Morgunblaðið - 28.03.1976, Page 30

Morgunblaðið - 28.03.1976, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1976 Minning: Jóhann Elíasson húsgagnabólstrari Guðfinna Árnadóttir Blöndal — Minning Fæddur 27. júlí 1916 Dáinn 21. mars 1976. Mánudaginn 29. þ.m. fer fram útför Jóhanns Elíassonar hús- gagnabólstrara. sem lést í Vífils- staöahæli þann 21. þ.m. eftir stranga s.júkdómslegu. Jóhann var fæddur27. júlí 1916 og voru foreldrar hans h.jónin Jóhanna Bjarnadóttir og Elías Jóhannsson. verkamaóur hér í borgsem bæói eru látin. Framan af æfinni vann Jóhann almenna verkamannavinnu, m.a. vann hann í mörg ár viö Kola- verslun Sig. Ólafssonar. viö út- keyrslu á kolum, áöur en borgin var öll hituö upp meö heitu vatni. Á þeim árum kynntist Jóhann mörgu fólki og man hann margur frá þeim árum, enda átti hann sérlega gott með aö umgangast aóra og voru margirfrá þeim tíma vinir hans og kunning.jar upp frá því. Seinna fór Jóhann í nám í hús- gagnabólstrun til Heiga bróóur síns, sem þá rak húsgagnaverslun hér í borg og vann hann vió þá ión til dauðadags, nú siðustu árin hjá Gamla kompaníinu. Jóhann var frábærlega vel gerður maður og félagslyndur Hann tók alla tiö mikinn þátt í starfi innan verkalýðshreyfingar- innar. Hann gerðist snemma félagsmaöur í Verkamanna- félaginu Dagsbrún og var þar alla tíö virkur félagi, var m.a. lengi í trúnaðarmannaráói Dagsbrúnar. Eftir að Jóhann haföi lokið námi í húsgagnabólstrun geröist hann félagsmaður í Sveinafélagi húsgagnabólstrara og stóó þá ekki á því, frekar en áöur, aö hann tók fl.jótlega sæti i st jórn félagsins og var formaður þess hin síóustu ár, eöa eins lengi og heilsa hans leyföi, en þá óskaöi hann aö láta af störfum. Nú þegar Jóhann er allur hefur verkalýðshreyfingin misst einn af sínum heilsteyptustu og traustustu forustumönnum. sem vann hreyfingunni af heilum hug allt sem hann mátti til síóustu stundar. Rg tel þaö mikla gæfu aö hafa kynnst og átt að vini annan eins mann og Jóhann var. mann sem aldrei lét bugast, hvað sem f.vrir kom á lífsleiðinni, var alltaf veit- andi frekar en þiggjandi, eins og best kom fram í hans hetjulegu baráttu í hans miklu veikindum. Jóhann var kvæntur Huldu Guðmundsdóttur og áttu þau einn son, Elías Bjarna stýrimann sem kvæntur er Sigríði Kolbrúnu Þráinsdóttur og eiga þau tvö börn, Huldu og Jóhann, og voru þau augasteinar afa síns, einnig átti hann tvær fósturdætur, dætur Huldu. Jóhann var mikill heimilisfaöir og eru það ógleymanlegar stund- ir, sem ég og kona mín eigum minningar um, þegar við komum. sem var ósjaldan. á heimili hans ogHuldu. Um leiö og ég þakka Jóhanni margra áratuga vináttu votta ég Huldu, börnum og barnabörnum hennar, svo og s.vstkinum Jóhanns og Huldu. Um leið og ég þakka Jóhanni margra áratuga vináttu votta ég Huldu, börnum og barnabörnum hennar, svo og systkinum Jóhanns og öðrum hans nánustu mína dýpstu samúð. Guðm. Jónsson Á morgun mánudaginn 29. mars verður kvödd og til moldar borin hjartkær mágkona min Guðfinna Árnadóttir Blöndal. Finna, eins og við öll, sem til þekktum, kölluðum hana, lézt að kvöldi síðast liðins sunnudags 21. marz, eftir langa og stranga bar- áttu, sem hún háði með einstakri hugprýði, kjarki og æðruleysi, án þess að láta nokkurn tíma bilbug á sér finna, þótt stundum syrti í álinn. Þessi mikli kjarkur hélt hjá okkur Vakandi ofurlitlum vonarneista um bata, þótt nú um nokkurt skeið hafi verið ljóst, hvert stefndi. Og alltaf er maður jafn óviðbúinn og harmi Iostinn, þegar hinsta kallið kemur og í hlut á einhver jafnkær og Finna var okkur, en nú er hennar kveðjustund runnin upp. Finna fæddist á Eyrarbakka 5. apríl 1911 elst sjö barna hjónanna Kristínar Halldórsdóttur og Árna Helgasonar skipstjóra og hafn- sögumanns í Akri, en hann lifir enn í hárri elli. Árni átti áður að baki að sjá eiginkonu sinni og sonunum Bjarna, sem dó fyrir 6 árum og Steini, sem Iézt fyrir réttum hálfum mánuði síðan, 7. marz síðastliðinn. Að látinni móður sinni árið 19.33 tók Finna að sér húsmóðurhlutverkið á heimili föður síns, jafnframt því sem hún stundaði saumaskap. Konu minni, sem þá var þriggja ára, má segja að Finna hafi þá komið í móður stað. Þrátt fyrir breytta hagi síðan, hélzt þetta og jafnframt gagnvart dætrum okkar sem í Finnu áttu sína aðra ömmu. 1948 giftist Finna Ólafi Blöndal skrifstofustjóra og fluttist þá til Reykjavíkur að Hringbraut 45 og bjó þar æ síðan. Hjónaband þeirra Finnu og Ólafs var mjög farsælt og haming.ju- samt, en barna varð þeim ekki auðið. Ólafur lézt fyrir réttum 10 árum, 21. marz 1966. Inga og Björn börn Ólafs af fyrra hjóna- bandi og börn þeirra létu sér annt um Finnu og voru henni mjög kær. Bar hún hag þeirra eins og hag systkina sinna. systkinabarna og föður mjög fyrir brjósti. Um- hysgja Finnu fyrir fjölskvldu sinni var einstök. Engin fyrirhöfn var of mikil, sem komið gæti ein- hverju þeirra að gagni. Til hennar var líka leitað trausts og fulltingis með hvað sem var, stórt og smátt. Þegar litið er aftur, lýsa hinar fögru björtu minningar um Finnu, gæsku hennar og fórnfýsi, upp farinn veg og gera kveðju- stundina núna léttbærari f.vrir okkur öll. Þökk sé henni og guð blessi leið hennar um ókomna tíð. Gustav Magnús Siemsen. + Útför GUOFINNU ÁRNADÓTTUR BLONDAL fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 29 marz kl 1 0 30 Fyrir hönd aðstandenda Árni Helgason, Akri, Eyrarbakka. + Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu GUÐRÚNAR ÁSTU PÁLSDÓTTUR, Meðalholti 17, fer fram frá Frikirkjunni í Reykjavik þriðjudaginn 30 marz kl 1.30 Börn, tengdabörn og barnabörn. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns míns, STEINS ÁRNASONAR. Guðrún R. Guðmundsdóttir og synir. Alþjóðadag- ur fatlaða Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra: „Fatlaðir í starfi" er einkunnar- orð alþjóðadags fatlaðra, sem er 28. mars n.k. + Bálför eiginmanns míns, JÓHANNS Ó. ELÍASSONAR. húsgagnabólstrara. fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29 marz kl 1 3 30 Þeim, sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sjálfsbjörg, styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Fyrir hönd vandamanna Hulda Guðmundsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORVALDAR Á. KRISTJÁNSSONAR, málarameistara, Austurbrún 6, Eyvör Guðmundsdóttir, Arndfs Þorvaldsdóttir, Haukur Benediktsson og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns og stjúpföður okkar ÞORGRÍMS GUÐLAUGSSONAR, kaupmanns. Laugavegi 81. Sigrlður Sigurðardóttir Elln Egilson Brynhildur Áslaug Egilson Snorri Egilson + HELGI JÓNSSON, múrari, Mávahlfð 20. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 30. marz kl 1.30 Sigurlaug Ingimundardóttir, Guðni Geir Helgason, Guðbjörg Helgadóttir, Anný Helgadóttir, Helgi Guðmundsson. + Móðir okkar. tengdamóðir, amma og langamma JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR frá Jómsborg er andaðist 21 marz, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðju- daginn 30. marz kl 2 e h Þeim, sem vildu minnast hennar eru beðnir að láta Kristinboðið i Konsó njóta þess Björney J. Björnsdóttir. Magnús Elíasson. Karóllna K. Björnsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað vegna jarðar- farar mánudaginn 29. marz kl. 1 2—4. Örninn, Spíta/astíg 8. Það hefur um árabil verið venja Alþjóðabandalags fatlaðra að vekja með þessu móti almenning til umhugsunar um ýmsa þá sam- félagsörðugleika, sem fatlaðir eiga öðrum fremur við að stríða. Vinnan er grundvöllur allrar velmegunar, bæði andlegrar og líkamlegrar. En stendur vinnan öllum til boða? Eiga allir kost á starfi við sitt hæfi? Svo er því miður ekki og standa fatlaðir þar mun verr að vígi en flestir aðrir. Þar leynist mikill ónýttur starfs- kraftur og til þess liggja tvær megin orsakir. í fyrsta lagi vantar víða hentuga vinnuaðstöðu. Ef til vill þarf aðeins að lagfæra inn- ganginn á vinnustað fyrir mann í hjólastól eða aðlaga vélina þeim einhenta, til þess að viðkomandi sé ekki útilokaður frá starfi, sem hann annars gæti leyst af hendi til jafns við aðra. Hvað viðvíkur hinni megin or- sökinni, þá er ekki fjarri lagi að minna á ummæli, sem birtust í blaði á síðastliðnu ári, kvenna- árinu. Þar komst kona nokkur svo að orði: „Ef karlmaður og kven- maður sækja um sama starfið, þarf konan að hafa mun betri menntun og hæfileika en karl- maðurinn til þess að öðlast starfið." Þessi sannleikur gildir einnig um fatlaða. Þar gætir ennþá sömu hleypidóma og löngum hafa ríkt gagnvart starfi kvenna á almenn- um vinnumarkaði. Staðreyndin er hins vegar sú, að fatlað fólk leggur metnað sinn í að mæta vel til vinnu og leysa störf sín sem best af hendi. Fatlaðir vilja ekki vera eftirbátar annarra í starfi. Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.