Morgunblaðið - 06.03.1976, Side 1
28 síður: og lesbók
50. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fimm þúsund fulltrúar voru allir á einu máli og Brezhnev var einróma kjörinn leiðtogi sovézka Komm-
únistaflokksins áfram.
Eftirmaður Brezhnevs kom-
inn fram á sjónarsviðið ?
Moskvu 5. marz AP—Reuter.
5000 þingfulltrúar á 25.
flokksþingi fögnuðu í dag
ákaft, er Leonid Brezhnev,
aðalritari flokksins, til-
kynnti brosandi, að hann
Takmarkið rétt
— en leiðin röng
— segir Mike Burton
London, 5. marz AP.
MIKE Burton, formaður samtaka
brezkra togaraeigenda, sagði f
bréfi sem birtist f Daily Tele-
graph í dag, að tslendingar sækt-
ust ekki eftir röngu markmiði f
samband við 200 mflurnar heldur
væri leiðin, sem þeir hefðu kosið
til að fá 200 mflur röng.
I bréfinu segir Burton að allir
búist við að 200 mílurnar verði að
alþjóðalögum á næstunni, en
þrátt fyrir að slík útfærsla yrði
gerð á morgun myndu íslending-
ar eftir sem áður verða einir á
báti. Hann sagði að hin almenna
grundvallarregla væri að koma á
þessum breytingunum á skynsam-
legan reglubundin og mannúðleg-
an hátt. Hinn möguleikinn, sem
ekki væri eftirsóknarverður, væri
það sem islendingar gerðu, að
beita varðskipum. Þess vegna
yrði að leysa þessi mál með skyn-
samlegum samningum.
Hattersley:
Vona að meiri harka
færist ekki í deiluna
Hull, 5. marz, frá Mike Smartt,
fréttaritara Mbl.
ROY HATTERSLEY aðstoðarutanrfkisráðherra Bretlands, sagði f við-
tali f Hull f dag, að hann teldi enn að fremur litlar horfur væru á að
samningar tækjust á næstunni milli tslendinga og
Breta f fiskveiðideilunni. Sagðist Hattersley ekki
finna neinn samningsvilja af hálfu tsfendinga og
stjórnmálaslitin hefðu ekki auðveldað leitina að
lausn.
Aðspurður um álit hans á stærð brezka verndar-
flotans og þeirri yfirlýsingu tslendinga, að þeir
væru að leita að fleiri skipum og flugvélum til
gæzlustarfa, sagði Hattersley, að hann teldi að
brezki verndarflotinn væri nægilega stór til þess að
geta tryggt brezku togurunum að þeir fengju að
veiða i sæmilegum friði og sagðist vona, að Islend-
ingar myndu ekki færa það aukna hörku í deiluna
Ottast nýja öld hryðju-
verka áNorður-írlandi
London 5. marz Reuter-AP
Melvin Rees, Irlands-
að leitt gæti til manntjóna. Sagðist
hann telja að tslendingar vildu
ekki færa deiluna út fyrir ákveðin
mörk. Hann sagðist vonast til að
viðræður gætu hafizt aftur, því að
bæði Bretum og tslendingum væri
mjög í mun að leysa þessa deilu.
Hattersley kom til Hull til að opna
nýja stúdentamiðstöð við háskól-
ann í Hull, sem hann sjálfur nam
við fyrir 20 árum.
Hann sagði að Bretar myndu
leggja mikinn þunga á að fá meiri
sérréttindi innan 200 mílna
auðlindalögsögu EBE en þær 12
milur, sem gert væri ráð fyrir sem
einkalögsögu, en vildi ekki segja
hve mikið.
málaráðherra, tilkynnti í
brezka þinginu í dag, að
stjórnin hefði ákveðið að
leysa upp stjórnarskrár-
þing N-írlands og sagði, að
ekki yrði á næstunni um að
ræða nokkrar tilraunir af
hálfu Breta til að finna
lausn á deilu Kaþólskra og
mótmælenda á N-fslandi.
Borgarastyrjöldin á N-
frlandi hefur nú staðið í 6
ár og kostað hátt á 2. þús-
und manns lífið. Verður
N-írlandi stjórnað áfram
frá London, sem og undan-
farin 2 ár.
Tilkynning þessi kom í
kjölfar þess að stjórnar-
skrárþingnefndin, sem
kosin var fyrir 10 mánuð-
um, lýsti yfir að henni
hefði mistekist að finna
lausn á deilumálum.
Neituðu mótmælendur í
nefndinni algerlega að
samþykkja að kaþólikkar
fengju sæti í framtíðar-
ríkisstjórnum landsins.
Bees sagði í ræðu sinni, að nú
væru litlar líkur á að lausn yrði
hægt að finna á þessu vandamáli
á næstunni. Brezka stjórnin
stefndi sem áður að því að koma á
rikisstjórn i landinú, en hefði
ekki uppi neinar áætlanir um að-
gerðir.
Rees viðurkenndi, að hætta
væri nú á auknum hryðjuverkum
og átökum milli kaþólskra og mót-
mælenda, en við því væri ekkert
að gera Mótmælendur hefðu þeg-
ar varað brezka ráðamenn við að
blóðug átök og upplausn gæti
fylgt í kjölfarið, ef Bretar höfn-
uðu kröfum mótmælenda um
meirihlutastjórn. Þá er einnig
óttazt, að irski lýðveldisherinn
muni grípa til harðra skæruliða-
aðgerða á ný og er talið að IRA
menn hafi stgðið að baki sprengj-
unum í London undanfarna daga,
m.a. sprakk sprengja í lest, aðeins
örfáum mínútum eftir að farþeg-
ar höfðu gengið út úr henni.
Brezhnev.
hefði einróma verið kjör-
inn til að gegna störfum
flokksleiðtoga næstu 4 I
árin. Aðeins einn maður I
vék úr stjórnmálanefnd-
inni, Dimitry Polyansky,
landbúnaðarráðherra, en
hann mun hafa orðið að
taka á sig sökina á hinum
mikla uppskerubresti f
landinu á sl. ári. Polyansky
var þó kjörinn f miðstjórn
flokksins. Tveir nýir menn
taka nú sæti í stjórnmála-
nefndinni, þeir Grigory V.
Romanov, 53 ára gamall
leiðtogi flokksins f
Leningrad, og Jimitry F.
Ustinov, 67 ára gamall,
sem um 20 ára skeið hefur
verið yfirmaður vopna-
búnaðar landsins. Eru nú
16 menn í stjórnmálaráð-
inu. Meðalaldur þeirra er
nú 65,8 ár.
Hækkun Romanovs úr vara-
manni í aðalmann í stjórnmála-
ráðinu hefur rennt stoðum undir
getgátur um að hann kunni að
vera maðurinn, sem taki við af
Framhald á bls. 27
Pundið
niður f>TÍr
2 dollara
London 5. marz AP.
GENGI brezka sterlingspunds-
ins lækkaði í dag mjög veru-
lega og fór í fyrsta skipti í
sögunni undir 2 dollara fvrir 1
pund. Er gjaldeyrismörkuðum
í London var lokað í kvöld
fengust 1,98 dollarar fyrir
pundið, en hefur undanfarna
mánuði verið 2.02. dollarar.
Englandsbanki gerði engar til-
raunir til að styrkja pundið og
það vakti mikla athygli, er
bankastjórnin ákvað að lækka
útlánsvexti úr 914% í 9% í dag,
en vextir voru 12% um mitt sl.
ár. Hefur það einmitt verið
stefna bankans að hafa vexti
sem hæsta til að gera pundið
eftirsóknarverðara fyrir er-
lend fyrirtæki og fjármála-
menn.
Engin skýring hefur verið
gefin á þessari lækkun önnur
en sú, að verðbólgan i Bret-
landi hafi undanfarið verið
meira en tvöfalt hærri en hjá
nágrannaríkjunuin. Pundið
var skráð á 2.60 doilara 1971,
er alþjóðlegu gjaldeyrismálin
voru endurskoðuð, en síðan
hefur það verið látið fljóta og
hefur alltaf sigið niður á við.
Staða þess versnaði snögglega
í gærkvöldi, er Englandsbanki
keypti 170 milljónir dollara.
Telja sérfræðingar hugsanlegt
Framhald á bls. 27