Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 32
HÁRSKERINN
SKÚLAGOTU 54
HVERGI BETRI BÍLASTÆÐI
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM.
P MELSTED
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976
30 NEMENDUR í 12 ára bekk
Breiðholtsskóla buðu 160 11 ára
skólafélögum sfnum til samkomu
I skólanum f gær þar sem 12 ára
börnin heldu fyrirlestra sem þau
höfðu sjálf undirbúið um skað-
semi reykinga og fluttu þau efni
sitt bæði í máli og myndum. Var
það vel undirbúið og skemmtilegt
og vakti mikla athygli. 12 ára
krakkarnir, sem öll eru f sama
bekk, skiptusérf 4 hópa og tóku
fyrir eftirfarandi þætti: Efnið f
tóbakinu, úthald og þol reykinga-
manna, sjúkdómar samfara reyk-
ingum og peningalega hliðin.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Magnússonar skólastjóra
Breiðholtsskóla munu 4 aðrir 12
ára bekkir skólans kynna öðrum
nemendum skólans efnið. Gestur
barnanna var Guðmundur Gfsla-
son sundkappi en hann ávarpaði
börnin. Starfsmenn Krabha-
meinsfélags Reykjavfkur ásamt
kennurum hafa aðstoðað nemend-
ur f þessu starfi þeirra og unnið
er að frekari kynningu og baráttu
f öðrum skólum.
Nemendur 12 ára deilda Breið-
holtsskóla hafa bundizt eins kon-
Rafmagnið
sló út
Rafmagnslaust varð á Stór-
Reykjavikursvæðinu um stund
í gærkvöldi og olli því sam-
sláttur á rafmagnslinum til
fjalla, en mikill vindhraði var
á þessu timabili.
12 ára börn
hefja baráttu
gegn reykingum
FRA samkomu BreiðholtsskólSbarna f gær þar sem 12
ára börn f skólanum hófu baráttu gegn reykingum með
kynningu á málinu fyrir skólafélögum sfnum. 1 ræðustól
er 12 ára gömul stúlka, en á myndinni til vinstri e'ru tveir
nemendur að sýna skólafélögum sfnum mynd þar sem 4
sfgarettur bera Ifkkistu á milli sfn. Ljósm. Mbl rax
ar samtökum til þess að berjast
gegn reykingum, byrja ekki á
þeim og hafa áhrif á aðra í þá átt.
Krakkarnir hafa skipt sér í
hópa innan bekkjanna og hefur
hver hópur afmarkað verkefni til
úrvinnslu og flutnings.
Síðan heldur hver bekkur
kynningarfund með tilteknum
hópi yngri nemenda.
Nemendur hafa sýnt mikinn
áhuga og dugnað og þeirra mark-
mið er að koma i veg fyrir að þeir
ánetjist þeim hættulega ávana
sem reykingar eru.
Börnin hafa sjálf kynnt sér blöð
og bækur um þessi efni, aflað
kvikmynda, teiknað og litað stór-
ar myndir, útfært verkefni á
glærur, gert tilraunir í eðiisfræð-
inni og fleira mætti nefna. Auk
skólans hefur Krabbameinsfélag
Reykjavíkur stutt nemendur f
Framhald á bls. 18
Samningar um veiðar Norðmanna innan 200 mílna:
Myndin er tekin, er skipzt var á orðsendingum milli Norðmanna og
tslendinga f gær: Hans G. Andersen, Olav Lydvo, sendiherra, og Einar
Agústsson.
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna og sjávarafurðadeild Sam-
bands fslenzkra samvinnufélaga
hafa hafið eða eru i þann veginn
að hefja útflutning á kúffiski í
tilraunaskvni. Er fiskurinn send-
Stór markaður getur opnazt ef vel tekst til
ur á Bandarfkjamarkað á mis-
munandi verkunarstigum. Ef
þessar tilraunir heppnast vel get-
ur svo farið að i framtíðinni opn-
ist stór markaður i Bandarfkjun-
um fyrir íslenzkan kúffisk, en
hann eins og annar skelfiskur er
mjög verðmætur, en hins vegar
dýr f vinnslu.
Hjalti Einarsson hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna sagði þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að SH hefði þrisvar sinnum á
stuttum tíma sent nokkurt magn
vestur til Bandaríkjanna. Eftir
þeim fréttum að dæma sem borizt
höfðu, líkaði islenski kúffiskur-
inn vel, en sumum fannst hann
kannski heldur of bragðmikill.
Hann kvað neyslu á kúffiski
verða nokkuð mikla í Bandaríkj-
unum. Sennilega yrðu mestu
vandkvæðin við útflutning á hon
um þær ströngu innflutningsregl
ur sem gilda i Bandaríkjunum á
innflutningi skelfisks og ef úr
yrði þyrfti eftirlitið hér heima að
vera mjög gott.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar Sambandsins, kvað þá i þann
veginn að senda tilraunasendingu
til Bandarikjanna. Sá fiskur sem
nú færi, kæmi frá stöðum við
Eyjafjörð.
Hann sagði, að kúffiskurinn
væri vandmeðfarið hráefni, enda
Framhald á bls. 18
Gæzluvarðhaldið
framlengt í dag?
1 DAG rennur út 45 daga varð-
haldsúrskurður þeirra þriggja
manna, sem fyrst voru settir
inn vegna rannsóknar Geir-
finnsmálsins. Örn Höskulds-
son, rannsóknardómari í
málinu, sagði við Mbl. í gær að
Sakadómur Reykjavíkur
myndi í dag ákveða hvort
gæzluvarðhald umræddra
manna yrði framlengt. Rann-
sóknarlögreglumenn hafa und-
anfarnar vikur unnið ötullega
að gagnasöfnun i málinu og
jafnframt hefur vfirheyrslum
yfir föngunum verið haldið
áfram.
Veiðihömlur, möskvastækk-
un og hámarks netafjöldi ?
— samkv. tíllögum nefndar varðandi fiskveiðar 1976
NEFNDIN sem sjávarútvegsráð-
herra skipaði til að gera tillögur
um fiskveiðar og aðgerðir í fisk-
verndunarmálum á Islandsmið-
um á þessu ári hefur nú skilað
áliti til ráðherra, en álitið er
bvggt á því að ekki verði samið
við aðrar þjóðir um frekari fisk-
veiðar á Islandsmiðum og að veið-
um útlendinga verði hætt nú
þegar og iandhelgisgæzlan verði
stórefld.
Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði í samtali við
Mbl. að tillögur nefndarinnar
mætti í stærstu dráttum flokka I
þrennt: Stöðumál, samdráttar-
leiðir og ábendingar til að draga
úr samdráttaráhrifum. Um er að
ræða álit bæði meirihluta og
minnihluta nefndarinnar, sem
taldi 8 menn og eru tillögur
minnihlutans heldur róttækari
þótt samstaða sé um ákveðin
atriði.
Sjávarútvegsráðherra kvað
meirihlutann leggja til að dregið
verði úr veiði með því að net verði
tekin upp á vertíðarsvæðinu frá
Stokksnesi að Látrabjargi 4 daga
á vertíðinni, eða frá skírdegi og til
2. í páskum og einnig er tillaga
um að banna togveiðar á sama
tima. Jafnframt er lagt til að
hámarksnetafjöldi á bát verði 120
net og er þá miðað við 12 manna
áhöfn, en 120 net gera 8 trossur.
Framhald á bls. 18
SH og S.Í.S. sendakúffisk
á Bandaríkjamarkað
Islendingum selt sjálfdæmi
í að ákveða hámarksafla
30 línuveiðarar fá að veiða milli 12 og 200
RtKISSTJÖRNIR Islands og Noregs hafa gert með sér samkomulag
um veiðar Norðmanna í fslenzkri fiskveiðilandhelgi. Samkvæmt
samningnum sem gerður var með orðsendingaskiptum milli Einars
Agústssonar, utanrfkisráðherra, og Olav Lydvo, sendiherra Noregs á
Islandi, er norskum Ifnu- og handfæraveiðurum heimilt að veiða innan
200 mflna fiskveiðilögsögunnar allt upp að 12 sjómflum frá 15. febrúar
til 1. desember eftir sömu reglum og Islendingar. Veiðileyfi cru
bundin við 45 skip og mega flest vera 30 f einu að veiðum. 1
samkomulaginu er ákvæði um að Islendingar skuli ákveða hámarks-
afla þ. á m. þorskafla.
Morgunblaðið ræddi í gær við j herra, sem sagði að að sínu mati
Einar Ágústsson, utanríkisráð- I væri hér um mjög mikilvægan
mílna í senn
samning að ræða og kvað hann
þetta fyrsta samninginn um fisk-
veiðar, sem tslendingar gerðu,
þar sem viðurkennt væri að þeir
ákvæðu hámarksafla. Kvað hann
raunar þennan samning eins-
dæmi, þar sem strandríki er í
sjálfsvald sett, hve mikið veitt er.
Kvað Einar Ágústsson siðan það
ákvörðun sjávarútvegsráðuneytis-
ins, hvert háTr,!irk vrði sett^z
Norðmanna.
Framhald á bls. 18