Morgunblaðið - 14.04.1976, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976
HC 130 Hercules leitarflugvél staðsett á Keflavfkurflugvelli.
A undanförnum árum hafa
mörg slys orðið hér bæði til sjós
og lands, sem fært hafa okkur
heim sanninn um mikilvægi
samræmdra leitar- og björgun-
araðgerða á sjó, landi og í lofti.
Slysavarnafélag íslands hef-
ur séð um að samræma krafta
hjálparsveita, sem ásamt Flug-
stjórn og Landhelgisgæzlu hafa
átt samstarf við 14. deild björg-
unarsveitar ARRWG 39 á
Keflavíkurflugvelli. Skemmst
er að minnast hversu vel tókst
til við hina einstæðu björgun
slasaðra af skipinu Stolt Vista
árið 1974 og var þar rómuð frá-
bær skipulagning Hannesar
Hafstein framkvæmdarstjóra
SVFI.
Vera má að frá sjónarhóli
einhverra hafi bandaríska
björgunarsveitin litla þýðingu
og störf hennar því of til vill
vanmetin. Skýringin kann að
vera sú að í þessari björgunar-
sveit starfa ekki íslendingar og
einnig að hún er staðsett á
Keflavíkurflugvelli.
Nýlega gafs^ mér tækifæri til
að kynnast lítillega nokkrum
mönnum úr þessari sveit. Sá ég
þá að e.t.v. væri þörf á að kynna
starf þessara manna. Fyrst og
fremst er mikilvægt að vita á
hvern hátt aðstoð þessarar
sveitar getur komið Islending-
um að sem bestum notum við
björgun mannslífa og einnig er
svo mjög fróðlegt að kynnast
nýjungum í björgunartækni
sem sveitin hefur yfir að ráða.
Öhætt mun að fullyrða að síð-
an sveit þessi tók til starfa árið
1971, hafi hún bjargað lifi 12
Islendinga, séð um flutning á
yfir 1500 manns og rösklega
1000 tonnum af varningi. Mestu
flutningarnir áttu sér stað
vegna gossins í Vestmannaeyj-
um. Á árinu 1972 voru yfir 20
Islendingar fluttir í sjúkraflugi
með þyrlum björgunarsveitar-
innar, auk útlendinga.
Starfsemi og skipulag
Björgunarsveitin, sem er að-
skilin og óháð störfum flughers
og flota, er skipuð 49 mönnum,
flugmönnum, vélamönnum,
siglingafræðingum og sérþjálf-
uðum fallhlffarstökkvurum.
Sveitin hefur til umráða 3
Sikorsky HH3E þyrlur og eina
HC 130 leitarflugvél af gerð-
inni Hercules.
Sé um umfangsmikla leit eða
björgun að ræða, er Hercules
leitarflugvélin send tíl leitar á
fyrirfram afmörkuðu svæði til
að staðsetja þá sem á hjálp
þurfa að halda. Vélin getur
sjaldnast lent á staðnum, en
hægt er að senda niður hjálpar-
tæki og fallhlífarstökkvara
bæði á sjó og land. Björgun og
flutningur slasaðra fer fram
með þyrlutn, en þær njóta að-
stoðar Hercules vélarinnar sem
stöðugt er á flúgi yfir staðnum
ti'I leiðbeiningar. Einnig geta
þyrlurnar tekið eldsneyti á
flugi, frá Hercules vélinni. Há-
marksflugþol Hercules vélanna
er u.þ.b. 16 klst. miðað við 550
km flughraða á klukkustund. I
vegalengd jafngildir það flugi 8
sinnum umhverfis Ísland. Vél-
ar þessar eru til taks með
30—45 mín. fyrirvara að degi
til en 90 mín. fyrirvara að
nóttu. Hver áhöfn er 8 manns.
Björgun á sjó
Fyrir sjómenn sem hugsan-
legt er að þyrftu á aðstoð þess-
arar sveitar að halda er fróðlegt
og jafnvel nauðsynlegt að vita
hverskonar hjálp þeir mega bú-
ast við og hvernig hægt er að
auðvelda björgunina.
Þegar hjálparbeiðni eða vitn-
eskja um neyðarástand skip-
verja hefur borist Slysavarna-
félaginu, og ef ákveðið er að
leita aðstoðar 14. björgunar-
sveitarinnar er þyrla, og eða
Hereules vél send til Ieitar og
björgunar. Þær radíótíðnir sem
hægt er að nota til að miða út
sendistöð og sem stöðugt hafð-
ur hlustvörður á eru: 2182 kHz,
121.5 MHz og 243 MHz. Einnig
er hægt að nota aðrar tíðnir ef
um þær er vitað fyrirfram.
Hærri tíðnirnar tvær eru oftast
nokkru betri. Stöðug sending á
breytilegum tón (tvítón) er
auðkennandi fyrir neyðarkall.
Þegar Hercules vélin er kom-
in í fulla hæð getur hún sam-
stundis ákveðið staðsetningu
neyðarkalls ef hún er innan
sviðs sendisins, en sé sendirinn
langt í burtu næst miðun þegar
nær dregur. Áríðandi er að
sendingu neyðarkalls sé haldið
áfram eins lengi og hægt er,
helst stöðugt.
Þegar réttur staður er fund-
inn gerir Hercules vélin ákveð-
ið aðflug sem tryggir bestan
Fallhlffarstökkvari bfður færis
á að stökkva niður til aðstoðar.
árangur. Meðfylgjandi skýring-
armynd sýnir hvernig flugvélin
kemur fyrst yfir þannig að
stefnt er móti vindi. Þá er skot-
ið út merkiblysi og tekin vinstri
beygja þar til vindur er á
vinstri hlið vélarinnar. Síðan er
flogið í ákveðinn tíma frá
merkiblysinu (eftir hraða vél-
arinnar) og öðru merkiblysi
skotið niður. Þarnæst er flogið í
heilan hring og vistum kastað
niður þannig að línan sem teng-
ir saman pakkana nái sem næst
milli merkiblysanna. Fjarlægð-
in er um 130 metrar. Bjðrgun-
arbátarnir eru 7 manna hvor og
blásast út um leið og þeir lenda
i sjónum. Síðan rekur þá fyrir
vindi þar til hinir nauðstöddu
geta náð línunni. Ef erfitt er að
ákvarða rek, eru gúmbátarnir
ekki látnir blásast upp og þeim
kastað hlémegin þannig að rek
þeirra verði sem minnst. Þann-
ig getur að vísu tekið lengri
tíma að ná línunni. Að nóttu til
er staðurinn lýstur upp með
mjög sterkum hvítum eða bleik-
um svifblysum sem gefa frá sér
birtu svipaða og dagsbirtu.
Næst bíður áhöfn Hercules
vélarinnar eftir að ná sambandi
gegnum talstöðina sem kastað
var niður í vistapakkanum, og
þá tekin ákvörðun um læknis-
og þyrluaðstoð. Fallhlífar-
stökkvararnir eru þjálfaðir
læknar og kafarar sem fara til
aðstoðar ef þörf krefur, en þyrl-
urnar eru sjaldan langt undan.
Eftirá að hyggja
Skjót björgun er undir þvi
komin að hægt sé að miða út
radíósendi á þeim stað sem
björgunar er þörf, annars verð-
ur öll leit og aðstoð mun erfið-
ari. Leit án hjálpar radíósendis
er framkvæmd þannig að flogið
er eftir ákveðnu kerfi yfir stórt
svæði og byrjað þar sem líkurn-
ar eru mestar miðað við vinda
og straum. Um borð í Hercules
vélinni eru þá menn settir á
vakt við sérstaka glugga sem
mjög gott er að sjá út um. Þetta
er mjög þreytandi og oft þarf
að skipta um vakt í hverri flug-
ferð. Ef eitthvað sést, er skotið
út blysi til að merkja staðinn og
síðan er snúið vió og það athug-
að nánar. Glámpi af spegli eða
bjarmi af blysi er nánast það
eina sem hinir nauðstöddu geta
verið vissir um að sjáist og
þekkist frá allskonar belgjum
og fljótandi rusli. Lítið sendi-
tæki á hárri tíðni (VHF-UHF)
kemst í vasa og er býsna góð
líftrygging þegar í nauðirnar
rekur. Einnig er merkjaspegili
mjög góður og sést glampi af
honum langt að.
Framhaldsgrein
t næstu viku verður birt
framhaldsgrein um starfsemi
ARRWG björgunarsveitarinnar
og lýst æfingarferð með einni
þyrlunni.
Sjúklingur hffður um borA.
Sjúkraflug skipulagt hjá 14. björgunarsveitinni.
Sikorsky HH3E þyrla hefur sig til flugs á Keflavfkurflugvelli.