Morgunblaðið - 14.04.1976, Side 14

Morgunblaðið - 14.04.1976, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRtL 1976 Karl Eiríksson: Valdimar, Páll og Krafla RETT ER það sem segir í athuga- semd Páls Lúðvikssonar og Valdi- mars K. Jónssonar í svargrein laugard. 10. apríl sl., að á um- ræddum fundi sem byrjaði kl. 8.00 árdegis þ. 28. nóv. 1974 og stóð fram undir hádegi, urðu mannaskipti um kl. 10.00, þegar Sigurður Thoroddsen og Valdi- mar K. Jónsson hurfu af fundi en Páll Lúðvíksson og Karl Ragnars komu til fundarins. Því er vel hægt að sætta sig við að kalla þetta tvo fundi, ef það er talið skipta nokkru máli. Sömu- leiðis má segja það ónákvæmni hjá mér að geta þess ekki að Sig- urður Thoroddsen hafi setið fundinn (fyrri fundinn, ef menn vilja hafa það svo), en ástæðan fyrir því að ég lét nafns hans ekki getið er sú, að hann tók skýrt fram þegar hann mætti að hann kæmi til að kynna próf. Valdimar, sem væri sérfræðingur Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen í gufuhverflum. Sjálfur kvaðst hann ekki hafa kynnt sér þau mál, og tók þvi ekki þátt í umræð- um sem áttu sér stað á fundinum. En þá kemur að því, af hverju þessi fundur (þessir fundir) var haldinn og hvað var verið að ræða um. Ekkert lá fyrir fundinum annað en eitt tilboð dags. 16.7. 1974, sem hafði verið sent Karli Ragnars hjá Orkustofnun, nokkrum mánuðum áður en þýzku verkfræðingarnir lögðu fram teikningar og gáfu við- stöddum skýringar á þeim. Vélar þær, sem um var að ræða, voru einmitt 15—16 MW, miðað við mótþrýsti rekstur (án eim- svala), en með breytingum á hverfli var hægt að auka afköst vélanna upp i 28 MW þegar orku- þörf hefði aukist á Norðurlandi og byggingu eimsvala væri lokið. Tilboð þetta var miðað við orku- spá sem þá hafði verið gerð fyrir Norðurland skv. útreikningum Landsvirkjunar og Laxárvirkjun- ar. Þegar tilboð þetta var unnið skv. beiðni Bræðranna Ormsson h.f., datt okkur ekki í hug að nýskipuð Kröflunefnd mundi ekki vinna samkvæmt viðteknum venjum orkuframleiðenda um all- an heim, þar sem hagkvæmnis útreikningar og orkuspár eru lagðar til grundvallar ákvörðun- artöku um stærð orkuvera og tímasetningu byggingaráfanga. Það er einnig rétt hjá Valdimar, að aldrei var beðið um tilboð í 16 MW vélar, en spurningin er hvort nokkurntíma hafi verið beðið um tilboð í vélar yfirleitt fyrir Kröfiuvirkjun, því i bréfi dags. 2. des. 1974 frá Rogers Engineering Co., Inc., segir orðrétt: ,,As it is not possible to prepare detailed specifications and obtain competitive bids by January 15, 1975, we are asking for a response of interest. The „Krafla Project Executive Committee", a commit- tee founded and organized by the Goverment of Iceland, intends to select a firm from this solicitation with which they will enter into a negotiation with the intent of committing this equipment for purchase by the end of February 1975“. I framhaldi af þessu finnst mér nauðsynlegt að draga fram í dags- ljósið, hvernig þessi ákvarðana- taka átti sér stað, hver ákvað stærð byggingaráfanga og hvernig Kröflunefnd hélst uppi að ráðstafa fjármunum þjóðarinn- ar á þann hátt sem nú liggur fyrir. Orkumálaráðherra segir á Al- þingi, föstud. 9. apríl sl., að seinni hluti Kröfluvirkjunar verði full- nýttur á árunum 1980—1982, en samt er búið að festa kaup á öll- um vélum til beggja byggingar- áfanga nú þegar. Hvað nema vextir og afborganir af vélasamstæðu II, á meðar. þær standa ónýttar? Að lokum vil ég segja það rétt- lætiskröfu, að rikisstjórnin skipi nú þegar nefnd hlutlausra aðila til að rannsaka störf Kröflunefnd- ar, vinnubrögð þeirra við útboðs- lýsingar, tima þann sem bjóð- endur fengu til að reikna út tilboð og yfirleitt þær fjölda mörgu ásakanir sem bornar hafa verið fram, bæði á þingi og i fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. ÞÁTTURINN hafði samband við tíðindamann sinn á Akureyri,Frí- mann Frímannsson,, og spurði hann um undirbúning fyrir ís- landsmótið sem hefst þar nyrðra í dag. Sagði hann að loks væri lang- þráður draumur norðlenzkra spil- ara að rætast, þ.e. að hluti ís- landsmótsins væri ekki allur spil- aður i Reykjavík. Þá gat hann þess að undijbúningur hefði gengið mjög vel og hefðu akur- eyrskir spilarar búið sig vel undir átökin. Ein breyting verður á sveitum sem skráðar höfðu verið að norðan. Sveit Sigurðar Hafliða- sonar frá Siglufirði spilar ekki — en i stað hennar kemur sveit Júli- usar Thorarensen — ungir og efnilegir spilarar. Hin norður- landssveitin er sveit Alfreðs Páls- sonar, sem hefir verið mjög sigur- sæl undanfarin ár. FRA BRIDGEFELAGI SUÐURNESJA Tíu sveitir taka þátt í Meistara- móti Suðurnesja og er fjórum um- ferðum af níu lokið. Úrslit 4. umferðar: Sveit: Jóhannesar vann Sigurðar 20—3 Gests R. vann Erlings 20—0 Guðmundar vann GunnarsG. 20—0 Gests A. vann Marons 16—4 Gunnars S. vann Öskars 12—8 Staðan er nú þessi: Sveit: Guðmundar Ingólfssonar 73 Jóhannesar Sigurðssonar 63 Gunnars Guðbjörnssonar 51 Gunnars Sigurgeirssonar 45 Næsta umferð verður spiluð á morgun. liM BANKASTRÆTi 9 — SIMI 1-18-1 1 (Œrtcurmarkadtir ct A'oréur oo /?usiurlanctt A'atzðsunlet? i't/bóiarra/orha Z7/öoetZeo /rarmZeibtZtz Zcró/zu /VorburZanci - /ZusiítrZaneZ - SarmZ Yal Z YaZ 2L YaZ T/T /975 23 Gvvs/ O Gtvj/. 23 G*vsi. /976 Y3 .. Y3 " YY 5wsl. /977 65 /3 79 - 2/0 Gu's/. /29 - //O Gntj/. /973 33 26 S/Y - Y20 - /29 ’ //O " /979 //9 39 /53 - YZO - 232 - 200 * /930 SY9 ~ SS 2oY - YZO - 2 32 - 200 ~ £7r/x zt/ör/ sr sarmZct•*. a’ar/Zztn /arreZsrir/fjunar oy er ZeAtá ZiZZiZ ft'Z ftvjTiifttnctr. KzZ Z <rr sarm Xt'ayrm 7 rzzrrera ncFr aeefZarn Á/rö/Zune/ntJar /27Z II - " jhuprmyndurm Zaxátrtyunar yaZ JtL - - jZi/Zogu ,@r. (Orrmjjorx A./. 7~ ~Ttl7aya /Cró/Zune/neZar yer/r rá%/yrer -ZO rrrrrr a/zi 7raztsZtt> /976 oy -JO rmw. /977, IzZ yzáSoZar. // TrZZaya /axatvirZyzznnryerir rab/yrzc S-6 rmyy.a/Zi TraujZz^ /975 oy /6 rrrzyy /976 oy JraeZrzrun z JS-30 rrrryy /97/?. /// TiZZaya Sr. f&rrmsjon Zz./. yerir erczci rað/yrzr iraðaizryötz - yzr/c/un z'ar. V ar ð að hætta við páskanámskeiðið — ÞVI MIÐUR varð þátttakan f páskanámskeiðinu svo lftil að við Rosmarie Þorleifsdóttir. urðum að hætta við það, sagði Rosmarie Þorleifsdóttir f Vestra- Geldingaholti, en sem kunnugt er rekur hún hestaskóla þar yfir sumartfmann. Fyrsta námskeið þessa árs átti að hefjast um pásk- ana, en af fyrrgreindum ástæðum varð að fresta þvf. Rosmarie sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að sex al- menn námskeið yrðu haldin í sumar. Það fyrsta hæfist 26. maí n.k. fyrstu þrjú námskeiðin stæðu f 12 daga hvert. Þessum nám- skeiðum lyki í júnilok. Síðan verða þrjú almenn námskeið haldin f ágúst. Þá sagði Rosmarie að í júlímánuði yrðu haldin nám- skeið fyrir útlendinga og svokall- að kvennanámskeið væri reyndar bæði fyrir konur og karla. Á það námskeið kemur fólk með eigin hesta með sér og lærir að fara betur með þá og reynt er að fá fram betri gang í þeim. Þegar útlendingarnir eru er einkum lögð áherzla á tölt. „Efnahagslegt einkastríð austfirðinga og breta” A FUNDI f bæjarstjórn Seyðis- fjarðar 5. aprfl s.l. var tekin fyrir og samþykkt eftirfarandi tillaga bæjarráðs: Bæjarstjórn Seyðisfjarðar vill benda háttvirtri ríkisstjórn á að sfðan landhelgi fslendinga var færð út f 200 mílur hafa Aust- fjarðamið verið með öllu lokuð fyrir togskipufn austfirðinga. Undanfarin ár hafa austfjarða- skipin að langmestu leyti veitt á þessum hefðbundnu miðum en nú Sýningunni á verkum r Asgríms að ljúka MINNINGARSVNINGIN á verkum Asgríms Jónssonar á Kjarvalsstöðum er aðeins opin f 4 daga ennþá, og verður ekki framlengd. Sfðasti sýningar- dagur er 2. páskadagur. A föstudaginn langa og páskadag er lokað á Kjarvalsstöðum. Um 19 þúsund gestir hafa skoða sýninguna, og meðal þeirra mikill fjöldi skólafólks, bæði úr horginni og utan hennar. A skfrdag og 2. páskadag er opið frá kl. 2—10, en aðra daga frá kl. 4—10. Aðgangur og skrá er ókeypis. er svo komið að útgerð verður vart rekin frá Austurlandi ef sækja þarf allan afla á fjarlæg mið öllu lengur. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar krefst þess að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til þess að gera togskipum þessum fært að stunda veiðar á heimamiðum ella verði þeim aðiljum þ.e. útgerðarfyrir- tækjum og sveitarfélögum sem ástand þetta bitnar harðast á, bætt það fjárhagslega tjón sem af þessum aðstæðum hlýst. Að óbreyttu ástandi má líta svo á að landhelgisdeila íslendinga og breta færist óðum í það horf að vera efnahagslegt einkastríð aust- firðinga og breta. Jafnframt mótmælir bæjar- stjórn harðlega nýlegri opnun veiðisvæðis við Berufjarðaráls- horn, sem að dómi austfirskra skipstjórnarmanna ætti að vera lokað allt árið vegna þess ung- fisks sem þar heldur sig, enda hafa bæði útgerðarmenn og sjó- menn margoft lagt til við fisk- veiðilaganefnd og ábyrgar stofn- anir að umræddu svæði skuli lok- að. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frétt í blaðinu á þriðjudag, að maðurinn, sem féll í Reykjavíkurhöfn og drukkn- aði, var nefndur Ingi Rafn Guð- mundsson en hans rétta nafn er Rafn Ingi Guðmundsson. Eru að- standendur beðnir velvirðingar á mistökunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.