Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.03.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 28. MARZ 1976 7 Við erum öðru hvoru á það minnt, að meira en helm- ingur mannkynsins býr við skort. Sérstaklega eru það börnin, sem líða fyrir þetta víða um heim. Þau eru óhörðnuð og þola minna en hinir fullorðnu. Þegar ég lít yfir barnahóp- ana, sem ég stend frammi fyrir daglega i skóla eða fermingarundirbúningi, þá fyllist hugur minn oft þakk- læti. Það eru yfirleitt sælleg andlit, sem við mér blasa. Sá tími er, sem beturfer, liðinn, þegar islenskir foreldrar höfðu fulla ástæðu til að ótt- ast, að þeir ættu ekki nógan mat handa börnum sinum. En það var algengt hér áður að sjá börnin horuð og kinn- fiskasogin, einkum á útmán- uðum. Það var talað um, að þau færu ekki að braggast fyrr en vorbæran væri borin eða hrognkelsin farin að veiðast. Og svo gerðist það stundum, að börnin lifðu ekki veturinn af. Þetta er liðin tíð, sem betur fer. En annars konar hungur hefur gert vart við sig, and- legt hungur, og er reyndar ekkert nýtt. Það þekktist lika áður fyrr, en virðist hafa vax- ið í seinni tið eftir því sem hið líkamlega hungur hefur minnkað. Ekki vil ég segja, að þetta tvennt hafi haldist í hendur, en ekki mun það þó fjarri, að hið andlega hungur sé afleiðing skeytingarleysis um andleg mál, hugsunar- leysis, sem víða verður áber- andi, þar sem fólk hefur alls- nægtir veraldlegra gæða. Þetta gerist ekki síst meðal nýríkra þjóða, sem áður hafa lengi liðið skort eða barist í bökkum. Öryggisleysi um af- komuna kallar fram þörfina fyrir traustið á andlegri hjálp. En þegar öryggið um afkom- una er fengið, vill svo oft fara þannig, ekki síst fyrst i stað, að það gleymist, að menn eiga afkomu sína undir fleiru en sjálfum sér, og þeir þurfa kannski að reka sig á til að átta sig á því, að þar kemur líka til, það sem við nefnum æðri mátt. Jafnvægi þarf að haldast í þessu eins og á öðrum sviðum í lífi mannsins og náttúrunnar allrar. Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Hann þarf líka and- lega næringu. Hann hefur líka þörf fyrir orðið, sem fram gengur af Guðs munni. Já, við þökkum Guði stundum hátt og í hljóði fyrir það, að börnin okkar þurfa ekki lengur að svelta líkam- lega. En hvað um andlegu hliðina? Er það kannski að einhverju leyti andlegt hungur, sem veldur því rót- leysi, sem víða veikir lífs- grundvöll æskumanna í dag? Er það e.t.v. andlegt hungur, sem veldur því, hve eiturlyf, allt frá tóbaki til fíkniefna, eru eftirsótt í dag? Ekki er það líkamlegt hungur hér okkar á meðal, svo mikið er víst. Og þrátt fyrir aukna vel- ferð, fjölgar afbrotum stöð- ugt í hinum efnuðu löndum, ekki síst meðal unglinga. Hvað veldur? Æsku heimsins skortir eitt hvað í lífsgrundvöll sinn. Á þvi er ekki vafi, þegar talað er um hana sem heild. Börn fyrri tíma ólust upp við mikla guðrækni á heim- ilunum, húslestra, bæn- rækni, reglulegar kirkju- göngur og margt fleira af því tæi. Hins vegar skortir þá oft hin veraldlegu gæði. Seinni tímar hafa víða bætt úr þeim skorti, en þeir hafa jafnframt tapað miklu af hinu, og í mínum augum er ekki vafi á, að þar hafa horfið ýmsir hlutir, sem höfðu mikið upp- eldislegt gildi. Og afleiðing- arnar segja til sín. Ábyrgðartilfinning minnk- ar eðlilega, þegar minna er um það talað, að yfir öllu og öllum sé andlegt afl, sem taka verður tillit til og sýna boðorðum þess hlýðni. Tillits- semin við náungann minnkar örugglega I sama mæli og tillitssemin sem Guði er sýnd Þetta er ósköp eðlilegt. Um þetta gilda lögmál, sem ekki verður haggað. Við viljum gjarnan gefa börnunum okkar það besta, sem völ er á. Við viljum gefa þeim það í fötum, fæði, skólamenntun og öllu því, sem í okkar valdi stendur. En gerum við okkur þá Ijóst, að það þarf að vera grundvöllur undir þessu öllu? Þetta verð- ur allt lítils virði, nýtist ekki sem skyldi, ef lífsgrundvöll- inn vantar. Gleymum þess vegna ekki honum, sem sagði: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir." — Hann hefur reynst hafa rétt fyrir sér. Jafnvel þeir, sem hafna trú á hann, viðurkenna, að það sé siðfræði hans, sem skapi far- sælast líf á jörð En hitt er þá líka staðreynd, að siðfræði verður að byggjast á trú. — Annars skortir hana áhrifa- valdið á líf einstaklinganna. Þetta er atriði, sem er mjög mikilvægt, að við íhugum vel. Vegna þessa er kristin trú þjóðfélagsleg nauðsyn, jafnframt því sem hún varðar okkar sálarheill. Við eigum óteljandi bænar- efni, er varða börnin okkar. Við biðjum Guð um fæði og klæði, heilbrigði, hamingju og svo ótalmargt annað þeim til handa. Það, sem þóskiptir mestu máli, er það, að trú þeirra á Jesú Krist sé einlæg og sönn, að hún sé lifandi og virk. Hann er brauð lifsins. Án hans er það fátækt og magurt, veitir ekki þá saðn- ingu, sem mannssálin þarfn- ast til að fullnægja andlegum þörfum. En sá, sem á hann að leiðtoga og trúnaðarvini á lífsför sinni, hann á í honum það lífsins brauð, sem mettar hið andlega hungur. Og án þess verða veraldleg gæði ekki til þeirrar hamingju sem þeim er ætlað að skapa. Það verða efnisleg gæði aldrei, nema þau séu reist á sterk- um, andlegum undirstöðum. STÓRTHÚS Til sölu í Kópavogi stórt hús, tilvalið fyrir vörumarkað, banka eða iðnað. Ski Doo T NT 1976 Þessi sleði er framleíddur af elsta og stærsta vélsleða-framleiðanda í heimi, Bombardier í Kanada. Nokkri sleðar til á lager Gísli Jónsson & Co Hf. Sundaborg, Klettagarðar 11 Sími86644 ÓTRÚLEG VERÐLÆKKUN! LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÓRRI HURÐ (auðvelt að hlaða og afhlaða) LE/TIÐAÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÚRUM ÞVOTTABELG (fer betur með þvottinn-Þvær betur) LEITIÐAÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÓDÝR íREKSTRI (tekur bæði heitt og kalt vatn, sparar rafmagn) LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ DEMPURUM (lengri ending og hljóðlátari) LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÞUNG (meira fyrir peningana, vandaðri vara) o. fl. o. fl. o. ff o. ff o. ff o. ff o. ff OG ÞÉR MUNUÐ SANNFÆRAST UM YFIRBURÐI PHILCO ÞVOTTAVÉLANNA. Þess vegna segjum við að þær hafi VIÐGERÐARÞJÓNUSTA OKKAR TRYGGIR YÐAR HAG. Húsið stendur á mjög áberandi stað við fjölfarna götu. Húsið er ca. 400 fm að grunnfleti, tvær hæðir og kjallari. Stækkunarmöguleikar fyrir hendi. Stórt bílastæði fylgir. Upplýsingar og tilboð sendist í PO Box 808, Reykjavík, merkt: „Þagmælska". heimilistœki sf Hafnarstræti 3—Sætúni 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.