Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976 13 Stórbrotin túlkun Burtons í Equus Burton 1 hlutverki læknis ins l Equus. O Það vill á stundum gleymast vegna stöðugra frétta af stormasömu einkalifi Richards Burtons, að hann er ekki aðeins eiginmaður Elizabethar Taylor — eða ekki eigin- maður Elizabethar Taylor — heldur er hann einhver frábærasti leikari sem nú er uppi. I New York Times birtist nú um síðustu grein um leik Burtons í leikrit- inu „Equus“ eftir Peter Schaffer og segir þar í fyrir- sögn, að leikur hans í hlutverki læknisins sé frá- bærasta sviðsaf- rek hans til þessa. Hann leiki af sannri innlifun, svo áreynslu- lausri að áhorf- endur gleymi þvi eftir fyrstu fimm mínúturnar i leik- húsinu að Burton er ekki læknirinn, heldur fer hann aðeins með hlut- verk hans. „Ekki má gleyma hinni stórkostlegu raddbeitingu Burtons," segir i greininni. „Leik- urum er tamt að beita rödd sinni ýmist um of vegna þess þeir telja það vott um „leik“ ellegar þeir nota röddina svo kauðalega að úr verður ömurleg hlustun áhorfenda. En Burton hefur röddina ótrúlega á valdi sínu, ekki sizt þegar haft er í huga að raddbeit- sviði er tvennt ólikt, og Burton hefur ekki verið tiður gestur á leiksviðinu í mörg ár. Röddin skiptir geysilegu máli í leiknum en ekki aðeins það er full- komið, sviðshreyfingar, beiting líkama, allt er eins fullkomnað og hægt er að ímynda sér. Við upplifum ekki leik — heldur lifun,“ í New York Times. Hin fræga myndastytta frá 500 f. Krist af tvíburunum Romulusi og Remusi að sjúga úlfynj- una. Þeir tvíburarnir voru samkvæmt goðsögn- inni synir Mars og Rea Silvia. Strax eftir fæðing- una var þeim varpað í fljótið Tíber, en með hjálp guðanna rak þá á land við rætur Palatinu og úlfynja tók þá og fóstraði. Síðar kom á dag- inn hverrar ættar þeir voru og fengu þeir þá iand það sem Rómaborg stendur nú á. Remus var drepinn þegar hann og bróðir hans deildu og Romulus varð fyrsti kon- ungur Rómaborgar. Fundir þeirra, sem hafa nú verið á sýningu í Rómaborg upp á siðkastið, eru sagðir renna stoðum undir efasemdir sem menn hafa haft um hvenær Rómaborg ver reist, en samkvæmt hinni frægu goðsögn voru það tvfburabræðurnir Romulus og Remus sem grundvölluðu hana. Opinberlega er borgin talin 2.729 ára gömul, en ofannefndir sérfræð- ingar segja að hús sé að minnsta kosti 200 árum eldri. Þeir Ifta svo á að þeir hafi einnig safnað nægilegum sönnunargögnum til að sýna fram á, að Rómaborg hafi ekki skipt eins miklu máli í rómanskri menningu og tungumáli og jafnan hefur verið ályktað. Prófessor Massimo Pallottino, forseti etrúskra og ftalskra sérkannana, segir: „Við erum að koma að nýjum kafla, ekki einvörðungu f sögu Rómarrfkis heldur einnig í allri forsögu okkar.“ llann sagði að hinar nýju niðurstöður stönguðust á við ýmislegt sem væri f kennslubókum, og byggðist einkum á verkum skálda og sagnfræðinga frá þvf um eitthundrað árum fyrir Krist. Aftur á móti sagði prófessorinn að það gæti orðið bæði erfitt, óþægiiegt og kosnaðarsamt — og jafnvel sársauka fullt eins og hann orðaði það — að endurskrifa söguna. En hann telur að þróun Rómaborgar og Rómaveldis hafi verið öll önnur en nú er talið. Hann sagði einnig að ltalirnir hefðu ekki haldið vöku sinni og eyðilegging margra merkra staða ógnaði nú því að sagan vrði rétt skráð. Á sýningunni sem er kölluð „Kúltúr í frumbernsku rfkisins'* er kort yfir 18 fornfræðilega merka staði sem hafa orðið að bráð nútíma borgarþróun og hefur verið rutt á braut á allra sfðustu árum. Samkvæmt sögninni var Rómaborg stofnuð árið 753 f.Kr. en nú segja þessir sérfræðing- ar að Rómaborg hafi þá verið þróað borgarsamfélag með þjálfaðan her, uppbyggt efnahagskerfi og félagslega þróuð og þar hafi verið stéttarskipting eins og vænta mátti. Þeir Rómverjar sem byggðu borgina þá voru gerólfkir þvf fólki sem Cato lofsyngur á 2. öld fyrir Krist, þegar hann fordæmir Iffsþorsta samtfðarmanna sinna. Vagga Rómaborgar er Palatin, ein af sjö hæðum Rómaborgar, og á þeim punkti ber fornleifafræðinni og goðsögninni reyndar saman. • SÖGU Rómarfkis þarf að skrifa upp á nýtt er marka má niðurstöður ftalskra forn- leifafræðinga sem hafa unnið að uppgreftri sfðustu tvo ára- tugina í Róma- borg og nmhvorfis hana Nýjar kenningar um aldur Rómaborgar sem samið var við eftir að land- helgin var færð út í 50 milur 1972, við höfum samið við allar þessar þjóðir og við lifum i friði, sátt og samlyndi við þær, nema eina og það eru Bretar. Af hverju höfum við ekki getað samið við Breta! Er það fyrir það, að við höfum ekki verið reiðubúnir til viðræðna? Við ræddum við Breta strax á síðastliðnu hausti hér í Reykja- vík, siðan úti í London og svo margvislegar aðrar viðræður, sem hér hafa verið rifjaðar upp. En það sem kemur þar upp er, að Bretar hafa verið það óbilgjarnir í þessum samningaviðræðum, að það er ekki nokkur leið að ná viðunandi samkomulagi við þá. Þess vegna eru nú ekki fyrir hendi nokkrir möguleikar að taka þær viðræður upp að nýju. 0 Vildu Bretar aldrei samninga? Eg hygg að Bretar hafi með þessu framferði sínu verið að sýna okkur Islendingum það, að þeir vilji í engu láta undan og mín skoðun er sú, að brezka rikis- stjórnin hafi aldrei ætlað sér við okkur að semja. Þeir hafa gjarnan viljað haida þessum samningaleik áfram. Þeir vilja gjarnan koma inn í frumvarpið á hafréttarráðstefnunni, að þegar að ágreiningur verður á milli þjóða, eins og kemur til með að verða f Norðursjónum, á milli þeirra og nágrannaþjóða, þá eigi að vfsa þeim ágreiningi til gerðar- dóms og gerðardómur eigi að fjalla um þann ágreining en strandrfki eigi ekki að hafaóskor- aðan rétt til þess að semja um eða fullnýta sfna fiskveiðilandhelgi. Ég er þegar fyrir allnokkru kom- inn á þá skoðun, að þetta hafi verið tilgangur Breta Þeir hafi aldrei viljað semja við okkur, aðeins láta líta svo út; og vildu gjarnan að við Islendingar hefð- um sagt, að við vildum ekki við þá tala. Þá gátu þeir sagt við allar þjóðir: svona eru þessir Is- lendingar! Við vorum fullir vilja til samstarfs og samninga við þá um friðsamlega lausn, en þeir vildu ekkert við okkur tala. En þetta rekst á þá staðreynd, að við höfum sýnt sáttavilja, sem ekki verður í efa dreginn, en aðeins á grundvelli fiskifræði- legra staðreynda um hrunhættu fiskstofna okkar að óbreyttri veiðisókn. 0 Stefnaríkis- stjórnarinnar. Nú virðast samningar eins fjarri og samningar geta verið á milli tveggja ríkja. Það er ekkert að óttast fyrir þá, sem alltaf hafa óttast samninga, frá byrjun þess- ara samningaviðræðna. En sátta- viðleitni okkar, sem gagnrýnd hefur verið, hefur engu að síður verulega styrkt málstað okkar og samherja okkar á hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. An hennar væri vígstaða okkar þar verri en hún nú er. Ég tel því ekki ástæðu til þess að ráðast æ ofan í æ á stefnu rikisstjórnarinnar i sambandi við framkvæmd land- helgismálsins eins og svo oft hefur verið gert. Nú segja menn, það hefur verið slitið stjórnmála- sambandi við Bretland og það var ekki vonum fyrr. Og nú er sagt, næst verður að kalla sendiherra Islands hjá NATO heim! Það yrði nú gaman fyrir Breta, ef við létum þá vera eina um það, að skýra deilur og árekstra á Islands- miðum; fá aðstöðu til einhliða fréttaflutnings á fundum NATO í Brussel, og ráða þar algjörlega ferðinni. Það væri nú skynsam- legt eða hitt þó heldur. Hvað meina menn, sem segja, kallið þið sendiherrann heim frá Brússel, Island á að segja sig úr NATO, vegna þess að þar er þjóð, sem fremur á okkur ofbeldi, beitir okkur þvingunum og herskip- um. Við erum lika í Sameinuðu þjóðunum og þar eru Bretar einnig. Við höfum kært Breta fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Er þá næsta skref að segja sig úr Sameinuðu þjóðunum? Eig- um við að kalla sendiherra Is- lands hjá Sameinuðu þjóðunum heim, af því Bretar eru í Samein- uðu þjóðunum og eiga sæti i öryggisráðinu? Eigum við að segja okkur úr samstarfi og sam- félagi þjóðanna ef Bretar eru ein- hvers staðar í þessu samfélagi? Eigum við þá að éinangra okkur algjörlega? Hvert eigum við að selja afurðir okkar, ef við slítum öllum tengslum við allar þjóðir? Við ættum kannski að lifa á þvi að vera í verkfalli? Þá get ég skilið þennan hugsunarhátt. En ég held að það sé ekki hægt. Ég held að verkfalli verði að ljúka og við verðum aftur að fara að framleiða vörur og lifa eðlilegu lífi í landi okkar. Þetta vil ég benda mönn- um á, þegar þeir tala með þessum hætti. 0 Fyrri átök við Breta. Mín skoðun er sú, að við eigum ekki að sitja í NATO til þess að vera þar eins og hvert annað at- kvæði eða „dauður" meðlimur. Við eigum að láta til okkar heyra með okkar fulltrúa í NATO, gera athugasemdir við það, sem okkur sýnist, án þess að spyrja Breta eða aðrar þjóðir þar um. Við eigum að gagnrýna þessar þjóðir og fyrst og fremst eigum við að gagnrýna og ráðast harðlega að Bretum fyrir þeirra framferði. Um það deilum við ekki, að Bretar hafa gengið svo langt, að ég hygg að enginn hefði trúað því, þegar ákvörðun var tekin um að færa landhelgina út í 200 mílur. Þá trúðu því fæstir, að Bretar myndu beita okkur herskipavaldi. Hvað hafði gerst áður? Þá hafa Bretar beitt okkur herskipavaldi bæði 1958 og 1972 og þá var hv. 2. þm. Austurl. I rikisstjórn í bæði þessi skipti. Hann sat f rfkisstjórn án þess að slfta stjórnmálasambandi við Breta í bæði þessi skipti. Það er ekki samið við Breta i seinna skiptið fyrr en 13. nóv. 1973, en landhelgin er færð út 1. septem- ber 1972. Þá var hægt að sitja í rikisstjórn án þess að slíta stjórn- málasambandi við Breta. Af hverju var það ekki gert? Menn töldu þá rétt, sem fyrsta skref, að kalla heim sendiherra okkar um tíma Það var metið svo af ráð- herrum í þessum rikisstjórnum báðum, að skynsamlegt væri að ganga ekki lengra en það. Hins vegar má segja að atburðarásin í núverandi landhelgisátökum hafi verið harðari og atburðarás komið mönnum i opna skjöldu. Eftir ítrekaðar samningatilraunir af okkar hálfu — og hegðan Breta, FRA REYKJANESMÖTINU 1 SVEITAKEPPNI: Staðan að 13 umferðum Ioknum: Sveit Stig: 1. Ármanns J. Láruss., B.Á.K. 218 2. Öla Kr. Björnss., B.H. 192 3. Böðvars Guðmundss., B.H. 191 4. Friðþjófs Einarss., B.H. 169 5. Boggu Steins. NPC., B.S. 165 6. Kára Jónassonar B.K. 161 7. Ólafs Gíslas., B.H. 160 8. Oskars Pálss., B.S. 137 Mótinu lýkur 21. mars, og þá spila m.a. sveitir Ármanns og Óla Kr. og Böðvars gegn Boggu Steins. 28. mars verður mótinu form- lega slitið, með tvímennings- keppni, sem verður fyrsta „Reykjanesmótið", í para- keppni. Öllum félögum á Reykjanessvæðinu er heimil þátttaka, og pörum bent á, að skráningu lýkur 21. mars. Skráð er i félögunum, og er 600 kr. pr. par. X X X X FRA BRIDGEFELAGINU ÁSARNIR: 12 umferðum er nú lokið, af „Patton" keppni félagsins, og er staðan þessi: Sveit Stig: 1. Vilhjálms Þórssonar 138 2. Ólafs Lárussonar 136 3. Jóns Hermannssonar 127 4. Jóns Andressonar 121 sem óþarft er að lýsa, varð ekki hjá því komizt að slita stjórnmála- sambandi við þá. Það sem þar réð úrslitum af minni hálfu var ekki sizt, er brezka flotanum var beint inn á alfriðað svæði, sem var fá- heyrð ósvífni. Þar tóku Bretar sér Framhald á bls. 23 Keppni lýkur á mánudaginn kemur, en næsta keppni félags- ins er „Butler" tvímennings- keppni, og er öllum heimil þátt- taka. Spilað er í Félagsheim- ilinu I Kópavogi, á mánudags- kvöldum, kl. 20.00. X X X X FRA BRIDGEFELAGI SIGLUFJARÐAR Síðustu leikirnir I sveita- keppninni voru spilaðir 23. febr. s.l. Sveit Steingríms vann sveit Páls 17—3 Sveit Haralds vann sveit Sigurðar 18—2 Sigiufjarðarmeistari i sveita- keppni varð sveit Boga Sigur- björnssonar með 84 stig af 100 mögulegum. Auk Boga eru í sveitinni 3 bræður hans, Anton, Ásgrímur og Jón. Sveit Stig: 2. Steingrims Magnússonar 65 3. Haralds Árnasonar 48 4. Sig. Hafliðasonar 45 5. Páls Pálssonar 44 6. Björns Olafssonar 4 HRAÐSVEITAKEPPNI 1. UMFERÐ: Sveit Stig: 1. Sigurðar Hafliðas., 502 2. Boga Sigurbjörnssonar 481 3. Steingrims Magnússonar 445 4. Páls Pálssonar 384 5. Jóns Pálssonar 348 Meðalskor er 432 stig. A.G.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.