Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976 Fjármál fiskvinnsluhafna: Gera þarf úttekt á fjárhags- stöðu hafnarsjóða 1 landinu AÐIIR en Alþingi fór I páskaleyfi kom til umræðu ( sameinuðu þingi tillaga til þingsályktunar um fjárhagsstöðu hafnarsjóða, en rekstrar- og skuldastaða fjöl- margra fiski- og vinnsluhafna er vandamál, sem er að sliga við- komandi sveitarfélög. Flutnings- menn tillögunnar voru alþingis- mennirnir Sigurlaug Bjarnadótt- ir (S), Tómas Arnason (F), Lúð- vfk Jósepsson (K), Sighvatur Björgvinsson (A) og Karvel Pálmason (SFV). Hér fer á eftir framsöguræða Sigurlaugar, nokkuð stytt: Ég hygg að öllum þeim, og þá ekki hvað sízt háttvirtum al- þingismönnum, sem þekkja nokk- uð tii vandamála islenzkra hafna í dag, sé það vaxandi áhyggjuefni, hve bág fjárhagsleg afkoma hafnarsjóðanna er orðin iþyngj- andi viðkomandi sveitarfélögum. Mörg þeirra, þótt fámenn séu, skila þó þjóðarbúinu drjúgum tekjum í útfluttum sjávarafurð- um, — vissulega margfalt meiri tekjum hlutfallslega en íbúatala þeirra segir til um. Það er staðreynd, að við hina hraðstigu aukningu á fiskiskipa- flota okkar á undanförnum árum — stærri og rúmfrekari skip, þá hefir hafnaraðstaðan ekki verið bætt að sama skapi. Kemur þar vafalaust hvort tveggja til: skammsýni og fyrirhyggjuleysi annarsvegar og hinsvegar skortur á fjármagni. Má benda á, að meðan opinber fjárhagsfyrir- greiðsla til kaupa á fiskiskipum hefir numið allt að 95% af kaup- verði skipanna hefir ríkisframlag til hafnarmannvirkja til skamms tíma numið 40% eða fram til 1. jan. 1974 að sú hlutdeild rikisins var aukin í 75%. — Á meðan varið var 20 milljörðum kr. til skipakaupa — 40 skipa — var andvirði tveggja skipa (skuttog- ara) varið til hafnargerða. Viðhald hafnar- mannvirkja vanrækt Nýjar framkvæmdir vegna fleiri og stærri skipa hafa dregið til sín stærstan hlut fáanlegs fjár- magns, en viðhald eldri hafnar- mannvirkja hefir verið vanrækt, svo að viða horfir nú til hreinna vandræða. Engan veginn vil ég gera lítið úr þeirri miklu atvinnubót, sem hinn fríði floti nýrra skuttogara hefir verið okkur, síðan hann kom til. Þessi skip hafa orðið byggðar- lögum um allt land sannkölluð iyftistöng. Hitt er þó augljóst mál — og það sjáum við betur nú, eftir á, að hyggilegra hefði verið og nauð- synlegt, að huga betur jafnframt að bættum hafnarskilyrðum, þó svo að við hefðum keypt togar- anum færra. Óviðráðanlegar byrðar Nú, þegar þrengzt hefir í búi og horfur á, að takmarka þurfi a.m.k. í bíli, sókn islenzkra fiski- skipa á miðin við strendur lands- ins, sem eru þar að auki í hers höndum, — þá verður vandi fiski- hafna okkar, með stór ólokin verkefni meiri en nokkru sinni fyrr. Það er því knýjandi nauð- syn, að leitað verði nýrra úrræða til að létta hlutaðeigandi sveitar- félögum þær óviðráðanlegu byrð- ar, sem sýnt er að mörg þeirra fá ekki öllu lengur risið undir, eigi þau ekki á annað borð að gefa upp á bátinn önnur verkefni, sem þau þurfa að sinna, — og þau eru hreint ekki sfvo fá — þarf ég ekki að útlista það nánar, svo augljóst sem það er. I greinargerð með tillögunni er vísað sérstaklega til tveggja skýrslna unnar af Gylfa Isakssyni verkfræðingi á vegum Hafnasam- bands sveitarfélaga. Mikinn fróð- leik og upplýsingar er þar að finna um afkomu hafnarsjóða undanfarin 2 ár. Er jafnframt bent á i gr.gerð að þannig liggi nú þegar fyrir miklar og trúverðugar upplýsingar, sem flýtt gætu athugun þeirri, er tillagan fer fram á og um leið ákvörðun af hálfu ríkisvaldsins um ákveðnar aðgerðir í þessum málum. Afkoman nokkuð misjöfn Það kemur fram m.a. i þessum skýrslum og þá einkum i hinni seinni þeirra, er unnin var í lok síðasta árs, að hækkun á hlutdeild ríkisins i stofnkostnaði hafna úr 40 í 75% ásamt gjaldskrárhækk- un er tók gildi á fyrra helmingi ársins 1975 hafa engan veginn reynzt fullnægjandi til að rétta við fjárhag hafnarsjóðanna, sem hefir greinilega farið versnandi gjaldskrár fyrir þessa þjónustu alls ekki hafa fylgt almennu verð- lagi í landinu undanfarin ár, sem sjá má af því, að gjaldskrár fyrir hafnsöguþjónustu hækkuðu ekkert frá 1971—75. yirðist eðli- legt, að gjaldskrár fyrir ýmsa sér- þjónustu hafna séu miðaðar við Sigurlaug Bjarnadóttir. tölur eiga við um þær 15 hafnir sem tilteknar eru á fylgiskjali með tillögunni. Þar kemur einnig fram, að greiðsluhalli viðkomandi hafnarsjóða nemur allt að þriðj- ungi álagðra útsvara sveitarsjóðs. Ég vil vekja sérstaka athygli á því að í tölum i fylgiskjalinu yfir greiðsluafkomu hinna 15 hafna á árunum 1973 og 75, þá er ekki reiknaður þar með hluti hafn- anna í framkvæmdakostnaði, heldur aðeins rekstrargjöld, vext- ir og afborganir. Hér er okkur greinilega mikill og vaxandi vandi á höndum, sem nauðsynlegt er að bregðast við svo skjótt sem auðið er af full- komnu raunsæi. Þetta er ekkert einkamál hinna aðþrengdu sveitarfélaga, sem i dag eru að sligast undir skuldabyrði hafn- anna, sem óumdeilanlega eru far- vegur okkar megin þjóðarverð- mæta, er öll þjóðin nýtur góðs af. Með þá staðreynd í huga er ekki óeðlileg sú hugmynd, sem fram hefir komið, að ríkið stæði að fullu undir stofnkostnaði fiski- hafna en sveitarfélögin sæju um reksturinn. Útgerðar- og fiskvinnsluaðstaða ekki einkamál sveitarfélaganna frá árinu 1973, er afkoma þeirra flestra var viðunandi. Hún er þó allmismunandi eftir höfnum, yfir- leitt betri hjá hinum stærri kaup- stöðum, svokölluðum blönduðum höfnum, sem hafa verulegar tekjur af vörugjöldum ásamt afla- gjöldum fiskiskipa. Þó hafa vöru- gjöldin yfirleitt farið minnkandi, þar sem vörumagn sem fór um hafnirnar minnkaði milli áranna 74 og 75. Hjá fiskihöfnunum hins- vegar, þar sem lítið er um skipa- komur og vöruflutninga og einnig — á hinum smærri stöðum — færri gjaldendur til sveitarfélags- ins — þar er afkoman sýnu lakari. Hvað verst staddar eru í dag Bol- ungarvík, Neskaupstaður, Ólafs- fjörður, Patreksfjörður, Sand- gerði, Siglufjörður og Vopna- fjörður. Lántökur á lántökur ofan Það hefir komið í ljós, að ýmis þjónusta sem hafnirnar veita er rekin með miklu tapi og vírðast það, að tekjur af þeim standi und- ir útlögðum kostnaði. Þessi hlið málsins, rekstur hafnanna skiptir þó engan veginn sköpum um afkomu þeirra. Það er fyrst, þegar kemur að fram- kvæmdahliðinni sem kárna tekur gamanið. Það er í stuttu máli algerlega óraunhæft að ætla hinum smærri fiskihöfnum að standa, að einum fjórða hluta á móti ríkinu, undir fjármögnun framkvæmda upp á tugi og hundruð milljóna. Lántökur á lántökur ofan þýða að sjálfsögðu sívaxandi skuldabyrði, ekki sízt ef lánin eru vísitölu- eða gengis- tryggð, og verður viðkomandi sveitarfélögum fullkomlega of- viða að ráða við. Farvegur okkar megin þjóðarverðmæta Þegar vaxtagjöld ein nema orðið 32% af heiidartekjum hafnarinnar og afborganir af föst- um lánum 27% má glögglega sjá í hvert óefni er komið, en þessar Þarf að breyta lögum um Hafnarbótasjóð Hafnarbótasjóður, sem fjár- hagslegur bakhjarl hafnarsjóð- anna, veldur engan veginn lengur því hlutverki sínu. Það er því í rauninni næsta gagnslítið að vitna í bráðabirgðaákvæði gild- andi laga um sjóðinn sem gerir ráð fyrir sérstökum ráðstöfunum til að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða, sem verst eru settir. Til þess er fjárhagsgeta hans of takmörkuð með tilliti til hinna stórauknu verkefna hans. Samkv. lögum sjóðsins, 20. gr., eru tekjur hans: 1) Árlegt fram- lag rikissjóðs, sem nemur 12% af framlagi til hafnarmannvirkja og lendingarbóta á fjárlögum hvers árs, en þó aldrei lægra en 30 millj. kr. 2) Tekjur af starfsemi sjóðs- ins. Þá er sjóðnum, samkv. 21. gr. laganna, heimilt að taka lán til starfsemi sinnar, innanlands eða utan, allt að 350 millj. kr. árlega og er ríkissjóði heimilt að ábyrgj- ast þau lán og í dag er aðal fram- kvæmdatíminn við hafnargerðir fer í hönd, mun innstæða í honum nema 150 millj. kr. samkvæmt upplýsingum frá hafnarmála- stjóra nú á dögunum. Á fjárlögum yfirstandandi árs er framlag rikisins til sjóðsins 82 m. 152 þús. kr. Augljós nauðsyn er á, að sjóðnum verði eftir einhverjum leiðum, væntanlega þá með breyt- ingum á lögum hans, tryggðar auknar árvissar tekjur til þess að hann geti gegnt sínu mikilvæga hlutverki sómasamlega. Af erlendum lántökum og skulda- söfnun við útlönd höfum við meira en nóg í bili. Forréttindi landshafna I niðurlagi tillögunnar er farið fram á endurskoðun á lögum um landshafnir en þær eru nú þrjár á landinu: Þorlákshöfn, Keflavík — Njarðvik og Rifshöfn á Snæ- fellsnesi. Sérstök lög hafa verið sett um hverja þessara hafna fyrir sig, en öllum er þeim það sameiginlegt, að ríkissjóður stendur að öllu leyti undir stofnkostnaði hafn- anna og rekstrinum einnig, svo lengi sem lögin eru í gildi. Ekki skal það dregið i efa, segir í greinargerðinni, að brýna nauð- syn hafi á sínum tíma borið til, að ríkissjóður hlypi svo myndarlega undir bagga með þeim byggðar- lögum, sem þarna eiga i hlut. Þannig mun t.d. eldgosið i Heima- ey hafa aukið verulega á þrýsting um hafnarbætur í Þorlákshöfn. Vandséð er, engu að síður, hvernig réttlæta megi, að þessar þrjár hafnir, einar allra íslenzkra hafna, búi um aldur og ævi við "sslík forréttindi og þá um leið óhjákvæmilega á kostnað allra hinna, sem berjast i bökkum og eru sumar hverjar, eins og ég hef þegar bent á, bókstaflega að sliga hlutaðeigandi sveitarfélög. Ég fæ ekki séð, að það séu hald- bær rök að benda á, að fram- kvæmdir við landshafnir séu fjár- magnaðar af sérstöku erlendu lánsfé utan fjárlaga. Að sjálf- sögðu koma þessi erlendu lán inn sem hluti af því heildar fjármagni sem við höfum úr að spila til hinna ýmsu framkvæmda og hætt er við, að við þurfum að standa skil á þessum lánum fyrr eða siðar með innlendu aflafé, sem hinir nauðstöddu hafnarsjóðir hefðu fulla þörf fyrir. Nauðsyn á endurskoðun Elztu landshafnarlögin, um Rif á Snæfellsnesi, eru nú orðin rúm- lega aldarfjórðungs gömul, lögin um Keflavik—Njarðvík 20 ára og um Þorlákshöfn 10 ára. Á fjárlög- um þessa árs nemur framlag rikissjóðs til almennra hafna yfir allt landið 675 millj. kr. að við- bættum 10 milljónum kr. til ferju- hryggja. Framlag til landshafn- anna þriggja ásamt afborgunum af lánum til þeirra nemur hins- vegar 600 millj. kr., þar af 375 millj. til Þorlákshafnar einnar, en þar var unnið á s.l. ári fyrir 700 millj. kr. þ.e. ( einni höfn fyrir 700 millj. kr. á móti tæpum 950 milljónum við allar almennar hafnir á landinu til samans. Ég vona — og mælist til þess, að mér verði ekki lagt það út á verri veg, sem öfund eða afbrýði í garð landshafnanna og fólksins, sem þar býr, þótt ég bendi á hið augljósa misræmi og mismunun sem hér á sér stað og ekki er stætt á að viðhalda öllu lengur, þótt sérstakar tímabundnar ráðstaf- anir i þágu þessara hafna geti hafa verið fullkomlega réttlætan- legar. Nauðsynlegt er, að hér komi til endurskoðun á gildandi lögum um landshafnir með aukið jafnvægi fyrir augum. Undirstaða atvinnulífsins Ég vænti þess, að þessi tillaga fái góðar undirtektir og jákvæða og skjóta afgreiðslu hér á hátt- virtu Alþingi. Ég veit, að margir háttvirtir þingmenn, auk okkar fimm flutningsmanna tillög- unnar, hafa þungar áhyggjur af erfiðleikum hafnanna og mér er einnig kunnugt um, að hæstvirtur samgönguráðherra, sem þessi mál heyra undir hefir fullan skilning og góðan vilja til að bæta þar úr — og það má ekki dragast. Engum blandast hugur um — segir í niðurlagi greinargerðar með till. að góðar og traustar hafnir eru ein helzta undirstaðan undir atvinnulífi okkar Islend- inga sem fiskveiðiþjóðar. Það varðar því miklu, að svo vel sé að þeim búið, sem við framast höfum efni á hverju sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.