Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976 13 — Skósmíði Framhald af bls. 10 aö gefa hann upp á bátinri — svo erfiðlega hefði gengið í fyrstu að kenna honum. En siðan tók Örn Gunnarsson, kennari í Heyrn- leysingjaskólanum, við Herði og á skömmum tíma tók hann miklum framförum. ,,Hann bókstaflega hlóð á sig orðum,“ sagði Brandur. Ekki er ljóst, hvað valdið hefur hreyfilömun Harðar, en hann er fyrsta barnið, sem skipt var um blóð í og getur lömunin stafað af því að það var gert of seint. Er það þó ekki fullkomlega vist. Lærifaðir Harðar í skósmíða- iðninni, Sigurbjörn Þorgerisson, skósmiður, Háaleitisbraut 68—70, sagðist hafa tekið Hörð í nám vegna tilmæla frá Guðmundi Löve hjá Öryrkjabandalaginu. Gerði hann það eingöngu til reynslu — ,,og einkum þar sem ég sjálfur hef skerta heyrn og heyri bókstaflega ekkert án heyrnar- tækis,“ sagði Sigurbjörn í viðtali við Hlaðvarpann. ,,Ég ákvað því að gera tilraun og þegar Hörður fór að vinna hjá mér kom strax i ljós að hann hafði góða greind og var merkilega handlaginn, þrátt fyrir lömun sína. Hann fékk síðan próf frá Heyrnleysingja- skólanum, þar sem Jón Sætran hafði mikið með hann að gera. Þar fékk hann m.a. undirstöðu- menntun í bókfærslu og öðru til þess að hann gæti rekið eigin vinnustofu. Ég hef frétt að hann hafi haft heldur lítið að gera til þessa, en það er engin hætta á því að hann bjargi sér ekki, fái hann viðskiptavini og nægileg viðfangs- efni.“ Faðir Harðar sagði okkur, að þótt ekki hefði það litið út vel í upphafi, hvað yrði úr syni hans, væri hann þeirrar skoðunar að foreldrar, sem ættu börn, sem þannig væri ástatt um, þyrftu ekki að örvænta. Iðnskólinn í Reykjavík væri að nokkru leyti tengdur Heyrnleysingjaskólanum í slikum tilfellum. Erfiðast hefði kannski verið að fá einhvern meistara i iðninni til þess að taka að sér piltinn, en hann kvað Sig- urbjörn hafa gert það með mikilli snilld. Á meðan við dvöldum í vinnu- stofu Harðar kom ung stúlka og náði i skóna sína, sem verið höfðu til viðgerðar. Við spurðum Hörð, hvað væri erfiðast við starfið. Hann sagði: „Erfiðast er, hve fólk talar hratt. Þá á ég bágt með að skilja það, því að ég þarf að lesa af vörum þess hvað það vill láta gera við skóna sína.“ Með þessum orðum kveðjum við svo Hörð Steinsson og óskum honum alls velfarnaðar í skósmiðaiðninni. Við viljum jafnframt benda vænt- anlegum viðskiptavinum hans á, að eigi þeir í erfiðleikum með að skilja hann,.er alltaf unnt að biðja hann um að tjá sig með því að skrifa á blað. — Heilsu- spillandi Framhald af bls. 11 sér upp sérstökum stofum með auknu rafsviði. Þar mætti “styrkja" menn áður en þeir út- skrifast, en sjúklingar eru einmitt mjög viðkvæmir fyrir veðrabrigð- um. Sem stendur rannsaka þeir í Graz með langtímatilraunum i sjúkrahúsi, hvaða bein áhrif auk- ið rafsvið kann að hafa á lækning- arferilinn. Germanir til forna vissu aug- sýnilega fyrir tvö þúsund árum það, sem nú þykir liklegt eftir langæjar rannsóknir. Tacitus seg- ir frá þvi, að Germanir hafi borið sjúka á fjallagnipur í von um að þeir næðu fyrr heilsu. Það sem Germanirnir héldu vera læknandi nálægð goðanna, er aukið rafsvið þar efra. Mæling- ar sýna að styrkur rafsviðsins nær allt að 5000 voltum/metra eftir því hver hæðin er WERNER WANSCHURA" HVERS VEGIMA1 Aó sjálf sögdu vegna einstakra gæða Reyplasteinangrunar. 1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (bmdagiidi 0,028-0,030 2. Tekur nálega engan raka eóa vatn í sig 3. Sérlega létt og meófcerileg Yfirburðir REYPLASTeinangrunar eru augljósir og enn sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi. DCVPI ACT Uf s.-30978 r%C T r^L-I nT. Armúla 44 Samvinnuferðir TIL SÓLARLANDA Costa del Sol Meðalhiti sjávar: Meðalhiti lofts. Algarve Meðalhiti sjávar: Meðalhiti lofts: agust sept. okt, 24.2 21.2 18.3 276 24.4 20.9 águst sept. okt. 26.5 26.5 23.0 28.5 26.5 23.5 Samvinnuferðir bjóða viðskiptavinum sín- um aðeins nýtisku og fyrsta flokks hótel, íbúðir og smáhýsi á bestu stöðum á Costa del Sol, sem þúsundir íslenskra ferðamanna hafa gist á undanförnum ár- um og á Algarve, sem fáir ísienskir ferða- menn þekkja ennþá en er þó einn af feg- urstu og unaðslegustu ferðamannastöð- um álfunnar. Komið — hringið — skrifið og við veit- um allar nánari upplýsingar fljótt og ör- ugglega. COSTA DEL SOL ALGARVE 27. júni 3 vikur 2. agúst 2 vikur 18. juli 3 vikur 16. ágúst 2 vikur 9.agust 3 vikur 30. agúst 2 vikur 13. seot. 2 vikur 30. agust 3 vikur 20. sept. 3 vikur 27. sept. 2 vikur Samvinnuferdir Sambandshusinu simi 27077

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.