Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRtJAR 1976
undur handritsins), sem tekst hér að
búa til mjög skynsamlega mynd, sem
tvímælalaust á erindi I okkar verkfalla-
þjóðfélag í dag
DET SISTA ÁVENTYRET, eftir Jan
Halldoff, gerð 1975.
Jimmy er rekinn úr herskóla og fær
vinnu sem líffræðikennari. Samband
hans við nemendur er gott og of gott
að mati ýmissa, sérstaklega móður
hans og kærustu, sem hann hefur
hálfpartinn flúið frá En ósjálfstæði
hans í baráttunni við umhverfið og of
kreddubundið uppeldi verða þess vald-
andi að hann hafnar á geðveikrahæli,
þar sem honum er hjálpað til að reyna
að þekkja sjálfan sig og finna leiðina til
baka til eðlilegs lífs. Myndin er sterk
ádeila á ríkjandi venjur í mannlegum
samskiptum, venjur, sem eru notaðar
sjálfkrafa og án merkingar, venjur, sem
sneiða hjá raunverulegum tilfinn-
ingum Erfiðleikar Jimmys stafa af því,
að hann er bundinn i báða skó: Hann
leitar eftir tilfinningalegu frelsi en er
jafnframt bundinn af siðferðilegum for-
dómum. Eftir Halldoff hefur áður verið
sýnd hér „Firmafesten” (Skrifstofu-
fylliri), sem mánudagsmynd
FIMPEN, eftir Bo Widerberg, gerð
1974
Eftir lýsingum er þetta ævintýra-
mynd fyrir alla fjölskylduna 6 ára
gamall strákur gengur i landslið Svía i
knattspyrnu og leiðir lið sitt til ótaldra
sigra í landsleikjum, m.a við Rússa.
Fimpen er alvörugefin, litil manneskja
og réttilega tekin alvarlega af þeim,
sem umgangast hann. Það eru
áhorfendur sem fá að hlæja. En
Fimpen getur hvorki lesið um sigra
sina né gefið eiginhandaráritanir og á
honum er niðst í auglýsingaskyni.
Þetta er sögð vera bezta barna- og
fjölskyldumyndin, síðan Kjell Grede lét
„Hugo og Josefinu" frá sér fara.
KLARA LUST, eftir Kjell Grede, gerð
1972.
Þetta er þriðja mynd Grede („Harry
Munter" var sýnd hér sem mánudags-
mynd) og er hún í stuttu máli um
manninn, sem yfirgefur fjölskyldu og
heimili og heldur til móts við kærleiks-
drauminn. Myndin þykir nokkuð
óvenjuleg, gerð ? stíl Bunuels, en þeir
sem sáu „Hugo og Josefinu" eða
„Harry Munter" munu vita, að Grede
er mjög tilfinninganæmur og laginn
leikstjóri og því má búast við eftir-
tektarverðum myndum frá hans hendi.
Með aðalhlutverkin fara Gunilla Olsson
og Lars Bránnström.
DEN VITA VÁGGEN, eftir Stig
Björkman, gerð 1974
Nýlega fráskilin kona, rúmlega
þrítug, með eitt barn, leitar sér að
vinnu Hún ræðir við fyrrv. eiginmann
sinn, vinkonu sína, fer á dansleiki og
lendir í augnabliks, ástríðulausum
ástarsamböndum Myndin er sögð lýsa
vel einmanaleik og erfiðleikum
einstæðrar móður og fær Harriet
Anderson mjög góða dóma fyrir leik
Ingrid Thulin og Erik Hell t mynd Bergmans, „Riten".
sinn i myndinni, sem m.a. hefur verið
sýnd á kvikmyndahátiðinni í Moskvu
Stig Björkman var áður ritstjóri sænska
kvikmyndablaðsins Chaplin.
OM SJU FLICKOR, leikstjórar Carl-
Johan Seth og Hand Dahlberg, gerð
1974. ( betrunarskóla á fallegum
stað í Sviþjóð eru sjö stúlkur á
táningaaldri læstar undir lás og slá.
Þær eiga við alvarleg vandamál að
strlða — þær eru skapstyggar,
taugaveiklaðar, óöruggar, bllðar,
ómögulegar — I stuttu máli óham-
ingjusamar, sundurkramdar litlar
mannverur, sem hafa tapað allri
fótfestu I llfinu vegna erfiðra heimilis-
hátta, áfengis og eiturlyfja. Myndin
fjallar um ástand þeirra, hvernig þær
líta á sjálfa sig og hvernig þær lentu á
þessum stað Og það sakar ekki að
geta þess einu sinni enn, að ein af
stelpunum sjö er leikin af Islenzkri
stúlku, Bergljótu Árnadóttur, sem ku
hafa hlotið góða dóma fyrir leik sinn I
þessari mynd
SSP.
Bræður á glapstigum
Bræður á glapstigum, (The Gravv Train), am.
geró 1974. Leikstjóri Jack Starrett.
Þó mynd þessi falli auðveldlega inn i megin-
straum bandariskra glæpamynda, „a la“ stefnuna
1974, má finna i henni nokkur atriði, sem lyfta
henni upp fyrir meðallag. Fyrir utan Stacy Keach,
sem ekki virðist ætla að bregðast bogalistin, sýnir
Frederic Forrest nokkur tilþrif. Myndin segir frá
tveim bræðrum, sem hyggjast ná sér í auðfenginn
aur með þátttöku í bankaráni, hvernig þeir sleppa
og ná að hefna sín, þó sú hefnd verði dýr. Atriði
eins og flóttinn frá lögreglunni (þeir eru klæddir
lögreglubúningi, labba einfaldlega út á meðal
þeirra og taka einn lögreglubílinn traustataki),
þegar þeir beita lögreglubílnum til að stöðva annan
bil og ræna farþegana fötunum, þegar þeir elta
ástkonu svikarans inn í herbergi hennar og loka-
atriðið, þegar eltingarleikurinn í húsinu, sem verið
er að brjóta niður með fallhamri, meðan bardaginn
stendur sem hæst, eru að minu mati þau atriði, sem
hvað bezt eru gerð og lyfta myndinni aðeins upp úr
meðalmennskunni. Starrett hefur áður stjórnað
myndum eins og „Slaughter" og „Kleopatra Jones“
og er „The Gravy Train“ því auðveldlega bezta
mynd hans til þessa. Handritið er skrifað af Te-
rence Malick (undir dulnefninu David Whitney),
en Malick þessi gerði myndina „Badlands" fyrir 2
árum, og hlaut hún einróma lof gagnrýnenda og
vonandi fáum við að sjá hana sem fyrst.
SSP.
Kjell Grede leikstýrir Agneta Prytz I „Klara Lust".
Göran Stangertz og Ann Zacharias í „Det sista aventyret'
KYIKMYNDAVIKUNNI
myndinni megi finna einhver svör við
vandræðum Bergmans i dag
EN HANDFULL KÁRLEK eftir Vilgot
Sjöman, gerð 1974
Stokkhólmur, sumarið 1909
Hjördis er ung stúlka, sem býr með
verkamanni, en fær vinnu sem
aðstoðarstúlka á heimili umsvifamikils
kaupmanns Allsherjarverkfall er yfir-
vofandi og gengur I garð, en verka-
mennirnir og Hjördis persónulega
verða fórnardýr ríkjandi skipulags
Sjöman tekst vel, með því að fylgja
Hjördisi, að lýsa tveim ólikum heimum
fátæktar og auðlegðar, og lýsa veikleik-
um beggja. Sjöman hefur ávallt verið
eftirtektarverður leikstjóri, en hér hafa
aðeins sést eftir hann myndirnar 491
og Ég er forvitin blá/gul þó hann hafi
gert alls 1 1 langar myndir En Hand-
full Kárlek er mjög vel unnin mynd, og
þó sérstaklega kvikmyndatakan í
einstaka atriðum minnir hún á mynd
Widerbergs, Elviru Madigan, en
rómantik Widerbergs víkur hér fyrir
raunsæi Sjömans (hann er einnig höf-
RITEN, eftir Ingmar Bergman, gerð
1969
í ónefndri borg er leiksýning hinna
heimsfrægu Les Riens stöðvuð, fyrir
meint brot á velsæmi Leikararnir eru
kallaðir fyrir dómara, sem kannar öll
mál þeirra mjög gaumgæfilega, þrátt
fyrir vilja hópsins til að borga hæstu
hugsanlegu sekt Hann kemst að raun
um, að fjármál þeirra og siðferði er
mjög vafasamt og allt samband þeirra
innbyrðis mjög undarlegt Smám
saman kemur þó í Ijós að sjálfur er
hann enginn engill Myndin þykir lýsa
áliti Bergmans nokkuð á gagnrýnend-
um og listafólki, sem endanlega getur
þó hvorugt án hins verið Þegar
myndin var gerð, lá Bergmann undir
hörðum árásum frá gagnrýnendum og
það var einnig á þessum tíma, sem
hann byrjaði á svissneska ævintýrinu.
sem nú er að koma honum í koll. En
það kemur einmitt fram í Riten, að
leikflokkurinn gengur undir fölsku
þjóðerni, svissnesku, af skatta-
ástæðum Það kann því að vera, að í
kvik
mund
/iðon
SIGURÐUR SVERRIR PALSSON
SÆBJORN VALOIMARSSON
MYNDIR Á SÆNSKU
Þar sem aðsóknartölur
eru ekkert launungarmál
Bandaríkjamenn eru ákaf-
lega hressir í bragði yfir að-
sókninni að kvikmyndahúsum
og kvikmvndaiðnaðinum á því
herrans ári 1975 — enda
ástæða tii. Því 1975 varð metað-
sóknarár, aukningin tæp tfu%,
það munar um minna.
Veltan hjá Universal var sú
mesta sem um getur I sögu
nokkurs kvikmyndavers, eða
289 millj. $. Af þeirri upphæð á
ein kvikmvnd, að sjálfsögðu
JAWS, röskan helming!
En nú skulum við Kta á list-
ann yfir mest sóttu mvndirnar f
fvrra, Bandarfkjamenn álíta
hann augsýnilega ekki neitt
launungarmál!
Og nú má ég til með að
klappa forráðamönnum kvik-
myndahúsanna aðeins á bakið,
þvf af þessum þrjátfu myndum
sem ég tel upp, hafa nú þegar
fimm verið sýndar og aðrar
þrjár eru væntanlegar á næstu
vikum. Það er virðingarverð
stefna að reyna að bjóða okkur
mvndirnar sem yngstar og eiga
þeir miklar þakkir skildar.
t upptalningunni kemur
fyrst nafn myndarinnar, leik-
stjóra, sfðan dreifingarfyrir-
tækisins og sfðast innkoma
myndarinnar f millj. dollara:
1. Jaws, Steven Spielberg, Uni-
versal 102 m. $
2. The Towering Inferno, John
Guillermin, 20th — Fox. 55 m. $
3. Benji Joe Camp, Mukberry
Squere Prod. 30 m. $
4. Young Frankenstein, Mel
Broooks, 20th—Century Fox.
30. m. $
5. Godfather Part II, F.F. Copp-
ola, Paramount. 29 m. $
6. Shampoo, Hal Ashby, Col-
umbia 22 m. $
7. Funny Lady, Herbert Ross,
Columbia 19 m. $
8. Murder on the Orient
Express, S. Lumet, Paramount.
18m.$
9. Return of the Pink Panther,
Billy Wilder, U.A. 17 m$
10. Tommy, Ken Russel,
Columbia 16 m. $
11. The Apple Dumping Gang,
Norman Tokar, Disney 13 m. $
12. Freebie and the Bean,
Richard Rush, W. Br. 12 m. $
13. Lenny, Bob Fosse, U.A. 11
m. $
14. Island at the top of the
world, R. Stevenson, Disn. 10
m. $
15. The Man with the Golden
Gun, Guy Hamilton, U.A. 9 m. $
16. The great Waldo Pepper,
G.R. Hiil, Universal 9 m. $
17. Three Days of the Condor,
Pollack, Paramount. 9 m. $
18. Mandingo, R. Fleischer,
Paramount. 8,6 m. $
19. Escape to Witch Mountain,
N. Tokar, Disney. 8,5 m. $
20. Other Side of the Mountain,
L. Peerce, Univ. 8,2 m. $
21. W.W. and the Dixie Dance
Kings, John G. Avildsen, 20th
Century—Fox. 8 m. $
22. Part II Walking Tall, E.
Bellamy, A.I.P. 8 m. $
23. Once is not enough, Guy
Green, Paramount. 7,8 m. $
24. The Four Musketeers, R.
Lester,20th—Fox. 7,5 m. kr.
25. Breakout, Tom Gries, Col-
umbia. 7,5 m. $
26. The front Page, B. Wilder,
Universal. 7,4 m. $
27. Nashville, Robert Altman,
Framhald á bls. 39