Morgunblaðið - 28.04.1976, Síða 3

Morgunblaðið - 28.04.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28, APRtL 1976 3 Veruleg minnkun mjólkurframleiðslu ... ..;_______ IIBHaMi 27 MANNA hópur krnnaranema frá Góðvon mun skemmta á kvöldvöku í Ilamrahlíðarskólanum i kvöld. Kennaranemarnir hafa að undanförnu kvnnzt landi og þjóð, m.a. farið í Suðurlandsferð þar sem Sundlaug Hveragerðis var heimsótt, Jólkurbii Flóamanna, Húsmæðraskólinn á Laugarvatni. Sigurður Greipsson á Geysi, Gullfoss, Lýðháskólinn í Skálholti og einnig fór hópurinn til Vestmanna- eyja f boði Flugleiða, en f Evjum bauð Hótel Vestmannaevjar í ökuferð og Fiskiðjan hauð fólkinu í mat og þar var endað með þvf að skoða Náttúrugripasafnið í boði þess. Myndina tók Sigurgeir í Evjum. Grænlands- vikan índdaS: Grænlenzk kvöldvaka, sagnaglefsur og kvikmyndir GRÆNLANDSVIKA Norræna hússins hefur verið mjög fjöl- sótt, enda dagskráin lífleg og skemmtileg. í dag kl. 15 verður sýnd kvikmvnd um Knud Rasmussen. Kl. 17.15 mun Ólafur Halldórsson handrita- fræðingur flytja fvrirlestur um Grænland í fslenzkum heimild- um. Klukkan 20.30 mun llans Lvnge og Bodil Kaalund vísa til vegar á listasýningunni og segja frá Graffska verðstæðinu í Góðvon. Kl. 22 verður sýnd kvikmvnd- in Hafið við Grænland en kl. 20.30 hefst kvöldvaka í Hátfða- sal Menntaskólans í Hamrahlfð. Þar niunu græn- lenzkir kennaranemar svngja grænlenzka söngva, segja frá Grænlandi og að auki verða sýndar stuttar kvikmvndir frá Grænlandi. ísland 12. í röðinni í að fullnægja sjálft orkuþörf t FRÉTT frá upplýsingaþjónustu landbúnaðarins segir að á aðal- fundi Mjólkursamsölunnar f Reykjavfk hafi komið fram að á árinu 1975 hafi innvegið mjólkur- magn á samlagssvæðinu minnkað verulega eða um 5,38%. Þá kem- ur einnig fram f fréttinni að mjófkurframleiðendum fækkaði nokkuð á árinu. Ennfremur segir að útborgunarverð til bænda sé nú 69,43% af óniðurgreiddu útsölu- verði mjólkur og vanti nokkuð á að þeir fái meðálgrundvallarverð fyrir árið 1975. Lengst af hefur útborgun til bænda verið 70—71% af útsöluverði mjólkur. Sala mjólkur og mjólkur- afurða í ræðu Stefáns Björnssonar for- stjóra Mjólkursantsölunnar sagði að innvegið magn mjólkur á árinu hefði minnkað um rúmlega 3 millj. ltr. og er það 5,38% minnk- un. Innvegið mjólkurmagn var nú rúmlega 56 millj. ltr. en var á öllu landinu um 108 millj. ltr. Hlutfallslega varð minnkunin mest á Búðardal, 11,6%, en minnst í Borgarnesi 3,4%. I Reykjavík var tekið á móti 31. millj. ltr. en þar af komu 25,2 millj. ltr. frá öðrum samlögum, en 5,8 millj. beint frá bændum. Fyrstu fjóra mánuði ársins var innvegin mjólk á svæði samlags- ins meiri en á samatíma árið áður en næstu átta mánuði varð minnkunin veruleg. Sala á neyzlumjólk jókst hins vegar á árinu um 5,23%. Sala á 33% feitum rjóma dróst litillega saman en tekin var upp fram- leiðsla á geymsluþolnum rjóma sem er fituminni. Seldust um 90 þúsund ltr. af honum. Einnig var hafin sala kókómjólkur og seldust af henni tæplega 600 þúsund ltr. Þá var veruleg söluaukning á júgurð eða 9,5% og sama er að segja um sýrðan rjóma og krydd- Sinfóníutónleikar: Rhondda Gilfespie verður ein- leikari á fimmtándu áskriftartón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Is- lands, sem haldnir verða í Háskólabfói annað kvöld kl. 20.30. Hún hefur haldið tónleika í öllum álfum veraldar, og árið 1957 hfaut hún ABC-tónlistarverðlaunin fyrir leik sinn f Pfanókonsert McDowells, en hann verður ein- mitt fluttur á þessum tónleikum, og er það f fyrsta sinn sem kon- sertinn er fluttur hér á landi. Hljómsveitarstjóri verður Páll P. Pálsson, en hann stjórnar nú í veikindaforföllum aðalhljóm- sveitarstjórans, Karstens Ander- sens. Þessir tónleikar verða i heldur léttari dúr en aðrir áskriftartónleikar, en á efnis- skránni eru eftirtalin verk: Hljómsveitarforleikurinn Vil- hjálmur Tell eftir Rossini, Rhapsody in Blue eftir George Gershwin, píanókonsert eftir Edward McDowell, þar sem ein- leikari er Rhondda Gillespie — og sósur. Af undanrennu seldust 1,2 millj. ltr. og er það 12,5% aukn- ing. Heildarsalan nam á siðasta ári um 3.200 millj. kr., þar af voru seldar mjólkurvörur fyrir um 2.900 millj. kr. Kostnaður vegna starfsfólks jókst á árinu um 39% þrátt fyrir að starfsfólki var fækkað um 13. Var starfsfólk samsölunnar um síðustu áramót 420. Mjólkursala og verð Eins og áður sagði er útborg- unarverð til bænda minna nú en oft áður samkvæmt frétt frá upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins. Segir jafnframt að ef mjólkur- framleiðsla dregst saman, þá verður að taka tillit til þess í verðlaginu þar sem dreifing og vinnslukostnaður hækki á hvern mjólkurlitra. Hafa bændur orðið fyrir kjaraskerðingu sem nemi um 70 þúsund kr. á hvern mjólkurframleiðanda á svæði Mjólkursamsölunnar. Þá kom einnig fram i ræðu stjórnarformanns, Ágústs Þor- valdssonar á Brúnastöðum, að mismikil framleiðsla eftir árs- tíðum hefði ýmis vandamál í för með sér. Þannig var innvegið magn í júli 6,5 millj. ltr. en í nóvember 3,3 millj. ltr. Mætti draga úr mjólkurflutningum frá öðrum landshlutum með fram- leiðslu geymsluþolinnar mjólkur. Um siðustu áramót var mjólk seld i 165 verzlunum á svæðinu og voru 70 þeirra reknar af MS, en 37 af öðrum samvinnufélögum. Var fyrirhugað að MS legði niður sinar verzlanir 1. júní vegna fyrir- hugaðra breytinga á sölu mjólkur en nú eru verulegar líkur á að það muni dagast, þannig að jafnvel er gert ráð fyrir óbreyttu ástandi fram á næsta ár. Á sl. ári var fjárfest fyrir um 11 millj. kr. Munaði þar mest um kostnað við breytingar á brauð- gerð, vélum til framleiðslu á G- vöru og kaup á tölvu og tilheyr- andi tækjum. Á aðalfundinum var samþykkt ályktun um að lýsa stuðningi við framkomið frumvarp á Alþingi um að koma í veg fyrir eyðilegg- ingu mjólkur í verkföllum og eins tillaga um að kanna leiðir til að lækka flutningskostnað mjólkur- framleiðenda á svæði samlagsins í Búðardal. í stjórn eru nú Ágúst Þorvalds- son, Brúnastöðum, formaður, Einar Ölafsson frá Lækjar- hvammi, Oddur Andrésson á Neðra-Hálsi, Eggert Ölafsson, Þorvaldseyri, og Gunnar Guð- bjartsson, Hjarðarfelli. Young Persons ’Guide to the Orchestra eftir Benjamin Britten. Framsögn í þvi verki annast Þor- stéinn Hannesson tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins. ÍSLAND framleiðir sjálft 24% af þeirri orkuþörf, sem tslendingar þurfa á að halda. Eru þeir 12. í röðinni, hvað orkuframlciðslu varðar — og er miðað við hlutfall framleiddrar orku í viðkomandi landi af heildarorkunotkun þjóðarinnar. Þessar upplýsingar eru samkvæmt töflu frá OECD — Efnahags og framfarastofnun- inni. Samkvæmt þessari töflu standa Kanadamenn bezt að vigi og fram- leiða þeir meiri orku en þeir nýta sjálfir og er hlutfall þeirra 120%. Ástralía kemur næst með 108% og í þriðja sæti eru Bandaríkin með 86%, þá er Noregur með 72%, Holland með 70%, Stóra- Bretland með 51%, Vestur- Þýzkaland með50% Nýja-Sjáland með 42%, Tyrkland með 31%, Austurriki með 30%, Island eins og áður sagði með 24%, Frakk- land með 23%, Grikkland með 21%, Spánn einnig með 21% og sömuleiðis Sviss með 21%. Þá er Svíþjóð með 17%, Belgía með 16%, Portúgal með 16%, Italía með 15%, Japan með 10%, Finn- land með 7%, Irland með 2%, I.uxemburg með 2%,. I neðsta sæti er Danmörk, en við nafn þess lands er engin tala. Allar ofanskráðar tölur eru samkvæmt upplýsingum yfir orkuframleiðslu fyrir árið 1972. 14 þús. tonn á land í Eyjum 84 bátar hafa landað afla í Vestmannaeyjum f vetur, alls 14 þúsund tonnum miðað við 15. apríl s.l„ en á sania tíma í fyrra var aflinn 16700 tonn og 1974 var hann 12400 tonn. Aflahæstu netabátar frá áramótum f Evjum eru: Þórunn Sveinsdóttir VE 401 670.1 tonn 22 landanir.Kap II VE 4. 462,9 tonn 46 landanir. Heimaey VE 1. 458.2 tonn 33 landanir. Surtsey VE 1. 455,2 tonn 32 landanir Danski Pétur VE 423. 448.5 tonn 36 landanir. Dala-Rafn VE 508, 436,1 tonn 56 landanir. Arni i Görðum V'E 73, 421,5 tonn 44 landanir. Valdimar Sveinsson VE 22. 392.0 tonn 44 landanir. Leó VE 400, 391,1 tonn 42 landanir. Kópur VF. 11. 385.3 tonn 47 landanir. Aflahæstu trollbátar: Frár VE 78, 298,0 tonn 18 landanir. Sigurbára V'E 249. 279.9 tontt 24 landanir. Björg VE 5, 212,6 tonn 34 landanir. Ingólfur VE 216. 202.7 tonn 36 landanir. Baldur VE 24, 202,3 tonn 32 landanir. Sæfaxi VE 25 147,7 tonn 42 landanir. Jökull VE 15, 143,9 tonn 28 landanir.Þristur VE 6, 131,8 tonn 29 landanir. Haförn VPI 23, 128.5 tonn 36 landanir Fylkir NK 102, 102, 9 tonn 7 landanir. Kona í barnsnauð sótt til Grænlands SNEMMA f gærmorgun lagði vél frá Flugstöðinni af stað til Meistaravfkur á Grænlandi. Hafði komið beiðni um að þangað vrði sótt kona i barns- nauð. Gekk flugið vel og var komið aftur til Reykjavfkur klukkan rúmlega 16 í gær. Einnig kom með hingað önnur kona, sem var komin langt á leið og vissara þótti að flytja til Reykjavíkur. Flugstjóri var Elfeser Jónsson en með í fiir- inni var Revnir Geirsson la'kn- ir. Myndin var tekin þegar flug- vélin kotn til Reykjavíkur í gær. Ljósm. Mhl. Rax. Píanókonsert McDowells fluttur hér í fyrsta sinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.