Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 28. MARZ 1976 27 Bridge Vegna þrengsla í blaðinu verður þátturinn IWJÖG stuttur í dag. Baldur Kristjánsson varð íslandsmeistari í einmenning, en keppninni lauk sl. fimmtu- dag. Hafði hann haft forystu öll kvöldin og var vel að sigrin- um kominn. Jón Arason varð annar. XXX Fjórum umferðum er Iokið í Butler-keppni BR og eru Stefán og Símon í efsta sæti. Ungu tilraunaliðsspilararnir Guðmundur og Þorgeir eru i öðru sæti. XXX Ármann og Sigurður eru í efsta sæti í barometer- tvímenning hjá Bridgefélagi Kópavogs en fast á hæla þeim eru Haukur og Valdimar. XXX Sigfús og Vilhjálmur eru efstir í þriggja kvölda tvi- menningskeppni sem stendur yfir hjá bridgefélagi Selfoss. Tveimur umferðum er lokið og hafa þeir 17 stiga forskot á parið sem er í öðru sæti, Jónas Og Kristmann AG.R. Lögreglan fær ekki áhættuþóknun GÍSLI Guðmundsson, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur hefur beðið blaðið að getaþess, að lögreglumenn hefðu ekki áhættu- þóknun fyrir störf sín og hafa þeir ekki haft slíka þóknun um langan tíma. Það mun hafa komið fram í umræðum úm kjör varð- skipsmanna að þeir hefðu ekki slík kjör sem áhættuþóknun. og var þar jafnframt fullyrt að lög- reglumenn hefðu 10% álagvegna áhættu. Gísli kvað þetta rangt. en bætti því við, að hann væri því mjög hlynntur að varðskipsmenn fengju slíka þóknun, svo og lög- reglumenn. — Alþjóðadagur Framhald af bls. 30 enda er sjálfsbjargarhvöt þeirra sterk. Lög um endurhæfingu voru sett á Alþingi árið 1970. Þar segir meðal annars í 16. grein: „Þeir sem notið hafa endurhæfingar skulu að öðru jöfnu eiga forgangs- rétt til atvinnu hjá ríki og bæjar- félögum." Hingað til hefur þessi lagagrein aðeins verið svart letur á pappírs- örk. Sjálfsbjörg skorar á stjórn- völd að leggja sér þessa lagagrein á minni og framfylgja henni. Þá beinir Sjálfsbjörg einnig þeirri eindregnu ósk til allra annarra atvinnurekenda, að þeir veiti fötluðum sömu aðstöðu og sama rétt til atvinnu og öðrum þegnum. Við höfum ekki efni á því að láta nokkurn starfskraft vera ónýttan, hvorki vegna afkomu þjóðarinnar I heild, né heldur vegna einstaklingsins, því að starf er hverjum manni ómiss- andi. Sjálfsbjörg vill að lokum minna á útvarpsþáttinn Fatlaðir i starfi, sem Arni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, annast og verður fluttur sunnudaginn 28. mars kl. 14.00 lÁSINGASÍMINN ER: 22480 JMorjunblnbib Ford Granada í fyrsta skipti hér á landi ! NYR FORD GRANADA — PYSKURárgerð 1976 FORD GRANADA 2000 L4ra dyra INNIFALIÐ ER M.A.: 2000 cc. vél 99 DIN hö. Hraðaaukning 0 —100 km. á 14.1 sek. Hámarkshraði 161 km. — Aflhemlar — Rafhituð afturrúða — Stólar með afturhallanlegu baki. — Leðurlíkisáklæði á sætum. — Stærri rafgeymir — Styrkt fjöðrun. — Hlífðarpönnur undir vél og benzíntank. — Krómlistar á hliðum með gúmmí- FORD GRANADA 2300GL4ra dyra INNIFALIÐ ER MA.: Sama og með 2000-L en auk þess: 2300 cc. vél 108 DIN hö. Hraðaaukning 0 —100 km. á 13.7 sek. Hámarks- hraði 164 km. — Sjálfskifting. — Vökvastýri. — Tauáklæði á sæt- um. — Krómlistar á sílsum. — Krómhólkur á út- blástursröri. — Stuðarahorn. — Snúnings- hraðamælir. — innleggi. — Krómlistar á hjolbogum. — Gummi- listar á stuðurum. — Vinstri útispegilI. — Teppi á gólfi. — Fjölhraða miðstöð ásamt loftræstikerfi. — Ljós í Hanskahólfi. — Vindlakveikjari. — Spegill í hægra sólskyggni. — Klukka. — Stýris- lás. — Halogen aðalljós. — Bakkljós. — Hjól- barðar 175 SR x 14.— VerðfráKr 2.100.000.- Ofangreindar upplýsingar um verö og utbunað eru háðar fyrirvaralausum breytingum af hálfu Ford Motor Company, og án skuldbindinga af okkar hálfu. SVEINN EGILSSON HF FORD HUSINU SfMI85100 REYKJAVlK SKEIFUNNI 17 Sól rís! Vortízkan í sólfötum, strandfötum og sundfötum berst okkur, vorum aö fá: Fyrir dömur: Teyjufrottejakkar bundnir Litir: brúnt — blátt — hvítt — gult stærðir 40 — 42 — 44 — 46. Teyjufrottejakkar með rennilás Litir: hárautt — blágrænt og brúnt Stærðir S — M — L Bikini með C og D skálum Litir: brúnt og blátt. Stærðir 40 — 42 — 44 — 46. Bikini með háum buxum Litir: Svart — rautt — blátt Stærðir 40 — 42 — 44 — 46 Póstsendum Kerið, Laugavegi £5 sími 12650UU Myndin sýnir strandkjól úr teyjufrotte fæst í gulu og dökkbrúnu. Stærðir S—M—L.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.