Morgunblaðið - 28.04.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1976
7
Snertur af
samvizkubiti?
Skúli Guðjónsson á
Ljótunnarstöðum ritar
sumarmálaþanka ( Þjóð-
viljannn ð sumardaginn
fyrsta. Þar segir m.a.:
„ Ljótasti bletturinn i
nýliðnum vinnudeilum e
þó aðförin að bændum oc
eyðilegging mjólkurinnar.
Það er eins og þessir
blessaðir verkalýðsfor
ingjar skilji ekki eða vilji
ekki skilja þann regin-
mun, sem á þv( er að reka
vélknúin fyrirtæki, og hin
sem rekin eru með lifandi
peningi. Útgerðarmaður-
inn leggur skipi sínu og
verksmiðjueigandinn
lokar verksmiðju sinni,
þegar verkfall skellur á.
Reksturinn stöðvast
einfaldlega. Svo eru
vélamar ræstar og allt fer
( gang, þegar verkfalli
lýkur. En bóndinn lokar
ekki fjósinu og segir: Nú
opna ég ekki aftur fyrr en
vinnudeilan er leyst. Nei,
hann verður að reka sitt
fyrirtæki, en eyðileggja
framleiðsluna, sökum
þess að hún fæst ekki
flutt ð markað."
Síðan ræðir Skúli
annað dæmi, bann við
áburðarflutningi til
bænda. „Einna
hraksmánarlegast var
þetta vorið 1970. Þá r(kti
neyðarástand víða um
land, sökum kals og ösku-
falls. En bændum var
neitað um áburð og sáð-
vörur. til að bera á og sá I
dauðkalin túnin, sökum
þess að þá var verkfall".
„Svo gerast þau teikn
og stórmerki, nokkru eftir
verkfall, að leiðarahöf-
undur Þjóðviljans ræðir
um nauðsyn þess að
bændur og verkamenn
standi saman i stétta-
baráttunni. Skyldi hann
hafa fengið snert af
samvizkubiti, vegna þess
hvernig fór um mjólkina
meðan á verkfallinu
stóð?"
Þessi orð Skúla á Ljót-
unnarstöðum eru allrar
athygli verð, ekki s(zt sök-
um þess, hver talar, hvern
veg er talað og hvar skoð-
unum er komið á fram-
færi. Hætt er þó við að (
skilgreiningu Skúla á
Skúli Guðjónsson á Ljót-
unnarstöðum.
leiðarskrifum Þjóðviljans
um bændur séu sjónarmið
ranglega flokkuð undii
„snert af samvizkubiti".
Áður fyrr hét sllkur mál
flutningur einfaldlega
hræsni.
Að nýta eldra
húsnæði
Frá árinu 1970 hafa lán
til kaupa á eldra húsnæði
verið bundin ákveðinni
heildarf járhæð ( hús-
næðismálalögum. Þessi
fjárhæð nam 80 m. kr
árið 1974. Á siðasta þingi
var þessi upphæð tvö-
földuð og nam á síðastc
ári 160 m. kr. Nauðsyn
þess að nýta betur til-
tekna þjónustu i eldri
hverfum Reykjavikur,
með þvi t.d. að gera
barnafjölskyldum kleift að
kaupa þar ibúðarhúsnæði,
leiddi til áskorunai
borgarstjórnar á hendur
löggjafavaldinu, þess
efnis, að rýmka þessa
lánaheimild enn frekar.
Afleiðing þessarar áskor-
unar borgarstjórnar varð
stjórnarfrumvarp, sem fel-
ur m.a. i sér auknar lán
veitingar til kaupa á eldra
húsnæði og endurbóta á
eigin húsnæði öryrkja og
eldra fólks. Frumvarpið
gerir ráð fyrir þvi að
hámark slíkra heildarlána
verði niður fellt, en Hús-
næðismálastjórn hafi á
sinu valdi að gera tillögur
um, hve stórum hluta
heildarlána verði varið til
eldra húsnæðis. Setji ráð-
herra reglugerð þar um að
fengnum þeim tillögum.
Í stjórnarfrumvarpinu er
og lögð til breyting á
ákvæðum um leiguibúðir.
Sú breyting gerir ráð fyrir
að sveitarfélögum sé
heimilt að selja svo-
nefndar „leiguíbúðir", að
uppfylltum tilteknum skil-
yrðum. Þessi breyting er i
samræmi við óskir fjöl-
margra sveitarfélaga. sem
eru að byggja slíkar
ibúðir, þ.e. að taka upp
hliðstætt fyrirkomulag og
gildir um Breiðholtsibúð-
irnar ( Reykjavik. varð-
andi byggingu „leigu-
ibúða" á landsbyggðinni.
Þessar breytingar, sam-
hliða hækkunum á hús-
næðislánum, til sam-
ræmis við verðbreytingar
i landinu, eru tvimæla-
laust spor i rétta átt.
Málverkasýning
á Borgarfirði
Borgarfirði eystri. 27. apríl
LAUGARDAGINN 24. apríl
gengust nokkrir áhugamenn fvrir
því að haldin var málverkasýning
f félagsheimilinu Fjarðarborg. Á
sýningunni voru um 60 málverk
og teikningar, sem öli voru I eign
heimamanna. Björn Th. Björns-
son listfræðingur flutti skrmmti-
legt og fróðlegt erindi oj» sýndi
litskvggnur en auk hans mætti á
sýningunni Steinþór Eiríksson
listmálari á Egilsstöðum.
Konur sáu um kaffisölu og
gáfu ágóðann af sölunni til kaupa
á barna- og unglingabókum fyrir
lestrarfélag héraðsins. Aðsókn að
sýningunni var mjög góð og voru
allir á einu máli um það að hún
sýndi glögglega, að ýmislegt
mætti gera til menningarauka
þótt byggðarlagið væri fámennt.
— Sverrir
Vortónleikar
i Hveragerði
Hveragerði 25. apríl
HLJÓMSVEIT Tónlistarskóla
Kópavogs hélt hljómleika í Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 24.
apríl undir stjórn Páls Gröndal.
Kirkjan var þétt setin og lista-
fólkinu, sem flest, er um
fermingu, klappað lof í lófa. Hafi
það þökk fyrir komuna.
— Georg.
„Skipulögð skemmd-
arstarfsemi”
ÞRIÐJUDAGINN eftir páska var
haldinn almennur bændafundur
um landbúnaðarmál að tilhlutan
Búnaðarsambands Suður-
Þingeyinga, að Breiðumýri í
Reykjadal. Doktor Halldór Páls-
son búnaðarmálastjóri flutti yfir-
gripsmikið erindi á fundinum um
kjötgæðarannsóknir og stefnuna í
landbúnaðarmálum, og Haraldur
Gislason mjólkurbústjóri um
mjólkurmál. Ut af erindum fram-
sögumanna spunnust fjörugar
umræður fram á kvöld. Töldu
margir bændur að mjólkurfram-
leiðslan ætti nú í vök að verjast,
sökum of lágrar verðlagningar,
miðað við sauðfjárafurðir, og
margt benti til að skortur gæti
orðið á mjólkurvörum í landinu,
að óbreyttu ástandi. Þá kom mjög
fram í ræðum fundarmanna að
áróðurinn gegn landbúnaðinum
væri skipulögð skemmdarstarf-
semi, sem bæði fjárhagslegu- og
menningarlegu sjálfstæði þjóðar-
innar stafaði hætta af. Eftir-
farandi fundarályktun var sam-
þykkt í fundarlok: „Almennur
bændafundur, Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga, um landbún-
aðarmál, haldinn að Breiðumýri
20. apríl 1976, lýsir fyllstu andúð
Framhald á bls. 22
Þjóðdansafélag-
ið sýnir nyrðra
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykja-
víkur fer nú um næstu helgi í
sýningarferð norður í land og
sýnir m.a. á Blönduósi föstu-
dagskvöld 30. apríl kl. 22.00 og
á Dalvik sunnudaginn 2. maí kl.
13.30.
Sýningar þessar eru í tilefni
af 25 ára afmæli Þjóðdansa-
félagsins sem er nánar tiltekið
þann 17. júní n.k. 1 marz s.l.
hélt Þ.R. tvær afmælissýningar
I Þjóðleikhúsinu við húsfylli og
mjög góðar undirtektir áhorf-
enda. Dansaðir eru þjóðdansar
frá 15 þjóðlöndum.
Stjórnandi og aðalkennari er
Svavar Guðmundsson en einnig
hafa þær Helga Þórarinsdóttir
og Kelfinna Sigurvinsdóttir
haft umsjón með hluta úr pró-
gramminu. 1 hópnum sem fer í
þessa ferð eru 65 manns og þar
af eru dansarar um 55. Þessi
ferð Þjóðdansafélagsins norður
í land er með viðamestu
sýningarferðum út á land með
eigin hóp en félagið hefur farið
nokkrar ferðir út um landið
síðastliðin ár með erlenda hópa.
Frá tónleikum I Hveragerðiskirkju
A þessum síðustu
ogverstu Tímum
Kæru Morgunblaðsmenn.
Mér þykir ykkur verða á i mess-
unni í Reykjavikurbréfi sunnu-
daginn 25. apríl. Þið vitnið í rétt-
mæt ummæli Jóhanns Kúld og
Hjörleifs Guttormssonar, út af
leiðinlegu narti sem hafði birst í
Þjóðviljanum um fréttamann
sjónvarpsins. Og ályktun ykkar
er, að svona sé Þjóðviljinn allur.
Þetta er lítið betra en sú túlkun
Alfreðs í Tímanum, að Árni Berg-
mann hafi samið þetta nafnlausa
nið um Jón Hákon Magnússon.
Það heyrði ég, að Jóni sárnaði, að
svo lúalega skyldi vegið að kunn-
ingja hans. Réttustu skýringuna á
heilagri reiði Jóhanns og Hjör-
leifs tel ég þá, að þeim þyki bæði
óvænt og illt að sjá ritverk í þess-
um stil birt í því blaði, sem þeim
er annt um. Þeir hefðu varla
skrifað ykkur af sama tilefni eða
svipuðu, enda stendur oftast sá,
sem níddur er, með pálmann i
höndunum og þarf ekki sérstakan
stuðning. Persónulega mislikaði
mér þetta líka meira en ýmis
skætingur, sem ég hef stundum
orðið fyrir í ykkar eigin blaði.
I staðinn fyrir rangtúlkanir
ykkar á heiðarlegum vinnubrögð-
um Jóhanns og Hjörleifs (minnt-
ust þið annars ekki á högg undir
belti?) ættuð þið að bindast sam-
tökum við Þjóðviljann um alfrið-
un á báðum þessum blöðum fyrir
skrifum eins og þeim sem hér um
ræðir. Ef vinir mínir á Tímanum
lesa þetta, mega þeir líka taka
þátt í þessari alfriðun i stað þeirr-
ar sorglegu Alfreðunar, sem þeir
hafa lagst í á þessum síðustu og
verstu Tímum.
Páll Bergþórsson.
Aðalfundur Félags
frí merk j asafnar a
FÉLAG FRlMERKJASAFN-
ARA hélt fyrir nokkru aðalfund
sinn I föndursal Elliheimilisins
Grundar, og er þetta 19. starfsár
félagsins. Félagar eru nú um 230
talsins, og fer þeim stöðugt fjölg-
andi
Eftirtaldir menn voru kosnir í
stjórn: Sigurður Pétursson for-
maður, Hálfdan Helgason vara-
formaður, Hermann Pálsson rit-
ari, Óskar Jónatansson gjaldkeri
og meðstjórnendur Ellen Sig-
Framhald á bls. 22
GARÐVRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR,
ALLSKONAR,
RISTUSPAÐAR,
KANTSKERAR,
GAROHRÍFUR,
GREINAKLIPPUR,
GRASKLIPPUR,
HEYHRÍFUR,
GIRÐINGAVÍR,
SLÉTTUR
GALV. 2, 3, 4 MM.
GARÐSLÖNGUR,
SLÖNGUHENGI
SLÖNGUKRANAR,
VATNSDREIFARAR,
GARÐKÖNNUR.
SLÖNGUKLÉMMUR
nota hinir vandlátu.
Stærðir frá 1 /4" — 1 2".
Einnig ryðfríar.
Gúmmíslöngur
Glærar slöngur
Brunaslöngur
Vængjadælur
Múrboltar
Vélatvistur
Koparsaumur
Þaksaumur
Skipasaumur
Skrúfuzink
Lóðtin
Plötublý
Tjöruhampur
Hessíanstrigi
Vélareimar
Viðarkol
Fernisolía
HANDFÆRAVINDUR
HANDFÆRAONGLAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRASÖKKUR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓÐARÖNGLAR
★
RAUÐMAGANET
KOLANET
SILUNGANET
ÁRAR, DREKAR
BJÖRGUNARVESTI
VALE
KRAFT-
ÐLAKKIR
3A tonn
1 '/2 tonn
2'/z tonn