Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.04.1976, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976 Á hættu- slóðum í ísraelEíKire Sigurður Gunnarsson þýddi sem flóttafólk til ísraels. Óskar, sem haföi gefið sig fram af frjálsum vílja við að ræsa fram mýrarnar við Djúpavatn, tók nú einnig þátt í vinberjatínslunni. Og auðvitað geðjaðist honum betur að því starfi. Venjuiegast reyndi hann að haga þvi svo til, að hann væri í návist Maríu. Hún bar hina stóru körfu tígulega á höfðinu, tíndi vínberjaklasana af mikilli fimi og fleygði þeim í hana. Óskar bar sína körfu á kviðnum eins og gamall gigtarsjúklingur. Hann hafði alizt upp í landi, þar sem vínber sáust aðeins í Þessir kúrekar höfúu veriö aö spjalla saman og sáu þá Indfána. — En allt í einu var sem jörðin hefði glevpt hann. Þetta er felumvnd og nú áttu að finna Indfánann. búðum fyrir jólin. Og hann var óneitanlega klaufskur við að tína hina réttu klasa, miðað við Maríu, sem sá strax, hvaða klasar voru fullþroskaðir og vann allt svo leikandi létt. En stundum nam María staðar, horfði til hans og brosti, stundum dálítið glettnislega, og hjálpaði honum til að fylla körfuna, svo að þau gætu tæmt þær samtímis. Því miður var María oft alvarleg og sorg- bitinn. Þá var hún að hugsa um bróó- ur sinn og skartgripinn, sem var það eina, sem hún hafði erft eftir foreldra sína. Raunar syrgði hún ekki afa sinn, Móses. Hann var góður maður, sem lifði langa ævi og dó saddur lífdaga. Þess vegna fannst henni ekki rétt að syrgja brottför hans. En María var nú farin að hugsa mikið um nokkuð, sem hún þorði ekki að segja neinum í fyrstu. Að nokkrum dögum liðnum ákvað hún þó að trúa Óskari fyrir leyndarmálinu. Og svo var það eitt sinn í ofurlitlu vinnuhléi, þegar Óskar hámaði í sig vínber, eins og venjulega, því að hann fékk aldrei nóg af þeim, að María sagði við hann: „Heldurðu, að nokkur heyri til okkar?“ „Nei áreiðanlega ekki.“ „Þú manst eftir honum Alí, Arabadrengnum litla?“ „Já, þú getur nærri.“ „Finnst þér hann ekki ljós yfirlitum, — miklu ljósari en Arababörn eru yfirleitt?" „Jú, — það má vel vera.“ „Veiztu nokkuð hvernig stendur á því?“ „Nei, — hvernig ætti ég að vita það?“ „Hann er sonur bróður míns.“ Óskar starði á hana og var orðlaus af undrun. En smám saman læddist sú hugsun að honum, að ef til vill hefði María orðið fyrir slöngubiti og truflazt eitthvað um stund, — eða hafði hún kannski fengið sólsting? „Var ekki bróðir þinn í Noregi?" spurði hann. „Jú, en hve lengi var hann þar? Við vitum ekkert um þaó. Hermennirnir fóru með hann, og ef til vill hefur hann verið sendur til útlanda. Ef til vill hefur hann flúið hingað." „En bróðir þinn var svo ungur?“ „Já, hann var aðeins ári eldri en ég. En ef hann hefur nú farið til Arabíu, alizt upp og lifað sem Arabi, — þá giftast þeir svo agalega snemma, — sumir aðeins fimmtán ára gamlir. Og þá getur Alí... „Nei, Óskar sagði, að þetta gæti ekki átt sér stað. „Þú mátt ekki trúa þessu, María,“ bætti hann við, „það er hreinasta fjarstæða." Og þótt Maríu þætti það leitt og væri ofurlítið sár við Óskar, varð hún smám — Ástin mín, ef ég hefði vitað, hvað jarðgöngin voru löng, hefði ég kysst þig. — Guð minn góður, varst það ekki þú? X Litla dóttirin: — Hvers vegna svngur pabbi svona mikið í nótt? Móöirin: — Hann er að reyna að syngja litla bróður þinn I svefn. Dóttirin: — Ja, ef ég væri litli bróðir, mvndi ég þvkjast vera sofnaður. X Lítill drengur: — Hvað verð ég lengi að verða svo gamall, að ég megi gera allt, sem mig langar til? Gamall maður: — Ég veit það ekki, drengur minn. Enginn hefur ennþá lifað svo lengi. — Þú virðist svo áhyggju- fullur. Um hvað ertu að hugsa? — Framtíðina. — Hvað kemur til, að þú lít- ur á hana svona svörtum aug- um? — Fortíðin. X Ungfrúin: — Það hlýtur að vera dásamlegt að vera fallhlíf- arstökkvari að atvinnu, en samt geri ég ráð fyrir að þið kömizt oft I mikinn vanda. Fallhlífarstökkvarinn: — Já, stundum komumst við I hræði- legan vanda. Til dæmis kom ég eitt sinn niður I garð, þar sem var stórt skilti, sem á var skrifað: Stranglega bannað að ganga á grasinu. X Arfurinn í Frakklandi Framhaldssaga eftir Anne Stevenson Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 44 Hún snerist snöggt á hæli og þau út úr salnum. Mareel leit um öxl og fvigdist með henni. Síðan stóð hann upp og gekk I áttína til Davids. — David. sagði hann. — Ef þú ert reiðubúinn skal ég koma út á veröndina eftir fimm mlnútur. David gekk eftir göngunum, breiðum og fa*lur hans sukku í mjúk teppi. Hann vissi ekki hvert hann var að stefna með þessu tali. Eitthvað var f gerjun, á því lék ekki nokkur minnsti vafi lengur. Það eina sem olli honum veru- legu hugarangri var hversu ráð- villtur hann var og vissi ekki hvaðan hann átti að búast við áhlaupinu. Dyrnar inn í listaverkaher- bergið voru opnar. Hann gekk út á veröndina til að bíða. Garðarnir lágu fyrir fótum hans, jafn vel ennfegurri í na-turbirtunni. Ljós- ker í blómaheðunum settu ævin: týralegan svip á garðinn. Hann gekk fram og aftur um veröndina, hinkraði síðan við og hlustaði á hljóð næturinnar. Þetta var andartakíð áður en rannsóknin hefst fyrir alvöru hugsaði hann með sér og hann var staðráðinn í að reyna að draga réttar ályktanir og þó kannski umfram allt að reyna að bera fram réttar spurn- ingar. — David! Marcel hlaut að hafa komið aðra leið þvt að hann stóð fyrir neðan veröndina og benti honum að ganga niður þrepin. — Komdu hérna með mér, kallaði hann. Hann var brosandi. Seinna átti David eftir að sjá þetta bros fyrir sér lengi. Hann var kominn til hálfs niður þrepin þegar kúlan hitti hann. Hún kom úr áttinni að baki Marcel — úr skuggunum sem teygðu sig í garðinum. Hún fór I handlegg hans, gegnum jakkann hans og hann hugsaði hálfsljór að nú væri hann búinn að eyðileggja fötin sfn. Krafturinn var svo of- boðslegur að hann skall framyfir sig. Ahorfandi hefði mátt ætla að hann væri dáinn. Og sem hann skall niður hugsari hann með sér: — Jæja, þá er þessu lokið og sér til undrunar fann hann til óum- ræðilegs léttis. Eins og f draumi þóttist hann skynja raddir í kringum sig og áhvggjufull andlit sem horfðu á hann. Hann hafði reynt að rfsa á fa'tur og hann fann sterka arma grfpa um sig og hann var hálfveg- is borinn inn og einhver var að hella upp í hann koníaki. Við hlið hans sat maður sem var að skera burt jakkaermina og sú sjón sem blasti við þegar fötin voru fjar- lægð gerði að verkum að David rétti glasið fram aftur og bað um mcira. — Hvernig Iíður yður? Það var vinur hans vfnyrkjubóndinn sem bætti f glasið. David gramdist að hann skyldi ekki muna nafn mannsins. — Skínandi vel! sagði hann og rödd hans brast og hann reyndi að ræskja sig. — Að minnsta kosti eins vel og hægt er að búast við, sagði hann. Maðurinn sem sagt hjá honum brosti vinalega til hans. — Ja, það er engin voðalegur skaði skeður, sem betur fer. Við búum um þetta. Og þarna kemur Nicole með töskuna mfna. Þökk fyrir, góða mfn. Náföl birtist Nicole í dvragætt- inni og rétti læknistöskuna til mannsins. Hún leit skelfingu lost- in á Davíd og hraðaðí sér aftur á braut. Læknirinn opnaði töskuna, þvoði sér sfðan vel og vandlega um hendurnar og fór að taka fram ta'ki sín, rólegur og ábyrgur f fasi. — Þér eruð einn gestanna, var það ekki? spurði David. — Öldungis rétt. — Það er svei mér heppilegt fvrir mig. Mig minnti þér væruð bankastjóri, sagði David. — Ekki veit ég hvort mér á að finnast þetta lof eða last, sagði maðurinn. — Finnst yður ég svona auðmannsiegur og yfir- boðslegur. — Nei, ég átti ekki við það. Ég held ég kunni ágætlega við yður sem lækni. David átti erfitt um mál og kvaiirnar í hendinni vöktu með honum ólýsanlega vanlfðan. — Hvar er Marcel. — Hann fór að leita að þeim sem skaut. — Aldrei hef ég vitað meiri vitleysu á allri minni Iffsfæddu ævi, sagði vínyrkjubóndinn full- ur vandlætingar. — Að vera úti að skjóta á þessum tfma sólar- hrings og svona rétt upp við húsið. Fólk sem getur ekki þolað vfn á ekki að smakka það og ætti alls ekki að hafa byssuleyfi. Það var svei mér heppni að ekki fór verr. Svo að það var sagan. Slvsaskot í myrkri. Einhver sem hafði fengið einum of mikiö að drekka og fundið hjá sér hvöt til að fara út að skjóta og svo munar minnstu að hann drepi blessaðan Englendinginn af slvsnl. Við hverju hafði hann svo sem búist? Hvað áttu þau að segja? En þetta þýddi þar með að ekki yrði reynt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.