Morgunblaðið - 22.02.1976, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.02.1976, Qupperneq 40
AUGLY SINGASÍMfNN ER: 22480 tmrgiiutlblaMli AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 3W«rfltmi)Ifl?Jit> SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1976 Veitingahús uppvís að því að nota ólög- lega sjússamæla KOMIÐ hefur í Ijós að a.m.k. tvö veitingahús í Reykjavík hafa notað ólöglega sjússamæla og í athugun er hvort fleiri veitingahús hafi stundað slík svik. Blaðið fékk þetta staðfest hjá Bjarka Elíassyni yfirlögregluþjóni í gær, en að hans sögn er mál þetta nú í rannsókn. Löghoðinn vínsjúss á veitingahúsum er 3 sentilítrar en hjá tveimur fyrrnefndu veitingahúsunum vantaði 3—4 millilítra upp á magnið, þannig að vínsjússinn, sem viðskiptavinurinn hefur fengið í þessum húsum, er 10% minni en hann greiddi fyrir. Löggildingarstofan >>efur út ná- kvæma sjússmæla, sein vínveit- ingahúsunum ber aú nota. Grunur hefur leikið á þvi, að veitingahús notuðu ekki þessa löggiltu mæla og hefur þetta verið i rannsókn. m.a. var farið í veitingahús eitt i borginni s.l. föstudagskvöld til að gæta að mælunum þar. Neitaði veitíngamaðurinn i fyrstu að sýna mælana en um síðir gaf hann sig og kom í ljós að þeir voru ólög- legir. Lagði lögreglan hald á mæl- ana. Löggildingarstofan var fengin tíl að mæla nákvæmlega sjússmælana hjá veitinga- húsunum tveimur og reyndust þeir vera 2,6—2,7 sentilftrar en ekki 3 sentilítrar eins og lögboðið er. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér í gær hafa enn ekki verið lagðar fram kærur á hendur viðkomandi veit- ingahúsum vegna þessara lög- brota en það verður væntanlega gert innan skamms. Nokkrir aðilar hafa verið yfirheyrðir, þjónar og veitingamenn en ekki mun liggja fyrir hver þénusta veitingahúsanna hefur orðið aukalega vegna þessara aðferða. Ljósmynd: HAX. VEGNA sænskrar kvikmyndaviku, sem er að hefjast hér f Reykjavfk, komu f gær til landsins með leiguflugvél Vilgot Sjöman, kvikmyndaleikstjóri, Ann Zacharias, kvikmyndaleikkona, og Harry Schein, forstöðumaður sænsku kvikmyndastofnunarinnar. Myndin er tekin af þeim þremur við komuna til Reykjavfkur f gærmorgun. Þess má geta að Verkakvennafélagið Framsókn hefur veitt heimild til undanþágu til ræslingar f Austurbæjarbfói en þar verða hinar sænsku kvikmyndir sýndar. Ósamkomulag hjá ASÍ Ekkert gerðist á fundunum segir Björn Jónsson Hrollvekja tók við þegar mafíu- myndinni lauk MAÐUR nokkur brá sér f Háskólabió klukkan 5 á föstu- daginn og horfði þar á mafíu- mvndina Guðföðurinn. Þegar mvndinni lauk fór hann út í bílinn sinn, Landrover-jeppa, setti hann í gang og hugðist aka af stað. En það merkilega gerðist, að híllinn hreyfðist ekki úr stað. Setti hann þá hflinn í framdrif oggat þannig með herkjum ekið honum heim. Þegar þangað kom fór hann að aðgæta betur hvað væri að bílnum og uppgötvaði sér til mikillar furðu og hrvll- ings að búið var að stela aftur- öxlinum! Er það minnst hálf- tíma verk að losa öxulinn. Rannsóknarlögreglan óskar eftir vitnum, sem hugsanlega kunna að hafa séð þjófana að verki á föstudaginn. SAMNINGAFUNDIR milli aðila vinnumarkaðar- ins í fyrradag fóru aðal- lega í það að fá einstaka hópa innan raða ASÍ- forystunnar til þess að nv r a Halda á friðaða svæðið Rólegt var á miðunum fyrir austan land i fyrrinótt og var svo enn í gærmorgun. Brezku togar- arnir hafa haldið sig í landvari og að sögn Gunnars H. Ólafssonar, eru sumir skipstjórarnir orðnir það þreyttir á ástandinu hér við land, að þeir eru nú lagðir af stað til Noregs á skipum sínum, í von um að fá meira næði til að fiska. Þá sagði Gunnar, að gefin hefði verið út tilkynning um nýtt veiði- svæði togaranna í fyrrakvöld. Þetta nýja veiðisvæði er frá 16° V til 66°N, eða frá Rifstanga að Digranesi. Friðaða svæðið, þar sem brezku togararnir voru að veiðum fyrir skömmu er inni í þessu nýja veiðisvæði og ber ekki á öðru en Bretar ætli sér að halda áfram að veiða alfriðaðan smá- fiskinn. Loðnan komin að Vestmannaeyjum ENGIN loðnuveiði var s.l. sólarhring. Þeir bátar, sem voru úti, lágu f landvari vestan við Ingólfshöfða, en þar voru þeir sfðast að veiðum. Vestast munu bátarnir hafa fcngið loðnu við Skaftárósa. Þá fregnaði Morgunblaðið í gær, að flutningaskip hefðu fundið mikla loðnu skammt austan við Vestmannaeyjar. Morgunblaðið hafði samband við Jakob Jakobsson fiskifræðing og spurði hann hvort líkur væru á að loðnan væri komin að Vest- mannaeyjum. Jakob sagði það vel geta itt sér stað, en sjálfur hefði hann ekki haft fregnir af henni þar. Rannsóknarskipið Árni Frið- riksson hefði haldið út í fyrra- kvöld undir stjórn Sveins Svein- björnssonar fiskifræðings, en þeir væru vart komnir á miðin enn. Sagði Jakob, að það væri mjög misjafnt hve lengi loðnan væri að ganga frá Vestmannaeyjum að Reykjanesí. Stundum tæki það loðnuna aðeins tvo—þrjá daga og i önnur skipti allt að 10 daga. falla frá háum sérkröfum — að sögn Jóns H. Bergs, formanns VSl. Miðuðu þessar tilraunir að því að skapa einingu í röðum ASl. Björn Jónsson, forseti ASl, sagði hins vegar að ná- kvæmlega ekkert hefði gerzt á fundum, sem hóf- ust klukkan 14 í fyrradag og stóðu til klukkan 02 í fyrrinótt. Aðalsamninga- nefndirnar hefðu aldrei talazt við. Björn kvað mál- ið hið alvarlegasta og sagð- ist hann vera hættur að búast við að nokkuð gerð- ist. Fundur var í gær boð- aður á ný klukkan 14 í Toll- stöðvarhúsinu við Tryggva götu. Jón H. Bergs, formaður VSI, sagöi aö dagurinn í fyrradag hefði farið fyrir lítið. Viðræður hefðu þá algjörlega strandað á hinum háu sérkröfum einstakra hópa og hann sagði, að innan ASÍ virtist ríkja algjört ósamkomulag, þann- ig að fengi einhver hópur eitthvað, þyrftu allir aðrir að fá mjög háar viðbótarsérkröfur. Jón var spurður að því, hver viðbrögðin hefðu verið við tillögu vinnuveitenda hjá fulltrúum launþega, og sagði hann þá: „Þau eru mjög mismunandi. Ég heýrði það á ýmsum úr röðum viðsemjenda okkar, að þeir eru jákvæðari en aðrir og það er vitað, að þetta með samningstímann er okkur ekki fast í hendi. Viðvíkjandi rauðu Enn er þrefað um undanþágu á mjólk UM HÁDEGI f gær var enn ekki komin endanleg niðurstaða á mjólkurmálin og þvf alveg óvfst hvenær hægt yrði að hefja sölu á mjólk til kornabarna, sjúklinga og gamalmenna. Morgunblaðið aflaði sér þeirra upplýsinga, að Dagsbrún, verkakvennafélagið Framsókn og A.S.B., þ.e. félag afgreiðslustúlkna f brauð- og mjólkurbúðum, væru búin að samþykkja þær tillögur um undanþágur sem lagðar hefðu verið fram, en mjólkurfræðingar áttu þá eftir að gcfa svör. Skúli Johnsen, borgarlæknir, sagði í gær, að hann vonaðist til að málið leystist endanlega síðar um daginn, en málinu var skotið á frest þar til í gær, eftir að umræð- ur um undanþágur höfðu staðið lengi yfir í fyrrinótt. Sigurður Runólfsson hjá Mjólk- urfræðingafélaginu sagði, að ekkert væri búið að ræða undan- þágumálið hjá þeirra félagi. Ástæðan fyrir því væri, að mjög hægt gengi í samningamálum við þeirra eigin viðsemjendur, sem væru mjólkursamsölumennirnir. — Ég vona að þeir menn sem við okkur eiga að tala, snúi sér nú í alvöru til okkar. Þeir hafa ekkert gert til að koma á móti okkur, ef þeir gera það, lítum við allt öðrum augum á málið, sagði hann. Þá hafði Morgunblaðið í gær samband við Guðmund J. Guðmundsson, formann Dags- brúnar. Hann vildi lítið um málið segja, neina að hann vonaðist innilega til að þetta leystist og takmörkuð mjólkursala gæti hafizt á mánudaginn. Mbl. hafði einnig spurnir af því, að útsölunni yrði sennilega háttað þannig, að fólk yrði að sýna sjúkrasamlagsskírteini þegar það keypti mjólk og að fólk með kornabörn hefði algjöran for- gang. strikunum, þá hefur það aðeins verið sett fram, en við höfum ekki heyrt nánari skilgreiningu á þeim og því er ekki unnt að tjá sig um þau, fyrr en vitað er betur hvað átt er við.“ Jóni var bent á, að nú hefði þó sá áfangi náðst, að ASl hefði sam- þykkt áfangahækkanirnar tvær, 5% frá 1. júlí og 4% frá 1. októ- ber. Hann sagði: ,,Já, en þeir halda því fram að byrjunarhækk- unin sem er 4% sé of lág. En það er nú álit margra, að það sem felst í sáttatillögunni séu verðbólgu- og gengisfellingarsamningar — ef af þessu yrði gengið. Við viljum ekki þurfa að svara fyrir það að gengið sé lengra út i vitleysuna." Að lokum sagði Jón H. Bergs: „Það voru í gær gerðar mjög mikl- ar tilraunir til þess að fá einstaka hópa til þess að falla frá háum sérkröfum um viðbótarlaun fyrir sína hópa. Var þetta gert til þess að reyna að skapa einingu í röð- um launþega, en það hefur ekki orðið árangur af því. Var þetta gert með viðræðum við samninga- menn og aðalsamninganefndirnar voru í viðræðum við sáttanefnd- ina svo og fulltrúar frá aðalsamn- inganefndunum.“ Árangurslaus sáttafundur SAMNING AFUNDUR í kjara- deilu sjómanna og útvegsmanna, sem hófst f fyrradag klukkan 17 í Tollstöðvarhúsinu við Tryggva- götu, lauk í fvrrinótt klukkan 02. Ekkert gerðist markvert á fundinum og að sögn þeirra Jóns Sigurðssonar og Kristjáns Ragnarssonar miðaði lftið sem ekkert til samkomulags. Fundur var f gær boðaður klukkan 14 og átti að halda hann f Þórshamri. Að gefnu tilefni vill Jón Sigurðsson, formaður Sjómanna- sambands íslands, láta þess getið, að í þau 40 ár, sem hann hefur staðið að samningagerð fyrir Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.