Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.05.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAl 1976 ALLT MEÐ EIMSKIP Á næstunni ferma skip vor til íslands hér segir: semí ANTWERPEN: Urriðafoss 1 9. maí Dettifoss 27. maí Tungufoss 31. maí Urriðafoss 7. júní ROTTERDAM: Urriðafoss 1 8. maí Úðafoss 28. maí Tungufoss 1. júní Urriðafoss 8. júní FELIXSTOWE: Mánafoss 1 8. maí Dettifoss 25. maí Mánafoss 1. júní Dettifoss 8. júní HAMBORG: Mánafoss 20. maí Dettifoss 27. maí Mánafoss 3. júní Dettifoss 1 0. júní PORTSMOUTH: Brúarfoss 25. maí Bakkafoss 31. maí Selfoss 4. júní Goðafoss 1 8. júní. WESTON POINT: Kljáfoss 1 9. mai Kljáfoss 1. júní Kljáfoss 1 5. júní KAUPMANNAHÖFN: M úlafoss 1 8. maí írafoss 25. maí Múlafoss 1. júní írafoss 8. júní GAUTABORG: Múlafoss 1 9. maí írafoss 26. maí Múlafoss 2. júní írafoss 9. júní HELSINGBORG: Skip 24. mai Álafoss 4. júní Álafoss 1 8. júní KRISTIANSAND: Skip 28. maí Álafoss 5. júni Álafoss 1 9. júní GDYNIA/GDANSK: Lagarfoss 14. mai Fjallfoss 3. júni VALKOM: Álafoss 1 7. maí Fjallfoss 31 mai VENTSPILS: Lagarfoss 30. mai. | Reglubundnar § vikulegar hraöferðir frá: ANTWERPEN, FELIXSTOWE, GAUTABORG, HAMBORG, KAUPMANNAHÖFN, ÍJlJ ROTTERDAM sUl._______ I' GEYMIÐ auglýsinguna ALLTMEÐ EIMSKIP SCSMMSMUMSM i I B I i I 8 i S i i i I 8 1 I i AL'iil.ÝSINGASÍMINN KR: 22480 Jfloreimblnbiö Samræming starfa Framkvæmdastofn- unar, Seðlabanka, hagdeildar banka og fj ármálaráðuney tis Á ÞINGSlÐU Morgunblaðsins f gær var skýrt frá breytingartil- lögum við stjórnarfrumvarp um Framkvæmdastofnun rlkisins, at- kvæðagreiðslum um þær og grein- argerð tveggja ráðherra og for- seta neðri deildar, þess efnis, að þeir greiddu atkvæði gegn breyt- ingartillögunum við frumvarpið, á þeirri forsendu, að frumvarpið f í núverandi myiíd væri samkomu- lagsatriði innan rfkisstjórnarinn- ar. Hér fer á eftir fyrirvari eins af þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins, sem greiddi atkvæði með breytingartillögu Ellerts B. Schram (S) um einn fram- kvæmdastjóra stofnunarinnar (sjá nánar á þingsfðu f gær), Ey- jólfs Konráðs Jónssonar (S), sem hann gerði um undirskrift á nefndaráliti: Virðulegi forseti. Ég skrifa undir nefndarálit meirihluta og viðskiptanefndar með fyrirvara og tel mér skylt að gera í örfáum orðum grein fyrir því, hvers vegna ég rita undir með fyrirvara. Eg verð að segja það eins og það er, að þegar ég sá frv. fyrst fullbú- ið í fyrradag í hv. fjh,- og viðskn., eftir að hafa verið erlendis um nokkurra vikna skeið, þá varð ég fyrir vonbrigðum. Ég hafði satt að segja ætlað, að fyrirheit í stefnu- yfirlýsingu ríkisstj. um endur- skoðun á þessum lögum mundi þýða eitthvað annað og meira en það, sem nú hefur séð dagsins ljós. Ég hafði gert mér vonir um það, að við þessa endurskoðun yrðu reynt að samræma störf Framkvæmdastofnunar ríkisins, Seðlabanka, hagdeilda bankanna og raunar þau störf, sem mörg hver eru unnin í fjmrn. mun bet- ur en gert hefur verið og hafði gert mér vonir um, að við þá endurskoðun yrði unnt að fækka Eyjólfur Konráð Jónsson, 4 þm. Norðurl. vestra — Carter Framhald af bls. 1 sigur vfir Carter og Reagan bar sigurorð af Ford. Þá segir í fréttum frá Banda- ríkjunum að Ford forseti leggi nú gifurlegt kapp á að vinna þær næstu forkosningar sem fara fram alveg á næstunni, í Michigan, sem er heimaríki hans, og í Tennessee og Kentueky nokkru síðar. Öllum ber saman um að færi Reagan með sigur af hólmi í Michigan myndi það verða meiri háttar áfall fyrir forsetann og tefla í tvísýnu vonum hans um út- nefningu. — Fjölskyldu- dagur Framhald af bls. 2 hverjir koma eftir þann tíma. Bað Hulda Mbl. að koma á framfæri þakklæti til allra, sem aðstoðað hefðu kvennadeildina að undir- búningi kaffisölunnar. SVNINGAR Baldur Jónsson formaður björg- unarsveitarinnar Ingólfs sagði að kvennadeildin hefði unnið ómetanlegt starf fyrir SVFl og væri það Ingólfsmönnum sönn ánægja að vinna með þeim að þessum fjölskyldudegi. Kvenna- deildin hefur gefið björgunar- tæki fyrir hundruð þúsunda króna ef ekki milljónir og verða þau einmitt sýnd í Gróubúó og hefst sýningin klukkan 14. Þar verður einnig sýnd og kennd lífgun úr dauðadái og almenn- ingur fræddur um starf slysa- varnafélaganna í landinu, en björgunarsveitir félagsins eru nú 79 að tölu. Klukkan 15.30 hefjast svo önnur dagskráratriði. Skotið verður úr línu yfir i bátinn Gisla J. Johnsen og menn dregnir i land. Gúmbátar verða sýndir úti á víkinni og verða froskmenn við þá, Hughes-þyrlan nýja sveimar yfir og skotið verður upp marglit- um blysum. Féiagar úr sportbáta- klúbbnum Snarfara sýna ýmsar bátagerðir, félagar úr slysavarna- sveitum í nágrannabyggðum koma í heimsókn með tæki sín, og börn verða dregin um i björg- unarstól, en það atriði fer fram á landi eins og nærri má geta. HAPPDRÆTTI SVFl Loks gerði Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri Slysavarna- félagsins, grein fyrir landshapp- drætti félagsins, sem nú er í gangi því fjölmenna starfsliði, sem að öllu þessu vinnur því að fyrir til- tölulega fáum árum unnu miklu færri menn að þessum störfum og gerðu það held ég alveg eins vel og sá fjöldi, sem við þetta er nú. I meginatriðum tel ég þó frv. vera til bóta frá þeirri löggjöf sem gildandi er og mun þvi fylgja því við lokaatkvgr., en áskil mér allan rétt til að styðja brtt., ef svo vill verkast. En meginatriðið er það, að ég er ekki ánægður með málið eins og það er nú og vona, að framhald verði á endurskoðun á þessum málum. Ég man það t.d., að þegar fé atvinnumálan. var út- hlutað hér á árunum 1968 og 1969 þá var um að ræða álíka fjármagn eins og nú er til ráðstöfunar i Byggðasjóði og ég hygg, að tveir ágætismenn hafi unnið það verk með einni skrifstofustúlku. Það voru þeir Jónas Haralds og Krist- inn Zimsen. Ég held, að það sé alveg öruggt mál, að mjög megi fækka í þessum stofnunum, sem ég nefndi, samræma miklu betur störfin en gert er og einfalda þetta allt í sniðum og jafnframt, að sumar af þessum áætlunum, sem enginn maður les, mættu missast. í fjórða sinn. Sjá deildir félagsins um söluna og fá fjórðung í sölu- laun. Sagði Hannes að sala hefði gengið vel og lokaátakið væri framundan en dregið er 1. júní. Verða miðar m.a. seldir á fjöi- skyldudeginum á morgun. Þá getur fólk fengið miða senda heim ef það óskar eftir, en miðar eru ekki sendir með giróseðlum eins og tíðkast hjá sumum félög- um. Vinningar eru 12, þar af ein bifreið og fjórar utanlandsferðir. — Ekkert samkomulag Framhald af bls. 2 þar orðið um. Nefndin hefði skilað frumvarpinu til ríkis- stjórnarinnar, sem hefði haft það til meðferðar og síðan lagt fram sem stjórnarfrumvarp. Reynsla sín sem starfsmanns stofnunar- innar frá upphafi, fyrst sem for- stjóra með tveimur öðrum, síðan einn forstjóri, og loks sem for- stjóra með einum samstarfsfor- stjóra, væri sú, að hyggilegt og æskilegt væri, að forstjórar væru fleiri en tveir, enda umfang og eðli stofnunarinnar slíkt. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) fagnaði því að Framsóknarflokk- urinn væri til viðtals um að hafa einn framkvæmdastjóra við stofn- unina og þá væntanlega sem gegndi þar fullu starfi. Ingólfur Jónsson (S) sagði frumvarpið í heild samkomulags- atriði, þó ekki væri hægt að til- greina sérstaklega einstakar greinar þess í því efni. Hér væri um að ræða samkomulagsfrum- varp frá nefnd stjórnarflokkanna, flutt sem stjórnarfrumvarp. Frumvarpið fæli i sér þrjár veiga- miklar breytingar til samræmis við sjónarmið Sjálfstæðisflokks- ins, rp.a. um, að stjórn stofnunar- innar veldi framkvæmdastjóra en ekki rikisstjórnin, þó hún skipaði hann eða þá að nafninu til. Annað mál væri hvort þingmenn skipuðu þessar forstjórastöður. Forstjórar ráðstöfuðu ekki lánum líkt og bankastjórar, heldur stjórn stofn- unarinnar, en umfang stofnunar- innar væri slíkt, að réttlætti ráðningu fleiri en eins forstjóra. Núverandi forstjórar, sem jafn- framt væru þingmenn, tækju 60% af tilskildu kaupi, eða til samans 20% meira en einn for- stjóri. Hér væri þvi ekki stórt aparnaðaratriði á ferð. Fjöldi annarra þingmanna tók til máls, þ.á m. Benedikt Gröndal (A), Pétur Sigurðsson (S), sem sagði Framkvæmdastofnunina stærstu fjármálastofnun landsins, utan rikissjóðs, og Ellert B. Schram (S) sem sagði það bæði athyglis- og lærdómsrikt, að breytingartillaga sín hefði verið felld með jöfnum atkvæðum og það hefði þurft atkvæði beggja núverandi forstjóra stofnunar- innar til að svo mætti verða. Næturlangur málþófsfundur á Alþingi: Z-an fór með sigur af hólmi í morgunsárið Málið fékkst ekki tekið fyrir í efri deild í gær NEÐRI deild Alþingis fjallaði um frumvarp um íslenzka staf- setningu, sem þingmenn úr öll- um flokkum flytja, z- frumvarpið, frá því að útvarps- umræðum lauk i fyrrakvöld (um ellefuleytið) og fram i morgunsárið í gærdag er umræðu lauk (3ju umræðu í deildinni). Andstæðingar frumvarpsins héldu uppi mál- þófi, löngum ræðuhöldum, með upplestrum úr hinum og þessum prentritum. Fyrstur talaði Magnús Torfi Ólafsson (SFV) síðan Svava Jakobs- dóttir (Alb), Vilborg Harðar- dóttir (Alb), Ingvar Gíslason (F), Gils Guðmundsson (Alb) og Vilhjálmur Hjálmarsson (F). Mæltu þau öll gegn sam- þykkt frumvarpsins. í morgun- sárið fluttu Magnús T. Ólafs- son og Ingvar Gíslason breyt- ingartillögu, skriflega, þess efnis, að 2., 3., 4. og 5. gr. frumvarpsins (þ.e. frumvarpið að meginefni) féllu niður. Þar sem tillagan var of seint fram borin og þar að auki skrifleg þurfti að leita tvö- faldra afbrigða fyrir henni, samkvæmt þingsköpum. Að- eins fimm þingmenn voru í fundarsal, en 2/3 atkvæða þarf fyrir slíkum afbrigðum (40 þingmenn i deildinni). Þau náðu því ekki fram að ganga þá. Lauk síðan 3ju umræðu í deildinni um frumvarpið eftir næturlangan fund en atkvæða- greiðslu var frestað. Klukkan tvö miðdegis i gær hófst fundur að nýju. Forseti deildarinnar, Ragnhildur Helgadóttir, leitaði þá enn afbrigða fyrir því, að breyt- ingartillaga sú, sem ekki fékkst fylgi við um morgun- inn, mætti koma til atkvæða. Voru afbrígðin samþykkt. Breytingartillagan var síðan felld að viðhöfðu nafnakalli, með 24 atkvæðum gegn 14, 1 sat hjá og 1 greiddi ekki at- kvæði. Nafnakall var einnig haft um frumvarpið sjálft. Var það samþykkt með 23 atkvæðum gegn 14, 2 sátu hjá, 1 var fjarverandi. Já sögðu: Ragn- hildur Helgadóttir, Benedikt Gröndal, Ellert B. Schram, Eyjólfur K. Jónsson, Friðjón Þórðarson, Guðmundur H. Garðarsson, Gunnar Thor- oddsen, Gunnlaugur Finnsson, Gylfi Þ. Gíslason, Ingólfur Jónsson, Jóhann Hafstein, Lárus Jónsson, Matthías Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen, Ólafur G. Einars- son, Páll Pétursson, Pálmi Jónsson, Pétur Sigurðsson, Sighvatur Björgvinsson, Sigur- laug Bjarnadóttir, Sverrir Hermannsson, Tómas Árnason og Þórarinn Þórarinsson. Nei sögðu: Eðvarð Sigurðsson, Garðar Sigurðsson, Gils Guðmundsson, Ingvar Gísla- son, Jón Skaftason, Skúli Alexandersson, Lúðvík Jóseps- son, Vilborg Harðardóttir, Magnús T. Ólafsson, Ólafur Jóhannesson, Stefán Valgeirs- son, Svava Jakobsdóttir, Vil- hjálmur Hjálmarsson og Þórarinn Sigurjónsson. — Hjá sátu Halldór E. Sigurðsson og Karvel Pálmason. Fjarverandi var Guðlaugur Gíslason. Þar með hafði frumvarpið hlotið samþykki og afgreiðslu frá neðri deild til efrideildar I efri deild var leitað afbrigða fyrir því að taka málið fyrir, síðdegis í gær, þar eð ein nótt þarf að liða milli umræðna um mál, skv. þingsköpum. Nú brá hins vegar svo við, sem afar sjaldgæft er, að ekki fékkst nægur stuðningur fyrir af- brigðum til að taka málið fyrir til umræðu. Nafnakall var við- haft. Með afbrigðum voru 7 þingmenn: Steingrímur Her- mannsson, Axel Jónsson, Ein- ar Ágústsson, Jón G. Sólnes, Oddur Ólafsson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Geir Hallgrímsson. Móti: Stefán Jónsson, Geir Gunnarsson. Ragnar Arnalds og Halldór Ás- grímsson. Aðrir sátu hjá eða voru fjarverandi. Þar sem ekki fékkst 2/3 atkvæða fyrir af- brigðunum kemst þetta mál ekki á dagskrá deildarinnar fyrr en í dag (ef þingfundir verða) eða á mánudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.