Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976 31 BIKARKEPPNI Iiandknattleikssambandsins er nokkuð á veg komin þó svo að fvrstu leikirnir í meistaraflokki karla hafi farið fram í gær. Fvrstu umferðinni er þegar lokið í 2. flokki karla og aðeins einum leik er ólokið í 1. umferð meistaraflokks kvenna. I kvöld fer einn leikur fram í karlaflokki, Grótta leikur gegn Akurnesingum í nýja lþrótta- húsinu á Akranesi. Urslit í 1. umferð meistara- flokks kvenna hafa orðið sem hér segir: IBK — FH 8:15 UMFG — UBK 13:14 (framlenging) Stjarnan — Armann 13:30 1R — Víkingur 10:11 UMFN — KR 17:13 Eins og sjá má af þessum úrslit- um hafa nokkrir leikirnir verið mjög spennandi hjá stúlkunum og 2. deildarlið Njarðvikur er komið áfram í keppninni. Ekki hefur spennan verið minni hjá strákun- um í 2. flokki, en þar urðu úrslit i 1. umferðinni þessi: Grótta — Afturelding 21:22 KR — UMFN 20:9 Valur — Fram 9:19 Víkingur — FH 14:15 Haukar — IR 13:10 Ármann — HK 22:21 Fylkir — Þróttur 11:9 UBK — IA 16:10 Stjarnan — Afturelding 19:18 I 2. umferð eiga þessi lið að leika saman: Víkingur — UBK Ármann — Haukar Fram — UMFN Þór/Valur — FH 2. umferð2. flokks karla: Fram — KR FH — Ármann Stjarnan — Breiðablik Fylkir — Haukar I meistaraflokki karla fóru fyrstu leikirnir fram í gærkvöldi eins og áður sagði og IA — Grótta leika i kvöld. Næstu leikir verða svo sem hér segir: Föstudagur Þór — FH á Akureyri Föstudagur Afturelding — Víkingur i Asgarði Föstudagur HK — IR væntanlega f Kársnesskóla —áij Unglingameistara- mótið í badminton Unglingameistaramót fslands I badminton verður haldið ð Siglu- firði dagana 20. og 21. marz n.k. Keppt verður I eftirtöldum grein- um: Einliðaleik, tvfliðaleik og tvenndarleik og verður keppt f öllum aldursflokkum unglinga. Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt til Jóhannesar Þ. Egils- sonar. Siglufirði. I slma 96-71690 og 71691 fyrir 16. marz n.k. ásamt þátttökugjaldi sem er kr. 800.00 furir einliðaleik og kr. 500.00 fyrir tvfliðaleik og tvenndarleik. Fimleika- meistaramótið MEISTARAMÓT íslands f fimleik- um fer fram I fþróttahúsi Kennara- háskóla fslands laugardaginn 27. marz n.k. og keppa þá piltar og sunnudaginn 28. marz n.k. er stúlkurnar keppa. Keppt verður um meistaratitil f eftirgreindum aldursflokkum: 12 ára og yngri. 13—14 ára, 15—16 ára , 17 ára og eldri. Auk þess verður tekin upp sú nýbreytni að um flokkakeppni verður að ræða f hverjum aldurs- flokki. Keppt verður f fimleikastig- anum. Þátttökutilkynningar þarf að senda til Fimleikasambands fs- lands fyrir 13. marz n.k. ÞESSA skemmtilegu mvnd af Stefáni Hallgrimssvni tók Olafur Ölafsson á Meistara- móti tslands i frjálsum íþrótt- um innanhúss sem fram fór um síðustu helgi. Stefán náði ágætum árangri f langstökk- inu, varð annar á eftir Friðriki Þór Oskarssyni sem setti nýtt lslandsmet með því að stökkva 7,10 metra. Nýtt efni hefur nú verið sett á gólfið í Baldurs- haga — salnum undir stúku Laugardalsvallarins, og láta frjálsíþróttamennirnir mjög vel af því og þakka þvf að hluta mjög bættan árangur sinn f frjálsum íþróttum innanhúss f vetur. KR sigraði í Coca Cola KR-ingar báru sigur úr býtum f Coca Cola keppninni f körfuknattleik sem lauk I fyrrakvöld. Þeir léku til úrslita við erkifjendur sfna úr ÍR, og sigraði KR með 81 stigi gegn 78. Þeir Þorsteinn Hallgrlmsson og Kobeinn Kristinsson léku ekki með ÍR að þessu sinni, en á móti kom að „Trukkurinn" var með flensu og var ekki hálfur maður. enda lék hann Iftið með. Hann fór út af rétt fyrir miðjan fyrri hálfleik þegar staðan var 17:16 fyrir ÍR, en hinir ungu liðsmenn KR sem I vetur hafa verið kallaðir „Stadistar" tóku góðan kafla fram að hléi og leiddu þámeð 40:28. KR hélt ávallt forskoti sínu í sfðari hálfleiknum, munurinn var mestur 14 stig en fór síðan niður I 5 stig En þrem mín fyrir leikslok hafði KR yfir 77 63 Þá gerðu ÍR-ingar harða hrið að KR, én munurinn var of mikill til að þeim tækist að vinna hann upp Gunnar Jóakimsson var i aðalhlut- verkinu hjá KR I þessum leik og var frábær á köflum. Þá áttu þeir Gisli ... og irmann í 3. sæti Gíslason, Hilmar Viktorsson Bjarni Jó- hannesson og Birgir Guðbjörnsson all- ir góða kafla, en „Trukkur" og Kol- beinn Pálsson voru báðir veikir og gátu ekki beytt sér á fullu Stighæstur hjá KR var Gunnar með 19 stig, en bræð- urnir hjá ÍR, Kristinn og Jón Jörunds- synir, voru stighæstir ÍR-inga með 1 7 stig hvor gk— ÁRMANN tryggði sér 3. sætið f Coca Cola keppninni með naumum sigri yfir UMFN. Ekki var þessi leikur sérstaklega vel leikinn, hann bar þess greinileg merki að hann var ekki í íslandsmóti eða bikarkeppni. En jafn var hann allan tlmann. Liðin skiptust á um að hafa forust- una allan leikinn og í hálfleik hafði Ármann yfir 49:45 Sömu svipting- arnar voru I síðari hálfleik, en rétt fyrir IR - Armann í kvöld fara fram tveir leikir í bikar- keppni Körfuknattleikssambands fs- lands og má segja að annar leikurinn sé nánast úrslitaleikur I keppninni Er það leikur ÍR og Ármanns, þeirra liða sem hafa nú forvstuna I 1 deildar keppni íslandsmótsins I körfuknattleik Hefst viðureign þeirra I Hagaskólahús- inu kl. 20.00, en strax að þeim leik loknum leika UBK og UMFN einnig I bikarkeppninni, en ætla má að UMFN- liðið sé nokkuð öruggur sigurvegari i þeim leik. leikslok var jafnt Ármenningar reynd- ust sterkari á lokasprettinum og sigr- uðu með 94 stigum gegn 92 svo naumara gat það varla verið Jimmy skoraði mest fyrir Ármann 30 stig, en Jón Sig sem var besti maður vallarins skoraði 25 stig Stefán Bjarkason skoraði 24 stig fyrir UMFN, Kári Marísson 17 og Gunnar Þorvarðsson 1 5 gk. Austur- bergshlaup Annað Austurbergshlaup Leiknis á þessum vetri fer fram n.k. laugardag og hefst kl 1 4 00 BÆJAR- og héraðsbóka- safnið á Akranesi opnaði á laugardag nýja barna- bókadeild og lesstofu í húsakynnum safnsins. Um 200 gestir, flestir af yngri kynslóðinni, voru viðstaddir opnunina. Við opnunina ávarpaði frú Stefanía Eiríksdóttir gesti. Þá talaði Stefán Júlíusson bókafulltrúi Rithöfundarnir Guðrún Helgadóttir og Stefán Júlfusson lesa fyrir safngesti. Bætt aðstaða héraðsbóka- safnsins á Akranesi ríkisins en síðan hófst barnabókakynning. Rit- höfundarnir Uuðrún Helgadóttir og Stefán Júlíusson lásu úr bókum sínum við mikinn fögnuð hinna ungu gesta. Að lokum flutti forseti bæjarstjórnar Daníel Ágústinusson, ávarp fyr- ir hönd bæjaryfirvalda. Blaðið hafði samband við Braga Þórðarson bókasafns- stjóra og sagði hann m.a.: „Ekki þarf að efast um að þessi viðbótaraðstaða í bókhlöðunni verði vel þegin af bæjarbúum. Með tilkomu lesstofunnar gefst bæjarbúum kostur á að staldra við, fletta upp í tímaritum og skoða bækur sem ekki er hægt að lána út í venjulegt útlán.“ Ennfremur sagði Bragi: „Á þeim umbrotatímum sem við nú lifum á er nauðsynlegt að börn og unglingar fái sterk tengsl við menninguna í sinu bæjarfélagi. I bókhlöðunni kynnast þau kyrrlátu umhverfi þrungnu skemmtun og fræðslu sem bækurnar veita.“ Anægðir hlustendur á barnabókakvnningu. Ljósmyndir Guðmundur Garðarsson. Hæfileikalýeppni í Kópavogi UNDANFARIN þrjú ár hefur Tómstundaráð Kópavogs efnt til svokaliaðrar hæfileikakeppni í Kópavogsbiói. Þar hefur ungu áhugafólki gefizt kostur á að koma fram með fjölbreytilegustu atriði svo sem söng, dans, pop og klassíska tónlist, leikþætti o.fl. o.fl. Margt af því efni hefur verið frum- samið, og hefur það sett sérstaklega skemmtilegan svip á keppn- ina. Dagana 22. og 23. marz n.k. fer keppnin fram í fjórða sinn með þeirri breytingu, að öllu áhugafólki úr Kópavogi gefst kostur á að vera með en áður var keppnin eingöngu bundin við unglinga. Tvenns konar verðlaun verða veitt. Annars vegar fyrir frum- samið efni og hins vegar fyrir túlkun. Skráning í keppnina stendur nú yfir á skrifstofu tómstundaráðs, Álfhólsvegi 32, og lvkur föstudaginn 12. marz. Leikritið Gísl á Akranesi UM ÞESSAR mundir er Skagaleikflokkurinn að æfa leikritið GlSL eftir Brendan Beham og hafa æfingar gengið vel. Leikstjóri er Herdis Þorvaldsdóttir en aðalhlutverk eru í höndum Halldórs Karlssonar, Þóreyjar Jónsdóttur og Þorsteins Ragnarssonar. Áformað er að leikritið verði frumsýnt laugardaginn 13. marz í Bíóhöllinni á Akranesi. Meðfylgjandi mvnd er frá æfingu leikritsins á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.