Morgunblaðið - 15.05.1976, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976
31
Vængirfljúga
eftir þörfum
Hafa flogið víða út um land og til Grænlands
VÆNGIR h.f. hafa hafið flug og
hafa þeir flogið á Snæfellsnes og
til fleiri staða, þar á meðal til
Grænlands. Einn flugmaður
annast þessa þjðnustu, Erling Jó-
hannesson, flugmaður og flug-
virki, sem er jafnframt stjórnar-
maður f Vængjum h.f. Hreinn
Hauksson stjórnarformaður sagði
f viðtali við Mbl. f gær, að flogið
yrði eftir þörfum eða eftir þvf
sem verkefni lægju fvrir.
Hreinn sagði að starfsemin
væri frekar róleg eins og er, en
flogið hefur verið á hverjum degi.
Myndi stjórnin síðan sjá til í
FRUMVARP Gylfa Þ. Gíslasonar
og fleiri um fslenzka stafsetningu
var afgreitt frá neðri deild Al-
þingis f gærdag. Var frumvarpið
sfðan sent efri deild og var leitað
afbrigða til þess að unnt yrði að
fjalla um það í deildinni. Sjö
þingmenn deildarinnar vildu
veita afbrigði, en 4 voru á móti.
Náði afbrigðið því ekki fram að
ganga, þar sem 3/4 þingmanna
verða að vera viðstaddir þingfund
deildar er leitað er afbrigða við
þingmannafrumvarp, en svo var
ekki.
Ef taka á þingmannafrumvarpj
fyrir og því hefur ekki verið’
dreift sólarhring áður, þarf að
leita afbrigða á að umræða um
það sé opnuð. Þurfa þá 3/4 þing-1
manna að greiða því atkvæði að
Monte Carlo, 14. maí.
FráJakobi H. Möller.
EKKI byrjaði dagurinn vel hjá
fslensku spilurunum. Hjalti Ás-
mundur, Guðmundur og Karl
spiluðu við Bahama og töpuðu
leiknum 8—12. Annað parið lenti
f slæmri slemmu sem tapaðist og
þar að auki fengu Bahamamenn
tvær úttektarsveiflur.
I átjándu umferð spiluðu Ás-
mundur, Hjalti, Simon og Stefán
á móti trum og tapaðist sá leikur
einnig naumlega eða 9—11.
í kvöld var svo mótherjinn Ital-
ir og tapaðist sá leikur einnig en
nú með núlli.
Orðsending til
Hafnfirðinga
AÐ GEFNU tilefni vill bæjarráð
Hafnarfjarðar taka fram að
spurningalistar sem sendir hafa
verið til ýmissa Hafnfirðinga að
undanförnu með bréfhaus Hafn-
arfjarðarbæjar eru ekki sendir út
á vegum bæjarins, heldur af jafn
réttisnefndinni í Hafnarfirði.
Skrúfa Týs
send utan
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
senda bakborðsskrúfu varð-
skipsins Týs, sem skemmdist á
dögunum, utan til viðgerðar f
heilu lagi. Áð sögn Gunnars
Ólalssonar er ekki Ijóst, hve
viðgerð tekur langan tfma, en
ætlunin mun verða að Týr fari
f gæzlustörf innan tfðar á
annarri skrúfunni. Þrátt fyrir
missi skrúfunnar mun gang-
hraði skipsins ekki minnka til
mikilla muna eða eins og
Gunnar sagði: Þrátt fyrir þetta
verður Týr með gangmeiri
varðskipunum.
rólegheitum hverju fram yndi.
Svo sem kunnugt er hafa fyrrum
flugmenn Vængja h.f. stofnað
með sér flugfélag. Hreinn var að
þvi spurður, hvort flugmennirnir
eða hið nýja félag þeirra hefði
óskað eftir kaupum á einhverjum
af flugvélum Vængja. Hreinn
kvað það ekki vera en tók ekki
ólíklega i að Vægir myndu selja
flugvélarnar. Þó sagði hann eða
benti á að fleira þyrfti en viljann
til þess að kaupa flugvél
Þá ræddi Mbl. við Viðar Hjálm-
týsson einn af flugmönnum, sem
unnu hjá Vængjum. Hann kvað
afbrigði sé leyft, en sé um stjórn-
arfrumvarp að ræða nægir að
helmingur ljái afbrigði eyra.
Frumvarpið um íslenzka stafsetn-
ingu er þingmannafrumvarp og
þvf fékkst ekki afbrigði á að fjalla
um það í efri deiid í gær. Mun það
— að þvf er Friðjón Sigurðsson,
skrifstofustjóri Alþingis, tjáði
blaðinu koma fyrir deildina án
afbrigða á mánudag, þar sem ólik-
legt er að þingfundir verði í dag.
Ef þingmaður leggur fram
breytingartillögu við frumvarp og
hún er ekki komin fyrir þingið
með dags fyrirvara, þarf einnig
afbrigði og þar þarf einnig 3/4
þingmanna til þess að samþykkja
afbrigðið. Hið sama gildir um
breytingartillögu við breytingar-
tillögu.
Islendingarnir eru i 28. sæti
með 175 stig eða 15 stigum undir
meðallagi.
Helgin verður erfið hjá sveit-
inni. Þá á hún að spila við 4 þjóðir
sem eru i efstu sætunum, Bret-
land, Pólland, Frakkland og
Þýzkaland. Fram að þessu hefir
það raunar verið svo að best hefir
verið spilað á mótisterkari þjóð-
unum og vonum við að það haldi
áfram.
Kennarar
Hagaskóla
mótmæla
z-frumvarpi
KENNARAFÉLAG Hagaskóla
hefur sent frá sér áskorun til Al-
þingis um að fella frumvarp
Gvlfa Þ. Gfslasonar o.fl. um að z
skuli tekin upp að nýju.
Áskorunin var undirrituð af 33
kennurum og benda þeir m.a. á,
að verði frumvarpið að lögum,
þurfi kennarar og nemendur að
fást við þarflaus formsatriði í stað
lifandi málnotkunar og fást við
verkefni, sem meirihluta nem-
enda hefur reynzt ókleift að ná
tökum á.
Leiðrétting
á myndatexta
RUGLINGUR varð á texta undir
mynd á miðsfðu í blaðinu á mið-
vikudag. Fyrirsögnin á grein Guð-
mundar E. Sigvaldasonar, Kamar
við Knebelsvörðu, var endurtekin
undir myndinni, en þar átti að
standa: Sæluhús Ferðafélagsins f
Drekagili.
félagsstofnunina enn ekki frá-
gengna, þar sem aðeins hefði
verið haldinn undirbúningsstofn-
fundur og enn hefði félagið því
ekki fengið nafn. Þá hafa flug-
mennirnir enn ekki ákveðið hvort
þeir kaupi flugvélar. „Við bíðum
og sjáum, hvað Vængjamenn
gera,“ sagði Viðar, „hvort þeir
ætla að þrauka með einn mann
eða hvað. Við skiljum þetta ekki
öllu lengur." Viðar sagði að hug-
mynd flugmannanna hefði aðal-
Iega byggst á því að Vængir hefðu
lýst yfir því að rekstri félagsins
yrði hætt. Síðar kom á daginn, að
Vængir ætluðu ekki að hætta,
skiluðu ekki leyfunum, en lögðu
reksturinn niður, þar sem ekki
væri um áætlun að ræða.
Þá sagði Viðar að einn þeirra
félaga, Þórólfur Magnússon, væri
hluthafi í Vængjum h.f og ætti
hann því forkaupsrétt á öllu því
hlutafé, sem losnaði eða yrði
boðið til sölu. Þvf kvað hann
hugsanlegt að flugmennirnir
gætu keypt hluti í Vængjum í
framtiðinni.
Sæmilegur
afli togaranna
NOKKRIR togarar hafa landað f
Reykjavík í vikunni og voru
flestir með sæmilegan afla. Að
sögn Þorsteins Sívertsen hjá
Togaraafgreiðslunni, þá var
skipting aflans nokkuð misjöfn.
Sumir togaranna voru með þorsk
f meirihluta, en aðrir karfa.
ögri kom inn á mánudag og
landaði þá alls 256 lestum. Af
þessum afla voru 185 lestir
þorskur, en 48 lestir karfi. Þor-
móður goði landaði ennfremur á
mánudaginn alls 1161estum.
Landað var úr Narfa á þriðju-
dag og miðvikudag um 162 lestum
og var aflinn að mestu karfi.
Bjarni Benediktsson kom síðan
til hafnar á fimmtudag og var
landað úr honum 247 tonnum,
mest karfa.
I næstu viku er von á nokkrum
togurum m.a. Ingólfi Arnarsyni,
Snorra Sturlusyni og Engey.
Krían komin í
Innri-Njarðvík
KRIAN kom á Kóngsbænadaginn,
sem henni ber, til Innri-
Njarðvíkur. Maður, sem hringdi í
Morgunblaðið, tilkynnti komu
hennar f tjörnina þar. Að vísu
kom krían 7. maí til Reykjavíkur,
en þá varð hennar vart við Tjörn-
ina. Vonandi boðar krian gott
sumar að þessu sinni, svo sem
aðrir vorboðar, sem flykkjast nú
til landsins.
— Friðrik
Framhald af bls. 32
síðan á mistök, sem leiddu til
þess að ég hafði peði meira.
Þetta peð varð ég að gefa eftir
seinna en var þá komin með svo
sterkt frípeð að Timman réð
ekki við stöðuna. Ég fórnaði
drottningunni og það leiddi til
þess að ég varð hróki yfir og
Timman gaf skákina i 33. leik.“
Skák Karpovs og Browne.iór
í bið og hafði Karpov þá yfir
peð. Biðskákin var tefld i gær-
kvöldi, og sagði Friðrik að
Karpov ætti að geta náð vinn-
ingi en það væri ekki auðvelt.
Teflt er f Van Gogh safninu, en
áhorfendur eru f stóru tjaldi
fyrir utan safnið og er sjón-
varpað þaðan úr skáksalnum.
Sagði Friðrik að aðstæður væru
allar mjög góðar og óvenju mik-
il kyrrð fyrst áhorfendur væru
ekki í skáksalnum. Að sögn
Friðriks var áhorfendatjaldið
troðfullt, og gizkaði Friðrik á að
það tæki um 1000 manns.
Fréttaritari Mbl. á Euwe-
skákmótinu í Hollandi, Barry
Withuis, sendi eftirfarandi
frétt f gærkveldi af skák-
mótinu:
Fyrsta umferð í svokölluðu
Euwe-skákmóti hófst hér f
Amsterdam í kvöld. Þessi skák-
viðburður er í tilefni 75 ára
afmæli hins fyrrum heims-
meistara í skák, en afmælið
verður 20. maí. Nú er dr. Euwe
forseti Alþjóðaskáksambands-
ins. Skákirnar í gær voru milli
heimsmeistarans Anatoly Karp-
ov og Walter Brown, stórmeist-
ara frá Bandaríkjunum,
Friðriks Ólafssonar og Jan Tim-
man Hollandsmeistara í skák.
I fyrstu umferð tapaði Tim-
man fyrir Friðriki. 20. leikur
Timmans, Hbl—b5 voru mistök
hans. Eftir þann leik átti
Friðrik auðvelt með sigur, þrátt
fyrir að Friðrik væri kominn í
tímahrak.
Skákin milli Brown og Karp-
ov var spænsk byrjun, þar sem
20 leikir voru samkvæmt skák-
bókum. Hvítur komst þó í tfma-
þröng og tapaði hrók. Skákin
fór tvisvar í bið. I dag tefla**
saman Friðrik og Karpov, Tim-
man og Brown.
1 AP-skeyti í gærkveldi segir
að Friðrik hafi f síðasta leik
sínum fórnað drottningu og
hafi Timman þá gefizt upp.
Hér fer á eftir vinningsskák
Friðriks, sem hefur svart, Tim-
man hafði hvítt. Skákskýringar
eru eftir Margeir Pétursson:
Timman — Friðrik
ENSKI LEIKURINN
1. c4 — c5 2. Rf3 — Rf6 3. Rc3 —
Rc6 4. g3 — d5 5. cxd5 — Rxd5 6.
Bg2 — g6 7. Rxd5 — Dxd5 8. 0-0
— Bg7 9. d.3 — 0-0
(Þessi staða hefur oft komið
upp áður en þá með skiptum
litum) 10. Be3 — Bd7 (Ekki 10...
Bxb2? 11. Rd4 — Dd6 12. Rxc6 —
bxc6 13. Hbl og hvftur hefur yfir-
burðartafl) 11. Rd4?
(Fljótfærnislegur leikur. Eftir
uppskiptin á hvítreitabiskupun-
um verður kóngsstaða hvfts alltof
veik eins og síðar kemur f ljós.
Betra var 11. Dd2 og síðan Hfcl
með jöfnu tafli). — Dd6 12. Rxc6
— Bxc6 13. Bxc6 — Dxc6 14. Hcl
— De6 15. Bxc5 — Bxb2 (Svartur
hefur þegar náð frumkvæðinu)
16. Hbl — Bg7 17. a4 (Ekki 17.
Hxb7? vegna Dc6 og vinnur.) —
Hfd8 18. Be3 (Svartur hótaði
Hd5) — b6 19. Dd2 — Hd5!
(Sterkur leikur, svartur hótar
einfaldlega að leika Hh5 og sfðan
Dh3 með óverjandi máti. Hvítur
sér nú ekki fram á önnur úrræði
en þau að gefa peð fyrir nokkurt
spil) 20.^05 (Erfitt er að benda á
aðra leiki hvitum til bjargar. 20.
f3 gengur ekki vegna He5 og 20.
f4 svarar svartur með Dd7 með
framrásina e7 — e5 — e4 i huga.)
— Hxb5 21. axb5 — Db3 22. Hcl
— Dxb5 23. I)a2 — e6 24. Hc7 —
a5 25. Hb7 — a4 26. Hxb6 (Hvítur
hefur nú unnið peðið til baka, en
það hefur tekið hann svo mikinn
tíma að peð svarts á a-iínunni er
orðið óstöðvandi) — Da5 27. Hbl
— a3 28. d4 (Svartur hótaði Bb2
og síðan Dd5) — h5 29. h4 — Da4!
(Svartur vinnur nú peð og þar
með skákina.) 30. Hcl — Bxd4 31.
Bxd4 — Dxd4 32. e3 — Db2 33.
Hc2 — Dxc2!
Hvítur gafst upp, því að hann
verður að gefa Drottningu sfna
fyrir a peð svarts.
— Skilyrði
Framhald af bls. 32
við og revnt er að finna lausn á
deilunni.
Frásögnin var byggð á við-
tali sjónvarpsstöðvarinnar við
forsætisráðherra, en filman og
viðtalið náðu ekki í tæka tíð
fyrir kvöldfréttatíma ITN, sem
er klukkan 22. Flutti stöðin
því stuttan útdrátt úr viðtal-
inu. ITN bætti þvi við að tillög-
ur forsætisráðherrans væru
settar fram samtímis þvf að
íslendingum reyndist það æ
erfiðara að eiga f tré við
brezku togarana og freigáturn-
ar. Sérfræðingar lásu út úr frá-
sögninni að orð Geirs væru til-
raun til þess að leysa þann
hnút, sem málið væri í.
Morgunblaðið sneri sér til
Geirs Hallgrímssonar forsætis-
ráðherra í gærkveldi og spurði
hann um þetta viðtal. Hann
sagði að frásögnin væri í
meginatriðum rétt, en hann
hefði lagt á það áherzlu að
Landhelgisgæzlan gæti áfram
takmarkað veiðar Breta
þannig að þær borguðu sig
engan veginn fyrir þá og þær
væru þeim tilgangslausar. Geir
sagði að f raun væri ekkert
nýtt í þessu viðtali, a.m.k. ekki
fyrir Islendinga. Hér væri
nánast um sömu ummælin að
ræða og hann hefði viðhaft á
Alþingi fyrir nokkrum dögum
við umræður utan dagskrár.
Þá sagði ráðherrann að Islend-
ingar myndu ekki setjast að
samningaborðinu með Bretum,
nema þeir drægju herskip sin
út úr 200 mílna landhelginni.
Það væri grundvallarskilyrði.
Ef þeir gerðu það yrði gengið
úr skugga um það hvort hug-
myndir þeirra um veiðiréttindi
væru komnar niður á jörðina
og væru að einhverju leyti f
samræmi við það, sem við
gætum sætt okkur við.
Geir sagóist hafa sagt í við-
talinu við ITN, er hann var
spurður, hvort Islendingar
myndu láta togarana í friði, ef
herskipin færu burtu, að auð-
vitað myndu Islendingar setja
það skilyrði að haldið yrði uppi
löggæzlu og að brezku togar-
arnir hlýddu fyrirmælum
varðskipanna.
Þar sem viðtalið við Geir
Hallgrímsson náði ekki frétta-
tíma ITN í gærkvöldi eru líkur
á að það verði sýnt í ITN f
kvöld, en aðalfréttatími
stöðvarinnar er klukkan 22.
— Bretar velta
Framhald af bls. 32
svæðið norður af Horni, en þar
eru á þessum tíma uppeldis-
stöðvar ungfisks.
Fleiri togarar en brezkir voru
að veiðum við landið í gær. 19
Þjóðverjar voru að löglegum
veiðum, 4 Færeyingar og 3 Belg-
ar.
Þá ber að geta þess að skut-
togarinn Southella H 40, sem
brezka ríkisstjórnin hefur tekið á
leigu af eigendum þess í Fleet-
wood, J. Marr and Son, er 1.144
brúttórúmlestir að stærð. Skipinu
er ætlað að koma f brezka
verndarflotann hér við land.
— Leifur
Eiríksson
Framhald af bls. 3
Blaðamannafélag íslands verið
gefinn kostur á að senda einn
og ennfremur utánrfkisráðu-
neytinu og Reykjavíkurborg.
Það skilyrði hefur verið sett að
skipverjar safni alskeggi og eru
þeir, sem ákveðið er að verði í
förinni byrjaðir að safna.
Þá mun áhöfnin klæðast vík-
ingabúningum, og hefur Þjóð-
leikhúsið lánað búninga, sverð
og skildi frá alþingishátíðinni
1930.
Eftir siglinguna upp East
River er gert ráð fyrir að skip-
verjar á Leifi Eiríkssyni sigli
milli bæja nálægt New York og
heimsæki m.a. Siglingaklúbba.
— Humar
Framhald af bls. 32
barst í gær frá Verðlagsráði
sjávarútvegsins:
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins ákvað á fundi sinum i
dag eftirfarandi lágmarksverð á
ferskum og slitnum humri frá
upphafi humarvertfðar til maí-
loka 1976:
1. flokkur, óbrotinn humarhali,
25 g og yfir hvert kg. kr. 950.00.
2. flokkur, óbrotinn humarhali,
10 g að 25 g, og brotinn humar-
hali, 10 g og yfir, hvert kg. kr.
490.00.
Verðflokkun byggist á gæða-
flokkun Framleiðslueftirlits
sjávarafurða. Verðið er miðað við,
að seljandi afhendi humarinn á
flutningstæki veiðiskips.
Verðið var ákveðið með sam-
hljóða atkvæðum alira nefndar-
manna. Jafnframt var ákveðið, að
gerð verði sérstök athugun á
hráefnisflokkun, nýtingu og
vinnslukostnaði við humar-
vinnslu nú í maímánuði. Auk þess
verði gerð samhliða athugun
á olíukostnaði humarbáta.
Athuganir þessar verða gerðar í
samvinnu fulltrúa kaupenda og
seljenda. Á grundvelli þessara
athugana verður síðan ákveðið
nýtt humarverð frá 1. júní n.k. til
loka vertíðar.
Afbrigði þarf % atkv.
Þrír tapleikir í röð á
Olympíumótinu í bridge