Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976
Fjármál fiskvinnsluhafna:
Gera þarf úttekt á fjárhags-
stöðu hafnarsjóða 1 landinu
AÐIIR en Alþingi fór I páskaleyfi
kom til umræðu ( sameinuðu
þingi tillaga til þingsályktunar
um fjárhagsstöðu hafnarsjóða, en
rekstrar- og skuldastaða fjöl-
margra fiski- og vinnsluhafna er
vandamál, sem er að sliga við-
komandi sveitarfélög. Flutnings-
menn tillögunnar voru alþingis-
mennirnir Sigurlaug Bjarnadótt-
ir (S), Tómas Arnason (F), Lúð-
vfk Jósepsson (K), Sighvatur
Björgvinsson (A) og Karvel
Pálmason (SFV).
Hér fer á eftir framsöguræða
Sigurlaugar, nokkuð stytt:
Ég hygg að öllum þeim, og þá
ekki hvað sízt háttvirtum al-
þingismönnum, sem þekkja nokk-
uð tii vandamála islenzkra hafna í
dag, sé það vaxandi áhyggjuefni,
hve bág fjárhagsleg afkoma
hafnarsjóðanna er orðin iþyngj-
andi viðkomandi sveitarfélögum.
Mörg þeirra, þótt fámenn séu,
skila þó þjóðarbúinu drjúgum
tekjum í útfluttum sjávarafurð-
um, — vissulega margfalt meiri
tekjum hlutfallslega en íbúatala
þeirra segir til um.
Það er staðreynd, að við hina
hraðstigu aukningu á fiskiskipa-
flota okkar á undanförnum árum
— stærri og rúmfrekari skip, þá
hefir hafnaraðstaðan ekki verið
bætt að sama skapi. Kemur þar
vafalaust hvort tveggja til:
skammsýni og fyrirhyggjuleysi
annarsvegar og hinsvegar skortur
á fjármagni. Má benda á, að
meðan opinber fjárhagsfyrir-
greiðsla til kaupa á fiskiskipum
hefir numið allt að 95% af kaup-
verði skipanna hefir ríkisframlag
til hafnarmannvirkja til skamms
tíma numið 40% eða fram til 1.
jan. 1974 að sú hlutdeild rikisins
var aukin í 75%. — Á meðan
varið var 20 milljörðum kr. til
skipakaupa — 40 skipa — var
andvirði tveggja skipa (skuttog-
ara) varið til hafnargerða.
Viðhald hafnar-
mannvirkja vanrækt
Nýjar framkvæmdir vegna
fleiri og stærri skipa hafa dregið
til sín stærstan hlut fáanlegs fjár-
magns, en viðhald eldri hafnar-
mannvirkja hefir verið vanrækt,
svo að viða horfir nú til hreinna
vandræða.
Engan veginn vil ég gera lítið
úr þeirri miklu atvinnubót, sem
hinn fríði floti nýrra skuttogara
hefir verið okkur, síðan hann kom
til. Þessi skip hafa orðið byggðar-
lögum um allt land sannkölluð
iyftistöng.
Hitt er þó augljóst mál — og
það sjáum við betur nú, eftir á, að
hyggilegra hefði verið og nauð-
synlegt, að huga betur jafnframt
að bættum hafnarskilyrðum, þó
svo að við hefðum keypt togar-
anum færra.
Óviðráðanlegar byrðar
Nú, þegar þrengzt hefir í búi og
horfur á, að takmarka þurfi
a.m.k. í bíli, sókn islenzkra fiski-
skipa á miðin við strendur lands-
ins, sem eru þar að auki í hers
höndum, — þá verður vandi fiski-
hafna okkar, með stór ólokin
verkefni meiri en nokkru sinni
fyrr. Það er því knýjandi nauð-
syn, að leitað verði nýrra úrræða
til að létta hlutaðeigandi sveitar-
félögum þær óviðráðanlegu byrð-
ar, sem sýnt er að mörg þeirra fá
ekki öllu lengur risið undir, eigi
þau ekki á annað borð að gefa upp
á bátinn önnur verkefni, sem þau
þurfa að sinna, — og þau eru
hreint ekki sfvo fá — þarf ég ekki
að útlista það nánar, svo augljóst
sem það er.
I greinargerð með tillögunni er
vísað sérstaklega til tveggja
skýrslna unnar af Gylfa Isakssyni
verkfræðingi á vegum Hafnasam-
bands sveitarfélaga. Mikinn fróð-
leik og upplýsingar er þar að
finna um afkomu hafnarsjóða
undanfarin 2 ár. Er jafnframt
bent á i gr.gerð að þannig liggi nú
þegar fyrir miklar og trúverðugar
upplýsingar, sem flýtt gætu
athugun þeirri, er tillagan fer
fram á og um leið ákvörðun af
hálfu ríkisvaldsins um ákveðnar
aðgerðir í þessum málum.
Afkoman
nokkuð misjöfn
Það kemur fram m.a. i þessum
skýrslum og þá einkum i hinni
seinni þeirra, er unnin var í lok
síðasta árs, að hækkun á hlutdeild
ríkisins i stofnkostnaði hafna úr
40 í 75% ásamt gjaldskrárhækk-
un er tók gildi á fyrra helmingi
ársins 1975 hafa engan veginn
reynzt fullnægjandi til að rétta
við fjárhag hafnarsjóðanna, sem
hefir greinilega farið versnandi
gjaldskrár fyrir þessa þjónustu
alls ekki hafa fylgt almennu verð-
lagi í landinu undanfarin ár, sem
sjá má af því, að gjaldskrár fyrir
hafnsöguþjónustu hækkuðu
ekkert frá 1971—75. yirðist eðli-
legt, að gjaldskrár fyrir ýmsa sér-
þjónustu hafna séu miðaðar við
Sigurlaug Bjarnadóttir.
tölur eiga við um þær 15 hafnir
sem tilteknar eru á fylgiskjali
með tillögunni. Þar kemur einnig
fram, að greiðsluhalli viðkomandi
hafnarsjóða nemur allt að þriðj-
ungi álagðra útsvara sveitarsjóðs.
Ég vil vekja sérstaka athygli á
því að í tölum i fylgiskjalinu yfir
greiðsluafkomu hinna 15 hafna á
árunum 1973 og 75, þá er ekki
reiknaður þar með hluti hafn-
anna í framkvæmdakostnaði,
heldur aðeins rekstrargjöld, vext-
ir og afborganir.
Hér er okkur greinilega mikill
og vaxandi vandi á höndum, sem
nauðsynlegt er að bregðast við
svo skjótt sem auðið er af full-
komnu raunsæi. Þetta er ekkert
einkamál hinna aðþrengdu
sveitarfélaga, sem i dag eru að
sligast undir skuldabyrði hafn-
anna, sem óumdeilanlega eru far-
vegur okkar megin þjóðarverð-
mæta, er öll þjóðin nýtur góðs af.
Með þá staðreynd í huga er
ekki óeðlileg sú hugmynd, sem
fram hefir komið, að ríkið stæði
að fullu undir stofnkostnaði fiski-
hafna en sveitarfélögin sæju um
reksturinn.
Útgerðar- og fiskvinnsluaðstaða
ekki einkamál sveitarfélaganna
frá árinu 1973, er afkoma þeirra
flestra var viðunandi. Hún er þó
allmismunandi eftir höfnum, yfir-
leitt betri hjá hinum stærri kaup-
stöðum, svokölluðum blönduðum
höfnum, sem hafa verulegar
tekjur af vörugjöldum ásamt afla-
gjöldum fiskiskipa. Þó hafa vöru-
gjöldin yfirleitt farið minnkandi,
þar sem vörumagn sem fór um
hafnirnar minnkaði milli áranna
74 og 75. Hjá fiskihöfnunum hins-
vegar, þar sem lítið er um skipa-
komur og vöruflutninga og einnig
— á hinum smærri stöðum —
færri gjaldendur til sveitarfélags-
ins — þar er afkoman sýnu lakari.
Hvað verst staddar eru í dag Bol-
ungarvík, Neskaupstaður, Ólafs-
fjörður, Patreksfjörður, Sand-
gerði, Siglufjörður og Vopna-
fjörður.
Lántökur á
lántökur ofan
Það hefir komið í ljós, að ýmis
þjónusta sem hafnirnar veita er
rekin með miklu tapi og vírðast
það, að tekjur af þeim standi und-
ir útlögðum kostnaði.
Þessi hlið málsins, rekstur
hafnanna skiptir þó engan veginn
sköpum um afkomu þeirra. Það er
fyrst, þegar kemur að fram-
kvæmdahliðinni sem kárna tekur
gamanið. Það er í stuttu máli
algerlega óraunhæft að ætla
hinum smærri fiskihöfnum að
standa, að einum fjórða hluta á
móti ríkinu, undir fjármögnun
framkvæmda upp á tugi og
hundruð milljóna. Lántökur á
lántökur ofan þýða að sjálfsögðu
sívaxandi skuldabyrði, ekki sízt ef
lánin eru vísitölu- eða gengis-
tryggð, og verður viðkomandi
sveitarfélögum fullkomlega of-
viða að ráða við.
Farvegur okkar
megin þjóðarverðmæta
Þegar vaxtagjöld ein nema
orðið 32% af heiidartekjum
hafnarinnar og afborganir af föst-
um lánum 27% má glögglega sjá í
hvert óefni er komið, en þessar
Þarf að breyta
lögum um
Hafnarbótasjóð
Hafnarbótasjóður, sem fjár-
hagslegur bakhjarl hafnarsjóð-
anna, veldur engan veginn lengur
því hlutverki sínu. Það er því í
rauninni næsta gagnslítið að
vitna í bráðabirgðaákvæði gild-
andi laga um sjóðinn sem gerir
ráð fyrir sérstökum ráðstöfunum
til að létta greiðslubyrði þeirra
hafnarsjóða, sem verst eru settir.
Til þess er fjárhagsgeta hans of
takmörkuð með tilliti til hinna
stórauknu verkefna hans.
Samkv. lögum sjóðsins, 20. gr.,
eru tekjur hans: 1) Árlegt fram-
lag rikissjóðs, sem nemur 12% af
framlagi til hafnarmannvirkja og
lendingarbóta á fjárlögum hvers
árs, en þó aldrei lægra en 30 millj.
kr. 2) Tekjur af starfsemi sjóðs-
ins. Þá er sjóðnum, samkv. 21. gr.
laganna, heimilt að taka lán til
starfsemi sinnar, innanlands eða
utan, allt að 350 millj. kr. árlega
og er ríkissjóði heimilt að ábyrgj-
ast þau lán og í dag er aðal fram-
kvæmdatíminn við hafnargerðir
fer í hönd, mun innstæða í honum
nema 150 millj. kr. samkvæmt
upplýsingum frá hafnarmála-
stjóra nú á dögunum. Á fjárlögum
yfirstandandi árs er framlag
rikisins til sjóðsins 82 m. 152 þús.
kr. Augljós nauðsyn er á, að
sjóðnum verði eftir einhverjum
leiðum, væntanlega þá með breyt-
ingum á lögum hans, tryggðar
auknar árvissar tekjur til þess að
hann geti gegnt sínu mikilvæga
hlutverki sómasamlega. Af
erlendum lántökum og skulda-
söfnun við útlönd höfum við
meira en nóg í bili.
Forréttindi
landshafna
I niðurlagi tillögunnar er farið
fram á endurskoðun á lögum um
landshafnir en þær eru nú þrjár á
landinu: Þorlákshöfn, Keflavík
— Njarðvik og Rifshöfn á Snæ-
fellsnesi.
Sérstök lög hafa verið sett um
hverja þessara hafna fyrir sig, en
öllum er þeim það sameiginlegt,
að ríkissjóður stendur að öllu
leyti undir stofnkostnaði hafn-
anna og rekstrinum einnig, svo
lengi sem lögin eru í gildi. Ekki
skal það dregið i efa, segir í
greinargerðinni, að brýna nauð-
syn hafi á sínum tíma borið til, að
ríkissjóður hlypi svo myndarlega
undir bagga með þeim byggðar-
lögum, sem þarna eiga i hlut.
Þannig mun t.d. eldgosið i Heima-
ey hafa aukið verulega á þrýsting
um hafnarbætur í Þorlákshöfn.
Vandséð er, engu að síður,
hvernig réttlæta megi, að þessar
þrjár hafnir, einar allra íslenzkra
hafna, búi um aldur og ævi við
"sslík forréttindi og þá um leið
óhjákvæmilega á kostnað allra
hinna, sem berjast i bökkum og
eru sumar hverjar, eins og ég hef
þegar bent á, bókstaflega að sliga
hlutaðeigandi sveitarfélög.
Ég fæ ekki séð, að það séu hald-
bær rök að benda á, að fram-
kvæmdir við landshafnir séu fjár-
magnaðar af sérstöku erlendu
lánsfé utan fjárlaga. Að sjálf-
sögðu koma þessi erlendu lán inn
sem hluti af því heildar fjármagni
sem við höfum úr að spila til
hinna ýmsu framkvæmda og hætt
er við, að við þurfum að standa
skil á þessum lánum fyrr eða
siðar með innlendu aflafé, sem
hinir nauðstöddu hafnarsjóðir
hefðu fulla þörf fyrir.
Nauðsyn á
endurskoðun
Elztu landshafnarlögin, um Rif
á Snæfellsnesi, eru nú orðin rúm-
lega aldarfjórðungs gömul, lögin
um Keflavik—Njarðvík 20 ára og
um Þorlákshöfn 10 ára. Á fjárlög-
um þessa árs nemur framlag
rikissjóðs til almennra hafna yfir
allt landið 675 millj. kr. að við-
bættum 10 milljónum kr. til ferju-
hryggja. Framlag til landshafn-
anna þriggja ásamt afborgunum
af lánum til þeirra nemur hins-
vegar 600 millj. kr., þar af 375
millj. til Þorlákshafnar einnar, en
þar var unnið á s.l. ári fyrir 700
millj. kr. þ.e. ( einni höfn fyrir
700 millj. kr. á móti tæpum 950
milljónum við allar almennar
hafnir á landinu til samans.
Ég vona — og mælist til þess,
að mér verði ekki lagt það út á
verri veg, sem öfund eða afbrýði í
garð landshafnanna og fólksins,
sem þar býr, þótt ég bendi á hið
augljósa misræmi og mismunun
sem hér á sér stað og ekki er stætt
á að viðhalda öllu lengur, þótt
sérstakar tímabundnar ráðstaf-
anir i þágu þessara hafna geti
hafa verið fullkomlega réttlætan-
legar. Nauðsynlegt er, að hér
komi til endurskoðun á gildandi
lögum um landshafnir með aukið
jafnvægi fyrir augum.
Undirstaða
atvinnulífsins
Ég vænti þess, að þessi tillaga
fái góðar undirtektir og jákvæða
og skjóta afgreiðslu hér á hátt-
virtu Alþingi. Ég veit, að margir
háttvirtir þingmenn, auk okkar
fimm flutningsmanna tillög-
unnar, hafa þungar áhyggjur af
erfiðleikum hafnanna og mér er
einnig kunnugt um, að hæstvirtur
samgönguráðherra, sem þessi mál
heyra undir hefir fullan skilning
og góðan vilja til að bæta þar úr
— og það má ekki dragast.
Engum blandast hugur um —
segir í niðurlagi greinargerðar
með till. að góðar og traustar
hafnir eru ein helzta undirstaðan
undir atvinnulífi okkar Islend-
inga sem fiskveiðiþjóðar. Það
varðar því miklu, að svo vel sé að
þeim búið, sem við framast höfum
efni á hverju sinni.