Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1976 31 Hœttir við þátttöku í NM vegna vals Halldórs í landsliðið t blaðinu I gær var skýrt frá vali fslenzka júdólandsliðsins sem keppa skal á Norðurlanda- meistaramótinu I Svíþjóð. Eftir að valið var birt hefur það svo gerst að tveir landsliðsmann- anna. Gunnar Guðmundsson og Ómar Sigurðsson, hafa dregið sig til baka og munu ekki taka þátt í Norðurlandamótinu. Ástæðan er sú, að Gunnar var ekki valinn aðalmaður í sinn þyngdarflokk á mótinu og Óm- ar valinn varamaður. Þeir fé- lagar sem báðir eru úr Keflavík urðu I fyrsta og öðru sæti á Íslandsmótinu á dögunum I léttmillivigtarflokknum, en sá er varð þar I þriðja sæti, Hall- dór Guðbjörnsson, var hins veg- ar valinn aðalmaður f þessum þyngdarflokki og á að taka þátt f sveitakeppninni á Norður- landamótinu. Þá hefur Gunnar Guðmunds- son einnig hafnað verðlaunum sem fylgdu Íslandsmeistaratitl- inum. 1 léttvigtinni þar sem sendir verða tveir keppendur til þátt- töku verður sá er varð f öðru sæti á islandsmótinu, Jóhannes Gunnar Guðmundsson. Haraldsson úr Grindavfk, aðal- maður I íslenzku sveitinni, en Íslandsmeistarinn, Sigurður Pálsson verður sem annar keppandi. Hefur hann ekki mótnælt ákvörðun landsliðs- þjálfarans I þessum efnum. Það var Naoki Murata, hinn japanski þjálfari landsliðsins, sem valdi liðið sem fer á Norð- urlandamótið, og er ekki ósennilegt að val hans hafi nokkuð mótast af þvf að bæði Jóhannes og Halldór eru mjög keppnisreyndir júdómenn. Tekst unglmgimum að komast í lokakeppnina? — leika við Luxemburg í UEFA-keppninni í kvöld Þórsigraði í2. deildkvenna Urslitakeppnin I 2. deild kvennahandboltans fór fram á Akureyri um helgina, og lauk með sigri Þórs frá Akureyri. Hin félögin, sem unnu sér rétt til að leika I úrslitunum voru Ilaukar úr Ilafnarfirði og Ungmenna- félag Njarðvfkur. Fyrsti leikurinn í úrslitakeppn- inni var á milli Þórs og UMFN. Þór sigraði eftir jafna baráttu með 17 mörkum gegn 15. Þá átt- ust sunnanliðin við og sigruðu Haukarnir með 10 gegn 8. Það var því hreinn úrslitaleikur á sunnu- dag milli Þórs og Hauka. Nokkuð á óvart kom að Þórsstúlkurnar höfðu allan tímann töglin og hagldirnar í leiknum og sigruðu örugglega með 13 mörkum gegn 10. Úrslitin i 2. deild koma nokkuð á óvart þar sem flestir álitu að Haukarnir hefðu sterkasta liðinu á að skipa, en annað kom sem sé á daginn. Þór er ekki nýgræðingur í 1. deild kvenna, því þar lék liðið fyrir tveimur árum. Júgóslavneska handknattleiks- liðið Partizan Bjelovar marði sig- ur vfir gestgjöfum sinum, Val, í leik sem fram fór á Akranesi 1 fvrrakvöld. Urðu úrslit leiksins 22—21 sigur Júgóslavanna, eftir að staðan hafði verið 13—10 fyrir Val í hálfleik. Valsmenn tóku strax forystu i leiknum á Akranesi og voru betri aðilinn allan fyrri hálfleikinn. Vakti það þá athygli að Jón Breið- fjörð Ólafsson varði vitakast frá Horvant, en sá kappi er þekktur fyrir annað en misheppnuð vita- skot. í seinni hálfleik tókst Partizan fljótlega að jafna og siðan ná þriggja marka forystu, en Vals- menn gáfu ekki upp baráttuna og tókst að minnla muninn niður í eitt mark fyrir leikslok, og mega þeir vissulega vel við þessi úrslit una. Jón Karlsson og Bjarni Guð- mundsson voru atkvæðamestir i liði Vals, en í heild lék Valsliðið þennan leik með ágætum. íslenzka unglingalandsliðið sem mætir Luxemburg 1 kvöld ásamt þjálfara sfnum, Theodór Guðmunds- syni, Lárusi Loftssyni og Tony Knapp ANNAÐ kvöld fer fram á Mela- vellinum fyrsti stórleikur ársins, en það er landsleikur Islands og Luxemburgar og eru liðin skipuð leikmönnum 16—18 ára. Þessi leikur er siðari leikur lið- anna i Evrópukeppni unglinga, en þeim fyrri, sem fram fór í Luxemburg á s.l. hausti, lauk með Islenskum sigri 1—0. Takist íslendingum, að sigra eða gera jafntefli vinna þeir sér rétt til að taka þátt í úrslitakeppninni, sem fram fer i Ungverjalandi í maí n.k. — Það er því ekki lítið i húfi fyrir íslensku piltana, enda hafa þeir æft vel að undanförnu. Það eru þeir Lárus Loftsson og Theodór Guðmundsson, sem hafa Sigurvegarar Þórs I 2. deild kvenna: Aftari röð frá vinstri: Aðalsteinn Sigurgeirsson, þjálfari, Aðalbjörg Ólafsdóttir, Anna Gréta Halldórsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir og Sofffa Hermannsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sólveig Sigurgeirsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Ásta Pálmadóttir, Magnea Friðriksdóttir og Harpa Sigurðardóttir. haft veg og vanda af þjálfun og vali íslenska liðsins, allt þar til nú fyrir nokkrum dögum, að hinn nýráðni landsliðsþjálfari Tony Knapp kom til samstarfs við þá. — Hópurinn, sem við höfum valið til að taka þátt í þessum leik, er að mestu hinn sami og í fyrra, sagði Lárus Loftsson, en liðið er skipað leikmönnum sem eru fæddir eftir 1. ágúst 1957. — Við hófum æfingar 19. jan. og æfðum fyrst einu sinni í viku, en bættum síðan æfingaleik við. — Það hefur verið mjög vel mætt á æfingar og mikill hugur í strákunum og samstarfið við þá og félög þeirra, hefur verið eins og best verður á kosið. Ég er því bjartsýnn á að við náum hagstæð- um úrslitum að þessu sinni, enda mikið í húfi fyrir okkur. — Úrslitakeppnin fer fram i Ungverjalandi og hefst 26. maí og þangað stefnum við, þar sem 16 af bestu unglingaliðum Evrópu mæta, en til þess að það takist, verðum við að sigra eða gera a.m.k. jafntefli. Það er því mikill stuðningur við okkur, ef fólk f jöl- mennir á völlinn og hvetur lið okkar til sigurs. — I íslenska unglingaliðinu eru margir leikmenn, sem þegar hafa tryggt sér fast sæti í meistara- flokki sins félags, þrátt fyrir ung- an aldur. Einn þeirra er hinn kunni markvörður Þróttar, Jón Þorbjörnsson. Hann er án efa efnilegasti markvörður okkar i dag, enda átti hann sinn þátt i að félag hans endurheimti sæti í 1. deild á s.l. ári. Jón hefur flesta unglingalands- Jón Þorbjörnsson — reyndasti leikmaður fslenzka liðsins leiki að baki af félögum sínum í liðinu 1 dag. Aðeins 15 ára var hann varamaður i unglingalands- liðinu árið 1973, sem komst i úr- slitakeppnina, sem fór fram í Sviþjóð það ár. Arið 1974 er hann valinn aðalmarkvörður og síðan hefur enginn ógnað sæti hans. — Ég álít lið okkar í dag mjög gott, sagði Jón, enda er liðsandinn góður. Ég tel að liðið sé svipað að styrkleika og liðið árið 1973 og mun sterkara en liðið frá 1974. — Við unnum verðskuldaðan sigur i Luxemburg í fyrra og við erum ákveðnir i að endurtaka það nú, en til þess þurfum við á aðstoð áhorfenda að halda og ég vona að menn fjölmenni á völlinn. Lið Luxemborgar er skipað góðum leikmönnum, svo ég er viss um að um jafnan og skemmtilegan leik verður að ræða. Eins og áður segir hefst leikur- inn kl. 20.00 annað kvöld og verður leikið í ljósum á Mela- vellinum. Dómari er frá Skot- landi, en linuverðir eru Islenskir. Víðavangshlaup ÍR Vfðavangshlaup ÍR fer fram í 61. sinn á sumardaginn fvrsta, 22. aprfl n.k. Hlaupin verður svipuð leið og 1 hátfðarhlaupinu f fvrra. Hlaupið mun hefjast við Skot- húsveginn, vestan mið- tjarnarinnar og sfðan verður hlaupið suður f Vatnsmýri og til haka og mun hlaupinu Ijúka f Austurstræti, við Landshank- ann á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis. Verður hlaupið örlftið styttra f Austurstrætinu en gert var f fvrra, og er það gert til þess að koma f veg fvrir að hlaupararnir detti um brún þá er göngugatan er mörkuð með. Þátttökutilkvnningar f hlaup- ið þurfa að berast til Guðmund- ar Þórarinssonar, þjálfara lR, Baldursgötu 6, sími 12473, eigi sfðar en 19. aprfl n.k. Keppnin er einstaklings- keppni karla og kvenna, auk sveitakeppni þeirra og verður keppt milli 3ja, 5 og 10 manna sveita karla, þriggja manna sveita kvenna, auk elztu fimm manna sveitar karla. Partizan marði Val með eim marki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.