Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAt 1976
Ólafur Jóhannesson:
Ekkert samkomulag
gert í ríkisstjórn
— um fjölda forstjóra Framkvæmdastofnunar
ÓLAFUR Jóhannesson
dómsmálaráðherra lýsti
því yfir i umræðum á Al-
þingi í gær, að þaö væri
ekki rétt að til staðar væri
neitt samkomulag í ríkis-
stjórninni sem slíkri, eóa
milli stjórnarflokkanna,
þess efnis, að forstjórar
Framkvæmdastofnunar
ríkisins skyldu vera fleiri
Matsveinar
samþykktu
með 13 aeai 11
o o
UNDANFARNAR 3 Vikur hafa
verið greidd atkvæði um kjara-
samninga hjá Félagi matreiðslu-
manna, sem starfa á kaupskipum,
um kjarasamninga sem gerðir
voru 7. apríl s.l. Voru
samningarnir samþykktir með 13
atkvæðum gegn 11.
en einn. FTamsóknarflokk-
urinn hefði ekki sett fram
neinar kröfur þar að lút-
andi eins og látið hefði
verið að liggja.
Við nafnakall við breytingartil-
lögu Ellerts B. Sehram við 3ju gr.
frumvarps ríkisstjórnarinnar um
Framkvæmdastofnun ríkisins,
þess efnis að forstjóri skyldi
aðeins vera einn, gerðu tveir ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins og
forseti neðri deildar þá grein
fyrir mótatkvæði sinu, að frum-
varpið í núverandi mynd væri
stjórnarfrumvarp og samkomu-
lagsatriði.
Ef um eitthvert samkomulag er
að ræða, sagði dómsmálaráðherra,
þá er það samkomulag í sérstakri
nefnd, sem skipuð var tveimur
fulltrúum frá hvorum stjórnar-
flokki, og samdi frumvarpið, sem
hér liggur fyrir, á grundvelli
ákvæðis í málefnasamningi
stjórnarflokkanna.
Matthfas A.Mathiesen fjármála-
ráðherra vitnaði til ummæla for-
sætisráðherra Geirs Hallgrfms-
sonar, er hann mælti fyrir frum-
varpinu, en þar hefði hann greint
frá því, að frumvarpið væri sam-
komulags- og stjórnarfrumvarp.
Á þeirri forsendu að lita bæri á
frumvarpið sem slíkt hefði hann
greitt framkomnum breytingartil-
lögum atkvæði.
Tómas Arnason (F) sagði 4ra
manna nefnd, 2 frá hvorum
stjórnarflokki hafa samið umrætt
frumvarp sem samkomulag hefði
Framhald á bls. 18
Þau hafa ásamt öðrum félögum I SVFl skipulagt fjölskvldudaginn.
Talið frá vinstri: Baldur Jónsson, formaður Ingólfs, IluldaViktorsdótt-
ir, formaður kvennadeildarinnar, Svala Eggertsdóttir og Regfna
Benediktsdóttir úr stjórn kvennadeildarinnar. Ljrtsm ói k Mae
Fjölskyldudagur hjá SVFÍ
á Grandagarði á morgun
Fjölbreytt dagskrá fyrir unga og aldna
mmmm
NEI, MI6 LAN6API BARA AÐ 5E6JA EtTT OR0 VIP hANN VOPNLAUSA
KVENNADEILD Slysavarnafé-
lags tsiands og hjörgunarsveitin
Ingólfur í Revkjavík efna til fjöl-
skyldudags á Grandagarði á
morgun, sunnudag. Verður þar
margt um að vera, kaffisala, sýn-
ing á björgunartækjum, sýning á
björgun manna úr sjávarháska,
smábátasigling, hin nýja þvrla
Landhelgisgæzlunnar TF-GRÓ
sýnd almenningi í fvrsta sinn og
sfðast en ekki sfst verða börn
dregin I björgunarstól. Hefst
kaffisalan og björgunartækjasýn-
ingin klukkan 14 en önnur atriði
klukkan 15.30. Verða sýningar-
atriði á sjó I Eiðsvík og á að vera
góð aðstaða til að fvlgjast með
þeim alveg frá Gróubúð vestur að
verzlunarhúsi Jóns Loftssonar.
KAFFISAI.A
Á blaðamannafundi í gær var
gerð grein fyrir dagskránni á
morgun. Hulda Viktorsdóttir, for-
maður kvennadeildarinnar, sagði,
að venjan hefði verið sú að hafa
árlega kaffisölu deildarinnar
fyrr, en af því hefði ekki getað
orðið að þessu sinni. Hefði verið
ákveðið að hafa hana nú á sunnu-
daginn og ljúka vetrarstarfi deild-
arinnar þar með. Hulda sagði að
þeirri hugmynd hefði skotið upp,
að nota tækifærið og sýna al-
menningi höfuðstöðvar SVFÍ á
Grandagarði, hús félagsins og
björgunarstöðina Gróubúð. Var
haft samband við björgunarsveit-
ina Ingólf um samstarf og varð
það úr, að gera þennan dag að
eins konar fjölskyldudegi með
margvislegum atriðum. Kaffi-
salan verður að vanda í húsi
Slysavarnafélagsins og hefst hún
klukkan 14. Þar verður hlaðborð
með margvíslegum kræsingum og
geta menn borðað eins mikið og
þeir geta torgað. Sagði Hulda að
alltaf væri troðfullt þegar
kvennadeildin væri með kaffisölu
og kvaðst hún vona að svo yrði
einnig nú. Sagði hún að fólk gæti
komið fyrir og eftir sýninguna
eða á meðan á henni stæði, allt
eftir óskum hvers og eins, en
kaffisalan verður fram til klukk-
an 18 og jafnvel lengur ef ein-
Framhald á bls. 18
Sturlaugur H. Böðvars-
son úlgcrðarmaður látínn
STURLAUGUR Böðvarsson, út-
gerðarmaður á Akranesi, lézt I
gær á sextugasta aldursári. Stur-
laugur, sem var alkunnur
athafnamaður, var nýkominn
heim úr utanlandsför með konu
sinni er hann lézt.
Sturlaugur Böðvarsson var
dæddur 5. febrúar 1917 i Reykja-'
vík, sonur hjónanna Haralds
Böðvarssonar, framkvæmdastjóra
á Akranesi, og konu hans Ing-
unnar Sveinsdóttur. Hann
stundaði nám í Verzlunarskóla
Islands og fór síðan utan til náms
I Noregi og síðar í Bretlandi. Frá
árinu 1941 var Sturlaugur með-
Financial Times
í leiðara:
Þorskastríðið að
gera Breta að athlægi
Islendingar sáttfúsari segir Guardian
London. 14. maí. AP.
BREZKA blaðið Guardian
sagði í forsíðufrétt í morgun,
að íslendingar hefðu látið að
því liggja að þeir væru reiðu-
búnir til að gera vopnahlé, en
önnur brezk blöð fordæmdu
Breta í leiðara fyrir aðgerðir,
sem miðuðu að þvl að draga
þorskastrfðið á langinn. 1 frétt
Guardian var þvf haldið fram,
að merki um að lslendingar
væru reiðubúnir að hefja
vopnahlésviðræður hefðu
komið fram hjá heimildum f
Alþingi tslands á fimmtudags-
kvöld. Sagði blaðið að fiski-
málanefnd Alþingis íhugaði að
gera Bretum tvlskipt tilboð, að
fyrst yrði gert vopnahlé á
miðunum og ef það vopnahlé
yrði haidið, að ráðherraviðræð-
ur færu fram í Reykjavfk,
London, eða hlutlausri borg
eins og Ósló. Rlaðið sagði að
ekkert hefði verið sagt um
þetta mál af hálfu opinberra
aðila í London og Revkjavík.
Sagði blaðið að Islendingar
væru I nýju sáttfúsara skapi
eftir ákvörðun Breta um að
senda tvær freigátur til við-
bótar á íslandsmið og vegna
mistaka skipherra /Egis að
skjóta 4 skotum að Primella og
revna að taka skipið. Sagði
blaðið það táknrænt, að
fslenzka utanríkisráðuneytið
hefði ekki mótmælt
atburðinum. Sfðan segir blaðið:
„Allt bendir til þess að hægfara
öflin innan fslenzku rfkis-
stjórnarinnar, sem verið hafi
að ná yfirhöndinni er Bretar
ákváðu að senda liðsaukann,
hafi nú aftur náð frumkvæð-
inu. Sagði blaðið að ástæðurnar
kynnu að vera að tslendingar
væru hræddir við að þurfa að
treysta of mikið á Sovétríkin f
sambandi við markaði fyrir
fisktegundir sfnar og að gildis-
taka bókunar 6 hjá EBE byggð-
ist á samningum við Breta,
kostnaður við þorskastríðið og
ótti við að stofna f hættu veiði-
heimildarsamningum við
Norðursjávarlöndin, þ.á m.
Noreg.
Financial Times segir í
leiðara í morgun, að brezka
stjórnin sé að verða að athlægi
með flotaverndinni á Islands-
miðum og að afleiðingarnar
gætu orðið alvarlegar ef skip
sykkju eftir árekstra. Þá sagði
blaðið að framtíð NATO-
stöðvarinnar á Keflavíkurflug-
velli væri í hættu þrátt fyrir að
Bretar nytu einskis stuðnings
frá bandamönnum sinum innan
NATO. Sagði blaðið að það gæti
tekið 3 ár að byggja upp stöð til
að taka við af Keflavík ef það
þá væri hægt stjórnmálalega.
lhaldsblaðið Daily Express
sagði i leiðara að það væri
kominn tími til fyrir brezku
stjórnina að hætta þorskastríð-
inu við Islendinga, stríðið hefði
ekkert gott í för með sér fyrir
orðstír Bretlands, né fyrir
sjómennina sem stunduðu
veiðar á þessum miðum. Flest
strandríki myndu innan
skamms taka sér 200 mílna
efnahagslögsögu. Benti blaðið á
að Kanadamenn hefðu gert
samninga við þjóðir, sem
stundað hefðu hefðbundnar
veiðar við Kanadastrendur um
veiðiheimildir innan 200 míln-
anna er þær tæku gildi og sagði
að Bretar ættu að fara að þvl
fordæmi og gera samning við
Islendinga um gagnkvæmar
veiðiheimildir.
Sturlaugur H. Böðvarsson.
eigandi og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Haraldur Böðvars-
son & Co á Akranesi og jafnframt
framkvæmdastjóri Sfldar- og fisk-
mjölsverksmiðju Akraness í all-
mörg ár. Átti Sturlaugur sæti í
stjórn fjölda fyrirtækja.
Eftirlifandi kona Sturlaugs
Böðvarssonar er Rannveig Torp,
dóttir Pálma heitins Hannessonar
rektors, en kjördóttir Chr. Evald
Torp, framreiðslumanns í Reykja-
vík. _______ ______
Skurðlæknar
þinga í dag
ÞRIÐJA þing Skurðlæknafélags
Islands verður haldið í Reykjavík
þ. 15.6. 1976. Meðal verkefna
þingsins er að flutt verða 23
fræðileg erindi. Erindin skiptast I
eftirfarandi flokka: Brjósthols-
skurðlækningar, bæklunarlækn-
ingar, þvagfæralækningar, skurð-
aðgerðir á slagæðum, slysameð-
ferð og almennar skurðlækning-
ar. Fyrirlesarar eru starfandi
læknar við Landakotspítala,
Landspítalann og Borgarspítal-
ann. Áð loknum fræðilega hluta
þingsins verður aðalfundur Fé-
lags íslenzkra skurðlækna hald-
inn. Fundarstaður er Hótel Holt.