Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1976 Aðalsteinn Inííólfsson framkvæmdastjóri Kjarvalsstaóa. Ivsir ferli Ásíyrfms fvrir Kvennaskólastúlkun- um. hver sterkir litir eru i nýrri myndun- um og eftir því sem maður kynnist þessum myndum betur þeim mun meira laðast maður að þeim Það er líka gott að fá svona kynningu á þessum myndum, þótt hratt sé farið yfir og maður getur þá skoðað þær á eftir i rólegheitum Ég er reyndar búin að koma hér einu sinni áður, svo sumar myndirnar eru orðnar kunningjar mínir " Gerður ,,Mér fmnst mest gaman að þjóðsagnamyndunum, þær höfða mest til min " Guðbjörg ..Landslagið laðar mig mest'' Báðar svöruðu þær því aðspurðar Landslagið heillaði aðra, þjóðsögurnar hina! Guðbjörg Eysteinsdóttir og Gerður Eðvarðsdóttir 2 C voru að rabba saman um mál- verkin þegar við hittum þær að máli Þær kváðust hafa farið í Ásgríms- safn á vegum Kvennaskólans þegar þær voru í I bekk og því hafa haft áhuga á að sjá þessa sýningu á verkum Ásgríms í Kjarvalsstöðum. ,,Mér fannst líka sjálfsagt að skoða þessa sýningu,'' sagði Guðbjörg." því það er talað svo mikið um þessar myndir og þá vakn- ar líka forvitni" Gerður . Þetta eru fallegar myndir og gaman að bera þær saman Það er líka svo miklu skemmtilegra að skoða myndir á sýningum en í blöð- um " Guðbjörg ..Það er sérkennilegt Sofffa Arnþórsdóttir. L.iós- myndir Mbl. RAX að þær teldu æskilegra að meira yrði gert af því á vegum skólanna að fara á vettvang þar sem eitthvað er HÓPUR kvennaskólastúlkna heimsótti Kjarvalsstaði s.l. föstudag og skoðaði Ásgríms- sýninguna undir leiðsögn Aðal steins Ingólfssonar framkvæmda stjóra Kjarvalsstaða, en Bjarnveig Bjarnadóttir, forstöðumaður Ás- grímssafns, flutti einnig tölu fyrir stúlkurnar Um 9000 gestir hafa nú sótt Ásgrímssýninguna, sem borgin stendur fyrir og er aðgangur ókeypis. Kvennaskólastúlkurnar fóru um sali Kjarvalsstaða og hlustuðu á útskýringar á myndum Asgríms og einnig var rabbað um myndirnar og feril málarans Við tókum nokkrar stúlknanna tali „Maður sér ekki eftir að drífa sig á málverka- sýningar'' ,,Ég hef komið í Ásgrímssafn og „Sumar myndirnar eru orðnar kunningjar mínir” Rabbað við Kvennaskólastúlkur á r Asgrímssýningu í Kjarvalsstöðum Ingiveig (íunnarsdóffir og Agúsfa Þorbergsdóffir fvrir framan mvndina af Iföllu meó barn siff. en Ijóóiö Sofóu unga ásfin mín er samin vió þann afburö er mvndin svnir. Guóbjörg Kvsfeinsdóffir ogderóur Fóvarósdóffir. alla myndlist, frá mínu sjónarmiði, er bezt fyrir augað að skynja áhrifm, þótt sjálfsagt sé hægt að koma því í orð fyrir listfræðmga ..Ferðu oft á málverkasýningar?" ..Sjaldnar en ég ætti að fara Maður eyðir allt of oft kvöldmu í sjónvarp eða aðra vitleysu, sem maður dauðsér svo eftir Ég held að fólk geri allt of mikið af því að horfa á sjónvarp Þegar maður drifur sig t.d á málverka- sýningar, þá sér maður ekki eftir því, en ef til vill mætti fólk taka því rólegar á málverkasýningum. Ég vildi gjarnan koma aftur á þessa sýningu. en ég veit ekki hvað verður ég er að fara i mikið próf á næstunni, landsprófið, svo maður verður að nota tækifærið vel núna og ganga í rólegheitunum með sjálfri mér og skoða myndirnar, en þannig líkar mér það bezt " kannast því við margar Húsafells- myndirnar hérna," sagði Soffía Arn þórsdóttir í 3 C landsprófi," en mér fmnast vatnslitamyndirnar sérstak lega skemmtilegar og er eiginlega hrifnan af þeim en olíumálverkun- um, þótt það sé náttúrulega ekki algilt Það er annars erfitt að tjá þetta með orðum, því ems og með um að vera, bæði á sviði lista og athafnalifs „Þessar myndir virka vel á mig." Ágústu Þorbergsdóttur og Ingi- veigu Gunnarsdóttur úr 3Z tókum við tali Þær höfðu báðar komið áðar í Kjarvalsstaði á vegum Kvennaskólans og þá á Kjarvals- sýningu Einnig kváðust þær hafa heimsótt Ásgrimssafn þegar þær voru í 1 . bekk Kvennaskólans Ágústa ..Það er gaman að sjá attur nokkrar myndanna sem ég hef séð áður". Ingiveig ,.Ég kannast einnig við nokkrar myndanna, t d myndina af Þorbjörgu digru." Ágústa ..Þessar myndir virka vel á mig, sérlega vatnslitamyndirnar." Ingiveig ..Maður þarf dálítinn tíma til að meðtaka þessa liti alla og í rauninni þyrfti maður að eyða nokkrum klukkustundum í að skoða þessa sýningu." Ágústa:..Það er bara erfitt próf framundan, svo maður verður að gæta hófs" Aðspurðar sögðust þær gjarnan vilja eiga einhverja af myndunum Ágústa vildi eiga vatnsiitamynd eftir Ásgrím úr Húsafelli og Ingiveig vildi helzt eiga myndina af Höllu með barn sitt við fossinn, en sú fyrir- mynd er sótt í leikrit Jóhanns Sigur- jónssonar, Fjalla-Eyvind. — áj. Frá yfirlæknum Borgarspítalans: Opið bréf til borgar- stjórnar Reykjavíkur Sjúkradeild í Hafnarbúðum NÚ ER u þ b 1 ár síðan borgarfull- trúar Reykjavíkur samþykktu sam hljóða að koma upp hjúkrunardeild fyrir aldraða í Hafnarbúðum og í gær, 24 mars 1976, gerði Páll Gíslason, yfirlæknir og borgarfulltrúi, grein fyrir stöðu heilbrigðismála i borginni í grein í Morgunblaðinu. Gat hann meðal ann- ars framkvæmda við Hafnarbúðir Skúli Johnsen borgarlæknir gerði mál- inu emnig nokkur skil í sjónvarpsviðtali í fréttum að kveldi sama dags Af þessu tilefni vilja yfirlæknar Borgar- spítalans láta fara frá sér eftirfarandi Vandi langlegusjúklinga: Þeir sem í þessari borg hafa fengist við lækningar og hjúkrun. hafa í sívaxandi mæli mætt vandamálum hjúkrunarvistunar og aldraðra Hafa þessi vandamál stundum verið það erfið, að talað hefur verið um neyðarástand langlegusjúk- linga Margt hefur verið raétt og ritað um þessi mál undanfarin ár, en lítið orðið úr framkvæmdum til að leysa vandann Læknar Borgarspítalans hafa hvað eftir annað bent á nauð- syn byggmgar svo kallaðrar B-álmu Borgarspítalans, sem fyrst og fremst yrði ætluð langlegusjúklingum. en því miður hefur byggingin ekki komist á fjárlög ríkisins fyrr en nú í þeim síð- ustu Hafnarbúðir: Fyrir rúmu einu ári kom fram sú hugmynd að breyta Hafnarbúðum til bráðabirgða i sjúkra- hús og reka þar sjúkradeild fyrir gamalt fólk Var þá áætlað, að kostnað- ur við þetta mundi vera um 1 6 milljón- ir króna Ákvörðunin um þessa breyt- ingu var tekin af borgaryfirvöldum og samþykkt af fulltrúum allra flokka Ekki var áður leitað álits stjórnar sjúkra- stofnana Reykjavíkurborgar, læknaráðs Borgarspítalans eða umsagna yfir- lækna spítalans, þó að gert væri ráð fyrir að reksturmn og lækningar á staðnum yrðu síðar í höndum þessara aðila Á þeim forsendum 1) að hjúkrunardeildum yrði komið upp í Hafnarbúðum, hvað sem tautaði og raulaði, 2) að B-álman væri enn ekki komin i fjárlög og 3) að neyðarástar.d langlegusjúklmga krefði, féllust læknar Borgarspítalans á að Hafnarbúðir yrðu starfræktar sem hjúkrunardeild og einkum fyrir aldraða hjúkrunarsjúk- linga skurðlækmngadeilda Borgar- spítalsns. Enn á ný ítrekuðu læknar þó fyrri efasemdir sinar um Hafnarbúðir, sem mögulega rekstrareiningu og óskuðu um miðjan nóvember s I upp- lýsinga um kostnað fyrirhugaðra breyt- inga og hvort t d væri ekki hag- kvæmara að leggja fjármagn fyrir- hugaðra breytinga svo og hugsanlegt söluverð hússins í B-álmu Borgar- spítlans og hefjast þar handa Sjúklingar í Hafnarbúðum: Gert er ráð fyrir 25 rúmum og er sennilegt að flestir sjúklinganna verði aldraðir hjúkrunarsjúklingar, sem þurfa mikla hjúkrun og umhirðu Mjög vafasamt má telja, hvort heppilegt sé að slíkum sjúklingum sé komið fyrir á einum stað, með litt viðunandi aðstöðu frem- ur en á þeirri almennu spítaladeild, sem viðkomandi kom inn á. Æski- legust væri vistun á öldrunardeild, sér- staklega ætlaðri sjúklmgum með elli- sjúkdóma, þar sem viðhalda má eðli- legri lífsafstöðu og von sjúklmgsins. Starfslið í Hafnarbúðum: Mjög erfitt er að manna hjúkrunardeildir af starfsfólki Hjúkrunin er oft mjög erfið og mikil hætta á að andrúmsloftið á deildinni verði neikvætt, mótist um of af lélegum sjúkdómshorfum og von- leysi. í nágrannalöndum okkar hefur mjög illa gengið að manna slíkar deild- ir og stefnan að undanförnu verið sú. að blanda saman langlegusjúklingum og þeim, er styttri legu þurfa og að því er yárðar aldrað fólk, að reka öldrunar- deildir þar sem hagsmuna aldraðra er sérstaklega gætt og öldrunarlækningar stundaðar Rekstrareining 25 rúma eining er mjög óheppileg frá fjárhagslegu rekstrarsjónarmiði, jafnvel þó að þessi eining væri rekin í nánum tengslum við Borgarspitalann og undir stjórn hans Talsverðar vegalengdir yrði að fara með sjúklinga til að fá röntgen- myndir. Blóðpróf væri unnt að taka á staðnum, en rannsóknir færu fram annars staðar Viðhalds sjúkraþjálfun gæti og farið fram í húsinu, en engin endurhæfing að gagni. Ekki of seint að snúa við: Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum i Hafnarbúðum Verulegar skemmdir höfðu m a orðið á þakinu og drjúgur hluti kostnaðar orðið sá sami, hvaða starfsemi, sem þar færi annars fram Er áætlað að viðgerð hússins verði lokið í maímánuði. Ekki er enn farið að innrétta eða kaupa lausabúnað B-álma Borgarspítalans er nú komin i framkvæmdaáætlun. Þar er gert ráð fyrir u.þ.b. 200 rúmum fyrir aldrað fólk og stefnt að því að 60 rúm verði tekin í notkun á árinu 1978 Samkvæmt áætlun eiga 60 milljónir að fara í álmuna á þessu ári Af ca. 66 rúmum í öldrunarlækningadeild rikis- spitalanna við Hátún standa nú 44 rúm nánast tilbúin til notkunar, en skortur á starfsfólki, útbúnaði og fleira hindrar rekstur. Á meðan málum er svo farið, gagnar okkur ekki húsnæði i Hafnarbúðum, sennilega án starfs- fólks Við leggjum því til 1) að 47 milljón- um úr sjóði stofnana fyrir aldraða, sem veita á í Hafnarbúðir, verði óskiptu veitt í B-álmu Borgarspítalans. (Varla hefur þessum peingum verið eytt í viðgerðarkostnað, sem hvort eð er varð að greiða.) 2) Að Hafnarbúðir verði seldar (vill ekki Landhelgisgæslan eða Reykjavíkurhöfn kaupa?) og andvirði hússins látið i B-álmuna og með sameiginlegu átaki verði nú unnið að því að fjármagna og koma upp sjúkra- deildum fyrir aldraða við Borgar- spitalann og ekki lengur setið og hugsað eða unnið að bráðabirgða- lausnum Kominn er tími til að sjúkt aldrað fólk, sem ekki getur verið heima hjá sér eigi greiðan aðgang að spítöl- unum Hættum þessum hálfkláruðu framkvæmdum á mörgum stöðum og bráðabirgðalausnum og einbeitum okkur að því að Ijúka brýnustu verkefn- um, i þessu tilfelli að koma upp B-álmu Borgarspitalans fyrir öldrunar- lækningar Reykjavik, 25 mars 1976 Ásgeir B. Ellertsson, dr med. yfirlæknir endurhæfingardeildar. Ásmundur Brekkan, dósent yfirlæknir röntgendeildar Eggert Ó. Jóhannsson, dr. med. yfirlæknir rannsóknadeildar. Guðjón Guðnason yfirlæknir Fæðingarheimilisins Karl Strand yfirlæknir geðdeildar Stefán Skaftason yfirlæknir háls-, nef- og eyrnadeildar Friðrik Einarsson, dr. med. yfirlæknir skurðlækningadeildar Haukur Kristjánsson, docent yfirlæknir slysadeildar Óskar Þórðarson, dr. med. yfirlæknir lyflækningadeildar Ólafur Þ. Jónsson settur yfirlæknir svæfingadeildar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.