Morgunblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 1976 31 20 þeirra beztn 1 frjálm íþrótínm við æfingar yfra ÞAO er greinilegt á öllu a8 sumar- ið sem nýgengiS er I garð er Ólymplusumar. Sjaldan eða aldrei hafa Iþróttamenn þeir sem von eiga um að komast á Ólymplu- leika lagt eins mikið á sig og frjálslþróttalandsliðið hefur t.d. að miklu leyti dvalið erlendis við æfingar undanfarið. Alls reiknast okkur á Morgunblaðinu til að um 20 af sterkustu frjálsíþróttamönn- um landsins hafi verið slðustu vikur eða verði þær næstu við æfingar á Spáni, I Þýzkalandi. Svlþjóð eða Englandi um langan eða skamman tlma. Á Spáni hafa undanfarið dvalið þau Erlendur Valdimarsson, Stefán Hallgrlmsson. Ingunn Einarsdóttir og Jón Sævar Þórðar- son. Tveir þeir fyrstnefndu hafa þegar náð Ólymplulágmörkunum. Stefán I tugþraut og Erlendur I kringlukasti. Þriðji íslendingurinn sem náð hefur þessu eftirsótta lágmarki. kúluvarparinn Hreinn Halldórs- son, kom á föstudaginn I sfðustu viku heim frá Þýzkalandi þar sem hann æfði undir leiðsögn Þjóð- verjans Tshiene. Með honum kom einnig heim stökkvarinn Friðrik Þór Óskarsson, en þriðji maðurinn I hópnum, kúluvarparinn Guðni Halldórsson, hélt hins vegar til Englands þar sem hann mun m.a. æfa með hinum fræga þarlenda kúluvarpara George Capes. j Svlþjóð æfir Lilja Guðmunds- dóttir af kappi og hefur með slnu sænska fólagi ferðazt til annarra landa — m.a. til Júgóslavlu. Spjótkastarinn Óskar Jakobsson mun vera á förum til Vesterás I Svlþjóð þar sem hann hyggst æfa og til að fá fleiri tækifæri til að keppa með sænsku félagi. Mun Óskar sennilega verða I Svlþjóð I hálfan annan mánuð. Sigurður Sigurðsson. sprett- hlauparinn stórefnilegi, mun vera á leiðinni til V-Þýzkalands, þar sem hann hyggst æfa næstu vikurnar. Ellas Sveinsson — KR- ingur — æfir hins vegar I Noregi um þessar mundir. i Englandi hafa I vetur dvalið við nám þeir Ágúst Ásgeirsson. Sigfús Jónsson og Vilmundur Vilhjálms- son og að sjálfsögðu hafa þeir einnig æft hlaup þar af krafti. Á næstunni mun svo fjölga verulega I islendinganýlendunni I Englandi þvl fleiri hlauparar — 5 eða 6 — eru á förum til Englands. þeirra á meðal eru þeir Jón Diðriksson Borgfirðingur. Einar Guðmunds- son og Sigurður P. Sigmundsson úr FH. ÍR-ingurinn Gunnar Páll Jóakimsson svo einhverjir sóu nefndir úr þeim hópi. Alls hafa verið nefndir 18 frjáls- Iþróttamenn I þessum pistli og ekki er óllklegt að fleiri fari utan til æfinga á næstunni. Má þvl vissulega búast við skemmtilegu ári I f rjálsum Iþróttum hór á landi I sumar. Annað frjálslþróttafólk æfir einnig vel, nefna má Þórdlsí Glsladóttur, sem I fyrrakvöld var ekki langt frá þvl að stökkva 1.72 m I hástökki á innanfólags- móti ÍR. Lára Sveinsdóttir er sömuleiðis til alls llkleg, það sýnir árangur hennar á Reykjavlkurmót- inu innanhúss á dögunum. Sennilega miklu fleiri. —áij FRI tekur upp œfingagreiðslur Frjálsfþróttasamband fs- lands hefur nú tekið upp æf- ingagreiðslur til bezta frjáls- íþróttafólksins og fær það mis- munandi mikið, eftir þvf hvar það er á vegi statt. Virðist svo sem FRf hafi farið eftir að- ferðum Finna í þessum efnum, en upphæðir þær sem fslenzka frjálsfþróttafólkið fær eru hins vegar ekkert samanborið við það sem Finnar geta borgað sfnu fólki. FRI hefur skipt æfinga- greiðslunum í þrjá flokka. Hljóta þeir mest sem þegar hafa náð Ólympfulágmörkun- um, en það eru þeir Hreinn Halldórsson, Erlendur Valdi- marsson og Stefán Hallgríms- son, en þeir fá 80 þúsund krón- ur í æfingagjöld. i öðrum flokki eru svo þau sem eru mjög ná- lægt Ólympiulágmörkunum og eiga góða möguleika á að ná þeim. Fá þau 50 þúsund króna greióslu. I þessum flokki eru Agúst Asgeirsson, Lilja Guð- mundsdóttir og Óskar Jakobs- son. I þriðja flokki á æfinga- greiðslan að vera 30 þúsund krónur, en FRÍ mun þó ekki geta greitt beint nema 5 þús- und krónur af þeirri upphæð. Hins vegar fá þau sem eru i þessum flokki Ólympíupening- inn til að selja og geta þau þannig aflað sér þess fjár sem á skortir til þess að ná umræddri upphæð. I þessum flokki eru Friðrik Þór Óskarsson, Ingunn Einarsdóttir, Sigfús Jónsson, Elías Sveinsson, Vilmundur Vilhjálmsson, Sigurður Sig- urðsson og Bjarni Stefánsson. Þá má og geta þess að þeir þrir iþróttamenn sem þegar hafa náð lágmörkum fyrir Ólympíuleikana hafa notið sér- stakrar velvildar þeirra fyrir- tækja sem þeir starfa hjá Flug- leiða og Reykjavikurborgar, sem veitt hafa þeim veruleg aðstoð, með þvf að gefa þeim leyfi til æfinga. Góð tilþrifhjá unga fólkinu Revkjavíkurmeistaramótinu i Alpagreinum lauk um síðustu helgi f Bláfjöllum. 1 barnaflokkum fór svigkeppn- in fram sumardaginn fvrsta, 22. apríl, en stórsvigið laugardaginn 24. apríl og var þá líka keppt I flokkum unglinga. Sunnudaginn 25. aprfl var svo keppt í svigi í flokkum fullorðinna og unglinga; Var þá bjartviðri og hlýindi, en þoka háði nokkuð keppendum hina dagana. í flokki stúlkna 10 ára og yngri komu fram nokkrar bráðefnilegar skíðastúlkur. Bryndís Viggósdótt- ir, sem aðeins er 8 ára, vann svig- ið og varð önnur í stórsviginu á eftir Tinnu Traustadóttur, sem „keyrði" stórsvigið glæsilega. Þeir sem unnu tvöfaldan sigur í þessu móti voru: Haukur Þor- steinsson í flokki 10 ára og yngri, Haukur Bjarnason i flokki 11—12 ára, Árni Þór Árnason i flokki 13—14 ára, Steinunn Sæmunds- dóttir í flokki 13—15 ára og Jór- unn Viggósdóttir í kvennaflokki. í flokki pilta 15—16 ára vann Hallgrímur Helgason stórsvigið og annar varð Páll Valsson, hefur þeim farið mikið fram frá því í fyrra, en ráða þó sennilega ekki við Jónas Ólafsson og Helga Geir- harðsson, þegar þeir skila sér. Guðjón Ingi Sverrisson vann svo svigið i karlaflokki eftir harða keppni við þá Hannes Tómasson og Ólaf Gröndal, sem hafði beztan brautartíma eftir fyrri ferð, en hlekktist á í þeirri siðari. Skíðadeild Ármanns sá um framkvæmd mótsins. Mótsstjóri var Halldór Sigfússon en brautir lagði Sigmundur Rikharðsson. Rafmagnsklukku stjórnuðu til skiptis þrír rafmagnsverkfræð- ingar, Trausti Ríkharðsson og prófessorarnir Sæmundur Ósk- arsson og Björn Kristinsson, þannig að ætla má, að rafmagns- Sigursælar og bráðefnilegar skíðastúlkur: Rósa Jóhannsdóttir, Brvndís Viggósdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Tinna Traustadóttir. Albwtsmót fyrir norðan Boltinn er tekinn að rúlla fyrir norðan lika. Um helgina hófst á Norðurlandi mót, sem kennt er við Albert Guðmundsson, fvrrum formanns KSÍ, en Albert gaf á sínum tima veglegan bikar til knattspvrnustarfsins á Norður- landi. Þátttökurétt f þessu svo- nefnda Albertsmóti hafa 2. deild- ar liðin fjögur fvrir norðan, KA og Þór frá Akurevri, Völsungar, Húsavík og Revnir Árskógs- strönd. Fyrsti ieikurinn fór fram á Húsavík á laugardag og voru það Þórsarar sem sóttu Völsung heim. Leikur liðanna var allharður, og kappið sat oft i fyrirrúmi. Völs- ungar skoruðu um miðjan fyrri hálfleik, og var Hermann .lónas son þar að verki. Seint í siðari hálfleiknum jafnaði Jón Lárusso.i fyrir Þór og fleiri urðu mörkin ekki. Þegar á heildina er litið. þá áttu Völsungarnir fleiri og betri tækifæri til að skora, en Þórsarar voru hins vegar meira með bolt- ann úti á vellinum, en tókst sjald- an að skapa sér góð marktæki- færi. Á sunnudag léku síðan á Akur- eyri KA og Reynir og höfðu KA- menn töglin og hagldirnar í þeim leik, miklu léttari og leiknari en andstæðingarnir. Það gekk lika eftir að KA sigraði með þremur mörkum gegn engu og þurfti óvenju lítið að hafa fyrir þeim sigri. Jóhann Jakobsson (Donni) skoraði tvö marka KA og Gunnar Blöndal eitt. Þvi er eins farið i Albertsmót- inu og Reykjavíkurmótinu að sköri lið þrjú mörk hlýtur það aukastig að launum. Staðan í mót- inu að lokinni einni umferð er því þessi: KA 1 1 00 3:0 3 Þór 1110 1:11 Völsungur 1 0 10 1:1 1 Reynir 1 0 0 1 0:3 0 Næstu leikir fara fram um helg- ina. Þá mætir KA Völsungum á Akureyri kl. 16 á laugardag, og Þór á sunnudag kl. 14. Sigb. G. Undanúrslita- leikur Undanúrslitaleikur bikarkeppni Blaksambands íslands verður í kvöld, miðvikudag, í Hagaskólanum og leika þá Þróttur og UMFL. Sigur- vegarinn I þessum leik mætir ssðan ÍS i úrslitaleik, en ÍS er núverandi bikarmeistari og á þvi tækifæri á að verja titil sinn. Leikurinn i kvöld hefst kl. 20.1 5. Mörg jafntefli í fyrrakvöld fóru fram tveir leikir I skozku úrvalsdeildinni I knattspyrnu og gerðu þá Celtic og Rangers jafn- tefli 0—0. og sómuleiðis St. John- stone og Hearts. í ensku 3. deildinni gerðu Halifax og Colchester jafntefli 1 — 1. og í 4. deild fóru fram þrlr leikir sem öllum lyktaði með jafn- tefli: Borunemouth— Lincoln 1 — 1, Swansea — Brentford 2—2 og Tranmere og Bradford 3—3. Arni Þór Arnason málum hafi verið sæmilega borg- ið! Helztu úrslit i keppninni urðu þessi: STÓRSVIG: STÍU.Kl'R 10 ARA OC VNCRI: Tinna Traustartóttir, A 52.82 Br>ndís Vij>KÓsdól(ir. KR 55.27 Dýrloif (tiudmundsdóUir. A 55.44 STCLKUR 11 OG 12 ÁRA: Bryndfs Pétursdóltir. A 59.94 Sinríóur SÍRiiróardóltir. A «0.44 (■uórún BjörnsdóKir. Vfk «0.48 DRF.NGIR 1« ARA ()(i Y.NGRI: llaukur Þorsleinsson. A 54.17 Hormann Valsson. ÍR 54.25 (iunnar llolnason, ÍR 55.25 I)RFN(;iR 11 ()(; 12 ARA: Haukur Bjarnason. KR 55.77 Ornólfur Valdimarsson. ÍR 5«. 72 Jónas Valdimarsson. ÍR 57.01 12—14 ARA DRFNÍiIR: Arni Þór Amason. A 68.15 Finar Úlfsson. A 68.62 Ríkharó Sij»urósson. A «9.2« STl'I.Kl'R 12. 14 ()(; 15 ARA: Sfoinunn Sa*mundsdóKir. A «5.84 !V1arfa ViggósdóKir. KR «7.79 Asdís AlfroósdóKir. A 70.24 15—1« ARA DRFNÍiIR. Ilallgrfmur Holgason. ÍR 58.8« Páll Valsson. ÍR 59.28 Jónas Olafsson, A 59.4« SVIG: STCl.Kl R 10 ARA ()(; V\(.RI Bryndfs ViggósdóKir. KR 105.21 Rósa JóhannsdóKir. KR 106.54 Dýrloif Anna Guómundsdótlir. A 107.22 STt'I.Kl R 11 og 12 ARA: Sigrfóur SiguróardóKir. A 104.42 Þórunn FgilsdóKir. A 108.62 Kuórún BjornsdóKir. \'fk 111.29 I)RFN(;iR 11 (H; 12 ARA: Ilaukur Bjarnason. KR 99.99 Kristján Jóhannsson. KR 102.90 Sigurjón (íoirsson. ÍR 106.81 DRFN(;iR 10 AR.\ (H; VN(iRI Ilaukur Þorsloinsson. A 101.62 Asmundur Holgason. ÍR 102.02 Krislján \ aldimarsson. IR 102.69 DRFNGIR 12 — 14 ARA: Arni Þór Arnason. A 112.57 Jónas Roynisson. A 118.90 Finar ('lfsson. A 122.26 STCl.Kl’R 12. 14 og 15 ARA: Sloinunn Sa*mundsdóKir. A 122.6« María ViggósdóKir. KR 126.85 Asa llronn SæmundsdóKir. A 121.80 DRFNGIR 15—1« A RA : Holgi (íoirharósson, A 111.91 Páll Valsson. í R 118.08 llallgrfmur llolgason. tR 122.05 KVFN.NA FI.OKKl’R: Jórunn ViggósdóKir. KR 120.24 Aslaug Siguróardótlir. A 147.57 (;uóhjörg Arnadóttir. A 149.22 KARI.AR: Guójón Ingi Svorrisson. A 121.15 Hannos Tómasson. KR 122.04 Ólafur Gröndal. KR 122.1«

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.