Morgunblaðið - 14.04.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976
5
Kristján Pétursson, deildarstjóri:
Osannindi og rógskrif Tímans
Kökusala FEF á skírdag
FÉLAG einstæðra foreldra
heldur kökusölu og basar að
Hallveigarstöðum á morgun,
skírdag, frá klukkan 2 e.h.
Verður þar á boðstólum mikið
úrval af kökum, sem félags-
menn hafa bakað. Það nýmæli
var í sambandi við kökusöiu
þessa að nokkrar félagskonur
tóku sig saman og bökuðu í
hópvinnu um sl. helgi mikið af
kökum sem þarna verður síðan
selt. Þá verða á basarnum ýms-
ir nýstárlegir munir til gjafa,
svo sem tuskubrúður, hross og
fílar, hekluð teppi, galdrakerl-
ingar, prjónaðar hyrnur og ótal
margt fleira af varningi sem
félagar hafa unnið og gefið.
Allur ágóði rennur í Húsbygg-
ingarsjóð Félags einstæðra for-
eldra.
Athugasemd:
Ibúðir Einhamars og
Verkamannabústaða
Þann 9. apríl s.l. birti dagblaðið
Tíminn grein, sem bar heitið
Starfssvið Kristjáns Péturssonar,
deildarstj. Þessi grein, eins og
hinar fyrri, sem Timinn hefur
birt varðandi mig eru allar sama
merki brenndar; staðreyndir og
málefnaleg afstaða eru sniðgeng-
in, en órökstuddar fullyrðingar og
ósannindi látin sitja í fyrirrúmi.
Oftast verður niðurstaðan slík,
þegar greinarhöfundar hafa lit'a
sem enga grundvallarþekkingu á
verkefni sínu eða eru undir áhrif-
um aðila, sem telja siðgæðis- og
réttarfarsleg sjónarmið auka-
atriði. Það ætti því að vera kær-
komið tækifæri fyrir hinn rétt-
sýna dómsmálaráðherra, sem
jafnframt er form. Framsóknar-
flokksins, að taka þessa blaða-
menn Timans í kennslustund, ef
hann er ekki samþykkur slíkum
skrifum. Dómsmálaráðherrann
hefur sjálfur kvartað ákaft og
hans fylgdarlið yfir rógskrifum í
hans garð á undanförnum mán-
uðum. Hefur málgagn hans farið
hörðum orðum um þessi níðskrif
og nefnt menn og jafnvel samtök,
sem að þeim standi. Ég er sam-
mála ráðherranum um það, að
hvérs konar rógskrif eru víta-
verður verknaður og getur haft
mjög alvarlegar afleiðingar í för
með sér. En hvers konar skrif
lætur dómsmálaráðherra viðgang-
ast í sínu eigin flokksblaði?
I Tímanum hafa birzt margar
greinar undanfarið varðandi störf
min I þágu lögreglumála, sem eru
vfsvitandi ósannindi og meiri-
háttar óheiðarleiki hefur verið
séreinkenni þessara skrifa. Hér
hefur verið um illkvittnisleg róg-
skrif að ræða, sem virðast gegna
því eina markmiði að gera störf
mín tortryggileg I augum þjóð-
arinnar og jafnframt reynt að
skaða persónulegt álit mitt. Þessi
skrif hafa þó ekki valdið mér
neinum óþægindum eða áhyggj-
um hingað til, þar sem mér er
ekki kunnugt um, að nokkur hafi
lagt trúnað á þessi skrif, jafnvel
ekki greinarhöfundar Timans.
Þau öfl, sem knýja þessar greinar
fram eiga eftir að koma fram I
dagsljósið fyrr eða sfðar, niður-
staðan verður mörgum fram-
sóknarmönnum sár vonbrigði. Ég
hef ekki í hyggju að láta neina
undirskriftasöfnun fara fram I
Skagafirði né annars staðar, mál-
staðurinn er mér nægjanleg vörn.
Hins vegar verður fróðl,egt fyrir
lesendur Tímans að sjá hvers
konar framhald verður á þessum
rógskrifum blaðsins þ.e. hvort
dómsmálaráðherra reynir að
koma.I veg fyrir þau eða hvort
gildismat hans á rógskrifum fer
einungis eftir því hvort hann á
sjálfur i hlut.
Greinarhöfundur fjallar m.a.
um starfssvið mitt og vísar til
Myndlistarsýning
á Akureyri
Akureyri, 12. apríl.
GÍSLI Guðmann opnar mynd-
listarsýningu í hinum nýja sam-
komusal Iðnskólans á Akureyri á
miðvikudagskvöld kl. 20. Hann
sýnir þar 30 til 40 myndir af ýmsu
tagi, svo sem pastelmyndir, túss
og kolteikningar, olíumálverk og
höggmyndir. Sýningin verður
opin í eina viku kl. 14 til 22 dag-
lega. _ Sv.P.
Steinþór sýnir
á Egilsstöðum
STEINÞÖR Eiríksson á Egilsstöð-
um heldur málverkasýningu I
barnaskólanum á Egilsstöðum
dagana 15.—16. og 17. apríl, á
vegum Menningarsamtaka Fljóts-
dalshéraðs. Á sýningunni eru
rúmlega 30 myndir, flest olíumál-
verk og eru flest þeirra til sölu.
Sýningin verður opin frá kl.
14—22 alla dagana.
athugasemdar lögreglust. á Kefla-
víkurflugvelli þar um. Veit grein-
arhöfundur ekkert um starfssvið
löggæzlumanna almennt og jafn-
framt hvaða ábyrgð og skyldur
þeim ber að viðhafa í starfi. Þetta
verður blaðamaður Tímans að
kynna sér rækilega áður en hann
skrifar um slík málefni, ef hann
ber einhverja virðingu fyrir sjálf-
um sér og starfi sínu.
Öll löggæzlustörf, sem ég hef
unnið að utan lögsagnarumdæmis
Keflavikurflugvallar, hafa verið
framkvæmd í fullri samvinnu og
með samþykki viðkomandi lög-
regluyfirvalda og hefur sú sam-
vinna verið ávallt með ágætum.
Engin umkvörtun hefur borizt í
öll þau ár, sem ég hefi starfað að
löggæzlumálum, um að ég hafi
óleyfilega rannsakað mál i öðrum
umdæmum.
Greinarhöfundur virðist algjör-
lega lokaður fyrir því, að til sé
nokkur lögleg leið, sem heimilar
löggæzlumönnum að vinna að
rannsóknum utan sinna lög-
sagnarumdæma. Hefur hann
aldrei heyrt um setudómara, sem
rannsaka sakamál samkvæmt sér-
stakri umboðsskrá. Oftast fá setu-
dómarar í upphafi rannsóknar
eða siðar heimild til að rannsaka
mál í mörgum lögsagnarum-
dæmum, enda sé sýnt eða sterkar
likur á, að málið sé þess eðlis.
I þeim tilvikum, sem ég hef
rannsakað sakamál í öðrum lög-
sagnarumdæmum, hefur það
Framhald á bls. 18
EYJÖLFUR K. Sigurjónsson
stjórnarformaður Verkamanna-
bústaðanna f Revkjavfk hafði
samband við Morgunblaðið ( gær
vegna ummæla Gissurar Sigurðs-
sonar forstjóra Einhamars, en f
frétt f blaðinu s.I. sunnudag kvað
Eyjólfur Gissur gefa upp mjög
villandi upplýsingar um saman-
burðarverð á nýjum fbúðum
annars vegar hjá Einhamri og
hins vegar hjá Verkamanna-
bústöðunum.
„Þar er borið saman verð,“
sagði Eyjólfur, „frá Einhamri í
maí 1975 og verð hjá Verka-
mannabústöðunum í apríl 1976,
en verðið 1976 er bundið hjá
okkur fram í október.
Til samanburðar um verð sam-
bærilegra íbúða, sem á sínum
tíma voru byggðar á vegum Fram-
kvæmdanefndar byggingaráætl-
unar, þá var verð 4ra herbergja
íbúða sem Reykjavíkurborg fékk
i árslok 1974, 3,5 millj. kr„ miðað
Njarðvík, 12. april.
ÞAÐ hefur verið venja hér í
barnaskóla Njarðvíkur að
nemendur gefi kennurum sínum
páskaegg rétt fyrir páskafríið. Nú
á þessum páskum fá þeir engin
súkkulaðiegg frá nemendunum
því þeir báðu þá um að safna
jafnvirði eggjanna og leggja það í
söfnunarsjóð þroskaheftra barna.
við 4,4 millj. kr. 1975 hjá Ein-
hamri.
Þriggja herbergja ibúðir fram-
kvæmdanefndar, afhentar í maí
1975, kostuðu 3 millj. kr. 470 þús.,
en þriggja herbergja ibúðir hjá
Einhamri 1975 kostuðu 3,8 millj.
kr.
Tveggja herbergja íbúðir Fram-
kvæmdanefndar kostuðu i júlí ’75
2 millj. 830 þús. kr., en hjá Ein-
hamri 3,3 millj. kr.
Allur samanburður á verði
íbúða er mjög erfiður i þjóðfélagi
okkar þar sem dýrtíðaraukningin
er eins mikil og raun ber vitni, og
í fyrsta lagi þarf að gæta þess að
bera saman íbúðir byggðar á sama
tima. Við t.d. byrjuðum á grunn-
um í Seljahverfi, alls 308, í apríl
1974, en á uppsteypu húsanna var
ekki byrjað af fullum krafti fyrr
en s.l. vor, ’75. Aðalþunginn á
fjárfestingu okkar var seinnipart
árs 1975 og eykst nú verulega á
árinu 1976.“
I einum bekknum söfnuðust
rúmar 12 þúsundir. Það mætti
sennilega kaupa stórt egg fyrir þá
upphæð. Þetta mál er dæmi um
ábyrga afstöðu kennara og er að
mínu mati einhver veglegasta
páskalofgjörð, sem heýrast mun
hér í Njarðvíkurprestakalli nú á
þessum páskum. Hafi kennararn-
ir og börnin þökk fyrir þetta.
Páll Þórðarson.
Sex listamenn sýna
í Borgarspítalanum
NÚ UM páskana gangast Félag
fslenzkra myndlistarmanna og
Starfsmannaráð Borgarspftal-
ans fyrir myndlistarsýningu á
Borgarspítalanum f Fossvogi.
Á sýningunni eru grafík-
myndir og oliumálverk eftir sex
listamenn, þá Einar Þorláks-
son, Hafstein Austmann, Jón
Reykdal, Ólaf H. Gunnarsson,
Snorra Svein Friðriksson og
örn Þorsteinsson.
Myndirnar, sem eru 34 að
tölu, hanga í anddyri og skálum
spítalans. Sýningin er sölu-
sýning og mun hún standa fram
i miðjan maí. Nokkrar sýningar
á vegum ofangreindra aðila
hafa verið haldnar í Borgar-
spítalanum. Sömuleiðis f Grens-
ásdeild spítalans. Starfsmanna-
ráð Borgarspítalans vinnur nú
að undirbúningi við stofnun
iþróttafélags. Mun félagið fá til
afnota innanhússleiksvæði
Barnaheimilis spítalans. Meðal
annarra verkefna Starfsmanna-
ráðs má nefna hópferðir starfs-
fólks til Grænlands eða Fær-
eyja og útgáfu starfsmanna-
blaðs (Spítalapóstsins). Starfs-
mannaráð skipa: Örn Smári
Arnaldsson læknir, formaður,
Jóhannes Pálmason skrifstofu-
stjóri, Kristín H. Pétursdóttir
bókavörður, Kalla Malmqvist
yfirsjúkraþjálfari, Ingibjörg
Agnars sjúkraliði, Guðrún
Bergsdóttir starfsstúlka og
Sigurður Angantýsson, deildar-
stjóri tæknideildar.
Ein myndanna á sýningunni.
Oplð tll kl
-------
81 kvðld I
Sími frá skiptiborði 28155
LÆKJABGÖTU 2 - SiMI FRÁ SKIPTIBORDI 28155
Þroskaheft böm fengu
peningana, sem áttu að
fara í páskaeggjakaup