Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976 Loðnuveiðarnar: F ry stingu lokið ef ekki finnst ný ganga Búið að frysta 3000 lestir EFTIR þvl sem næst verður komizt var búið að frysta um 3000 lestir af Ioðnu fyrir Japansmarkað f fyrrakvöld og leit þá út fyrir að loðnu- frystingu væri lokið á þessari vertfð, ef ekki fyndist ný loðnuganga. Loðnan var þá alveg komin að hrygningu og hrognin ýmist að fara úr henni eða horfin. Sem kunnugt er var gert ráð fyrir, að fslendingar gætu fryst allt að 10 þús. lestir af loðnu á þessari vertfð og ef ekki verður fryst meira en það sem lokið er við, vantar 7 þúsund lestir upp á, að hægt verði að afgreiða það magn til Japans, sem Japanir vildu kaupa af okkur. Hjalti Einarsson, framkvæmda- stjóri hjá SH, sagði í gær, að frystihús innan SH væru búin að frysta 2200 lestir. Vissulega hefði allt þokazt í áttina síðustu daga, en enn vantaði mikið á að búið væri að frysta það, sem hægt væri að selja. Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild- ar Sambandsins, sagði, að þeirra hús hefðu verið búin að frysta um 500 lestir í fyrrakvöld og tekið hefði verið á móti allri þeirri loðnu, sem hægt hefði verið að frysta. Utlitið um áframhaldandi frystingu væri orðið mjög slæmt, ef ekki fyndist önnur ganga aust- ur með landinu. bá fékk Morgunblaðið þær upp- lýsingar hjá íslenzku umboðssöl- unni, að þar væri búið að frysta um 400 lestir. Freigátan si gldi aftan á Baldur KLUKKAN 14.40 í gær sigldi freigátan Diomedc F 16 á varð- skipið Baldur, en skipin voru þá stödd á friðaða sva-ðinu á Þistil- fjarðargrunni, 31,5 sjómilur frá Langanesi. Fvrir ásiglinguna hafði freigátan Mermaid F 76 gert harða hrið að varðskipinu, en alls revndi Mermaid 18 sinnum að sigla á Baldur að sögn Skip- stjórnans, Ilöskulds Skarphéðins- sonar. Diomede F 16 hafði fjórum sinnum án árangurs reynt að sigla á Baldur er freigátunni tókst í fimmtu tilraun sinni að sigla á varðskipið. Diomede F 16 sigldi á bakborðshorn varðskipsins. Skemmdir á Baldri urðu nokkrar: allur afturgálginn er undinn og keðjuhrautin og efra þilfarið, þar sem gálgafótur er festur, hafa skemmzt og smávægilegar aðrar skemmdir. Skemmdir á Diomede virðast ekki miklar að sjá. Það var akkeri freigátunnar, sem hitti bakborðshorn afturgálgans á varðskipinu, þ.e. hún sigldi uppi skipið og rak nefið í það. Um tíma tóku þátt i aðförinni að Baldri auk freigátnanna tveggja Euroman og Statesman ásamt togaranum Primella. Ljósm. Friðþjófur. Fatnaður sá sem Alafoss framleiðir einkum fyrir erlendan markað. Framleiðsluaukning Álafoss 50-60% Viðskipti í öllum heimsálfum UTFLUTNINGSVERÐMÆTI fslenzkra iðnaðarvara frá Alafossi var á liðnu ári um 575 milljðnir króna. Svarar það til u.þ.h. 2/3 af hcildarsölu fyrirtækisins. Nam framleiðsluaukningin 50—60% en aukning f verðmætum rúmlega tvöfaldaðist. A þessu ári ráðgerir Alafoss enn frekari söluaukningu erlendis. 1 upphafi hvers árs eru vald- ar ákveðnar flíkur, hannaðar og framleiddar úr ull til þess að sýna og selja á erlendum mörk- uðum. Jafnframt er gefinn út vandaður myndalisti til kynn- ingar á þessum vörum. Er þessi myndalisti gefinn út í 16.000 eintökum í ár. Flíkurnar eru framleiddar í 14 prjóna- og saumastofum og eru 10 þessara fyrirtækja utan Reykjavíkursvæðisins. Allar vörurnar eru framleiddar úr hráefnum frá Álafossi h.f. sem síðan sér um sölu og dreifingu þeirra á erlendum markaði. Örlög Air Viking óráðin Málsskjöl Alþýðubankarannsóknarinnar til saksóknara í kringum næstu helgi Brynjólíur Bjama- son ráðinn fram- kvæmdastjóri AB BRYNJOLFUR Bjarnason rekstr- arhagfræðingur hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins og tekur hann við því starfi af Baldvin Tryggvasvni, sem eins og skýrt var frá í Mbl. í gær hefur tekið við starfi spari- sjóðsstjóra í Sparisjóði Revkja- víkur og nágrennis. Brynjólfur Bjarnason hefur í rúm 3 ár verið deildarstjóri hag- deildar Vinnuveitendasambands Island, en þangað réðst hann að loknu námi. Hann varð viðskipta- fræðingur frá viðskiptadeild Há- skóla íslands 1971 og fór þá utan til Bandarikjanna til náms í rekstrarhagfræði. Lauk hann prófi i rekstrarhagfræði frá Há- skólanum í Minisota, BMA-prófi um áramótin 1972—’73. EKKERT hefur enn verið af- ráðið með áframhaldandi rekstur flugfélagsins Air Vik- ing, sem nú er fyrir skipta- rétti. I samtali við Morgun- blaðið í gær sagði Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélags- ins, helzta kröfuhafans í þrota- búið, að fulltrúar aðalkröfu- hafa hafi rætt um það sfn á milli hvað gera ætti við félagið og eignir þess, þar eð þeim væri eðlilega mjög I mun að fá sem mest út úr búinu. Hann kvað engar raunhæfar viðræður hafa farið fram við utanaðkomandi aðila, svo sem Flugleiði um áframhaldandi rekstur félagsins og engin nið- Loðnuaflinn orð- inn 263 þús. les tir HEILDARLOÐNUAFLINN var í gærkvöldi orðinn um 26.3 þúsund lestir, en á sama tíma i fyrra var hann 387 þúsund lestir. I gær- morgun var talið að loðnan á Breiðafirði væri að mestu að hverfa, en þá bárust þær fréttir að togbátar hefðu fundið mikla loðnu úti af Portlandi. Nokkrir loðnubátar héldu í átt á þessar slóðir, en gátu ekki athafnað sig vegna fárviðris þar í gær. urstaða fengin hvort þessum flugrekstri yrði haldið áfram í þeirri mvnd sem hann hefur verið eða hvort reynt yrði að koma eignum félagsins í verð með öðrum hætti. Aftur á móti kvaðst Vilhjálmur greinilega hafa orðið þess var manna á meðal að mikilli áhugi væri fyrir því að reyna að tryggja áfram rekstur Air Viking með svipuðum hætti og verið hefði. Ötrvgg fjárhagsstaða flugfé- lagsins Air Viking kom sem kunnugt er I Ijós við athugun bankaeftirlits Seðlabankans á útlánastarfsemi Alþýðubank- ans, er leiddi til opinberrar rannsóknar á viðskiptum flug- félagsins og hankans, og siðar á viðskiptum bankans við átta aðra aðila. Þessa rannsókn hef- ur annast Sverrir Einarsson, sakadómari, og í samtali við Morgunblaðið skýrði hann frá þvi að nú væri verið að vélrita og ganga frá málsskjölum vegna þessa máls. Bjóst hann við að þessi gögn yrðu siðan send saksóknaraembættinu til frekari ákvörðunar öðru hvoru megin við næstu helgi. Sverrir kvað rannsókn þessa hafa ver- ið allumfangsmikla. og milli 20 og 30 manns verið kallaðir fyrir vegna hennar. Kosningar til stúd- entaráðs í dag KOSNINGAR til Stúdentaráðs Háskóla Islands fara fram í dag og hefjast kl. 9.00 árdegis í Hátiðasal Háskólans og standa til kl. 18.00. 1 kosningum þessum takast á Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og vinstri menn. Listi Vöku er A-LISTI. Nokkur kosninga- barátta hefur verið háð innan háskólans vegna þessara kosninga og 1 fyrrakvöld var haldinn sérstakur framboðsfundur, þar sem fluttar voru framboðsræður. I kosningabaráttunni til Stúdentaráðs hefur fyrst og fremst verið deilt um lánamál og málefni Félagsstofnunar stúdenta. Hæstu vinn- ingar hjá HÍ DREGIÐ var í gær um 8640 vinninga í þriðja flokki Happ- drættis Háskóla Islands. Vinningarnir voru samtals að fjárhæð 110.070.000 krónur. Hæsti vinningurinn, ein milljón króna, kom á miða nr. 33996. en trompmiðinn og þrir aðrir miðar með númerinu voru seldir i Aðal- umboðinu, Tjarnargötu 4. Einn miðinn var seldur í umboðinu á Djúpavogi. Hálfrar milljön króna vinningur kom á miða nr. 2321, en allir miðar númersins voru seldir í umboði Frimanns Frlmanns- sonar í Hafnarhúsinu. 200 þúsund krónu vinningur kom á miða nr. 19054. en trompmiðinn og tveir aðrir með númerinu voru seldir í umboði Þóreyjar Bjarnadóttur í Kjörgarði einn var seldur á Akur- eyri og annar á Skagaströnd. Eftirtalin númer hlutu 50 þús- und krónur hvert: 1164, 3389, 8196, 8198, 10400, 13346, 14635, 16516, 17783, 22572,' 22729, 23544, 24708, 25069, 32915, 33995, 33997, 37095, 45026, 46236, 46664,46958,52041, 53112. Hafnarfjarðarveg- urinn í deiglunni Morgunblaðið hafði samhand við Sigurð Jóhannsson vegamála- stjóra I gær og innti fregna af gangi mála varðandi úrbætur á Hafnarf jarðarvegi. Sagði Sig- urður að á fjárlögum væri gert ráð fyrir 90 millj. kr. 1 fram- kvæmdir á vegarkaflanum yfir Kópavogslæk og upp á Arnarnes- hæð, það er gerð nýrrar tveggja akreina brautar, en hins vegar væri beðið með framkvæmdir þar til fram hefði farið á alþingi endurskoðun á vegaáætlun 1977 og '78 en sú endurskoðun verður tekin fyrir á alþingi áður en þingi lýkur í vetur. Sigurður kvað vinnu ætlun liggja tilbúna fyrir þennan kafla, en hins vegar kvað hann vegagerð í gegnum Garðabæ ekki liggja klára fyrir þar sem bæjarstjórn Garðabæjar hefði ekki endanlega afgreitt hugmyndir um vegar- stæðið, hvort það verður á sama stað, fyrir ofan bæinn eða niðri við sjóinn. „Þessi mál eru sem sagt í deiglunni," sagði vegamálastjóri. Sveinn Guðjónsson Nýr framkvæmda- stjóri S.U.S. NYLEGA var Sveinn Guðjónsson ráðinn framkvæmdastjóri Sam- bands ungra sj álfstæðismanna. Sveinn lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Islands vorið 1972 og stúdentsprófi frá sama skóla ári slðar. Að loknu stúdents- prófi starfaði hann um skeið sem blaðamaður við Morgunblaðið og kennari við unglingadeild Víði- staðaskóla I Hafnarfirði. Jafn- framt starfi framkvæmdastjóra S.U.S. stundar Sveinn nám I þjóð- félagsfræðum við Háskóla Isiands. I fréttafréttatilkynningu frá stjórn S.U.S. er Sveinn boðinn velkominn til starfa og jafnframt væntir stjórnin þess, að félagar færi sér í nyt margvislega þjónustu skrifstofunnar sem er til húsa í nýja sjálfstæðishúsinu við Bolholt og er opin daglega eftir hádegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.