Morgunblaðið - 11.03.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976
5
snertir uppbyggingu fóðuriðn-
aðarins þá verði hún auðvelduð
meó föstum tekjustofnum, hag-
stæðum lánum, afnámi tolla og
skatta og öðrum ráðstöfunum,
hliðstætt og gert hefur verið við
uppbyggingu Þörunga-
vinnslunnar á Reykhólum. Þingið
hvetur til þess að hraðað verði
rannsóknum á því, hvernig hag-
kvæmast sé að nota ódýra af-
gangsorku og jarðvarma til
þurrkunar fóðurefna og auknar
verði rannsóknir á því, hvaða
efnum, sem til falla eða vinna má
innanlands, sé hugsanlegt að
blanda í grasköggla til að fá hag-
kvæmar kjarnfóðurblöndur.
Einnig verði gerðar viðtagkar
fóðurtilraunir meó innléndar
fóðurblöndur, svo að skýrt komi í
ljós að hve miklu leyti slík kjarn
fóðurframleiðsla geti komið í stað
innflutts kjarnfóðurs.
I ályktuninni er einnig lagt til
að auknar verði ræktunartilraun-
ir og þá m.a. á ræktunarlöndum
verksmiðjanna, bæði er varðar
stofna og áburð, með það fyrir
augum að auka uppskeru og gera
hana árvissa. Þingið hvetur
einnig til þess að kannaðir verði
möguleikar á útflutníngi á gras
kögglum og athugað verði,
hvernig hagkvæmast er að haga
geymslu og flutningi á grasköggl-
um, endasé við það miðað að þeir
verði seldir á sama verði á öllum
verzlunarstöðum landsins.
Að síðustu leggur Búnaðarþing
áherzlu á að hraðað verði útvegun
fjármagns til hönnunar, uppbygg-
ingar og endurbóta þeirra græn-
fóðurverksmiðja, er þegar hafa
verið hafnar framkvæmdir við,
þannig að unnt verði að ljúka
uppbyggingu þeirra á næstu 5
árum. I lok ályktunarinnar er
stjórn Búnaðarfélagsins falið að
fylgja þessu mikla hagsmunamáli
landbúnaðarins og þjóðarinnar
allrar eins og segir i ályktuninni,
fast eftir svo aó álit væntanlegrar
nefndar geti legið fyrir næsta
Búnaðarþingi.
NECCHI
er fullkomin, sjálfvirk saumavél
með lausum armi og innbyggðum fylgihlutakassa.
Hún vegur aðeins um
12 kg. með tösku.
Necci Lydia 3
er sérlega einföld í meöförum.
Meö aöeins einum takka
má velja um 17 sporgeröir.
r
Alyktun Búnaðarþings:
Gerð verði heildaráætlun um
eflingu fóðuriðnaðar á íslandi
Auk þess má gera hnappagöt, festa á tölur og
sauma út eftirvild.
Fullkominn íslenzkur leiðarvísir fylgir.
Verð aðeins 43.350 kr. Býður nokkur betur?
Góð greiðslukjör. Fæst víða um land.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 — sími 84670.
Fóðurbætisþörf
landbúnaðarins
verði að mestu
fullnægt með
innlendri
fóðurframleiðslu
Búnaðarþing leggur sérstaka
áherzlu á að endurskoðuð verði
gildandi lagaákvæði um græn-
fóðurverksmiðjur, m.a. með það
fyrir augum að auka áhrif bænda
og samtaka þeirra á stjóm og
rekstur verksmiðjanna. Hvað
Slysavarnadeildin Mannbjörg, Þorlákshöfn:
Bifreið til björgunarstarfa
Þorlákshöfn, 8. marz —
SLYSA VARNADEILDIN Mann-
björg, Þorlákshöfn hefur fengið
nýja bifreið til björgunarstarfa.
Laugardaginn 28. febrúar var ný
bifreið slvsavarnadeildarinnar
hér reynd og þar með tekin f
notkun. Ekið var sem leið liggur
meðfram ströndinni út f Selvog,
15 km leið stórgrýttia og sein-
farna, algjöra veglevsu, þó að
annað slagið markaði fvrir vegi,
sem áður fyrr var notaður fyrir
hestvagna. Reyndist bifreiðin
hinn bezti farkostur á þessari tor-
færuleið.
Margt hefur gerzt þarna við
brimótta ströndina á þessum ár-
um og var um það rætt þarna á
leiðinni, að brýn nauðsyn væri að
ryðja og bæta þessa leið, því að í
náttmyrkri og vondu veðri, er
óhöppin ber helzt að, er mjög erf-
itt að aka þarna, svo að ekki sé
meira sagt. Þá kom fram, að Ar-
nessýsla hefur lagt deildinni til
35 þúsund krónur í þessu skyni,
en betur má ef duga skal. Einnig
lagði sýslan deildinni til 35 þús-
und krónur til annarra björgunar-
starfa.
Bifreiðin er rússnesk af gerð-
inni AUZ 452 með bensínvél og
drifi á öllum hjólum. Kostaði hún
frá umboðinu 858 þúsund krónur
og höfóu þá aðflutningsgjöld ver-
ið eftirgefin að upphæð 331 þús-
und krónur. Frágangur bifreiðar-
innar kostaði samtals 385 þúsund
krónur og alls kostaði hún tilbúin
til notkunar 1.243 þúsund krónur.
Helztu aðilar, sem sáu um frá-
gang bifreiðarinnar voru Gísli
Hermannsson, Reykjavik, er sá
um málun, Ölafur Þórarinsson,
Selfossi sá um innréttingu og
klæðningu. Einnig unnu félagar
úr björgunarsveitinni mjög mikið
við bifreiðina. Deildin fékk fjár-
hagsaðstoð frá Slysavarnafélagi
Islands, að upphæð 200 þúsund
krónur, einnig gáfu fyrirtæki og
einstaklingar i Þorlákshöfn pen-
inga að upphæð 216 þúsund krón-
ur. Bifreiðin er ætluð sem björg-
unar- og sjúkrabifreið og rúmar
14 manns í sæti, en er þannig
útbúin að hægt er að fjarlægja
sætin á stuttri stundu og er hún
þá tilbúin til sjúkraflutninga.
Slysavarnadeildin Mannbjörg
var stofnuð í Hveragerði 27. nóv-
ember 1949 fyrir tilstuðlan sókn-
arprestsins hér, séra Helga
Sveinssonar, sem var mikill
áhugamaður um slysavarnamál.
Fyrsti og eini formaður deildar-
innar á meðan hún átti heima í
Hveragerði eða í 10 ár var Krist-
inn Bjarnason. Þá var það einnig
fyrir forgöngu séra Helga og
Kristins, að deildin var flutt til
Þorlákshafnar árið 1960. Þeir
töldu verksvið hennar vera meira
og brýnna hér við hafnlitla
ströndina Fyrsti formaður deild-
Framhald á bls. 18
EFLING innlendrar fóður-
framleiðslu hefur mjög
veriö til umræðu á Búnað-
arþingi, sem lauk í gær. Á
síðasta fundi þingsins í
gær var samþykkt ályktun
um þessi mál og er í henni
skorað á landbúnaðarráð-
herra að skipa nefnd til
þess að gera heildaráætlun
um eflingu fóðuriðnaðar-
ins á Islandi, þannig að
hann geti að mestu fu 11-
nægt fóðurbætisþörf land-
búnaðarins.
Auk þess eru í ályktuninni
nefnd nokkur atriði, sem þingið
leggur sérstaka áherzlu á að fyrr-
nefnd nefnd taki til athugunar en j
telja verður að þessi ályktun Bún-
aðarþings sé um margt stefnu
markandi, hvað snertir uppbygg-
ingu innlends fóðuriðnaðar, sem
leysi af hólmi innflutning á kjarn-
fóðri.
FIMM graskögglaverksmiðjur eru nú starfræktar f landinu og fram-
leiddu þær á sl. sumri um 5500 tonn af graskögglum og er það um
6—7% af árlegri kraftfóðurnotkun. Talið er að til að fullnægja
fóðurbætisþörf þyrfti að framleiða f landinu um 50 þúsund tonn af
graskögglum, auk þess sem ýmsum öðrum innlendum fóðurefnum yrði
bætt f þá. Þessi mynd sýnir elztu verksmiðjuna en það er verksmiðja
Stórólfsvallabúsins hjá Hvollsvelli.
beint vanalegt spor,
beint teygjanlegt spor,
zig-zag,
satinsaum,
skelfald,
blindspor til að
sauma tvöfalda
efnisbrún við leggingarborðc
teygjanlegan skelfald,
overlock,
parisarsaum,
þrepspor,
teygjufestispor,
blindfaldspor,
rykkingarsaum,
oddsaum,
tungusaum,
rúðuspor,
þræðingarspor.