Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976
Minning:
Bergþór E. Þorvalds-
son stórkaupmaður
Harmafregn barst mér til eyrna
að morgni dags 4. þ.m., að góðvin-
ur minn og félagi i 44 ár hefði
kvöldið áður orðið bráðkvaddur.
Hann var nýkominn úr ferða-
lagi með konu sinni frá Dan-
mörku og hugðist morguninn
eftir fara í sundlaugarnar, sem
hann að jafnaði stundaði daglega.
Sú för var aldrei farin.
Bergþór E. Þorvaldsson fæddist
í Reykjavík 24. ágúst 1914, sonur
hjónanna Jakobínu G. Guðmunds-
dóttur og Þorvalds Eyjólfssonar
skipstjóra.
Bergþór hóf nám í Verzlunar-
skóla Islands 1931 og lauk þaðan
fullnaðarprófi með ágætiseink-
unn 1933.
Nokkrum árum áður en hann
hóf verzlunarnámið hafði hann
gerzt starfsmaður í Heildverzlun
Garðars Gislasonar, í fyrstu við
snúninga, síðar við almenn skrif-
stofustörf og gjaldkeri frá
1935—1942. Var hann dáður og
elskaður af húsbændum sinum og
samstarfsfólki, er lauk upp lofs-
orði um háttprýði hans, dugnað,
vinsældir og aðlaðandi fram-
komu.
Arið 1942 hóf Bergþór E.
Þorvaldsson eiginn atvinnu-
rekstur og stofnaði Heildverzlun-
t
Hjartkær eíginmaður minn og faðir okkar,
HELGI HRAFN HELGASON,
bókbandsmeistari,
Miðtúni 18.
lést í Borgarspítalanum 9 marz
Inga Rúna Sæmundsdóttir og synir.
Faðir okkar og tengdafaðir
TORFI ÞÓRÐARSON,
Lönguhlfð 13,
fórst af slysförum á Tenerife í desember sl. Útförin hefur þegar farið
fram
Ásta Torfadóttir, Ásgeir Þorvaldsson,
Elín Torfadóttir, GuðmundurJ. Guðmundsson,
Gunnar Torfason, Svana Jörgensdóttir.
Bróðir okkar
BJARNIBÁRÐARSON,
frá Holti, Álftaveri
sem andaðist 2 marz verður jarðsunginn frá Víkurkirkju, laugardaginn
1 3 marz kl 14
Systkinin.
t
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
INGIMUNDUR BJARNASON
járnsmiður
Suðurgötu 5, Sauðárkróki
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 1 3 marz kl. 2.
Sveinslna Bergsdóttir,
Sigrlður Ingimundardóttir, Ólafur Tryggvason,
Fannlaug Ingimundardóttir, Björn R. Ásmundsson,
Herdls Ingimundardóttir, Eyjólfur Eyfeld,
Steinunn Ingimundardóttir Jón Guðmundsson
og barnabörn.
t
Alúðar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur vináttu og samúð
við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
UNNAR SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR,
Nýlendugötu 18.
Jónlna Ingólfsdóttir, Sigurjón Kristinsson,
Jóhannes Ingólfsson, Gyða Sigfúsdóttir,
Einar J. Ingólfsson, Arndls Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað í dag
frá kl. 1 —4 vegna útfarar
BERGÞÓRS E. ÞORVALDSSONAR,
stórkaupmanns.
Tösku- og hanzkabúðin,
Skólavörðustíg 7.
ina Berg, sem hann rak af árvekni
og alkunnum dugnaði allt til
dánardags.
Hann átti sæti í stjórn Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur
1939—1943, og var um skeið vara-
formaður félagsins.
1 stjórn Verzlunarráðs Islands
var hann 1957—1958. I stjórn
Félags íslenzkra stórkaupmanna
1944—1946 og 1957—1958. Þá átti
hann sæti i stjórn Sambands
vefnaðarvöruinnflytjenda
1944—1949, og nefnd Italíuvið-
skipta 1948—1949.
Af því sem hér er talið má
glöggt greina að Bergþóri hafa
verið falin mörg og vandasöm
trúnaðarstörf á sviði samtaka
verzlunarstéttarinnar.
Öll þau störf rækti hann af
stakri trúmennsku og samvizku-
semi.
A skólaárum Bergþórs féll faðir
hans frá og ólst hann upp siðan
hjá móður sinni að Grettisgötu 4,
unz hann stofnaði eigið heimili.
Oft átti ég unaðsstundir á
heimili Jakobinu móður
Bergþórs. Hún var blíðlynd,
elskuleg og trúuð kona og lét sér
annt um uppeldi og velferð sonar-
ins.
Eldri son, Eyjólf, hafði
Jakobina misst að nýloknu prófi
frá Verzlunarskóla Islands. Þrjár
voru systur Bergþórs, Nanna, gift
og búsett í Danmörku, látin fyrir
nokkrum árum, Hulda, gift Sig-
urði Jónssyni, og Jakobína, gift
Sigmari Jónassyni.
Bergþór E. Þorvaldsson kvænt-
ist eftirlifandi konu sinni, Ölafíu
Sigurðardóttur, 3. september
1949. Foreldrar hennar voru
Halldóra Jónsdóttir og Sigurður
Ölafsson, rakarameistari, sem
voru alþekkt heiðurshjón hér í
borg.
Böm Ölafíu og Bergþórs eru
Halldóra, bankamær, gift Andrési
Andréssyni skrifstofumanni,
Eyjólfur, verzlunarmaður, og
Nanna, nemandi í Verzlunarskóla
Islands. Þau Eyjólfur og Nanna
eru í foreldrahúsum.
Enda þótt viðskiptastörfin
væru umsvifamikill þáttur i ævi-
starfi hans, var honum ávallt
kærast heimilið, eiginkonan og
börnin.
Fyrir þau var lífsstarf hans
fegurst.
Útför
JÓNS SVEINSSONAR
Hraunteigi 10
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 1 3. marz kl 1 0.30.
Halldóra Hafliðadóttir,
Kristjana Jónsdóttir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar. tengdafaðir og afi,
JÓN M. SIGURÐSSON,
Nesjavöllum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 1 2 marz kl. 1 5.
GuSbjörg Guðsteinsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar, dóttir, systir, tengdamóðir og amma,
KLARA HJARTARDÓTTIR,
Selvogsgótu 5,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn 12 marz
kl 2 e h Blóm vinsamlegast afþökkuð, þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á Krabbameinsfélag (slands
F.h. ættingja,
Guðmundur Kristjánsson,
Sigurjón Kristjánsson,
Sigurður Kristjánsson og
Jónlna Guðmundsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda-samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur og ömmu
GUÐBJARGAR SÆUNNAR JÚLÍUSDÓTTUR,
Arnarhrauni 21. Harnarfirði.
Einlna Einarsdóttir, Magnús Jónsson,
Pétur Einarsson, Guðrún Einarsdóttir,
Ólöf Einarsdóttir, Sigurjón Guðmannsson,
Gyða Einarsdóttir, Ingvar Geirsson.
t
Við þökkum innilega auðsýndan vinarhug og samúð vegna fráfalls
SVERRIS KRISTJÁNSSONAR,
sagnfræðings.
Sérstakar þakkir færum við Einsöngvarafélagi íslands og tónlistar-
konum Akranesi.
Guðmunda Eliasdóttir.
Guðrún Sverrisdóttir,
Sigurjón Sverrisson,
Klemenz Kristjánsson,
Sif Knudsen,
Hans Knudsen
og barnabörn.
Guðmundur Guðjónsson.
Hrafnhildur Júliusdóttir,
Þórunn Kristjánsdóttir,
Stefán Ásgrímsson,
Við, sem vorum sambekkingar
Bergþórs í Verzlunarskóla Is-
lands, drúpum nú höfðum og
tregum hin skyndilegu vista-
skipti, sem orðið hafa á ævibraut
hans. Minningarnar eru ofnar
þakkarhug og gleði að haf a átt svo
flekklausan og indælan
samferðarmann og góðan vin.
Eiginkonu, börnum og öðrum
ættingjum vottum við djúpa
samúð og biðjum algóðan guð að
hugga þau öll og þerra tárin.
Adolf Björnsson.
I dag fer fram útför Bergþórs
E. Þorvaldssonar, stórkaupmanns
frá Dómkirkjunni í Reykjavik.
Hann varð bráðkvaddur að
heimili sínu Sólheimum 22 — 61
árs að aldri. Að lokaprófum lokn-
um f Verzlunarskóla Islands
beindist hugur hans snemma að
kaupsýslustörfum. Eftir að hafa
unnið nokkur ár við heildverzlun
stofnaði hann heildverzlunina
Berg, nú til húsa i eigin húsnæði
að Bergstaðastræti 4 og rak inn-
flutningsverzlun með vefnaðar-
vörur, prjónagarn og fl., sem sér-
grein og vandaði ávallt öll inn-
kaup og hlotnaðist umboð fyrir
heimsþekkt fyrirtæki í þeim
greinum. Fyrirtækið dafnaði þvi
vel og laðaði til sín góða viðskipta-
vini. öll samskipti við Bergþór
einkenndust af lipurð og sam-
viskusemi og gagnkvæmu trausti,
samstarfsmanna og viðskiptavina.
Hugur minn hverfur til liðinna
tima og nemur staðar við fyrstu
kynni okkar, er Bergþór kvæntist
systur minni Ólafíu. Þá þegar
ávann hann sér vináttu föður
míns, systkina og fjölskyldu
minnar allrar. Bergþór var um
margt óvenjulega vel gerður
maður, fjölgreindur og snyrti-
menni I hvívetna. „Góð kona er
gjöf frá Drottni", segir heilög
ritning. Þessi sannindi fékk vinur
minn Bergþór að reyna í ríkum
mæli í áratuga sambúð við sína
ágætu eiginkonu og móður
þriggja barna þeirra, Halldóru,
Eyjólfs og Nönnu er nú sakna
ástkærs föðurs, sem kappkostaði
að búa þau sem bezt undir lífið.
Það er skjól i góðum vini og við
erum öll þær félagsverur að þurfa
slíkt skjól í misjöfnum veðrum,
skjól sem líkja má við hús sem
gefur öryggi og frið. Heimili
þeirra Ólafiu og Bergþórs ber
vitni þeirra smekkvisi, fegurðar
og hlýleika, sem auðkenna góð
heimili og góða sambúð. Halldóra
elzta dóttirin er gift Andrési
Andréssyni og eiga þau einn son,
augastein af a og ömmu.
Nú kveðjum við Bergþór með
þakklæti og virðingu og mun
minningin um góðan eiginmann,
föður, tengdaföður og afa lifa
lengst I hugum þeirra sem best
þekktu hann og nutu samvista við
hann í lengri eða skemmri tfma.
Bergþór hefir lokið jarðvist sinni
og heilladrjúgt dagsverk að baki.
Við sendum ástvinum hans ein-
lægar samúðarkveðjur og biðjum
þeim blessunar og farsældar um
ókomin ár.
Þorsteinn Sigurðsson.
Afmælis-
og
minning-
argreinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast f síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
lfnubili.