Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAl 1976 29 VELVAKAIMDI Velvakandi svarar i síma 10-100 kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags. 0 Aðeins opið í vinnutímanum S. H. skrifar: Um daginn sá ég frétt um upp- boð hjá lögreglunni á óskilamun- um og var þar handagangur í öskjunni. Virðist ekki mikið ganga út af þvi, sem finnst, jafn- vel ekki dýrindishlutir, eins og reiðhjól. Og bendir ekki til þess að fólk sé auralaust og annt um að nýta eigur sinar. En það var annað, sem mér kom i hug í þessu sambandi, og það vegna eigin reynslu. Ég týndi semsagt lyklum á kippu og ætlaði siðar að vita hvort þeir hefðu fundizt. Þá komst ég að raun um, að til þess að geta vitað um það, þurfti að fara inn i Borgartún, en aðeins á timanum kl. 2—4 á dag- inn. Þegar maður er í vinnu í öðrum enda bæjarins og hefur ekki bil, er varla afsakanlegt að fara úr vinnunni og þá á kostnað vinnuveitanda, til að vita hvort lyklar hafa fundizt. Að minnsta kosi fannst mér það ekki. Og kannski er svo um marga aðra. Ef opið væri i hádegi, eða þó ekki væri nema öðru hvoru megin við hádegið, svo maður gæti notað það i aðra ferðina, þá væri það strax skárra. Yfirleitt finnst mér opinberir aðilar ekki hugsa um hvað þeím, sem þeir eiga að þjóna kemur vel, eins og sést af þessu. Þess vegna lízt mér ákaflega vel á hugmynd, sem kom fram i Vel- vakanda um síðutu helgi, að fólk fái að vinna á misjöfnum tima. Þá geta skrifstofur haft opið, þegar aðrir geta komið þangað að reka sin erindi. Og skrifstofufólkið sjálft getur líka rekið sín erindi annars staðar utan vinnutima. % Bílaskoðunin tímafrek Annar viðmælandi Velvakanda ræddi við hann um daginn um annað timafrekt atriði, sem mönn- um er skylt að rækja. Og það er bilaskoðunin. Tilefnið var, að nú er lögreglan farin að klippa núm- er af óskoðuðum bílum. Sagði hann að ekki væri aðalástæðan fyrir því að hann væri ekki búinn að láta skoða bílinn sinn aura- leysi, eins og gefið var í skyn, heldur tímaleysi. Þessi maður skipti um bil um mitt sumar. Hann er með lágt skrásetningarnúmer og lét skoða bil sinn áður, þ.e. fór í Tollstjóra- skrifstofuna, tryggingarnar, lét yfirfara bílinn á rafmagnsverk- stæði og viðgerðarverkstæði og beið loks eftir að komast að í skoðun hjá Bifreiðaeftirlitinu og i það fóru margar stundir. Nú keypti hann bíl með háu númeri og gekk aftur í gegnum allt þetta til að fá hann skoðaðan. Eftir að gamli bíllinn var kominn til rétts eiganda úti á landi og skráður þar, fékk hann gamia númerið sitt og byrjaði upp á nýtt að láta skoða og ganga frá tryggingunum, en þar var um að ræða einhvers konar bráðabirgðabreytingu á meðan á númeraruglingnum stóð. Og nú, varla ári síðar, er hann orðinn lögbrjótur vegna þess að hann fór ekki með þennan sama bíl, sem skoðaður var seint á síð- asta ári, í skoðun snemma á þessu ári. Hann kvaðst halda sínu gamla númeri, fyrst ekki var breytt lög- um um það. Hann hefði haft það í mannsaldur og þætti vænt um það. En það er ekki aðalatriðið, heldur það hve mörgum vinnu- stundum hann væri búinn að tapa í þessu stússi, og að hann væri skyldaður til að láta skoða sama bil með svo stuttu millibili. Ekki ætti að fara að klippa númer af bílum, fyrr en ár væri liðið frá því þeir voru skoðaðir síðast. Enda gæfi það auðvitað miklu betri raun, ef ekki væri verið að þessu bara fyrir siðasakir. Og aðallega þetta: Allt þett yrði að gera á vinnutíma. Að minnsta kosti ætti að vera hægt að borga skattinn sinn á sama stað, sem skoðun fer fram. Og að sjálfsögðu þyrfti að vera þjónusta á staðn- um, þar sem smávægilegar við- gerðir, í samræmi við athuga- semdír skoðunarmanna, færu fram. Auðvitað þannig að borgað væri fullt fyrir það. % Lítil virðing fyrir seldum vinnustundum Já, það er lítil virðing fyrir seld- um vinnustundum í okkar þjóðfé- lagi, og því gott að heyra í fólki, sem ekki telur sjáifsagt að selja vinnu sína og afhenda hana ekki, eins og þessir tveir viðmælendur Velvakanda. Líklega er það ekki alltaf fólkið sjálft, sem svikjast vill um að afhenda vinnustund- irnar er það selur, heldur engu að síður þeir sem þjónustu veita og þeir opinberu aðilar, sem hafa ráð þeirra í hendi sér. Ef stjórnvöld settu lög eða reglugerðir, sem fyrirskipuðu öll- um opinberum aðilum, er veita almenningi þjónustu, að gera það utan vinnutíma einu sinni í viku, væri strax hjólinu snúið við. Peddinghaus BLIKKKUPPUR FYRIRLIGGJANDI Dalshrauni 5. Hafiiarfirði s. 53333. SÉRSTAKT VERÐTILBOÐ BOSCH HJÓLSÖG 7 1/2" HD 1150 wött Ætti aö kosta kr. 42.100.- En kostar kr. 32.700.- ^funnrn - 'íb'j.rihj-'>on li.l. Reykjavik — Akureyri Og í verzlunum víða um landið. STORHATIÐ STORHATIÐ Loka- dansleikur í Selfossbfó Haukar — Haukar sjá um stuðið ásamt CLIROTES og Jóhanni og Birgi. Munið sætaferðirnar frá B S.í. kl 9. ^ hann og síðan lokuðu þeir vand- lega hliðinu inn f portið. Helen braut ákaft heilann um hvað þetta ætti að þýða en hafði ekki komizt að neinni niðurstöðu þegar David kom aftur. — Ég er hræddur um að við höfum gengið beint f gildru, sagði hann rófega. — Þegar ég kom niður beið mfn þar hinn virðu- legri eigandi með skammbyssu og f hendi og tveir voru honum til stuðnings. Carrier beitir fvrir sig gömlum félögum frá f strfðinu til að halda okkur hér. Helen hnykkti að vfsu vfð, en í aðra röndina hafði hún ef til vill búizt við einhverju f þessum dúr. — Veiztu nokkuð um hvað hann ætlast fyrir, sagði hún. — Þeir sögðu bara að Carrier birtist hér seinna f kvöld til að tala við mig um slysaskotið og þangað til fara þeir þess kurteis- lega á leit að við verðum hér og höfum hægt um okkur. Ég veit ekki hvernig Carrier hefur hugs- að sér að leiða málið til Ivkta. Kannski hann ætli að skipta á morðum við mig og hóta mér til dæmis með því að afla sönnunar- gagna um að ég hafi kevrt M. Boniface niður eða eitthvað svo- HOGNI HREKKVÍSI JtWJ _ C 1975 McNmí^KI Syndicate. loc. „Hver er skottulæknir?“ HLEGARÐUR BREZKA HLJÓMSVEITIN Red sky at night og hinrtilieimsfrægi töframaður '/ PAUL VERNON / í FYRSTA SINN Á ístandi. Nafnskírteini —'Sætaferðir frá B.S.Í. HLÉGARÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.