Morgunblaðið - 06.03.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976 £>
Borgarstjórn:
Tillögu um stöðvun innkaupa
frá Bretlandi var vísað frá
A BORGARSTJ0RNARFUNDI I
fyrradag lagði Sigurjón Péturs-
son fram svohljóðandi tillögu, en
Alfreð Þorsteinsson var flutn-
ingsmaður ásamt honum:
„Borgarstjórn álvktar, að á
meðan Bretar hafa í frammi of-
beldisaðgerðir gegn Isiendingum
innan fiskveiðilandhelgi Islands
skuli að þvf stefnt, að innkaup
Reykjavíkurborgar verði ekki
gerð S Bretlandi."
Það kom fram I umræðum á
fundinum, að upphaflega er til-
laga þessi komin frá Torben Frið-
rikssyni, forstjóra Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar, en
forstjórinn flutti tillöguna á
fundi stjórnar stofnunarinnar 1.
marz s.l. Sigur jón Pétursson gerði
tillögu forstjórans að sinni á
fundi borgarráðs 2. marz s.I., en
Albert Guðmundsson lagði þá til
að henni yrði vísað frá, og var það
samþykkt. örlög tillögunnar urðu
á sömu lund f borgarstjórn.
Nokkrar umræður urðu um til-
lögu þessa og tilurð hennar á
fundi borgarstjórnar. Lýsti Sigur-
jón Pétursson þar óánægju sinni
með aðgerðir rikisstjórnarinnar i
landhelgismálinu, og taldi að með
því að samþykkja tillöguna gæti
borgarstjórn veitt rikisstjórninni
aðhald, sem væri i samræmi við
almenningsálitið.
Birgir tsleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, mælti gegn tillög-
unni. Taldi hann tillöguna
vanhugsaða og fram borna af til-
finningasemi, sem hefði borið
skynsemina ofurliði. Hann benti
á, að enda þótt stjórnmálasam-
bandi við Breta hefði verið slitið,
þá hefði enginn ábyrgur stjórn-
málamaður enn komið fram með
þá tillögu að setja viðskipta-
bann á Breta, enda lægi í aug-
um uppi að slík aðgerð mundi
fyrst og fremst koma niður á Is-
lendingum sjálfum. Til marks um
þetta væri sú staðreynd, að jafn-
vel þingmenn Alþýðubandalags-
ins hefðu ekki treyst sér til að
ganga lengra í málflutningi
sínum en að leggja fram tilíögu
um sérstaka tollaálagningu á
brezkar vörur.
I þessu sambandi benti Birgir
Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri,
á, að á síðasta ári hefði innfíutn-
ingur Innkaupastofnunar Reykja-
vikurborgar frá Bretlandi aðeins
numið um 4 af hundraði alls
innflutnings stofnunarinnar, en á
siðustu fimm árum hefði
innflutningur frá Bretlandi
numið 7.4 af hundraði heildar-
innflutnings stofnunarinnar.
Hann benti á þá athyglisverðu
staðreynd, að einu umtalsverðu
viðskiptin við Bretland hefðu
farið fram á árinu 1973.
Hefði innflutningur Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar frá
Bretlandi með öðrum orðum verið
langmestur á tíma þorskastríðs
vinstri stjórnarinnar.
Borgarstjóri benti á að útflutn-
ingur Islendinga til Bretlands
næmi nú um 5 milljörðum króna á
ári, og að ekki yrði áhlaupaverk
að afla nýrra markaða tæki fyrir
þann útflutning auk þess sem
ætla mætti að Bretar beittu gagn-
aðgerðum. Þá ættu Islendingar
samskipti við brezka lánamark-
aði, margir Islendingar væru við
nám i Bretlandi, auk þess sem það
væri ekki einfalt mál að afnema
vörukaup frá Bretlandi. Þyrfti
ekki annað en að benda á kaup á
varahlutum i tæki, sem þegar
hefðu verið keypt þaðan, til að
skilja þá staðreynd. Um viðskipti
Reykjavíkurborgar við Bretland
sagði borgarstjóri, að ákveðnir
þættir í rekstri borgarinnar væru
að verulegu leyti háðir því, að þau
gengju vel. Þar á meðal væru
mjög mikilvæg tæki í togurum
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem
mundu stöðvast, fengjust tækiTi
ekki keypt frá Bretlandi. Þá kom
í ljós, að verulegur hluti véla-
kosts, sem notaður er við gatna-
gerð, garðrækt og gatnahreinsun,
kemur frá Bretlandi. Sagði borg-
arstjóri að misbrestur á innflutn-
ingi varahluta í þessu tæki gæti
leitt til þess að þau ýrðu óvirk.
Yrði tillagan samþykkt kæmi við-
skiptabann það, sem Sigurjón og
Alfreð vildu innleiða, þvi fyrst og
fremst niður á borginni, enda þótt
viðskipti Reykjavikurborgar við
Bretland væru ekki ýkja mikil að
vöxtum. I upphafi skyldi endirinn
skoða, og það væru gömul og ný
sannindi, að vopnin gætu snúizt i
höndum manna, og það, sem beint
var gegn óvininum, gæti hitt
mann sjálfan fyrir.
Borgarstjóri bar fram eftirfar-
andi frávisunartillögu borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins:
„I landhelgisdeilunni við Breta
er nauðsynlegt, að sérhvert spor
sé stigið að vel athuguðu máli og
að allar aðgerðir Islendinga verði
samræmdar undir forystu rikis-
stjórnarinnar, sem til þessa hefur
haldið vel á málinu. Sérstaklega
ber að hafa í huga að þær aðgerð-
ir, sem gripið er til, hitti ekki
Islendinga sjálfa verst fyrir,
þannig að vopnin snúist i höndum
okkar. Borgarstjórn telur því ekki
ástæðu nú til að samþykkja
stefnuyfirlýsingu þess efnis, að
innkaup borgarinnar verði ekki
gerð í Bretlandi, enda mikilvægir
þættir í rekstri ýmissa borgar-
stofnana háðir viðskiptum við
Bretland og hætta á stöðvun
Framhald á bls. 27
Snjósleðakappar að æfingu fyrir mótið.
Ljósm. A.H.
Snjó-rallið verður í dag
LIONSKLUBBARNIR Njörður og Freyr hafa í
samráði við björgunarsveitir unnið að undirbún-
ingi snjó-rallsins í nágrenni Reykjavíkur. Upphaf-
lega var ætlunin að halda mótið við Sandskeið en
nú hefur verið ákveðið að flytja mótið. Verður það
haldið í dag við Þingvallaveginn þar sem hann
liggur um Mosfellsheiði. Þar er nægilegur snjór og
hefst mótið kl. 14.00
MikiII áhugi er fyrir þessu móti, en stefnt er að
þvi að slík mót verði haldin um land allt og
sigurvegurunum siðan stefnt saman í nágrenni
Reykjavikur. Fjöldi þátttakanda hefur þegar skráð
sig til keppni.
Leiðin verður vel merkt og engin hætta er á að
menn finni ekki mótssvæðið. Aðgangseyrir er 300
kr. fyrir fullorðna en 100 kr. fyrir börn. Eins og
fram hefur komið í blaðinu rennur allur ágóði til
tækjakaupa fyrir björgunarsveitirnar sem aðstoða
Lionsklúbbana við framkvæmd mótsins.
„Stefni að fjölbreytt-
arí vinnslu með efni”
Sigurður Örlygsson listmálari sýn-
ir um þessar mundir 55 málverk l
Norræna húsinu og lýkur sýning-
unni um helgina. Við litum inn hjá
Sigurði og röbbuðum við hann, en
talsverð breyting hefur orðið í mál-
verki hans síðan hann sýndi í hópi
sexmenninganna á Kjarvalsstöðum
um árið Þá byggði Sigurður myndir
sínar að mestu á spegilmynd
tveggja flata, en nú hefur hann
losað um púkann á bitanum eins og
hann komst að orði og hleypt
prakkaraskapnum inn í myndflötinn
að yfirveguðu ráði þó.
„Hvur fjárinn," sagði Sigurður
þegar við settumst niður til að rabba
saman, „það er öllu stolið úr mér
sem ég ætlaði að segja, en það var
hér allt í gær. Annars má segja að
þessar myndir mínar á sýningunni
séu flokkanlegar i nokkra flokka,
sem þó eru hvorki pólitískir né að
um sé að ræða 1 , 2., eða þriðja
flokk af þorski
Hér eru skýjamyndir, myndir
hlaðnar smáhlutum og þannig hef
ég reynt að hleypa Ijóðrænu inn i
myndirnar. Ég hef losað mig að
ta
sprang
Eftír
Arno Johnsen
mestu við spegilmyndina og mér
finnst ég hafa færzt ! aukana með
því, sérstaklega þó I gegnum vinnu
með klippimyndir, en með þvi fyrir-
brigði tók ég snúning i Amerikuför
fyrir nokkru og dvöl þar Hin föstu
form voru mér strangur skóli, en þar
byggði ég yfirleitt á einu til tveimur
formum i gegnum myndina en nú
hefur þetta leystst úr læðingi og ég
held að það sé ekki vitlaus þróun að
þyrja strangt en losa siðan um og
slaka á i fletinum um leið og maður
tekur á i flóknari myndgerð Flestar
þessar myndir eru málaðar á sl
tveimur árum, en að undanförnu hef
ég gert talsvert af þvi að skera í
sundur gamlar myndir, mála þær
upp á nýtt og setja saman, í breyttu
formi að sjálfsögðu."
„Hvert stefnir þú i málverkinu?”
„Ég ætla að halda áfram að losa
um þetta og það er gott að taka á rás
eftir þessa sýningu, þvi maður hefur
gott af að sjá hvað maður hefur gert
og þá er hægara að vinza úr og velja
það svið sem maður vill taka fyrir
Þetta er náttúrulega hægt að gera án
þess að halda sýningu, en það er
spennandi að bjóða fólki með i leik-
inn, taka þátt i vorsprettunm
Á næstUnni ætla ég í heimsókn til
skyldmenna i Skandinavíu og i þeim
túr reikna ég með að fá vinnu-
aðstöðu um tima i Kaupmannahöfn,
svo það er hugur i manni eins og
vera ber og það kemur einnig til af
þvi að mér finnst miklu skemmti-
legra að vinna þessar nýju myndir
minar en þær sem ég gerði i spegil-
stílnum ef svo má segja Fyrst og
fremst stefni ég út i meiri og fjöl-
breyttari vinnslu með efni og alls-
konar sull i myndgerð, úthleyptar
myndir og sitthvað sem bezt er að
segja sem minnst um að sinni áður
en maður hefur mallað eitthvað."
Sigurður örlygsson listmálari
við eina mynda sinna I gamla
stílnum, en þó hefur hann
málað hana upp og breytt
henni fyrir skömmu.
Ljósmynd Mbl. Ól. K. M.
Þegar við heimsóttum Sigurð I
kjallara Norræna hússins var
hópur nemenda á 2. ári f Hand-
fða- og myndlistarskólanum I
heimsókn hjá honum ásamt
Braga Asgeirssyni listmálara
og kennara við skól ann.