Morgunblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHergwnliIabift
HARSKEl
| Skúlagötu 54
HVERG! BETRI BÍLASTÆÐI
HERRASNYRTIVÖRUR í ÚRVALI
P MELSTED
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1976
Afli glæðist hjá bát-
um sunnanlands
Mánudagurinn víða bezti dagur vertíðarinnar
MORGUNBLAÐIÐ hafdi í gær-
kvöldi samband vid helztu ver-
stöðvar sunnanlands og spurði
aflafrétta. Kom f Ijðs að afli
hefur alls staðar glæðzt undan-
farna daga og á allmörgum stöð-
um var mánudagurinn bezti
dagur vertfðarinnar og fór t.d.
aflinn yfir 1000 tonn f Grindavfk.
Kastaði 3
hvolpum
í höfnina
Sjómaður bjargaði
fjórða hvolpinum
TOGARASJÓMAÐUR, sem
var á gangi á Ægisgarði síðast-
liðið föstudagskvöld um klukk-
an 23, varð vitni að því að
maður kom akandi á Cortinu-
bifreið, stöðvaði á bryggjunni
og varpaði þremur litlum
hvolpum í sjóinn. Hinn fjórða
Framhald á bls. 15
Lánsami hvolpurinn, sem nú
er f vörzlu lögreglunnar og
hún hefur skfrt Ófeig, en
kallar Offa. — Ljósm. RAX
Þá munu Austfjarðabátar hafa
aflað vel að undanförnu, þótt þar
hafi afli tregazt allra sfðustu
daga. Vegna sfmabilunar fengust
engar fréttir frá Snæfellsnes-
höfnum. En þótt kippur hafi
komið f veiðarnar undanfarna
daga voru tfðindamenn Mbl. sam-
mála um, að það myndi ekki
breyta þvf að þetta yrði ein
l£legasta vertfð f manna minnum.
VESTMANNAEYJAR
Þar fékk blaðið þær upplýs-
ingar, að þess hefði orðið vart á
föstudaginn að afli væri heldur að
glæðast. Helgarfrí var hjá Eyja-
bátum og var því aflinn, sem neta-
bátarnir komu með inn á mánu-
daginn, tveggja nátta. Heildarafl-
inn á mánudaginn var um 600
tonn af 60 bátum og er þetta einn
bezti dagur vertíðarinnar. Var afl-
inn jafnari hjá netabátunum en
verið hefur i vetur og fengu
margir bátar allgóðan afla og
nokkrir dágóðan, hæst 40 tonn.
Uppistaðan i aflanum er góður
þorskur. Framhald á bls. 15
100 þúsund
fyrir daginn
á handfærum
MOKAFLI hefur verið á hand-
færi við Vestmannaeyjar und-
anfarna daga. Voru allar fleyt-
ur dregnar þar á sjó um
sfðustu helgi og landkrabbar
flyktust á sjóinn f stórum stfl.
Meðalfiskeríið var '/4—1 tonn
yfir daginn hjá hverjum
manni og dæmi voru um að
tveir vanir menn fengu 4 tonn
Framhald á bls. 18
Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
NETIN DREGIN — Það var vænn fiskur f netunum hjá Leó VE 400
þegar þessi mynd var tekin á miðum Vestmannaeyjabáta fyrir helgi.
Þ j ó ðver j ar þrýsta á EBE
en íslendingar bíða átekta
Þjóðverjar verða krafðir um greinargerð — fulltrúar
brezka fiskiðnaðarins á fundi með Crosland
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að tslendingar muni ekki gera ráðstafanir nú
þegar til þess að segja upp fiskveiðisamningnum, sem gerður var við
Vestur-Þjóðverja fyrir 5 mánuðum, en f orðsendingaskiptum, sem
fram fóru í kjölfar þess samnings var sagt, að hefði bókun 6, sem er
fylgiskjal samnings tslands og Efnahagsbandalagsins um tollamál,
ekki tekið gildi innan 5 mánaða mætti fresta framkvæmd samningsins
við Þjóðverja. Undanfarið hefur mikill þrýstingur verið frá Þjóð-
verjum á t.d. Breta og samkvæmt fréttum frá Mike Smartt, fréttaritara
Mbl. í Hull, voru allir helztu fulltrúar brezka fiskiðnaðarins á fundi
með forystumönnum brezku rfkisstjórnarinnar f gær og var talið að
m.a. væri fiskveiðistefna EBE þar á dagskrá.
Morgunblaðið spurði í gær Geir I stjórnarinnar hefði verið í sam-
Hallgrímsson, forsætisráðherra, bandi við þetta mál, en dagurinn í
um það hver niðurstaða ríkis- | dag, 28. apríl, er fyrsti dagurinn,
Bretinn forðast nú að
skemmafreigáturnar
Brezkir togaraskip-
stjórar óánægðir með
vernd flotans og marg-
ir hafa siglt brott
MIKIL spenna rfkti á miðunum í
gær og f eitt skipti tókst varð-
skipi, Þór, að klippa á annan tog-
vfr brezka Fleetwoodtogarans
Irvana FD 141, 35 sjómflur suður
af Hvalbak. Þetta er sami togar-
inn og Ægir reyndi að halastýfa í
fyrradag, er Euroman tókst að
verja togarann og sigla á varð-
skipið og laska það talsvert eins
og skýrt var frá f Morgunblaðinu í
gær. I þetta sinn revndi Euroman
enn að verja togarann, en það
mistókst, því að Þór tókst að ná
öðrum togvírnum í sundur.
Samkvæmt upplýsingum
Gunnars Ólafssonar, skiþherra
hjá Landhelgisgæzlunni, var
mikil spenna á miðunum í gær og
endasentust varðskipin út um
allan sjó. Nokkrum sinnum komu
þau í hópa brezkra togara, sem
jafnan hífðu. Alls voru í gær 26
togarar á miðunum og voru þeir
frekar dreifðir, tveir togaranna
voru á leið utan. A örfáum dögum
hefur togurunum fækkað mjög
við landið, enda eru togaraskip-
Framhald á bls. 15
sem heimiít er að fresta
samningnum. Geir Hallgrímsson
sagði:
„Rfkisstjórnin mun ekki gera
sérstakar ráðstafanir nú þegar til
að fresta framkvæmd fiskveiði-
samningsins við Vestur-
Þýzkaland. Ríkisstjórnin telur
eðlilegt að gefa þýzkum stjórn-
völdum færi á að gera grein fyrir
þvi hvernig þeirri viðleitni þeirra
hefur miðað innan Efnahags-
bandalags Evrópu að fá þar sam-
þykkta fulla gildistöku við skipta-
samnings Islands og banda-
lagsins. Mun verða gengið eftir
slíkri greinargerð og tekið mið af
henni við frekari aðgerðir.
Okkur er kunnugt um, að Þjóð-
verjar hafa á ýmsan hátt unnið að
þvi að afla málstað okkar fylgis og
meðan hreyfing er á málinu
okkur í hag er ekki skynsamlegt
að grípa til ráðstafana, sem aðeins
mundu spilla framgangi þess.
Þótt við aðhöfumst ekkert strax
á fyrsta degi, töpum við engum
rétti og getum nú hvenær sem er
frestað framkvæmd þýzka
Skellti mér í gólfið og
beið þess sem verða vildi
— sagði Eiríkur Rafnsson við Mbl. eftir
100 metra háskaför fram af brekkubrún
99
Akureyri 27. apríl.
ÖKUMAÐUR jeppans, sem fór
f gærkvöld fram af brekku-
brúninni við Eyrarlandsveg og
hafnaði á húsþaki við Hafnar-
stræti, reyndist vera ómeiddur
eftir þá háskaför og það sem
meira var, fullkomlega rólegur
og f algeru sálarjafnvægi eftir
þessa sjaldgæfu reynslu. Hann
heitir Eiríkur Rafnsson, til
heimilis í barnaskólanum á
Syðra-Laugalandi f Eyjafirði,
en er að læra bifvélavirkjun á
bilaverkstæðinu Þórshamri á
Akureyri. Hann varð 18 ára f
gær og þessi afmælisdagur
verður honum áreiðanlega
minnisstæður.
F’réttamaður Mbl. hitti Eirík
að máli í dag og bað hann að
lýsa því sem gerðist:
— Ég sá ekki leigubilinn fyrr
Framhald á bls. 18
Eirfkur Rafnsson
Ljósm. Mbl. Sverrir Pálsson.
samningsins. Þetta er Þjóðverjum
ijóst.“
I orðsendingaskiptum, sem
fylgdu fiskveiðisamningum fs-
lands og Vestur-Þýzkalands, segir
í bréfi sendiherra Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands til utanrikis-
ráðherra Islands:
„Með hliðsjón af hinu nána
sambandi, sem er milli lausnar á
fiskveiðideilunni og þess að
Framhald á bls. 18
Póst- og símamálastjórnin:
Fjarskipti við
brezk skip
með sem eðli-
legustum hætti
PÓST- og símamálastjórnin til-
kynnti f gær öllum landssfma-
stöðvum að f jarskiptaþjónusta
við brezk skip skyldi vera með
sem eðlilegustum hætti, nema
augljóst þætti, að skeyti eða
samtök innihéldu fyrirmæli um
aðgerðir varðandi landhelgis-
deilu Breta og tslendinga. Jón
Skúiason, póst- og sfmamála-
stjóri, sagði f viðtali við Mbl. f
gær, að með þessu væri gefin sú
fyrirskipun, að blaðamaðurinn,
sem verið hefur á miðunum um
borð f brezkri freigátu, Óli Tynes,
yrði afgreiddur og hann fengi að
senda fréttir sfnar um símakerfi
landsins.
Jón Skúlason, sem f gær var
nýkominn til landsins, sagðist að-
eins hafa kynnzt málinu í gegnum
síma, en hann kvaðst ekki skilja,
hvers vegna loftskeytamenn þeir,
sem tekið hefðu þá afstöðu að
afgreiða ekki Óla Tynes, gætu
staðið á ákvörðun sinni — hin
rétta túlkun væri sem loftskeyta-
menn i Gufunesi og i Vestmanna-
Framhald á bls. 18