Morgunblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1976 5 menn- mgu Grænlendinga” v..« ' , / V * * * / ' . ' , .44 4 í r A , i Frá Egedesminni á Vestur Grænlandi. Þessi mjallahvfti þvottur blakir [ vestangolunni, á flóa lónuðu bátar og hús kúrðu á landi. Það var auðséð að Grænlenzkar konur þvo oft, þvl sjaldan voru snúrur þeirra auðar. Neðri myndin sýnir rólega umferð á aðalgötu Kristjánsvonar, maður að bera olfubrúsa heim og barn að borða fs. Myndirnar til vinstri sýna fseyjar f sjó við Jakobshöfn, en neðri myndin er af þremur stöllum f Holsteinsborg— Sisimiut. Myndir: Arni Johnsen. GRÆNLAND er tuttugu og einu sinni stærra en ísland, eða um það bil 2200 milljónir ferkíló- metra. Þar af er fs yfir landi sem er 1.83:5.900 ferkm og auð landsvæði eru því um 340 þús, ferkm (þrisvar sinnum stærra en Island) og þessir fslausu landshlutar eru vítt og breitt um þetta stóra land, þessa stóru eyju. Eins og allir vita gaf tslendingurinn Eirfkur rauði Grænlandi, nafn líklega árið 982 er hann sigldi frá Snæfellsnesi til Grænlands. A árunum 985 og 86 hófst bvggð tslendinga á Grænlandi. eða nnrðhúanna eins og þeir eru kallaðir í söeunni. 1 500—600 ár hafa norðbúarnir lifað f Grænlandi, en ekkert er vitað með vissu um endalok þeirra, hvort þeir hafi dáið af völdum sjúkdóma, blandast fólkinu í landinu þannig að norra*ni svipurinn hefur horfið að mcstu, hvort þeir hafa verið drepnir eða ef til vill siglt frá Grænlandi til Norður-Anieríku. Grænland nútfmans stendur á tímamótum þar sem gamalt og nýtt er hvort tveggja mikilvægt. Nútfma iðnvæðing á sér stað, nútfma fiskveiðar og vinnsla og meira að segja eru Græn- lendingar þar feti framar en við, því þeir fullvinna stóran hluta af fiski sfnum. Nútíma husagerð rvður sér rúms með rennandi vatni og öðrum þægindum, verzlanir með vöruúrvali, einkabílar rútur og flugsamgöngur milli bvggða bvggjast á stórum þvrlum. en þær hafa á margan hátt revnst bæði dýrar og óhagkvæmar og til stendur að hefja flug milli bvggða með flugvélum sem þurfa ekki langar flugbrautir. Stærð bæja í Grænlandi er allt frá nokkur hundruð íbúða upp í 10 þús. í Góðvon sem er langstærsti bærinn. En þótt margt sé með nýtfzkulegu sniði í Grænlandi í dag, er gamli hátturinn ekki síður mikilvægur, því gamlar veiðiaðferðir bæði til sjávar og lands eru við lýði og hundaslcðinn og hundar eru bráðnauðsynlegir f mörgum norðlægari byggðum Grænlands og reyndar Iffsnauðsynlegir þar sem hafís og landfs leggst saman í eina sæng á vetrum. Það er líka í mörgum bvggðum sem ennþá er mest um allt of Iftil hús, illa bvggð og heilsufarsspillandi miðað við nútfmakröfur vegna slæmrar upphitunar og loft- ræstingar. Maður verður að hafa í huga að Grænland er mjög stórt land en íbúarnir aðeins 50 þús. og þar af eru 10 þús. Danir og það er því erfitt um vik á margan hátt að bæta aðstöðuna á hinum ýmsu stöðum við það veðurfar sem ríkir í landinu. Það verður þó að segjast að á sfðustu 25 árum hafa framfarir f mörgum málum orðið geysilega miklar, en vandamálin eru líka mörg. Margt er þó f áttina og mun ráðast mikið af þeim dagsverkum sem framundan eru hjá þeim 20 þúsund ungmennum sem eru í dag undir 15 ára aldri f Grænlandi eða helmingur af öllum inn- fæddum íbúum landsins. Þótt byggingarkranar og önnur nútíma verktæki gnæfi vfir byggðum í Grænlandi fæst fólk eftir sem áður við ýmis handverk sem tilhevra menningarlífi þjóðarinnar. Menn skera út í bein, tálga steina og konur stunda listilegan saumaskap, gera græn- lenzka búninga, hnýta perludjásn og marga góða mvndlistar- menn eiga Grænlendingar, bæði á sviði grafiskrar tækni og málverks. Grænlenzka sýningin í Norræna húsinu þessa viku sýnir mjög vel þá breidd sem er í grænlenzkri list, og það frábæra handverk sem þessi grannþjóð okkar í vestri býr vfir, grannþjóð sem býr í seilingarf jarlægð, en við höfum lagt allt of litla rækt við að kvnnast og hafa samband við. Reynsla Grænlendinga og íslendinga er á svo margan hátt lfk að auðvelt er fvrir okkur að skilja stöðuna ef við á annað borð viljum leggja það á okkur og sú þróun sem á sér stað f Græn- landi í dag og t.d. sambúðin við danska rfkið, minnir á æði margan hátt á síðustu áratugi tslandsbvggðar. 1 hópi Grænlendinga, spurði ég einri ungan listamann, Kristian Olsen, að þvf hvenær Græn- lendingar myndu eignast sinn eigin fána. „Það kemur að því,“ svaraði hann, „líklega fvrr en síðar“. „Hvað eigum við að gera við fána?“ sagði þá annar Grænlendingur, eldri maður, með nokkr- um þótta. „Hvað éigum við að gera með fána? Ég geng alltaf með vasaklút á mér.“ „Það er einmitt þetta,“ hélt þá Kristian áfram, „eldri kvnslóðin vill enga breytingu, en með unga fólkinu býr annars konar þjóðernis- vilji og með honum mun fáninn koma og aðrar brevtingar sem stuðla að menningu Græn- lendinga." GRÆNLANDSDAGARi Unga fólkið mun stuðla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.