Morgunblaðið - 18.05.1976, Qupperneq 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
106. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAf 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Börn falla
i Líbanon
Beirút, 17. maí Reuter AP
TÍU börn í smábarnaskóla bióu
bana og 30 særöust i stórskotaárás
á palestinskar flóttamannabúðir i
útjaðri Beirút í dag.
Árásin fylgir i kjölfar stórskota-
liðsbardaga, sem urðu 150 að
bana en 400 særðust. Þar af féllu
34 og 110 særðust þegar sprengja
féll á kvikmyndahús.
Jafnframt kom forsætisráð-
herra Líbýu, Abdel-Salam Jalloud
major til Beirút I dag til að reyna
að miðla málum i borgarastríðinu.
Forsetarnir Ford og Giscard d'Kstaings hlýða á þjððsöngva landa
sinna leikna við komu Frakklandsforseta til Hvfta hússins.
„Þar sem sovézka sólin
gengur aldrei til viðar”
Giscard
kom með
Concorde
Washington, 17. maí.
Reuter. AP.
VALERY Giscard d‘Estaing for-
seti kom í dag með Concorde-þotu
f opinbera heimsókn til Banda-
ríkjanna í tilefni af því, að 200 ár
eru liðin sfðan landið lýsti yfir
sjálfstæði.
Hann kaliaði afmælið „frelsis-
hátfð“ og sagði að enn þann dag í
dag væri kjarni vandamála
heimsins sjálfstæði þjóða og
frelsi mannsins sem Frakkar og
Bandarfkjamenn hefðu alltaf bar-
izt fyrir.
Efnahagsástandið í heiminum
var eitt helzta umræðuefni forset-
anna þegar þeir ræddust við í
Hvíta húsinu i tvær klukkustund-
ir að sögn blaðafulltrúa Fords
forseta. Þeir ræddu önnur
alþjóðamál og viðræður ríkra
þjóða og snauðra með sérstöku
tilliti til Afriku.
Giscard forseti vonar að heim-
sóknin eyði tortryggni sem hefur
ríkt í garð Frakka i Washington
Framhald á bls. 38
Harðyrt ræða Nelsons Rocke-
fellers i garð Sovétríkianna
Frankfurt. 17. maí
AP — Reuter
NELSON Rockefeller, varafor-
seti Bandarfkjanna, sagði í
ræðu í Frankfurt um helgina,
að Vesturlönd stæðu nú
frammi fvrir tilraun til að
koma á fót nýju heimsveldi,
þar sem sovézka sólin gengi
aldrei til viðar. Ræða varafor-
setans er harðasta ræða
bandarfsks leiðtoga í garð
Sovétrfkjanna um árabil. Hún
var flutt f St. Pauls dómkirkj-
unni í Frankfurt á hátfðarsam-
komu f tilefni 200 ára afmælis
bandarísku byltingarinnar.
Rockefeiler sagði að Vestur-
landabúar ættu við að etja nýja
og flóknari heimsveldisstefnu,
eins konar blöndu af stefnu
gömlu Rússakeisaranna og
marxisma, með tilhneigingu til
nýlendustefnu. Síðan sagði
Rockefeller: „Tími stórfelldrar
flotauppbyggingar NATO-
ríkjanna er kominn svo að þau
Framhald á bls. 38
Rockefellerhjónin við Brandenborgarhliðið f V-Berlfn ásamt vfir-
manni brezka hersins þar og Klaus Schiitz borgarst jóra.
Ford berst upp
á líf og dauða
Detroit, 17. maí. Reuter.
FORD forseti berst fyrir póli-
tfsku Iffi sínu f forkosningum f
heimarfki sfnu, Michigan, á
morgun. Flestir sérfræðingar spá
þvf, að hann sigri keppinaut sinn,
Ronald Reagan, en með litlum
Crosland mun
hitta Einar
Agústsson
Frá fréttaritara Mbl. í Hull í
gær.
BREZKA utanrfkisráðuneytið
sagði f dag, að hugsanlegt væri
að utanrfkisráðherrarnir
Anthony Crosland og Einar
Ágústsson héldu fund með sér
f sambandi við utanrfkisráð-
herrafund NATO f Osló sfðar f
vikunni.
Þingmaðurinn John Prescott
frá Hull sagði í dag, að hann
væri sannfærður um að nýjar
viðræður gætu hafizt og sam-
komulag tekist ef brezku her-
skipin yrðu kölluð burt frá
íslandsmiðum og ef til vill
togararnir líka.
Hann lagði til að gert yrði
bráðabirgðasamkomulag sem
gilti fram yfir fund hafréttar-
ráðstefnunnar I september og
siðan reynt að gera samkomu-
Framhald á bls. 38
mun og slfk úrslit gætu verið tal-
in siðferðilegur sigur fyrir
Reagan eftir fimm sigra hans f
sfðustu sex forkosningum.
Stuðningsmenn Fords vilja að
hann vinni með miklum mun í
Michigan og Maryland til að
hleypa lífi i kosningabaráttu hans
sem hefur orðið fyrir skakkaföll-
um. Ósigur i Michigan yrði gífur-
legt áfall.
Jimmy Carter fyrrum rikis-
stjóra í Georgia er spáð sigri í
forkosningum demókrata i Michi-
gan, en hefur fengið haróa keppni
frá hinum unga ríkisstjóra Kali-
forníu, Jerry Brown. Samkvæmt
skoðanakönnun blaðsins Balti-
more Sun fær Carter 31% en
Brown 28% og þótt fáir telji lík-
legt, að Brown hafi möguleika á
útnefningu í forsetaframboð að
þessu sinni gæti hann komið
sterklega til greina 1980 ef hann
stendur sig vel á morgun.
Sigurvon Reagans i Michigan
byggist á íhaldssömum demókröt-
um sem búizt er við að taki þátt í
forkosningum repúblikana og
kjósi hann. Þetta eru fyrrverandi
stuðningsmenn George Wallace
ríkisstjóra í Alabama sem fékk
800.000 atkvæði i forsetakosning-
unum 1972.
Ford forseti var á kosninga-
ferðalagi i Michigan um helgina
og hefur háð baráttu sina undir
kjörorðunum „Friður, hagsæld og
traust" en þau gætu virzt innan-
Framhald á bls. 38
Jarðskjálfti
olli stórtjóni
Moskvu, 17. mai. Reuter AP
MOSKVU-útvarpið sagði í dag, að
alvarlegt tjón hefði orðið i kröft-
ugum jarðskjálfta f Mið-
Asfuhéruðum Sovétrfkjanna.
Fréttastofan Tass sagði að mann-
tjón hefði orðið en upplýsingar
eru af skornum skammti.
Jarðskjálftastöð í Colorado I
Bandaríkjunum sem skýrði fyrst
frá jarðskjálftanum, sagði að
hann hefði mælzt 7.2 stig á
Richterskvarða þannig að hann er
öflugri en jarðskjálftinn á
Norður-ítalíu sem mældist 6.8 stig.
Rússar nota Medvedevkvarða,
sem nær upp i 12 stig, og á hann
Framhald á bls. 38
Annar njósnari í
Bonn afhjúpaður
Bonn, 17. mai. Reuter. AP.
NYTT njósnamál kom upp f vest-
ur-þýzka utanrfkisráðuneytinu í
dag og þeir, sem hafa rannsókn
þess með höndum, segja það jafn-
ast á við mál Giinter Guillaumes,
sem var dæmdur f fyrra fyrir að
afhenda rfkisfeyndarmál þegar
hann var hægri hönd Willv
Brandts fyrrum kanzlara.
36 ára gömul kona, sem starfar
sem ritari í ráðuneytinu, hefur
verið handtekin grunuð um
njósnir i þágu Austur-Þjóðverja
og fyrrverandi yfirmaður hennar,
Heinrich Böx, hefur verið sviptur
starfi yfirmanns utanríkismála-
skrifstofu Kristilega demókrata-
flokksins (CDU) meðan á rann-
sókn málsins stendur.
Konan heitir Helge Berger, hef-
ur verið búsett I Bad Godesberg
siðan 1971 og vinátta hennar og
Böx hefui^verið náin að sögn vest-
ur-þýzka ríkissaksóknarans Sieg-
fried Buback. Hann sagði í yfir-
lýsingu að sterkur grunur léki á
um að konan hefi afhent Austur-
Þjóðverjum upplýsingar og skjöl
úr ráðuneytinu um tíu ára skeið
og notað vináttu sína við Böx síð-
an 1971 til að afla sér upplýsinga
um starf hans.
Böx var skipaður sendiherra í
Noregi 1956, var einnig um tima
forstöðumaður verzlunarnefnda
Vestur-Þjóðverja í Finnlandi og
Varsjá og hefur gegnt starfi þvi
sem hann hefur nú verið sviptur
til bráðabirgða síðan hann hætti í
utanrikisþjónustunni fyrir um
sex árum. Hann er nú aðalritari
Evrópusambands kristilegra
demókrataflokka.
Böx var settur i gæzluvarðhald
á föstudag en látinn laus daginn
eftir. Hann hefur mótmælt varð-
haldinu og lýst því yfir að hann
ætli að höfða mál gegn „óþekkt-
um aðila“ þar sem hann hafi verið
Framhald á bls. 38
Átök harðna
í Jerúsalem
Jerúsalem, 17. mai. AP
ATÖK urðu við borgarmúra
Jerúsalem í dag eftir útför
níunda Arabans sem hefur beðið
bana í óeirðum á vesturbakka
Jórdanár.
Tveir Palestinumenn særðust á
höfði og nokkrir lögreglumenn
slösuðust þegar israelsk lögregla
réðst gegn nokkur hundruð Pale-
stinumönnum sem komu frá út-
förinni að sögn ísraelska útvarps-
ins.
Þetta voru einhver alvarlegustu
átök sem orðið hafa á vestur-
bakkanum þar sem óeirðir hafa
geisað í marga mánuði.