Morgunblaðið - 06.03.1976, Page 28

Morgunblaðið - 06.03.1976, Page 28
Al'íflASINífASÍMlNN ER: 22480 AUíiLÝSIN(í ASÍMINN ER: 22480 LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976 Herra Chen Tung, ambassador kínverska alþýðulýðveldisins hér á landi, heim- sótti Morgunblaðið f gærdag, til þess að kynna sér starfsemi þess, bæði á ritstjórnarskrifstofum og í öðrum deildum. I fylgd með honum voru Hsieh Yin-Kung, þriðji sendiráðsritari, og Tung Shou-Wu túlkur. Myndin er tekin f telex-herbergi blaðsins og er ambassadorinn til hægri. Leitin að mönnunum 7 Hannes sagði, að þyrlan hefði verið fengin til að leita mjög ná- kvæmlega á töluvert stóru svæði. Fyrst og fremst hefði vélin verið látin fljúga eftir upplýsingum frá Höfrungi II. sem festi net sín í fyrradag og fann jafnframt sjón- varpsloftnet úr skipi. Þyrlan kannaði sérstaklega allt það svæði til að athuga hvort nokkurt brak eða olíubrák væri þar að sjá en svo reyndist ekki. Einnig flaug hún á grunnslóð fyrir Reykjanesið, þaðan norður fyrir Skaga og allt norður fyrir Hjörsey á Mýrum, bæði með strandlengjunni og út með ströndinni og varð einskis vör. Hannes sagði ennfremur, að i dag yrði leit haidið áfram eftir því sem aðstæður leyfðu. Ljósm. Mbl. Guófinnur. Á myndinni heldur lögreglu- maður á sjónvarpshatti þeim, sem netabáturinn Höfrungur II frá Grindavfk fann úti af Grindavfk f fyrradag. Stal varningi fyrir milljón UNGUR piltur, 21 árs gamall, játaði í gærkvöldi við yfirheyrsl- ur hjá Sakadómi Reykjavíkur að hafa í tveimur innbrotum stolið hljómflutningstækjum og öðrum verðmætum að upphæð tæpl. ein milljón króna. Pilturinn hefur verið úrskurðaður í allt að 30 daga gæzluvarðhald. Hlturinn lét á miðvikudags- kvöldið loka sig inni í verzluninni Faco í Hafnarstræti. Vissi afgreiðslufólkið ekkert um pilt- inn þegar það yfirgaf verzlunina. I Faco stal pilturinn tveimur mögnurum, tveimur plötuspilur- um, 150 stórum plötum og tals- verðu magni af fatnaði. Útsölu- verðmæti þessa varnings er um Framhald á bls. 27 SKIP AF „MIRKA“-GERÐ: Þau eru 950 tonn að stærð og ganga 33 sjómflur. r Osk dómsmálaráðuneytisins: Hannes Hafstein, framkvæmda- stjóri Slysavarnafélagsins, tjáði Morgunblaðinu í gær, að þá hefði verið leitað linnulaust allan dag- inn úr tveimur flugvélum og einni þyrlu frá varnarliðinu, auk þess sem gengnar hefðu verið fjörur frá Garðskaga fyrir Reykjanes og Leitað verÆ eilir gæzhi- dqxim í Bandarílíjununi Vísað til viðauka við varnarsáttmálan Dómsmálaráðuneytið ritaði utanrfkisráðuneytinu bréf sfð- degis f gær, þar sem þess er óskað, að þeirri málaleitan verði beint formlega til Bandarfkjastjórnar að fslenzku Landhelgisgæzlunni verði látin f té bandarfsk gæzlu- skip af gerðinni „Asheville“ eða önnur samsvarandi. Er f bréfinu vitnað til ákvæðis f viðauka frá 1974 við varnarsamninginn við Bandarfkin málaleitan þessari til stuðnings. Baldur Möller, ráðu- neytisstjóri dómsmálaráðuneytis- ins, sagði við Morgunblaðið f gær- kvöldi, að vfsað væri til e-liðar f 3. grein fyrrnefnds viðauka, þar sem fjallað er um samstarf varnarliðs- ins og Landhelgisgæzlunnar. Sagði Baldur að orðalag þessa við- auka væri almennt og ekki nánar f jallað um það f hverju þetta sam- starf væri fólgið, en sú túlkun væri á þvf, að Landhelgisgæzlan ætti að geta notið þar gððs af. Fyrrnefnd skip af „Asheville“- gerð hafa skipherrar Landhelgis- gæzlunnar bent á sem heppileg, hraðgeng skip, en þeir hafa einnig bent á rússneska smáfreigátu af „Mirka“-gerð í sama skyni Einar Agústsson, utanrfkisráðherra, sagði við Morgunblaðið f gær- kvöldi að hann vissi ekki til að ráðuneytinu hefði borizt umrætt Framhald á bls. 27 SKIP AF „ASHEVILLE“-GERÐ: Þau eru 225 tonn að stærð og ganga 40 sjómflur. austur til Grindavíkur en ekkert nýtt hefði komið í leitirnar. Falleg loðna fannst við Eyjar 1 gær TORFUR af stórri og fallegri loðnu fundust í gær við Vest- mannaevjar. Vciddu nokkrir heimabátar vel á þessum slóðum í gær og fer megnið af .aflanum í frystingu. Verður frvst á 5 stöð- um í Eyjum í dag. Þessi loðna er betri en sú sem meginhluti flot- ans hefur verið að veiða vestur undir Jökli. f gær fengu 48 bátar 13.770 lestir fram til kl. 22. Heildaraflinn á vertíðinni var þá orðinn 213 þúsund lestir. Lönd- unarbið er í öllum Faxaflóahöfn- um og margir bátar sigldu með afla til hafna á sunnanverðu Reykjanesi, til Vestmannaevja og Bolungarvíkur. Leitarskipin fvrir sunnan og austan land hafa lítið scð til nýrra loðnugangna. Eftirtaldir 48 bátar höfðu fengið afla fram tíl klukkan 22 í gærkvöldi, samtals 13.770 lestir: Sveinn Sveinbjörnsson 220 Hækkar áburð- ur um 4ð%? SEM kunnugt er varð mikil hækkun á verði áburðar til bænda á síðasta ári. Hækkun þessi nam 76,5% frá árinu áður en hefði átt að verða 153% ef ekki hefði komið til niðurgreiðsla á helmingi áburðarverðshækkunarinnar. Innan skamms cr að vænta ákvörðunar um áburðarverð á komandi vori og af því tilefni ræddi Mbl. við Guðmund Sigþórsson, deildarstjóra f landbúnaðarráðunevtinu, og Framhald á bls. 27 Hrafn Sveinbjarnarson 250, Ásley 150, F'losi 240, Vonin 120, Þórður Jónasson 370, Helga 270, Magnús 260, Sæberg 260, Asberg 360, Skírnir 260, Örn 300, Ársæll Sigurðsson 200, Grindvíkingur 550, Hamravík 100, Pétur Jónsson 350, Ljósfari 140, Keflvíkingur 250, Bjarnarey 80, Súlan 650, Jón Finnsson 440, Bergur 180, Þorsteinn 320, Hringur 130, Helga Guðmundsdóttir 460, Asgeir 370, Arsæll 170, Svanur 320, Sæbjörg 300, Guðmundur 750, Olafur Magnússon 190, Framhald á bls. 27 Hnífsdalur: Skemmdir á Mjölvinnsl- unni í eldi MJÖLVINNSLAN 1 Hnífsdal skemmdist töluvert af eldi i fyrri- nótt. Elcfcins varð vart um eitt- leytið og kom slökkviliðið frá Hnífsdal og Isafirði á vettvang og slökkti eldinn. Að sögn Jóakims Hjartarsonar í Hnífsdal virðist sem eldurinn hafi komið upp í þaki fyrir ofan þurrkara. Urðu töluverðar skemmdir á þakinu. Unnið er að bráðabirgðaviðgerð og bjóst Jóakim við þvf að mjöl- vinnslan gæti tekið til starfa í næstu viku, að því tilskildu að ekki hefðu orðið skemmdir á tækjum vegna vatns. og reyks. Mjöl í verksmiðjunni skemmdist ekki. af Hafrúnu árangurslaus LEIT AÐ sjö skipverjum vb. Hafrúnar frá Eyrarbakka var haldið áfram í gær en hún reyndist árangurslaus. Leitað var bæði úr lofti og fjörur gengnar, en ekkert fannst er varpað gæti frekara ljósi á afdrif mannanna. Leitinni verður haldið áfram f dag eftir því sem aðstæð- ur leyfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.