Morgunblaðið - 28.04.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1976
,Vantar sérfræðinga
til að ráðleggja
okkur hvað gera skal”
— segir Sigurður í Skogum
„ÞAÐ hefur mikið sjatnað i
Skógakílnum og nú bíðum við
bara eftir sérfræðingum hingað
til að ráðleggja okkur um það
hvað gera skal,“ sagði Sigurður
Björnsson f Skógum I Öxarfirði,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann (gær.
Sigurður sagði að ekki hefði
Böðunarmálið:
Sendinefnd
fer suður
NIÐURSTAÐA hins langa fundar
um böðunarmálið á Blönduósi,
sem haldinn var í fyrrakvöld,
varð sú að senda nefnd manna til
Reykjavíkur. Voru þrír menn
valdir til fararinnar og munu þeir
ræða við yfirvöld um það með
hverjum hætti verði komið við
böðun á fé Björns bónda Páls-
sonar á Löngumýri. Atti nefndin
að fara suður í dag.
15 daga gæzluvarðhald
EINS og fram kom í Mbl. á sunnu-
daginn, hafði 14 ára stúlka kært
nauðgun til rannsóknarlögregl-
unnar daginn áður. Síðdegis á
laugardag var tvítugur piltur
handtekinn vegna þessa máls og
var hann síðan úrskurðaður í allt
að 15 daga gæzluvarðhaid. Mál
þetta er enn í rannsókn.
Sherlock
Holmes mæt-
ir til leiks
GLÆNÝ myndasaga um
Sherloek Holmes og ævintýri
hans hefst í blaðinu í dag.
Fyrsta sagan um þennan
frægasta leynilögreglumann
bókmenntanna er heldur ekki
af lakari endanum: Það er
sem sagt sagan um
Baskerville-hundinn. Við
hleypum henni af stokkunum
með ríflegum skammti á bls.
23 í dag, en síðan verður henni
fram haldið á myndasögusíð-
unni.
verið beðið formlega um sérfræð-
inga norður, en nauðsynlegt væri
að fá þangað vatnafræðing eða
annan slíkan. Nauðsynlegt væri
að gera einhverjar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir að tjón hlytist
af þegar vatn rynni úr Jökulsá í
Skógakflinn í flóðum og helzt
þyrfti að gera þetta áður en næsta
flóð kæmi. Sauðburður væri
framundan og því mikið í húfi.
Sem fyrr segir hefur mjög
sjatnað í kílnum og er orðið gengt
í fjárhúsin að Skógum og fé er
þar geymt. Hins vegar sagði Sig-
urður að flóðið á dögunum hefði
valdið miklum spjöllum í kring-
um útihúsin og væri þar eins um-
horfs og í eldgíg.
Brezkaútgerðin
við Island:
Rýr afli
og botn-
laust tap
TOGARARNIR tveir, sem Jón
Olgeirsson sagði í Mbl. í gær
að væru væntanlegir til lönd-
unar í Hull f gær, hvor með 40
tonn, seldu fyrir 12 til 13 þús-
und sterlingspund hvor. Þýðir
það að tap á útgerð þessara
togara er önnur eins upphæð,
þar sem veiðiferð togara sem
þessara kostar um 25 þúsund
pund. Hver dagur kostar 1.200
pund og skipin hafa verið um 3
vikur f veiðiferð.
Samkvæmt upplýsingum úr
brezku blaði, er búizt við því
að tap brezkrar togaraútgerðar
á þessu ári verði um 5,5
milljónir sterlingspunda, en
það er rúmlega 1,8 milljarðar
íslenzkra króna. Hefur brezki
fiskiðnaðurinn reynt að fá
fjárhagsaðstoð og höfðað til
ríkisvaldsins um aðstoð tneð
því að benda á aukið atvinnu-
leysi samfara tapútgerðinni og
því að útgerðarmenn gæfust
upp.
Jón Olgeirsson sagði i gær,
að Ross Revenge, sem er gamli
Freyr, hefði i gær selt i
Grimsby 140 tonn, sem
togarinn fékk í Hvíta hafinu.
Seldi togarinn fyrir 42 þúsund
pund. Á morgun eru væntan-
legir til löndunar af Islands-
miðum Aldershot með aðeins
45 tonn og einnig eru væntan-
legir Ross Ramillies og
Northern Gift með 75 tonn
hvor. Eru þeir einnig að koma
Framhald á bls. 18
Saga úr banka:
Sýndu yfir-
litið og
fengu hefti
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hafði í sfðustu viku upp á tveimur
ungum piltum, sem höfðu
stundað ávfsanafals. Höfðu þeir
gefið út 6 falskar ávfsanir að upp-
hæð tæpar 30 þúsundir þegar þeir
náðust.
Þetta væri ekki í frásögu
færandi, ef þeir hefðu ekki kom-
izt yfir heftið á nokkuð sérstæðan
hátt. Piltarnir tveir voru að
sniglast í blokk i Breiðholti. Sáu
þeir í póstkassa bréf með bréf-
haus banka i borginni. Stálu þeir
bréfinu í von um að þar væri
eitthvað fémætt að finna. En svo
var ekki. í því var aðeins yfirlit
um ávísananreikning, sem bank-
inn hafði sent eiganda hans.
En piltarnir gátu gert sér mat
úr þessu, þótt furðulegt megi
teljast. Hringdu þeir í bankann,
og spurðu hvort þeir gætu fengið
ávísanahefti út á yfirlitið. Það var
auðsótt mál, piltarnir þurftu að-
eins að koma í bankann. Fóru
þeir þangað og óskuðu eftir heft-i.
Þegar þeir höfðu fengið heftið út
á yfirlitið kom babb i bátinn. Þeir
áttu ekki þær 150 krónur, sem
heftið kostaði. En þvi var snar-
lega kippt i lag af starfsfólki
bankans, millifærslunóta skrifuð
og 150 krónurnar dregnar af
reikningnum. Héldu piltarnir út
glaðir í bragði og hófu útgáfu
falskra ávísana.
Flugmenn Vængja hafa
stofnað nýtt flugfélag
segir f tilkynningu frá flugmönn-
unum. Kom það fram á fundin-
um, að það er hugmvnd flug-
mannanna að hið nýja félag
kaupi flugvélar Vængja, en for-
ráðamenn þess félags hafa látið
að því liggja að starfseminni
verði hætt hinn 1. maí n.k. og
vélar þess seldar. Ef vélar
Vængja verði ekki falar, verði
leitað eftir hentugum vélum
annars staðar. Muni hið nýja
félag sfðan taka upp fiug til
þeirra staða, sem Vængir hafa
nú einkalevfi á og sögðu flug-
mennirnir á fundinum í gær að
þeir hefðu fengið vilyrði hjá sam-
gönguráðherra fyrir fluglevfun-
um, ef Vængir hættu starf-
seminni.
Eftirfarandi fréttatilkynning
var lögð fram á fundinum í gær:
„Þar sem Vængir hf. hafa
ákveðið að leggja niður starfsemi
sína hafa flugmenn Vængja
Framhald á bls. 18
FLUGMENN hjá Flugfélaginu
Vængjum hf. boðuðu blaðamenn á
sinn fund f gær. Á þessum fundi
tilkvnntu þeir stofnun nýs flug-
félags „með þvf markmiði að við-
halda þeirri sjálfsögðu þjónustu í
samgöngumálum, sem hverju
byggðarlagi er nauðsyn", eins og
Nokkrir af stofnendum hins nýja flugfélags við eina af Twin Otter
vélum Vængja.
Haraldur Blöndal og Hilmar Foss virða fvrir sér eina af bókunum á
uppboðinu.
Fágætar bækur úr
safni Bjarna Guð-
mundssonar á uppbo®
LISTMUNAUPPBOÐ Sigurðar
Benediktssonar hf efnir til
bókauppboðs f ráðstefnusal
Hótel Loftleiða mánudaginn 3.
maf klukkan 17. Á boðstólum
verður alls 81 númer og eru
bækurnar allar úr safni Bjarna
heitins Guðmundssonar blaða-
fulltrúa en hann var að sögn
forráðamanna uppboðsins ötull
og vandlátur bókasafnari. Er
ráðgert að á næstunni verði
haldin fjögur uppboð á bókum
úr safni Bjarna. Verður það
næsta haldið þriðjudaginn 25.
maf og hið þriðja f september.
Bækurnar, sem boðnar verða
upp á mánudaginn, verða til
sýnis á Hótel Vfk sunnudaginn
2. maí frá kl. 10—12 og 14—18.
Þeir Hilmar Foss og Harald-
ur Blöndal gerðu fréttamönn-
um grein fyrir þeim bókum,
sem verða á uppboðinu á mánu-
daginn. Þeir vildu vekja sér-
Framhald á bls. 18
Traustið ekki endur-
heimt í einni svipan
— segir Bjarni Jakobsson einn
bankaráðsmanna Alþýðubankans
„ÞAÐ er Ijóst að við eigum
langt og erfitt starf fyrir hönd
um og ég vona að okkur farnist
sem bezt í þvf starfi," sagði
Bjarni Jakobsson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks,
en hann var einn þeirra, sem
kjörinn var f hið nýja bankaráð
Alþýðubankans. Bjarni sagði
að allt bankaráðið gerði sér
grein fyrir þvf, að það álit og
traust, sem Alþýðubankinn
naut hér áður, verður ekki
endurheimt f einni svipan, en
takmark bankaráðsins kvað
hann vera að gera bankann að
banka hins almenna launþega
— þangað sem hann gæti ávallt
leitað.
Bjarni Jakobsson sagði að
bankaráðið hefði aðeins hitzt
einu sinni og þar hefði það
skipt með sér verkum. Fyrsta
verkefni okkar verður að sjá
um innheimtu á þeim hlutafjár-
loforðum, sem fyrir liggja en
aðeins kvað hann 5 milljónir
hafa innheimzt af 15, sem lofað
hefði verið. Þessi hlutafjárlof-
orð eru hluti 60 milljón króna
hlutafjárútboðs. Hann kvað
nokkur stéttarfélög hafa gefið
vilyrði fyrir því að þau ykju
hlutafé sitt. Samkvæmt þessu
munu hlutabréf verða til sölu í
Alþýðubankanum á næstunni.
Bjarni Jakobsson.
Viðtalsþáttur við
Solsjenitsyn of
dýr fyrir sjónvarp
EINS og fram hefur komið f Mbl.
var í vetur fluttur viðtalsþáttur
við sovézka rithöfundinn Alex-
ander Solsjenitsvn í sjónvarpi í
Bretlandi. Vakti þáttur þessi
mikla athygli vegna skörulegs
málflutnings hins sovézka rithöf-
undar. Islenzka sjónvarpið hafði
áhuga á því að kaupa þáttinn til
sýningar hér á landi og spurðist
fyrir um það f Bretlandi. Að sögn
Péturs Guðfinnssonar fram-
kvæmdastjóra sjónvarpsins,
reyndist þátturinn mjög dýr í
innkaupi. Átti sjónvarpið að
greiða 1000 sterlingspund eða 350
þúsund krónur fslenzkrar fyrir
eina sýningu, en það er langt
fyrir ofan það verð, sem venju-
lega er greitt fyrir þætti sem
þessa. Var þvf hætt við kaupin.