Morgunblaðið - 11.03.1976, Page 29

Morgunblaðið - 11.03.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976 29 VELVAKANDI Velvakandi svarar I slma 10-100 kl. 14—15. frá mánudegi til föstu- dags 0 Hervernd íslands Ymsir eru farnir að velta þvi fyrir sér í sambandi við þá söguskýringu í sjónvarpinu, að Bandarikin hafi hernumið Island á sinum tima, hvort það sé sú út- gáfa, sem á að fara að læða að og gera að „staðreynd“. 1 Velvakanda s.l. sunnudag beindi bréfritari fyrirspurnum til sjónvarpsins vegna þeirrar full- yrðingar, sem þar kom fram um „hernámið". I sambandi við þá fyrirspurn, hringdi Sveinn Valfells til Velvakanda og sagðist nýlega hafa lesið endurminn- ingar Cordel Hull, fyrrverandi utanrikisráðherra Bandaríkj- anna, þar sem hann getur þess, að á jóladag 1940 hafi borizt beiðni frá íslenzku rikisstjórninni um, að Bandaríkjamenn tækju að sér hervernd íslands. Þeirri ósk hefði verið neitað á þeirri forsendu, að það myndi auka mjög á likur þess, að Bandarikjamenn drægjust inn í striðið, en þeir stóðu þá utan við átökin. Það var ekki fyrr en hálfu ári siðar, að bandariski herinn kom hingað að beiðni islenzkra stjórn- valda. • Ný hernaðartækni K. Wilbertson, sem kallar sig „umhyggjusaman útlending", en er ekki síður gamansamur út- lendingur, skrifar Velvakanda: Bretar eru nú farnir að beita nýju vopni gegn Islendingum í þorskastriðinu. . . dúfum. í seinni heimsstyrjöldinni notuðu Bretar dúfur til að flytja skilaboð og annað. Nú notfæra þeir sér þessa reynslu sina og beita þeim gegn ykkur. Brezkar dúfur eru valdar frá Trafalgar Square í London og fluttar til hafna, sem togarar sigla frá til íslands. Á leiðinni er dúfunum sífellt sýndar myndir af styttu Jóns Sigurðssonar og kort af Reykjavik. önnur móðgun af hálfu brezkra togarasjómanna er, að botnar búranna eru þaktir afritum af islensku stjórnar- skránni og yfirlýsingunni um útfærslu landhelginnar frá í október. Þegar togararnir eru komnir nógu nærri Islandi er fuglunum sleppt lausum til þess að vinna sín svívirðulegu verk á minnismerki um islands mætasta mann. Ég hef heyrt sagt, að Land- helgisgæzlunni hafi verið kunnugt um þessar árásir siðan i janúar s.l. þegar varðskip skar á togvira eins togara i dagsljósi og — Kemurðu til að fá drykkínn sem þú misstir af í gær. Hún hristi höfuðið. — Lestu ekki skilaboð sem eru •ögð til þín. — Eg hef verið úti i allan ntorgun. Biddu aðeins. Eg kem að vörmu spori. Hann fór inn í möttökusalinn og fékk þar skrifleg skilaboð. Hann átti að vísu i nokkrum erfíðleikum með að lcsa hrafna- spark þess sem tekið hafði við þeim, en þó sýndust þau hljóða á Þá leið að ungfrú Ilelen Stewart hefði hringt og boðið honum l hádegisverð hjá Marcel Carrier. Hún vonaði hann gæti komið. Hún sagði að hann yrði sóttur. Hann skundaði aftur út i bjart sólskinið og leit spvrjandi á hlicole: — Hádegisverðarboð Marcels Earriers? Hún brosti til hans. — Öldungis hárrétt. Eg er bll- stjórinn þinn. Eg þurfti að fara í bæinn hvort eð var svo að Helen hað mig að koma við og sækja þig. Eeyfist mér að kvnna mig. Ég heiti Nicole Derain, systurdóttir WarcelsCarriers. varðskipsmenn voru nógu nærri til þess að sjá búrin, sem notuð eru til að flytja dúfurnar i á þilfari togarans. Ég hef einnig heyrt og vona að sé rétt, að Land- helgisgæzlan sé nú að temja íslenzka fálka fyrir norðan til að hindra, að brezku dúfurnar komist að styttunni. Vegna þess hve litið er um islenzka fálka hefur enn ekki verið ákveðið, hvort hafa eigi þá um borð í varð- skipunum eða fyrir norðan Reykjavík. Þar til það hefur verið ákveðið ætti enginn þjóðrækinn íslendingur að gefa neinum dúf- um, þar sem þær gætu verið frá Bretum. 0 Föstumessa eða síðdegismessa Kona ein hringdi í Velvakanda og bað hann um að grennslast fyrir um það af hverju ekki væru föstumessur i Háteigs- kirkju, eins og öðrum kirkjum borgarinnar. Það er rétt að föstumessur hafa ekki verið í Háteigskirkju undan- farin tvö ár, og eru raunar ekki i alveg öllum kirkjum á þessum árstima. Velvakandi hafði samband við annan sóknar- prestinn, sr. Arngrím Jónsson, sem sagði að i stað föstumessanna hefði hann þann hátt á að hafa siðdegismessur kl. 5 á hverjum sunnudegi allan veturinn. 0 Sterka ölið Velvakandi hefur fengið og birt nokkur bréf frá bindindis- mönnum en hér kemur eitt hressilegt frá öðru sjónarhorni. Það er frá Baldvin Jónssyni: Ósköp er templurum þröngt skorið vitið. Borin er á borð fyrir almenning bláköld lygi, þegar rætt er um áfengt öl. Áfengisvandamál Svía hafa lagast með tilkomu sterks öls. Ég hefi starfað og búið í Þýska- landi og Englandi. Rónar verða alls staðar til, en ekki af völdum sterks öls, svo mikið er víst. Bæði í Þýzkalandi og Englandi fær hver maður sér eina ölkollu, enda ekki nema sjálfsagt. Hér virðist allt vitlaust af hálfu templara ef minnst er á bjór. Kannski eru þeir sjálfir hræddir við að verða fyllibyttur í annað sinn með til- komu öls á íslandi. Ef litið er á þessi mál i réttu ljósi, þá skapar bjór atvinnu i ölgerðarhúsum og hjá bilstjórum við að aka honum á áfangastað. Við litum ögn inn i Carlsberg fabrik. Þar starfar fjöldi manns við ýmis störf, allt frá átöppurum til ökumanna. Verið er að kvarta og kveina um atvinnuleysi, þegar fjöldi starfa gæti beinlinis beðið eftir mannfólkinu á þessu sviði sem öðrum. Sá sem ekki skilur þetta er eins og staurblindur kettlingur. Líka mætti flokka þessi mál undir öfundsýki nokk- urra karla og kvenna. 0 Þakkar bridge-þátt Ólafur S. Lárusson skrifar: Tilefni bréfs þessa, er aldrei þessu vant að þakka sjónvarpinu fyrir ágæta upptöku á bridge- spilamennsku, þótt gömul væri. Finnst mörgum timi til kominn að ein bezta félagsiðja okkar hér i skammdeginu skuli loks hafa fundið náð fyrir útvarpsráðs- augunum. Þetta framtak kom vissulega á óvart, en mætti gjarnan gera að föstum liði. Meira af þessu. 0 Heimild að vísu Velvakandi misskildi um daginn í símtali heimild um vísu Páls Vidalins „Örlög koma ofan að“. Vísan er ekki í sálmabókinni, sem getið var um, þó þar sé sálm- ur eftir sama höfund, heldur í afmælisdagabókinni, sem Guð- mundur Finnbogason gaf út. En það breytir ekki þvi að visan er eftir Pál, eins og fleiri hafa bent okkur á. Vorfundur félags þingeyskra kvenna í Rvík og nágrenni verður haldinn sunnudaginn 14. marz kl. 3 e.h. að Hallveigarstöðum. Mætum allar vel og stundvíslega. Góðar veitingar. Stjórnin. ö lcefood ISLENZK MATVÆLI Hvaleyrarbraut 4—6, Hafnarfirði. o Eigum fyrirliggjandi: REYKTANLAX GRAVLAX REYKTA SÍLD REYKTA ÝSU REYKTANLUNDA HÖRPUFISK Tökum lax í reykingu og útbúum gravlax. W Kaupum einnig frosinn lax til reykingar. Sendum i póstkröfu VAKÚM PAKKAÐ EF ÓSKAÐ ER. íslenzk matvæli Slmi 51455 r k Eru komnir aftur — vinsælu kuldaskórnir sem ná upp á miðja fótleggi— gerðir úr ekta anilín skinnimeð hrágúmmísólum, hlýfóðraðir og fótlaga Pantanir óskast sóttar sem allra fyrst. Einnig nýkomnir Vesturþýzkir karlmannaskór frá Manz. Barnatréskór. Smábarnaskór. Vestur-þýzkir kvenskór. Kvenskór frá Ara ásamt góðu úrvali af ýmiss konar tréskóm ofl. ofl. í Dómus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.