Morgunblaðið - 06.03.1976, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976
UMFERÐARRÁÐ hefur sent frá sér greinargerð um hugsanlegar
leiðir til að fækka slysum f umferð. Er þessi samantekt gerð að beiðni
dðmsmálaráðherra vegna hinna tfðu og alvarlegu umferðarslysa, sem
urðu á seinni hluta ársins 1976. Umferðarráð vekur athygli á þvf, að á
sfðasta ári biðu 33 vegfarendur bana f umferðarslysum og 697 slösuð-
ust, þar af voru 376 lagðir á sjúkrahús. Umferðarráð telur nauðsynlegt
að nú þegar verði hafist handa um samræmdar ráðstafanir sem
Ifklegar eru til að stuðla að auknu umferðaröryggi f landiuu og
fækkun umferðarslysa.
t greinargerðinni eru hugmyndir um leiðir til varnar gegn slysum f
umferð flokkaðar f þrjá meginhluta. t fyrsta lagi eru tilgreindar þær
hugmyndir sem að mati ráðsins er unnt að framkvæma með skömmum
fyrirvara og án lagabreytinga eða verulegs kostnaðar. t öðru lagi eru
nefndar æskilegar breytingar á umferðarlöggjöf og lögum um meðferð
opinberra mála. 1 þriðja lagi eru nefndar ýmsar aðrar hugmyndir sem
ætla má að verði til varnar gegn slysum f umferð.
I. Aðgerðir sem unnt er að
framkvæma með stuttum
fyrirvara og án lagabreyt-
inga eða verulegs kostnað-
ar.
ökuferilsskrá.
Lagt er til að ákveðið verði að
ökuferilsskrá í spjaldskrárformi
skuli haldin í öllum lögsagnarum-
dæmum. I skrána verði færð aðild
að umferðarslysum og óhöppum,
hvort aðili er talinn í sök eða ekki.
Ennfremur verði færð í skrána
alvarleg brot er varða umferðar-
öryggi, svo sem ölvun við akstur,
of hraður akstur, brot á bið-
skyldu, stöðvunarskyldu eða al-
mennum umferðarrétti og brot á
reglum um umferðarljós. Komið
verði á fót ökuferilsskrá fyrir allt
landið og reglur settar um hvaða
tilvik skuli færð í ökuferilsskrá
og með hverjum hætti, svo og
hvernig haga skuli upplýsinga-
skiptum milli aðalskrár og ein-
stakra lögsagnarumdæma. öku-
ferilsskrá verði notuð til leiðbein-
ingar við endurnýjun ökuskfr-
teina, svo og við ákvörðun um
það, hvort ástæða sé að kanna
þekkingu manna á umferðarregl-
um og aksturshæfni.
Könnun á þekkingu á umferðar-
reglum og aksturshæfni.
Ef ökuferilsskrá leiðir í ljós að
ökumaður hefur ítrekað átt sök á
umferðarslysi, ítrekað gerst brot-
legur gegn umferðaröryggisregl-
um, eða á annan hátt sýnt athuga-
verða hegðun í umferð, ber að
kanna þekkingu hans á umferðar-
reglum og eftir atvikum akstur-
hæfni hans sbr. 6. mgr. 27. gr.
umferðarlaga og 48. gr. reglugerð-
ar um ökukennslu, próf öku-
manna o.fl. Æskilegt er að aðil-
um verði gefinn kostur á nám-
skeiði til upprifjunar á helstu um-
ferðarreglum áður en til könnun-
ar kemur. Leiðbeiningareglur um
framkvæmd könnunarinnar verði
gefnar út til þess að tryggja sam-
ræmda framkvæmd f öllum lög-
sagnarumdæmum.
ökuleyfissvipting
ökuleyfissviptingu verði beitt
mun oftar en nú tíðkast við ein-
stök alvarleg umferðarlagabrot,
t.d. vítaverðan og gálausan akst-
ur. Þá verði teknar upp ökuleyfis-
sviptingar í vaxandi mæli gagn-
vart þeim ökumönnum, sem oft
eru staðnir að alvarlegum um-
ferðarlagabrotum, án þess að
hvert einstakt þeirra hafi leitt til
ökuleyfissviptingar. Verði stuðst
við ökuferilsskrá við ákvörðun
um bráðabirgðaökuleyfissvipt-
ingu og kannað hvort setja megi
leiðbeiningar um framkvæmd
þessa.
Próf f umferðarlöggjöf við endur-
nýjun fullnaðarskfrteinis.
Samkvæmt 6. mgr. 27. gr. um-
ferðarlaga er heimilt að ákveða að
við endurnýjun fullnaðarskírtein-
is skuli hlutaðeigandi gangast
undir skriflegt próf í umferðar-
löggjöf. I 2. mgr. 47. gr. reglugerð-
ar um ökukennslu, próf öku-
manna o.fl. er mælt svo fyrir, að
áður en ökuskírteini er endurnýj-
að skuli umsækjendur ljúka skrif-
legu prófi í umferðarlöggjöf.
Skal prófi hagað þannig að
próftaki merki við rétt svör
á prófverkefnablöðum er
dómsmálaráðuneytið legg-
ur til. Umferðarráð telur brýnt
“ B. Breyting á umferðarlögum og
Tillögur Umferðarráðs lagðar fram 1 mörgum liðum reglugerðum.
að ákvæði þetta kæmi til
framkvæmda hið allra fyrsta.
Verði hér um að ræða könnun á
þekkingu umsækjenda á helstu
reglum, er varða umferðaröryggi.
Æskilegt er, að þeim sem ætla að
sækja um endurnýjun ökuskírt-
einis verði gefinn kostur á að sitja
stutt námskeið eftir því sem að-
stæður leyfa, þar sem rifjaðar eru
upp helstu umferðarreglur.
Hækkun sekta.
Sektir fyrir umferðarlagabrot
verði endurskoðaðar og þær
hækkaðar verulega frá því sem
nú er. Umferðarráð telur æskilegt
að samræmis gæti I ákvörðun um
sektarupphæðir fyrir umferðar-
lagabrot f öllum lögsagnarum-
dæmum landsins og leggur þvf til,
að rfkissaksóknari tilgreini f leið-
beiningaskrá skv. 112 gr. laga um
meðferð opinberra mála, ákveðna
sektarupphæð fyrir tiltekið brot
sem lögreglustjórar geta þó vikið
frá eftir málsatvikum. Verði leið-
beiningaskrá ríkissaksóknara birt
opinberlega þar sem telja má lík-
Námskeið fyrir ökukennaraefnL
Nýir ökukennarar hljóti ekki
löggildinu til ökukennslu fyrr en
þeir hafa staðist ökukennarapróf
að undangengnu námskeiði eða
skólagöngu. Sett verði reglugerð-
arákvæði um lágmarksmenntun
ökukennaraefna.
Upprifjunarnámskeið fyrir öku-
kennara.
Stofnað verði til námskeiða f
ökukennslu sem öllum núverandi
ökukennurum í landinu verði
gert að skyldu að sækja.
tíkukennsluréttindi.
Endurskoðaðar verði reglur um
endurnýjun ökukennararéttinda.
Verði tekið til athugunar hvort
rétt sé að áskilja að ökukennarar
sem ekki hafa skilað til prófs til-
teknum fjölda nemenda sæki
upprifjunarnámskeið.
Starfsemi ökuskóla.
Settar verði reglur um starf-
semi ökuskóla og löggildinu for-
stöðumanna þeirra.
Almennt bifreiðastjórapróf-
Reglugerðarákvæði um fram-
kvæmd prófa verði endurskoðuð
og prófin gerð strangari. Til
greina kemur að löggilda sérstaka
próftökustaði á landinu. Tekið
verði upp valpróf við fræðilega
hluta prófsins. Námskeið í
skyndihjálp verði gert að skilyrði
fyrir almennu bifreiðastjóraprófi.
Gildistfmi ökuskfrteina fyrir
byrjendur,
Gildistimi bráðabirgðaskírtein-
is, sem nú er eitt ár, verði lengdur
f tvö ár.
Endurskoðun umferðarlaga.
Umferðarlög verði endurskoð-
Framhald á bls. 25
legt að slfk birting hafi talsverð
varnaðaráhrif.
II. Aðgerðir sem krefjast
breytinga á lögum og
reglugerðum.
A. Breytingar á lögum um með-
ferð opinberra mála.
Meðferð umferðarlagabrota.
Meðferð mála vegna umferðar-
lagabrota verði gerð einfaldari og
afgreiðslu þeirra hraðað, þannig
að ekki lfði langur tfmi frá þvf
brot er framið þar til meðferð
málsins er lokið, hvort heldur er
hjá lögreglustjóra eða fyrir dómi.
Stefnt verði að því að sem flest
umferðarlagabrot hljóti fullnað-
arafgreiðslu með sektaraðgerð
lögreglustjóra. 1 þvf sambandi
verði athugaðar leiðir til þess að
gera sektargerðir lögreglustjóra
aðfararhæfar, enda verði sak-
borningi gefinn kostur á að skjóta
máli til dómstóla innan tiltekins
frests.
Sektarheimild lögreglustjóra.
Sektarheimild lögreglustjóra,
skv. 112. gr. laga um meðferð op-
inberra mál, verði hækkuð í
50.000 króna sekt, þannig að hún
geti ná til fleiri brota á umferðar-
lögum en nú er.
Hvað er hægt að gera til að
koma í veg fyrir umferðarslys?