Morgunblaðið - 22.02.1976, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976
39
D
I dag klukkan 13,30 verða
síðustu umferðirnar í undan-
keppni Revkjavfkurmðtsins
spilaðar, en sem kunnugt er er
keppnin jafnframt undan-
keppni fyrir tslandsmótið.
Þrjár sveitir eru i sérflokki i
keppninni en staða efstu sveita
er þessi:
Sveit
Jóns Hjaltasonar 146
Stefáns Guðjohnsen 145
Hjalta Elíassonar 143
Ölafs Lárussonar 95
Jóns Baldurssonar 86
Ölafs H. Öiafssonar 86
Gylfa Baldurssonar 79
Hilmars Olafssonar 71
Að keppni lokinni má sigur-
sveitin velja eina af þremur
næstefstu sveitunum i undan-
úrslitaleik og síðan spila hinar
tvær sveitirnar saman. Verður
þessi úrslitakeppni 24. febrúar
n.k. Þær sveitir sem sigra í
þessum undanúrslitum spila
svo úrslitaleik sem fram fer 29.
febrúar.
XXX
Frá bridgedeild Breiðfirð-
ingafélagsins.
Hin vinsæla barometer-
keppni félagsins hófst sl.
fimmtudag og taka 36 pör þátt í
keppninni. Staða efstu para:
Halldór Jóhannesson —
Ölafur Jónsson 133
Magnús Oddsson —
Magnús Halldórsson 131
Jón Stefánsson —
Þorsteinn Laufdal 115
Ingibjörg Halldórsdóttir —
Sigvaldi Þorsteinsson 103
Guðlaugur Karlsson —„
Öskar Þráinsson 90
Guðrún Bergs —
Kristjana Steingrímsdóttir 63
Erla Sigvaldadóttir —
Lovísa Jóhannsdóttir 58
Guðjón Kristjánsson —
Þorvaldur Matthiasson 57
Meðalskor 0
Næsta umferð verður spiluð
á fimmtudaginn kemur.
XXX
Frá Bridgefélaginu Asarnir í
Kópavogi
Eftir fjögur kvöld í
barometerkeppninni er staða
efstu para þessi:
Jón P. Sigurjónsson —
Guðbr. Sigurbergs. 194
son 194
Ölafur Lárusson —
Lárus Hermannsson 167
Öskar Þráinsson —
Guðlaugur Karlsson 82
Gísli Hafliðason —
Sigurður Þorsteinsson 82
Síðasta kvöld keppninnar
verður svo á mánudaginn kem-
ur og verða þá spilaðar fjórar
siðustu umferðirnar. Að
barometerkeppninni lokinni
verður spiluð sveitakeppni með
Patton-fyrirkomulagi og eru
sveitaformenn beðnir að láta
skrá sveitir sínar á mánudag.
A.G.R.
Sjöman og Schein
ræða um kvikmyndir
í Norræna húsinu
A MORGUN kl. 17.30 halda
Vilgot Sjöman kvikmyndaleik-
stjóri og Harry Schein forstöðu-
maður kvikmyndastofnunarinnar
sænsku erindi I Norræna húsinu
á vegum tslenzk-sænska félagsins
og Norræna hússins. Þar ræðir
Vilgot Sjöman um- kvikmyndir
sfnar, og Harry Schein segir frá
sænskri kvikmyndagerð.
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum eru báðir þessir menn
staddir hér á landi vegna
sænskrar kvikmyndaviku sem nú
stendur yfir á vegum Islenzk-
sænska félagsins og sænsku kvik-
myndastofnunarinnar. Er ekki að
efa, að hér gefst áhugafólki um
kvikmyndalist einstakt tækifæri
til að fræðast um hvernig málum
þessum er háttað í Sviþjóð. Fyrir-
iesturinn er haldinn á all-
óvenjulegum tíma dagsins, en
haft var í huga að það væri öllu
hentugri tími en siðari hluti
kvöldsins, þar eð þá standa yfir
sýningar á kvikmyndum vik-
unnar. Að loknum erindum
sínum hafa Vilgot Sjöman og
Harry Schein boðizt til að svara
fyrirspurnum og taka þátt í
umræðum.
Öllum er heimill aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
Varð að koma af
sjúkrahúsi og
lenti í bílslysi
Kona, sem var að koma af
sjúkrahúsi, skarst nokkuð í
bflslysi í Reykdalsbrekku f
Hafnarfirði í gærmorgun, og
þurfti þvf að flytja hana beint
á sjúkrahúsið aftur.
Bifreið, sem konan var í
ásamt ökumanni og barni, var
að fara niður Reykdalsbrekk-
una, þegar hún rann til í hálku
og lenti á öryggisgrindverki.
Bifreiðin kastaðist síðan frá
grindverkinu út á götuna, þar
sem hún stöðvaðist. Konan
mun hafa skorizt á höfði, þegar
bifreiðin skall á grindverkinu.
Forseta synjað
um undanþágu
VERKALÝÐS-. og sjómanna-
félagi Keflavíkur barst f fyrradag
beiðni frá forseta lýðveldisins
Nicaragua f Mið-Amerfku um að
félagið veitti undanþágu til eld-
sneytisafgreiðslu fyrir þotu her-
málaráðherra landsins, sem var
ásamt föruneyti á leið yfir Norð-
ur-Atlantshaf. Beiðninni var
hafnað.
Þá hefur Verkakvennafélagið
Framsókn veitt heimild til ræst-
ingar kvikmyndahúsa í Reykja-
vík, vegna sænskrar kvikmynda-
viku, sem hér hefur verið ráð-
gerð.
JC-fundur
í Kópavogi
JUNIOR Chamber í Kópavogi
gengst fyrir almennum borgara-
fundi í félagsheimili Kópavogs
sunnudaginn 22. feb. kl. 14.
Fundur þessi er haldinn f tilefni
þess að Junior Chamber-félagar
hafa ákveðið að gera 22. feb. að J.
C.-degi.
Efni fundarins er MAÐURINN
OG UMHVERFI HANS. Frum-
mælandi verður Finnur Torfi
Hjörleifsson frá náttúruverndar-
nefnd Kópavogs, bæjarfulltrúum
Kópavogs hefur verið boðið á
fundinn.
— Árangurslaus
Framhald af bls. 40
sjómenn, hefur hann aldrei þegið
eina einustu krónu fyrir vikið —
aðrar en þær.'sem hann fær i laun
fyrir að vera i forystu Sjómanna-
sambandsins. Laun hans í dag
sem formanns Sjómannasam-
bands Islands ná ekki 100 þúsund
krónum á mánuði.
— Amalrik
Framhald af bls. 1
Þetta er í fjórða sinn á hálfu
ári, sem Amalrik er tekinn
höndum, en þá hafði hann af-
plánað dóm sinn fyrir „and-
sovézkan áróður" i fangabúðum.
Síðan hann losnaði úr fangabúð-
unum hefur honum verið meinað
að búa í Moskvu þar sem eigin-
kona hans hefur fbúð, en hefur þó
fengið leyfi til að heimsækja hana
allt að þrjá daga í senn. Lögreglan
heldur því fram, að Amalrik hafi
misnotað sér þessar ívilnanir.
Kunnugir telja, að Amalrik
verði hafður i haidi þar til flokks-
þingi sovézka kommúnistaflokks-
ins lýkur í byrjun mai-z.
— Nixon
Framhald af bls. 1
dag og á Ford þar í nokkrum
erfiðleikum með Ronald Reagan,
fyrrum rfkisstjóra Kalifornfu,
sem einnig sækist eftir útnefn-
ingu sem forsetaefni repúblí-
kana. Stjórnmálafréttaritarar
segja, að ferð Nixons muni minna
kjósendur á að Ford náðaði Nixon
þegar hann hafði sagt af sér eftir
Watergatehneykslið en sú náðun
vakti niikla reiði f Bandarfkj-
unum.
Strangar öryggisráðstafanir
voru gerðar f Kalifornfu við brott-
för Nixons og er þau hjónin
gengu út í flugvélina virtu þau
fréttamenn að vettugi, en stilltu
sér þó upp fyrir myndatöku með
kfnversku embættismönnunum,
sem fylgdu þeim til Peking. Að
sögn fréttamanna leit Nixon vel
út, en var orðinn mun bognari f
baki, en er hann var forseti.
— Ali
Framhald af bls. 1
1964—67 varði hann titil sinn 9
sinnum áður en hann tapaði
fyrir Joe Frazer.
Ali dansaði kringum and-
stæðing sinn allar loturnar og
hjó sífellt að höfði hans með
vinstri handar höggum og tókst
Coopman aldrei að komast í
gegnum vörn Alis. Rétt þegar 5.
lotu var svo að ljúka kom Ali
nokkrum snöggum vinstri
handar höggum á Coopman,
sem seig niður í gólfið og náði
ekki að standa á fætur áður en
dómarinn lauk talningu upp að
10. Eftir keppnina sagði Ali:
„Næst er það Jimmy Young, þá
Ken Norton og svo Foreman og
þá er ég hættur." Ali hefur nú
keppt 52 sinnum, sigrað 50
sinnum en aðeins tapað fyrir
Frazer og Norton, sem hann
síðar sigraði í öðrum keppnum.
— Thatcher
Framhald af bls. 1
Noregs, sagði i Bergen i vikunni,
að hvorki NATO né EBE hefðu
efni á að láta deiluna halda
áfram.
Ef ríkisstjórnir landanna
tveggja eru að leita að manni, sem
gæti komið friði á umsvifalaust,
væri rétt fyrir þær að líta í átt til
Noregs,“ sagði blaðið að lokum.
— Forkosningar
Framhald af bls. 1
Reagan sagði, að sér kæmu
þessir árás forsetans á óvart og
upplýsti um leið, að hann hefði
tvívegis boðið sér að taka sæti í
ríkisstjórn, öðru sinni sem við-
skiptamálaráðherra.
Ford forseti lagði mikla áherzlu
á utanríkismálastefnu sina í ræðu
í gær. Hann gagnrýndi þingið
harðlega fyrir að bregðast hlut-
verki sinu í Angólamálinu. Þá
þakkaði hann sér að hafa haft
róandi áhrif á Kýpurdeiluna.
Nýjustu skoðanakannanir
benda til, að Ford hafi yfirhönd-
ina i samkeppninni við Reagan i
New Hampshire. Reagan hefur
látið svo um mælt, að hann geri
sig ánægðan með að fá 40 prósent
atkvæða f forkosningunum.
14 demókratar taka þátt í for-
kosningunum á þriðjudaginn, en
talið er að aðeins 5 þeirra geti náð
umtalsverðum árangri.
— Minning
Framhald af bls. 31
in sem við töluðum um að fara, er
ég heimsóttj hann síðast, verður
ekki farin, þar sem hann hefur
tekist aðra ferð á hendur.
Um leið og við þökkum vináttu
og kynni af góðum dreng sendum
við Esther og systrum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Asgeir Einarsson.
— Glæpir
Framhald af bls. 16
um og í sjónvarpi. Þá mundu lik-
lega einhverjir framámenn missa
höndina og kannski báðar, því
fjármálaspilling er gífurleg í
Egyptalandi.
Egyptar þurfa sannarlega ekki
að flytja inn glæpi. Okur, svarta-
markaðsbrask, gjaldeyrissvindl
og skattsvik eru almenn. Vændi
og alls kyns saurlifnaður eykst
alltaf. Innbrot, búðahnupl og
hvers kyns smáþjófnaður færist
lika í vöxt. Er talið, að flestallir
verkfærir menn i Egyptalandi
mundu missa hendurnar, ef
Maatouq kæmi frumvarpi sínu
fram. Brennivínsiðnaðurinn
legðist niður. Flestum skemmti-
stöðum yrði lokað. Flestar kvik-
myndir yrður bannaðar. Og þá
færi ferðamönnum nú líklega að
fækka, og ekki sizt þeim ríku
Aröbum, sem koma til Egypta-
lands að skemmta sér, af því þeir
mega það ekki heima hjá sér. Æði
margir Egyptar mundu flýja land.
Yrðu líklegafáir eftir nema alger-
ir ofstækismenn. Það gera enda
fáir ráð fyrir þvi, að frumvarp
Maatouqs verði samþykkt. Mönn-
um finnst það lýsa ótrúlegri
hræsni og þykir mörgum illt að
hafa trúað miðaldamanni fyrir at-
kvæði sínu. Þá grunar lika, að
æsifrumvarpi þessu sé ætlað að
leiða athygli þeirra frá efnahags-
vandanum, sundurlyndi Araba-
þjóðanna, og hernámi Israels-
manna á Sinaískaga. En aðrir
hafa tekið frumvarpinu fagr.andi.
I sumum moskunum í Kaíró er
syndugum nú hótað hýðingum,
grýtingum og krossfestingum. Og
frétzt hefur af sjeik einum, sem
var gripinn guðlegum eldmóði
yfir frumvarpinu og hvatti trúaða
til „að brytja i smábita alla
múhameðstrúarmenn, sem
drekka".
I frumvarpi Maatouqs er
hugsað fyrir refsingum við flest-
um mögulegum glæpum. Þó ekki
þeim að hvetja til ofbeldis og
fjöldamorða...
IRENE BEESON
— Bíóin
Framhald af bls. 24
því sem almennt gerist. 12
og 14 ára viðmiðunin er
hins vegar ekki tiltekin í
lögunum, svo að þess
vegna gætum við eins
bannað mynd til sýningar
fyrir börn yngri en 10 ára
eða 15 ára. Hin lögbundnu
16 ára mörk eru sjálfsagt
miðuð við það að undan-
gengin unglingsár eru mik-
ið mótunarskeið og fólk er
þá oft að leita sér að fyrir-
myndum. Jú, það er vel
hugsanlegt að endurskoða
megi þessa þriskiptingu.
Mér persónulega hefur
jafnvel fundizt stöku sinn-
um ástæða til að mörkin
væru hærri, t.d. 17—18 ár
eins og er i Bretlandi og
Bandaríkjunum."
• VANDAMAL EFTIR-
LITSINS: „Nei, við skoð-
unarmennirnir erum yfir-
leitt sammála um hvernig
eigi að takmarka aðgang að
kvikmynd. Það eru ekki til-
takanlega andstæð sjónar-
mið í því efni innan okkar
hóps. Og ég veit ekki hvort
ég get nefnt nokkur veru-
leg vandamál, sem við eig-
um við að glima i eftirlit-
inu. Yfirleitt er samvinnan
við forráðamenn bióanna
mjög góð. En það væri auð-
vitað leiðinlegt ef það er
rétt sem heyrist stundum
að banninu sé ekki fram-
fylgt og börnum hleypt inn
á mynd, sem við höfum
ákveðið að sé ekki við
þeirra hæfi. Það á að vera
hlutverk þeirra, sem reka
kvikmyndahús, og dyra-
varða að sjá um að það
gerist ekki. Ég þykist vita
að börnum finnist oft það
sem bannað er bæði spenn-
andi og eftirsóknarvert. Ég
vildi þó gjarnan fá að trúa
því að það sé ekki auðvelt
fyrir börn að komast inn til
að sjá bannaða mynd, því
annars væri þetta starf
harla tilgangslítið.
Lögreglan fer stundum í
eftirlitsferðir til þess að
kanna hvort lögum sé
framfylgt í þessu efni, en
hvort það er nógu oft, veit
ég ekki. Þetta veltur sem
sagt fyrst og fremst á kvik-
myndahúseigendum og
dyravörðum. Ef fólk
verður vitni að því að
þessu sé ábótavant væri
gott ef það gerði viðvart.
Jú, það hefur komið fyrir
áð kvikmyndahús hafi ekki
farið eftir tilmælum okkar,
en það hefur ekki gerzt
nýlega mér vitanlega og ég
vil ítreka að yfirleitt er
samstarfið við bíóin í góðu
lagi.“
— Reglurnar
Framhald af bls. 25
ég nefndi, þá held ég að væri
nokkuð sama hverjir sætu í
sjálfu eftirlitinu. Og ég tel að
reglan eigi að vera sú að leyfa
sýningar á svo til hverju sem er
en undantekningin væri að
banna. Það sem mér fyndist
helzt eiga að banna er alls
konar tortúrmyndir og djöful-
gangur og ógeðslegustu morð
— ég tala nú ekki um ef ung-
lingar eru látnir leika slíkt. Það
finnst mér alveg forkastanlegt.
En ég fæ ekki séð hins vegar að
það sé nokkur ástæða til þess að
banna sýningar á tiltölulega
heilbrigðum klámmyndum. Við
vitum ósköp vel að þetta er
flutt inn í landið í stórum stíl i
8 mm útgáfum og sýnt út um
borg og bý. Plús það að Islend-
ingar eru fljúgandi út um allan
heim til að skoða þetta. Ég fæ
þvi ekki séð nokkurn punkt í
þvi að banna sýningar á þessu
hér. Ég er heldur ekki í nokkr-
um vafa um að þetta myndi
ganga yfir á örskömmum tíma.
Það erreynslan annars staðar."
„Eg held nú að eftirlitið i
bíóunum með því að krakkar
komist ekki inn á myndir sem
þeim eru bannaðar samkvæmt
núgildandi reglum gangi allvel.
Nokkuð misjafnlega þó. En ég
tel að dyraverðir séu almennt
strangir — alla vega veit ég að
dyraverðirnir hjá mér eru það.
Hitt finnst mér algjörlega út í
bláinn að vera að banna annars
vegar innan 12 ára og hins
vegar innan 14 ára. Hver
getur sagt hvort 14 ára ung-
lingur hefur miklu meiri
þroska en 12 ára? Ekki get ég
alla vega dæmt um það. Mín
skoðun er sú að í nýjum reglum
um kvikmyndaeftirlit eigi
aðeins að vera ein aldursmörk
þ.e. 16 ára. Ég held að það sé
alveg nægilegt."
„Ég hef ekki svona á reiðum
höndum nákvæmar hugmyndir
um hvernig kvikmyndaeftirlit
eigi að vera í smáatriðum. En
það er alveg ljóst að þetta
verður að stokka upp. Að ekki
skuli vera til skýr löggjöf um
kvikmyndaeftirlit nær auðvitað
engri átt, en þannig er þetta
raunar um allt sem kvikmyndir
varðar hér á landi. Hver hræða
á Stór-Reykjavíkursvæðinu fór
15 sinnum í bíó á siðastliðnu
ári. Þetta er sú skemmtun sem
almenningur sækir langmest.
Og það er ekki til nein löggjöf
um hana!“.
— Kvikmyndir
Framhald af bls 38
Paramount. 7 m. $
28. Trial of Billy Jack. F.
Laughlin, W.Br. 6.7 m. $
29. Strongest Man in the World.
V. McEveety, Disn. 6.6 m. $
30. Reincarnation of Peter
Proud, J.L. Tompson,
CRC/A.I.P. 6.5 m. $
Heimild: VARIETY.
Sæbjörn Valdimarsson.