Morgunblaðið - 28.04.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.04.1976, Qupperneq 16
^0 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 1976 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sfir i 10100 Aðalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Landgrunnslögin frá 1948, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins, sem þáverandi sjávarútvegsráð- herra Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Þ. Jósepsson, hafði alla forystu um að sett vóru, hafa allar götur síðan verið lagalegur grundvöllur út- færslna fiskveiðilandhelgi okk- ar og fiskverndunaraðgerða. Tveimur árum áður hafði Ólafur Thórs, þáverandi for- sætis- og utanríkisráðherra, ráðið Hans G. Andersen, þjóð- réttarfræðing, til að vinna að og undirbúa aðgerðir af okkar hálfu til útfærslu fiskveiðiland- helgi okkar. Hefur hann síðan verið helztur ráðunautur íslenzkra stjórnvalda í þessum þýðingarmikla málaflokki. Jóhann Þ. Jósepsson átti og frumkvæðið að byggingu fyrsta varðskips okkar, elzta Þórs, sem var upphafið að land- helgisgæzluflota okkar, og lagði grunninn að því er síðar va rð. Síðari hluta árs 1 948 flytja þrír þingmenn Sjálfstæðis- flbkksins, Jóhann Hafstein, Sigurður Bjarnason og Gunnar Thoroddsen, þingsályktunartil- lögu um landhelgisgæzluna og stækkun landhelginnar. Og 1949 segir Bjarni Benedikts- sön, þáverandi utanríkisráð- herra, upp landhelgissamningi, sem Danir gerðu við Breta 1901, og féll hann úr gildi 3. október 1951. Fyrsta aðgerðin á grundvelli landgrunnslag- anna var sú, er Ólafur Thórs, þáverandi sjávarútvégsráð- herra, gaf út nýja reglugerð, um verndun fiskimiða fyrir Norðurlandi, I apríl 1950. 19. marz 1952 eru síðan gefin út bráðabirgðalög, sem Alþingi staðfesti um haustið, er fólu í sér fjögurra mílna landhelgi. Með samstöðu allra stjórnmála- flokka er síðan fært út í 12 mílur 1 958 og 50 mílur 1972. í október 1973 leggja allir þá- verandi þingmenn Sjálfstæðis- flokksins fram tillögu til þings- ályktunar um 200 mílna fisk- veiðilandhelgi. 15 júlí 1975 gefur síðan Matthías Bjarna- son, sjávarútvegsráðherra, út reglugerð um það efni, sem kom til framkvæmda 15. nóvember sama ár. Þetta er hér rifjað upp vegna rógskrifa Þjóðviljans í leiðara sl. sunnudag, þar sem því er dróttað að Sjálfstæðisflokkn- um, þvert á staðreyndir mála, að hann sé andsnúinn íslenzk- um hagsmunum í landhelgis- málinu, „forsætisráðherrann vilji ekki sigra" i fiskveiðideil- unni við Breta og jábræður hans „fagni því þessa dagana", ef íslendingum gangi eitthvað i óhag í þessum þætti sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. Þessi flórframleiðsla Þjóðviljans er síðan lapin upp i leiðara Dagblaðsins sl. mánudag og væg einkenni þessa sjúkdóms hafa einnig sézt i Tímanum, enda er skylt skeggið hökunni. Þeir sem þekkja aðdraganda og sögu landgrunnslaga og landhelgismála vita gjörla, að þar áttu fjölmargir úr forystuliði Sjálfstæðisflokksins stærsta hluti að máli Þegar saga þess- ara mála verður síðar skrifuð, hlutlaust og sagnfræðilega, munu nöfn manna eins og Jóhanns Þ. Jósepssonar, Péturs Ottesen, Ólafs B. Thórs Bjarna Benediktssonar, Geirs Hallgrímssonar og Matthíasar Bjarnasonar, svo nokkur séu nefnd, hljóta verðuga viður- kenningu, hvað sem liður skarnskrifum Þjóðviljans og Dagblaðsins. Morgunblaðinu er Ijúft að meta og viðurkenna, að þar koma og við sögu menn úr öðrum íslenzkum stjórnmála- flokkum, enda málefnalegur- ágreiningur naumast fyrir hendi, þótt deilt hafi verð um framkvæmdaatriði. ^ Alþýðubandalagið á, eins og aðrir íslenzkir stjórnmála- flokkar, sinn hlut í framvindu og áfangasigrum landhelgis- málsins. Hins vegar verður ekki komizt hjá því, vegna rógskrifa Þjóðviljans, að tína til þann tvískinnungshátt, ósamræmi orða og athafna, sem einkennt hefur þessa flokksnefnu í land- helgismálum sem öðrum. Hér verða þó aðeins nefnd örfá dæmi — þó af allnokkrum sé að taka. 0 1) Þegar á árinu 1972 lét Norður-Atlantshafsfiskveiði- ráðið frá sér fara fiskifræðilegar niðurstöður, sem sýndu fram á að þorskstofnar á þessu haf svæði voru þá þegar verulega ofveiddir og veiðisókn í þá helmingur umfram það, sem hyggilegt var miðað við veiði- þol stofnanna. Islenzkir fiski- fræðingar áréttuðu þessa við- vörun við þáverandi sjávarút- vegsráðherra. Þessum viðvör- unum var litt eða ekki sinnt, því miður — og önnur væri aðstaða útgerðar og fiskvinnslu í dag, ef þá þegar hefði verið gerðar nauðsynlegar ráðstafan- ir í fiskverndarmálum. 4) 2) Þvert á móti var ætt út í meiri aukningu togveiðiflota okkar en dæmi voru til um áður, sem hlaut að stuðla að verulega aukinni veiðisókn og langt umfram veiðiþol fisk- stofnanna, sem jafnframt þýddi síminnkandi aflamagn og arðsemi á hverja fiskveiði- einingu og í raun skertan hag útgerðar og sjómanna. — Þessi aukning skipastóls okkar fór að mestu fram hjá íslenzk- um skipasmíðastöðvum, þótt hyggilegt hefði verið, að gjöra hvorttveggja, að nýta endur- nýjun togaraflotans til að byggja upp íslenzkan skipa- smíðaiðnað og dreifa henni jafnframt á mun lengri tíma. 0 3) íslendingar hafa jafnan gert skammtíma veiðisamninga eftir hverja útfærslu, ef þeir hafa talið það þjóna betur fiski- fræðilegum markmiðum en ófriður og ólöglegar veiðar. Þetta var einnig gert árið 1973, eftir útfærsluna í 50 mílur. Þáverandi sjávarútvegs- ráðherra og þingflokkur Alþýðubandalagsins allur sam- þykktu 1 30.000 tonna árlegan þorskafla til Breta, tvö næstu árin, þrátt fyrir tiltæka vitneskju um ástand þorsk- stofnsins og þrátt fyrir upp- byggingu íslenzka skuttogara- flotans. Þessi söfnuður kvaðst að vísu efnislega andvigur þeim samningum, sem þeir samþykktu allir sem einn og undantekningarlaust en hins- vegar þyrfti að tryggja tiltekn- um flokksforingjum ráðherra- stóla áfram. % 4) Eftir útfærslu í 50 mílur og með lokaáfangann, 200 mílur, í sjónmáli, hefði þurft að hyggja að verulegri aukningu landhelgisgæzlunnar á þeim árum sem vinstri stjórnin sat og Alþýðubandalagið fór með sjávarútvegsmál. Landhelgis- gæzlan er i dag ver í stakk búin en vera þyrfti vegna áhugaleys- is og aðgerðarleysis í málefnum hennar á þessum tima. Lúðvík taldi raunar að útfærslan í 200 mílur gæti beðið þar til einhvern tíma síðar, að breyttum alþjóðlegum hafréttarreglum, eða að lokinni hafréttarráðstefnu, eins og hann orðaði það. Það var nú öll forystan og áhuginn hjá Alþýðubandalaginu á þeim tíma. Þessi tvískinningur Alþýðu- bandalagsins allur minnir óneitanlega á allan fyrir- ganginn og svardagasvelginn gegn aðild að Nato og varnar- stöðinni á Miðnesheiði þegar Alþýðubandalagið er utan rikis- stjórnar. Samt sem áður hefur það setið í sátt og sjálfumgleði í tveimur vinstristjórnum, innan Nato og hið næsta „her- stöðinni". Þá skipti mestu máli, eins og þegar samningarnir voru gerðir við Breta 1973, að tryggja ráðherrastóla, hvað sem málefnum og markmiðum leið. Hún er löngu gegnsæ hugsjónaflíkin, sem felur póli- tiska nekt Alþýðubandalagsins. Rógskrifin og landhelgismálið Verður herforingjastjórn THE OBSERVER áSfcfc. THE OBSERVER langlíf í Argentínu ? buf.nos aires — Innan hersins í Argentínu er þeirri skoðun gjarnan flíkað, að hann sé síðasta varalið landsins, og hon- um sé skylt að grípa í taumana, þegar þjóðin stefni hraðbyri til stjórnleysis og glötunar. 24. marz sl. gerði hann enn á ný það sem honum bar að eigin áliti, hrakti ógnarstjórn Isabel Perón frá völdum og kom þess í stað á fót þriggja manna herfor- ingjastjórn undir forsæti Jorge Rafael Videla hershöfðingja. Fyrir réttum áratug greip herinn til svipaðra ráðstafana og hratt frá völdum getulausri og óvinsælli ríkisstjórn Arturo Illia. Þá settist Juan Carlos Ongania hershöfðingi í forseta- stól I Casa Rosada, afar siða- vandur maður og heittrúaður kaþólikki. Fordæmi hans er lítt upp- örvandi fyrir Videla, en svipað vakir fyrir honum og Ongania á sínum tíma. Báðir hafa þeir notið mikils álits f hernum, báðir rammkaþólskir og stað- ráðnir í að uppræta hvers kyns rotnun og spillingu. En Onganía var umfram allt her- maður og lét sér í léttu rúmi liggja, hvernig ríki hans vegn- aði í stjórnmálalegu og efna- hagslegu tilliti. Það er fram- tíðarinnar að skera úr um, hvernig Videla reiðir af. Enda þótt almenningur hafi ekki haft í frammi nein fagn- aðarlæti við valdatöku hersins að þessu sinni, virði'st hin nýja herforingjastjórn fremur vin- sæl og engrar verulegrar and- stöðu gegn henni hefur gætt. Flestir landsmenn telja mark- mið hennar góð og gild og eru sannfærðir um, að stjórn Isabel hafi ekki átt nokkra framtíð fyrir sér. En þegar Onganía kom til valda árið 1966 voru flestir hugsandi Argentinumenn sama sinnis og nú. Og árið 1955, þegar Juan Perón var hrakinn frá völdum, dansaði fólk á götum úti af ánægju. Fjöl- miðlar, stúdentar og mennta- menn voru á einu máli um, að stjórn Peróns hefði verið hrein hörmung, og ekki kæmi til álita að hann ætti nokkru sinni afturkvæmt til landsins. Perón var ekki fyrr horfinn úr landi en fjölmörg hneykslis- mál voru dregin fram í dags- ljósið. Það reyndist engum efa undirorpið, að hann og skó- sveinar hans hefðu rænt og rúið landslýð árum saman, að þeir hefðu tekið við mútum án þess að depla auga og að þeir hefðu lagt stórar fjárhæðir inn á númeraða bankareikninga er- lendis. Gerðu sumir þvi skóna, að ekki væri hér um að ræða lægri fjárhæð en 550 milljónir Bandaríkjadollara. Og margs konar hneykslissög- ur um Isabel og stuðningsmenn hennar eru þegar komnar á kreik. Aðalástæðan fyrir þvi að herinn vildi ekki að hún kæmist til Madrid í útlegð, eins og hún hafði ætlað sér var sú, að menn vildu spyrja hana nokkurra spurninga um fjár- reiður hennar. En ýmislegt fleira hefur verið dregið fram í dagsljósið, og það sem hvað mesta skelf- ingu hefur vakið var mikill vopnafundur í félagsmálaráðu- neytinu, sem er steinsnar frá forsetahöllinni. Fullvíst þykir að vopn þessi hafi verið ætluð Andkommúnistabandalagi Argentfnu, sveit morðingja, sem talin er hafa framið hundruð fólskulegra morðárása á fólk, sem talið var róttækt í skoðunum. Annað vopnabúr tannst skammt frá, I aðalbækistöðvum málmiðnaðarmanna, og það var m.a. mikið af pyntingartækjum, Formaður sambands málm- iðnaðarmanna var Lorenzo eftir James Neilson Miguel einn af dyggustu stuðningsmönnum Isabel i verkalýðshreyfingunni sem yfirleitt var vilhöll Perónistum. Þessir vopnafundir hafa leitt til þess að ýmsir efasemdar- menn hafa sannfærzt um, að valdataka hersins hafi ekki ein- ungis verið óumflýjanleg heldur blátt áfram nauðsynleg. Fáir menntamenn í Argentfnu mæla því í mót, að lýðræðinu hafi verið meiri hætta búin undir ógnarstjórn Isabel heldur en undir stjórn hersins og Videla. Hitt er svo annað mál, hversu lengi menn verða sannfærðir um nauðsyn herforingjastjórn- arinnar. Eins og flestir aðrir muna Argentínumenn skammt, þegar stjórnmál eru annars vegar. Aðeins tæpt ár var liðið frá brottför Juan Feruns, þeg- ar herforingjastjórnin og stuðningsmenn hans tóku að elda grátt silfur saman, enda þótt sjálfur foringinn virtist lítinn hug hafa á því að komast til valda á nýjan leik á því stigi málsins. Það voru efnahagsmálin, sem voru Akkilesarhæll hers- höfðingjanna. Perónistar höfðu jafnan kostað kapps um að láta fé af hendi rakna við iðnverka- menn, sem veittu hreyfingunni dyggan stuðning. En þeir eyddu í stað þess að afla og stóðu í þeirri trú, að þar sem náttúruauðlindir Argentfnu væru svo miklar sem raun bar vitni, hlytu peningarnir að koma einhvers staðar frá. Eftir 1955 tók herinn í sínar hendur efnahagsmálin, sem þá voru í megnasta ólestri. Ekki vildi hann þó koma sér illa við þá, sem höfðu hagnazt á stjórn Peróns og greip því ekki til þeirra róttæku ráðstafana, sem efnahagssérfræðingar ráðlögðu þeim. Astandið í efnahagsmálum Argentínu er jafnvel ennþá al- varlegra nú en árið 1955. Verð- bólga vex nú um 600% á ári og mun jafnvel aukast enn meira. Kaupgeta miðstéttarfólks og verkamanna minnkar með degi hverjum. Iðnaðinn skortir inn- flutt hráefni til framleiðslu sinnar, en ekkert fé er til að Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.