Morgunblaðið - 14.04.1976, Síða 17

Morgunblaðið - 14.04.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976 17 Merkir listviðburðir Hans Richter: Menningarstofnun Bandaríkjanna Textilgruppen: Norræna húsið UM ÞESSAR mundir standa yf- ir tvær stórsýningar, sem eng- inn sá er venur komur sínar á listsýningar má láta fram hjá sér fara. Hin fyrri þeirra er sýning á verkum eins af frumkvöölum Dada-hreyfingarinnar, Hans Richters er lézt 1. febrúar sl. 87 ára að aldri, og mun þetta í fyrsta skipti sem verk hans eru sýnd á Norðurlöndum og hafa jafnvel sum verkanna á sýning- unni aldrei verið sýnd áður. Þótt sýningin sé ekki viða- mikír og verkin ekki nema 19 að töiu er hér um stórmerkan list- viðburð að ræða því að hér eru sýnd vinnubrögð, sem um margt mörkuðu þáttaskil um framvindu myndlista á öldinni þótt að fleiri legðu hönd á plóg- inn. Þá ber sérstaklega að benda á að einnig eru til sýnis á sýningunni (en því miður und- ir glerskáp), bækur sem Richt- er skrifaði, átti þátt að, eða hannaði fyrir aðra, og var hér einnig um byltingu að ræða í útlitshönnun bóka, sem bóka- markaðurinn nýtur ríkulega enn þann dag í dag og hefur um fátt framast. Framúrstefnu- listamenn dagsins eru enn í dag að keppast við að vinna á þeim grunni, sem hér má lita í upp- runa sínum, og það gefur auga leið um mikilvægi þessarar list- hreyfingar hvað allar tegundir lista áhrærir. Myndir Richters eru ein- staklega vel unnar, litir hljómþýðir og djúpir, áferð ein- föld og yfirveguð, og fátt um endurtekningar. Slíkar myndir láta ekki mikið yfir sér, en verða að hreinum perlum er fram líður og auðga skoðand- ann sífellt með sinni hljóðlátu og tæru fegurð. Richter hafði einnig, likt og fleiri Dadaistar, orðið fyrir áhrifum af fútúristunum og til- raunum þeirra með optíska hreyfingu á myndfletinum, og hann gerir tilraunir með hljóm- ræna hreyfingarstígandi og fær ásamt svianum Viking Egger- ling fyrstu hugmyndir að fyrstu abstraktkvikmyndum. Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Hér skal getið, að tvær af kvikmyndum hans verða sýnd- ar meðan á sýningunni stendur, m.a. hin annálaða súrrealist- íska mynd, sem hann gerði í New York árið 1944 í samvinnu við þá Max Ernst, Marchel Duchamp, Man Ray, Fernand Léger og Alexander Calder, og með hljómlist eftir Darius Mil- haud, John Gage og David Dia- mond. Myndin nefnist á frum- málinu „Dreams That Money Can Buy“. Því miður gat ég ekki vegna forfalla séð þessar myndir og fæ þvi ekki lýst þeim, en óhætt mun að hvetja sem flesta til að sjá þær og auka þar með skilning sinn á eðli kvikmyndalistarinnar. Það er von mín, að sýningin verði framlengd, og að kvik- myndirnar verði endursýndar, þvi að hér er um slíkan listvið- burð að ræða sem sjaldan rekur á fjörur okkar Islendinga. Þess skal get, að Frank Ponzi listfræðingur sem búsettur er hérlendis, svo sem mörgum mun kunnugt, og giftur er Guð- rúnu Tómasdóttur söngkonu, mun eiga mikinn þátt í því, að af sýningu þessari varð, og hann á sjálfur ýmsar þeirra mynda sem til sýnis eru. Ber honum miklar þakkir fyrir, og um leið vil ég benda á, að innan skamms mun birtast grein eftir hann I Lesbók, þar sem hann mun fjalla um þennan lista- mann og góðvin sinn. Eini gall- in á sýningunni er sá, að sýn- ingarskrá er á ensku, svo sem verið hefur á fyrri sýningum, og vil ég hvetja upplýsinga- þjónustuna til að rita skrárnar á íslenzku I framtíðinni, og mætti þá enski textinn gjarnan fylgja með. Myndi það gera hina merku listviðburði, sem upplýsingaþjónustan stendur að og væntanlega mun halda áfram að bjóða upp á, til muna merkari en ella með því að boð- skapurinn næði þá til fleiri. Sýningin Textilgruppen frá Stokkhólmi í sýningarsölum Norræna hússins er öllu stærri I sniðum en Richtersýningin og gjörólik henni. Þó er dálítið skemmtilegt að bera þær aðeins saman, með þvi að Richter er hugmyndasmiður innan frum- myndlistar, en hönnuðir eru aftur á móti þiggjendurnir, sem forma hinar gefnu hugmyndir I margvisleg efni og með marg- vislegri tækni til að notast við I auglýsingaiðnaðinum, leik- myndagerðinni, byggingarlist- inni o.s.frv. Þó geta slikir (hönnuðir, húsagerðalistamenn) í sumum tilvikum einnig verið gildir hugmyndasmiðir, en flestir byggja þó á þeim grunni er hugmyndasmiðir hreinmynd- listarinnar hafa uppgötvað i rás tímans. Myndlistarmenn hafa oftlega verið fengnir til að vinna fyrir iðnfyrirtæki, og svo er enn, þótt nú hafi ný stétt komið fram er hlýtur menntun sina á listaskólum, — stétt sér- hæfðra listhönnuða hinna margvíslegustu listgreina. Þegar fólk I dag sér nýmyndlist segir það e.t.v. að það minni á gluggatjöld, dúka, eða ein- hverja tegund veggfóðurs, en það er einmitt andhverfan, sem hver og einn getur sannfærst um með athugun á þróun sjón- lista. — Þetta innskot er á engan hátt sett fram til að rýra hlut hönnuða né gera minna úr sýningu vefnaðarhönnuðanna í Norræna húsinu, heldur er það nauðsynlegt innlegg til réttrar viðmiðunar, og ég vil hér enn einu sinni benda á, að alls staðar eru gerð greinileg skil á listiðnaði og hreinni myndlist, samanber hin mörgu list- iðnaðarsöfn um heim allan. Það er sannarlega ferskur og óvenjulegur blær yfir sölum Norræna hússins þessa dagana og jafnframt skemmtileg til- breyting frá undangengnum málverkasýningum. Salirnir Hvorki hönd né fótur. eru bókstaflega talað samfellt litskrúð fjölbreytilegra dúka og vefja. Sýningin er þó mjög misjöfn, margt flokkast hreinlega skreytilist, er frekar veggfóður, sem selst i metratali en listræn tjáning. Svo eru aðrar myndir, sem blómstra I margvíslegri tjáningarríkri áferð efnisins ásamt tilfinningu fyrir list- rænni hrynjandi (Kajsa af Pettersen), auðugu táknmáli strúktúrs, áferðar og efnis svo sem ástarparið í mynd Ullu Grytt, („Pá vára axlar“), eða austurlenzk dulúð í lit svo sem hjá Karin Kronvall („Djonk i landskab,,). Hér svífa líka ernir um sviðið (Margareta Röstin), hlébarðar skjótast fram (Tania Alyhr) fólk hreiðrar um sig undir vatnssæng í baðkeri (Petra Westermark). Ennfrem- ur vil ég nefna myndir svo sem „Flickan som drak vin“ (Kristina Laurent) og „Min skugga" (Ulla Lundgren). Fleiri nöfn mætti gjarnan telja upp, en mikilvægast er þó að benda á hve vefjarlist af öllu tagi er hentug til að lyfta upp tómlegu umhverfi, svo sem best kemur fram í ágætum list- skyggnum, þar sem tæknin er einnig kynnt, sem ég eindregið bendi sýningargestum á að skoða vel, og gefa sér til þess góðan tima. Þessi sýning færir einnig áþreifanlega heim sanninn um mikilvægi samtakamáttar, að hver og einn bauki ekki i sinu horni, heldur vinni menn í hæfilega afmörkuðum hópum, setji sameiginlega upp verk- stæði og vinni hlið við hlið að lausn hinna ýmsu vandamála, kryfji þau vandlega og stilli síðan út til sýnis almenningi. Þessi aðflutta sýning er vissu- lega mikill aufúsugestur hér, og lærdómsrík fyrir hinar mörgu konur er lagt hafa út á þessa braut á undanförnum ár- um, jafnframt því sem hún mætti auka skilning á hugtak- inu „Textil" meðal almennings.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.