Morgunblaðið - 14.04.1976, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976
HÓT4L /A<iA
LÆKJARHVAMMUR/
ÁTTHAGASALUR
Opið í kvöld
dansað til kl. 1.
Hljómsveitin Lúdó og Stefán
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ALdl-YSINGA-
SÍ.MINN FK:
22480
líDróttlrl
Göngukeppninni
frestað
ÞAÐ blés ekki byrlega í Akureyri i
gær, en þar itti þé að hefjast
Skiðalandsmót íslands með
keppni I 10 kilómetra göngu
17—19 ára og I 15 km göngu 20
ára og eldri. Komið var hið versta
veður á Akureyri I gærmorgun, og
var þvi keppninni frestað. Mótið
var hins vegar formlega sett af
Hermanni Sigtryggssyni móts-
stjóra. Ekki var búið að ákveða i
gær hvort keppt yrði i göngunni f
dag, ef veður leyfði. eða hvort
stókkkeppnin færi þá fram. eins
og ákveðið hafði verið á dagskrá
mótsins.
Víkingur vann
Ármann 5-0
VÍKINGUM reyndist ekki erfitt að
krækja sér i þrjú stig i leik sinum
við Ármenninga i Reykjavikurmót-
inu i knattspyrnu sem fram fór á
Melavellinum i fyrrakvöld. Urðu
úrslit leiksins 5—0. eftir að
staðan hafði verið 4—0 i hálfleik.
Mörk Víkings i leiknum skoruðu
Stefán Halldórsson, Bergþór
Jónasson, Lárus Jónsson,
Jóhannes Bárðarson og Eirikur
Þorsteinsson. I leiknum var dæmd
vitaspyma á Ármann og tók Diðrik
Ólafsson, markvörður Vikinganna,
hana, en spyrnti i stöng, og þaðan
hrökk knötturinn út á völlinn.
Staðan i Reykjavikurmótinu i
knattspyrnu, að þessum leik lokn-
um er þessi:
Fram 2 2 0 0 6:0 5
Vikingur 2 1 1 0 5:0 4
Valur 2 1 0 1 4:1 3
Þróttur 2 1 0 1 1:4 2
KR 2 0 1 1 0:2 1
Ármann 2 0 0 2 0:9 0
Skíðamót
Innanfélagsmót Vikings i skiða-
iþróttum verður haldið dagana
15.—19. april n.k. Keppt verður
bæði i svigi og stórsvigi i öllum
aldursflokkum. Innritun og upp-
lýsingar verða veittar I simum
23269 og 82409 fyrir miðviku
dagskvötd, eða I skiðaskála félags-
ins i Sleggjubeinsskarði, þar sem
mótið mun fara fram. Þeir sem
hafa hug á þvi að dvelja i skiðe-
skála félagsins um páskana til-
kynni sig í áðurnefnd simanúmer.
Dregið í
riðla á OL
Dregið hefur verið um það
hvernig þær þjóðir sem komust I
lokakeppnina i handknattleik á
Olympiuleikunum i Montreal i
sumar eiga að leika þar saman.
Verður keppt i tveimur riðlum og
leika siðan liðin sem sigra i þeim
til úrslita. i A-riðli leika Vestur-
Þýzkaland. Júgóslavia, Sovétrik-
in, Danmörk, Japan og Kanada og
i B-riðli leika Rúmenia. Pólland.
Tékkóslóvakia. Ungverjaland,
Bandarikin og það lið sem sigrar í
undankeppninni i Afríku.
100 mörk í vetur
Lincoln City sem leikur i 4. deild
i ensku knattspyrnunni varð fyrst
liða I 9 ár til þess að skora yfir
100 mörk i deildarkeppninni, en
liðið náði þessu takmarki með þvi
að sigra Stockport 3:0 i leik lið-
anna i fyrrakvöld. Lincoln hefur
þegar tryggt sér rétt til þess að
leika i 3. deild að ári. Er þetta i
annað sinn sem liðið skorar yfir
100 mörk á einu keppnistimabili,
þar sem það gerði 121 mark I 4.
deildar keppninni árið 1952, en
næst þessu koma 103 mörk sem
Queens Park Rangers skoraði
1967. Úrslit leikja I Englandi i
fyrrakvöld urðu þessi:
2. DEILD
Southampton — Charlton 3:2
3. DEILD:
Bury—Colchester 0:0
4. DEILD:
Stockport—Lincoln 0:3
S Vö LU KVÖL D
SÚLNASAL, HÓTEL SÖGU MIÐVIKUDAG 14. APRÍL
Franskur
veizlumatur
Gigot d'Agneau a'la
Dauphinoise
Franski matreiðslusnill-
ingurinn
Francois Fons stjórnar
matseldinni.
Verð aðeins 1 500 kr.
☆
Húsið opnað kl. 19.
Skemmtunin hefst stundvíslega og borðum ekki haldið
eftirkl 19 30
☆
Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni miðvikudag frá kl 1 6 í
síma 20221
Svölurnar sýna flugfreyjubúninga frá byrjun farþega-
flugs á íslandi
TÍZKUSÝNING:
KL. 21.30.
sýnd verða föt frá Tizkuverzluninni Evu og Herragarðin-
um, Aðalstræti 9
☆
Málverkahappdrætti fjöldi glæsi-
legra vinninga.
☆
Kynnir. Jón Asgeirsson.
Allur ágóði rennur til styrktar þroskaheftum.
Allir velkomnir.
☆
Svölurnar félag núverandi og fyrrverandi
andi flugfreyja.