitina skipa eftir- taldir: HLÖÐVER SMARI HARALDSSON 26 ára, áður m.a. I tslandíu, Pelfkan og Bláberjum, leikur á Hammond- orgel, Fender-pfanó, Moog Syntheziser og flautu. VILHJALMUR GUÐJÓNSSON, 22 ára, áður f Gaddavfr, Moldroki og Blá- berjum, leikur á gftar, tenór- saxafón og harmónikku. PÉTUR HJALMARSSON, 26 ára, áður í Osmönnum, Dátum II, Lísu og Bláberjum, leikur á 'lautu og bassa. SÖPHUS BJÖRNSSON, 20 ára, áður í Andrá og Bláberjum, leikur á trommur. BIRGIR EINARSSON, 28 ára, áður i HG-sextett og Omum og Ellert, leikur á trompet og slagverk. STEFAN S. STEFANSSON, 18 ára, hefur leikið jass með skólahljómsveitum, leikur á altó-saxófón, þverflautu og gítar. HREIÐAR H. SIGUR- JÖNSSON, 45 ára, áður með ýmsum hljómsveitum, leikur einnig með Sinfónfuhljómsveit Reykjavfkur, leikur á barítón- saxófón, tenór-saxófón og klarinett. Eins og sést á framangreindu er hljóðfæraskipan hljóm- sveitarinnar mjög fjölbreytt og býður upp á marga möguleika, sem hljómsveitin mun reyna að notfæra sér. Hljómsveitin kemur fyrst fram á kynningarkvöldi næst- komandi þriðjudag, en sfðan mun hún leika f Klúbbnum 26.2., Tónabæ 27.2., Festi 28.2. og Skiphóli 29.2. Bald.J.B. Galdrakarlar, elexírtónlist og gatdrabrennur (?!) Svar viö bréti Magnnsar Þórs Sigmunössonar Kæri Magnús. Mjög er gaman að heyra hljóð úr horni þlnu og beiska rödd þlna titra. Þú skellir i mig skömmum og fori, og telur mig næstum óaf- vitandi gjörða minna. Minna má nú gagn segja, en þegja. Ég veit það Magnús minn. að þú átt undir högg að sækja, þegar þú hristir úr penna þlnum þennan guðlega helgihljóm til varnar afkvæmi þlnu. sem þér finnst ég meðhöndla all óvirðulega — Sitt er að tala af viti, en annað að vera óviti. — Nú ætla ég að vitna litillega I sjálfan mig: „. . .Textarnir eru að mlnu viti óbirtingarhæfir og vægast sagt skaðlegir hugarheimi ungra barna. . . og Ijóðin virðast I flestum tilfellum merkingarlaust bull. . ." Næsta tilvitnun er I þig: ....ég vil benda á að texti Sig- rúnar Guðjónsdóttur var birtur I Morgunblaðinu á árinu sem leið og hefur þvl væntanlega verið birtingarhæfur. . ." Þvi miður Magnús minn sé ég ekki um hvað birtist á slðum Morgunblaðsins að öllu jöfnu. og má þvl vera að þú farir ekki með staðlausa stafi um það að kvæði Sigrúnar hafi birst I Morgunblaðinu á slðast liðnu ári. Ég steypi þó engar krukkur, þó ég sammæli þér I þvl að „Kisa-þula" Sigrúnar sé hvorki mann- skemmandi né óbirtingarhæf en samt sem áður, „að mlnu mati" finnst mér lltt til þess koma enda þótt það beri ægishjálm yfir aðra texta plötunnar. Um þá er ég sama sinnis og áður, jafnvel þó ein elskuleg ung dóttir temji sér þvl miður þá ósiðu að söngla I slfellu leirburði eftir pabba sinn kátan og aðra samsveina sömu iðngreinar. Að lokum aðeins þetta: Ég hef skoðun á þlnum boðum. og þú nú boðun við mína skoðun og vona ég að okkur sé af þvi „allra meina bót". P.S. Að gefnu tilefni vil ég koma þeirri skoðun á framfæri að platan „Allra Meina Bót sýni fram á að allt tal um væntanlega heimsfrægð hljómsveitarinnar Change byggi ekki á traustum grunni. Platan ber sorglegan vitnisburð afraksturs starfsemi þeirra I London slðastliðið ár, hvernig svo sem hljómsveitarmeð- limir skilgreina tónlistina. „Allra- Meina-Bót" er hið fullkomna dæmi misheppnaðs gróðafyrir- tækis. A.J. ■ I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.