Morgunblaðið - 11.03.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976
19
Algerlega óábyrg
stjórnarandstaða
Mánudaginn 23. febrúarmán-
aðar fóru fram á Alþingi umræð-
ur um vantraust á ríkisstjórnina.
F'yrstur talaði Ragnar Arnalds.
Var ræða hans þessi gamla al-
þýðubandalagstugga um að nú-
verandi ríkisstjórn hefði ekkert
gert og ekkert lag á að stjórna.
Verkföllin væru og hennar sök.
Ragnar Arnalds: Það voru gerðir
kjarasamningar í tíð vinstri
stjórnar og þar var ríkisstjórnin
með klærnar í, og það voru af
öllum taldir verðbólgusamningar
og óraunhæfir. Enda fór þá allt úr
bondunum og við ekkert varð
ráðið og endirinn varð eins og
frægt er orðið. Og svo leyfir þú
þér Ragnar að gera kinnroðalaust
samanburð á núverandi stjórn og
vinstri stjórninni. Þar fellur þú á
þínu eigin bragði. Það skal að
vísu fúslega viðurkennt, að við
margs konar erfiðleika hefur
verið við að stríða og þar af leið-
andi sumt orðið þyngra í vöfum
en ella hjá núverandi stjórn. En
þessi vantrauststillaga er tví-
mælalaust borin fram af annar-
legum hvötum, borin fram þegar
ríkisstjórnin á í harðvítugri bar-
áttu út á við og í erfiðleikum inn á
við. Þá þótti stjórnarandstöðunni
heppilegur tími til vantraustsyfir-
lýsingar. Segi svo hver sem vill,
að ekki séu annarleg sjónarmið á
bak við. Jú, svo sannarlega voru
það annarleg sjónarmið. Og svo
talið þið alþýðubandalagsmenn
um að efnahagsmálin séu í ólestri.
Já, öðrum fórst en ekki ykkur.
Ykkur ætlar seint að skiljast, að
við ráðum ekki verðlagi á er-
lendri vöru né heldur á okkar
útflutningsvöru. Þessar stað-
reyndir ættuð þið að vera farnir
að skilja. En eitt er vel íhugunar-
vert. Erfiðleikar núverandi ríkis-
stjórnar skyldu þó aldrei eiga
rætur að rekja til óstjórnar
Skipting
verkefna og
tekjustofna
ríkis og
sveitarfélaga
I frétt frá félagsmálaráðuneyt-
inu kemur fram að Gunnar Thor-
oddsen félagsmálaráðherra hefur
skipað 10 manna nefnd til þess að
fjalla um skiptingu verkefna- og
tekjustofna milli ríkis og sveitar-
félaga svo og önnur samskipti
þeirra,
I nefndinni eiga sæti eftirtaldir
menn: Hallgrímur Dalberg ráðu-
neytisstjóri, formaður nefndar-
innar, Friðjón Þórðarson Alþing-
ismaður, Gunnlaugur Finnsson
bóndi, Kristján J. Gunnarsson
fræðslustjóri, Steinþór Gestsson
bóndi, Páll Líndal formaður Sam-
bands íslenzkra sveitafélaga, Öl-
afur G. Einarsson, varaformaður
Sambands íslenzkra sveítafélaga,
Ölvir Karlsson bóndi, Logi
Kristjánsson bæjarstjóri á Nes-
kaupstað og Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri á Akureyri. Hinir
fimm síðast töldu eru skipaðir
samkvæmt tilnefningu Sambands
íslenzkra sveitarfélaga.
vinstri stjórnarinnar. Það er að
segja til Alþýðubandalagsins. Þar
er framsókn stikkfrí, þvi að hún
bara elti, samkvæmt þeirra eigin
umsögn í málgagni sínu i fyrra.
Næstur talaði Geir Hallgríms-
son og flutti mál sitt af festu og
rökum. Hrakti hann flest í mál-
flutningi Ragnars Arnalds með
glöggum og skýrum hætti. Var
þar hvert orð meitlað og hnit-
miðað. Sett fram af djörfung og
drengskap. Hafi hann þökk fyrir
sinn málflutning.
Hafi Benedikt Gröndal ætlað að
lyfta Alþýðuflokknum eitthvað
upp úr þeim öldudal, sem hann
nú er í, þá væri vægast sagt betra
fyrir hann að haga málflutningi
sinum á annan veg en hann í
þetta sinn gerði. Ekki meira um
það.
Karvel Pálmason var allur eins
og hann væri fjarstýrður af Lúð-
vík Jósepssyni og fór úr einu í
annað án nokkurra raka.
Nú get ég vel skilið Magnús
Torfa, að hann uni illa hag sínum.
Það var nokkuð annað að vera i
vinstri stjórn og fá ráðherraemb-
ætti að geðþótta, en að vera nú
bara þingmaður. Er ekki von að
aumingja manninum leiðist.
Um Gylfa Þ. Gislason get ég
verið fáorður en vísa til upphafs-
orða i ræðu Gunnars Thoroddsen.
Þaó voru orð í tima töluð og hittu
i mark.
Um ræðu Lúðvíks Jósepssonar
er það helst að segja, að hann
notaði sér að vera síðastur á mæl-
endaskrá, enda var ræða hans
mestmegnis upphrópanir og stað-
lausir stafir. Og ég fullyrði, Lúð-
vík Jósepsson, að landhelgismálið
allt frá byrjun og til þessa dags
hefði ekki fengið farsælli fram-
gang í höndurrf ykkar alþýðu-
bandalagsmanna nema siður
væri, þar á hafið þið verið hálf-
gerðir dragbítar, þó að þú Lúðvík
Jósepsson viljir í ræðu frammi
fyrir alþjóð halda fram hinu
gagnstæða. Ríkisst jórnin hefur
haldið á þessum málum af einurð
og festu, þess vegna er best fyrir
þig Lúðvík Jósepsson, að halda
þér i pensilinn.
28. febr. 1976,
Ólafur Vigfússon,
Hávallagötu 17,
Reykjavfk.
RAÐSTEFNA UM
ÞRÓUN IÐNAÐAR
Rannsóknarráð ríkisins efnir !
til ráðstefnu um þróun iðnaðar
föstudaginn 12. marz n.k. að Hó-
tel Loftleiðum. Til ráðstef nunnar
hefur verið boðið um 120 ráð-
stefnugestum, þ.á.m. visinda-
mönnum, og tæknimönnum, emb-
ættismönnum, stjórnmálamönn-
um, iðnrekendum og öðrum aðil-
um atvinnulífsins. Inngangser-
indi flytja Bjarni Bragi Jónsson,
um hlutverk iðnaðar í is-
lenzkum þjóðarbúskap, Hörður
Jónsson og Ásbjörn Einarsson um
þróunarstefnu í þágu iðnaðar. Á
ráðstefnunni munu starfa 11 ura-1
ræðuhópar.
1 október s.l. birti Rannsóknar-
ráð niðurstöður athugana starfs-
hóps um þróun iðnaðar, en starfs-
hópnum hefur verið falið að gera|
yfirlit yfir stöðu og spá um þróun
íslenzks iðnaðar næstu 5 árin. 1
skýrslu starfshópsins komu
fram ýmsar ábendingar um,
vandamál og tækifæri iðnaðarins
hér á landi nu og a næstu árum og
er markmið Rannsóknarráðs með
ráðstefnu þessari að fá fram frek-
ari ábendingar þar að lútandi, svo
að unnt megi reynast að beina
rannsóknum á sviði iðnaðar að
lausn þeirra vandamála og að hag-
nýtingu hugsanlegra tækífæra
sem bjóðast til hagsbóta fyrir at-
vinnuveginn i heild.
Ráðstefnan er haldin í beinum
tengslum við verkefni sem Rann-
sóknarráð hefur unnið að undan-
farin tvö ár og nefnt hefur verið
Mörkun visindastefnu, en með til-
liti til þess litla fjármagns og tak-~
markaða mannafla sem til rann-
sóknarstarfsemi er varið hér á
landi, er nauðsynlegt að henni sé
beint að þeim verkefnum sem ætl-
að er að gefa muni mestan árang-
ur frá þjóðhagslegu sjónarmiði.
Ráðstefnustjóri verður Davíð
Scheving Thorsteinsson.
AUGLYSIIMGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 sími 25810
Öll þessi skuldabréf eru seld. Tilkynning þessi birtist aðeins af formlegum ástæðum
Ný útgáfa
20. febrúar 1 976.
LYÐVELDH) ISLAND
15,000,000 evrópskar reikningseiningar
91/4% 1976-1983 skuldabréf
CRÉDIT COMMERCIAL DE FRANCE
FIRST BOSTON (EUROPE)
Limited
KREDIETBANK S.A. LUXEMBOURGEOISE
ARAB FINANCIAL CONSULTANTS COMPANY S.A.K.
BANQUE BRUXELLES LAMBERT S.A.
MANUFACTURERS HANOVER LIMITED
SOCIÉTÉ GÉNÉRALE DE BANQUE S.A.
WESTDEUTSCHELANDESBANK GIROZENTRALE
ALAHLI BANK OF KUWAIT (K.S.C.)
ARAB FINANCE CORPORATION S.A.L
ALGEMENE BANK NEDERLAND N.V.
A. E. AMES & CO.
Limited
BANCA COMMERCIALE ITALIANA BANK GUTZWILLER, KURZ, BUNGENER (OVERSEAS)
BANKHAUS HERMANN LAMPE
Kommanditgesellschaft
BANQUE FRANpAISE DU COMMERCE EXTÉRIEUR
AMSTERDAM-ROTTERDAM BANK N.V.
BANK MEES & HOPE NV
BANQUE DU BENELUX S.A.
BANQUE GÉNÉRALE DU LUXEMBOURG S.A. BANQUE DE LTNDOCHINE ET DE SUEZ
BANQUE INTERNATIONALE A LUXEMBOURG S.A. BANQUE LAMBERT - LUXEMBOURG S.A. BANQUE LOUIS-DREYFUS BANQUE NATIONALE DE PARIS
BANQUE DE PARIS ET DES PAYS-BAS BANQUE DE PARIS ET DES PAYS-BAS - BELGIQUE BANQUE PRIVÉE S.A. BÁNQUE DE L’UNION EUROPÉENNE
Luxembourg
BANQUE WORMS H. ALBERT DE BARY & CO. N.V. BAYERISCHE LANDESBANK GIROZENTRALE BERGEN BANK
ÐERLINER HANDELS- UND FRANKFURTER BANK BLYTH EASTMAN DILLON & CO. BROWN HARRIMAN & INTERNATIONAL BANKS LTD.
International Limited
CAISSE DES DÉPÖTS ET CONSIGNATIONS CHRISTIANIA BANK OG KREDITKASSE CITICORP INTERNATIONAL BANK CONTINENTAL BANK S.A.
Limited
CRÉDIT GÉNÉRAL CRÉDIT INDUSTRIEL D’ALSACE ET DE LORRAINE CRÉDIT INDUSTRIEL ET COMMERCIAL CRÉDIT LYONNAIS
S.A. de Banque
CRÉDIT DU NORD ET UNION PARISIENNE CREDIT SUISSE WHITE WELD CREDITANSTAL.T-BANKVEREIN CREDITO ITALIANO
Limited
DEUTSCHE GIROZENTRALE - DEUTSCHE KOMMUNALBANK -
Limited
BANQUE ARABE ET INTERNATIONALE D’INVESTISSEMENT (B.A.I.I.)
DEN NORSKE CREDITBANK
DEWAAY & ASSOCIÉS INTERNATIONAL S.C.S.
RNACOR
DRESDNER BANK EFFECTENBANK-WARBURG EUROPEAN BANKING COMPANY
Aktiengesellschaft Aktiengesellschaft Limited
GENOSSENSCHAFTLICHE ZENTRALBANK AG - VIENNA ANTONY GIBBS HOLDINGS LTD. GIROZENTRALE UND BANK DER ÖSTERREICHISCHEN SPARKASSEN
Aktiengesellschaft
HAMBROS BANK HILL SAMUEL & CO. E. F. HUTTON & CO. N.V. INDUSTRIEBANK VON JAPAN (DEUTSCHLAND) INTERUNION-BANQUE
L,m"ed Limited Aktiengesellschalt
KANSALLIS-OSAKE-PANKKI KITCAT & AITKEN KJ0BENHAVNS HANDELSBANK KLEINWORT, BENSON KREDIETBANK N.V.
Limited
THE NIKKO SECURITIES CO. (EUROPE) LTD.
MERRILL LYNCH INTERNATIONAL & CO.
NORDDEUTSCHE LANDESBANK GIROZENTRALE
NEDERLANDSCHE MIDDENSTANDSBANK N.V.
NORDIC BANK
Limited
SCANDINAVIAN BANK SKANDINAVISKA ENSKILDA BANKEN
Limrted
PRIVATBANKEN
Aktíeselskab
SOCIÉTÉ GÉNÉRALE
ORION BANK PKBANKEN
Limited
SMITH BARNEY, HARRIS UPHAM & CO.
Incorporated
SOCIÉTÉ GÉNÉRALE ALSACIENNE DE BANQUE SOCIÉTÉ SÉQUANAISE DE BANQUE SVENSKA HANDELSBANKEN SWISS BANK CORPORATION (OVERSEAS)
Limited
UNION DE BANQUES ARABES ET EUROPÉENNES - U.B.A.E. VEREINS- UND WESTBANK J. VONTOBEL & CO. WILLIAMS, GLYN & CO. WOOD GUNDY
Société Anonyme Aktiengesellschaft Limited
jO *.«
1 r V t I