Morgunblaðið - 18.05.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1976
Að sögn Bjarka Elíassonar, yfir-
lögregluþjóns, var þessi ganga
fjölmennasta Keflavílcurgangan
til þessa og fór hún hið bezta
fram. Hann kvað lögregluna hafa
reynt að áætla tölu göngumanna á
leiðinni milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur og lögreglumönnum
talizt til að þá hefðu verið um
2800 manns í göngunni. Hins veg-
ar hefði enn fjölgað eftir því sem
nær dró borginni og á útifundin-
um gizkaði Bjarki á að hefðu ver-
ið um 6—8 þúsund manns sam-
kvæmt þeirri hefðbundnu taln-
ingaraðferð, er lögreglan beitti til
að reyna að meta fjölda fundar-
Olynipíumólið í bridge:
Fjögur töp —
fjórir sigrar
Monte Carlo 17. maí frá Jakobi H
Möller:
EFTIR 29 umferðir er fslenzka
sveitin f 25. sæti eða með 280
stig. I kvöld spilar sveitin við
Hollendinga, sem hafa alltaf
verið erfiðir andstæðingar, en
á morgun verða aðeins tveir
leikir, við hollenzku Antillu-
eyjar og Grikkland. Island
hefur nú spilað við flestar
þjóðanna, sem eru í efstu
sætunum, þannig að stigum
ætti að fara að fjölga.
Síðustu leikir sveitarinnar
hafa farið þannig:
Island — Tyrkland 20—+5
Island — Taivan 6—14
Island — Bandarikin -;-3—20
(Heimsmeistararnir notuðu
Framhald á bls. 38
Eldsvoðar
á 2 stöðum
ELDUR kom upp 1 Málmstevpu
Þórs Jóhannessonar 1 Ártúns-
höfða um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var mikill eldur 1 bvgg-
ingunni, sem er timburbvgging
en bárujárnsklædd. Skemmdir
urðu ekki miklar, að sögn slökkvi-
liðsins.
Fyrr í gærdag kom einnig upp
eldur í Aburðarverksmiðjunni.
Kviknaði hann út frá slöngu i
gaskút, en þar var verið að þétta
þak á pökkunarskemmu. Engar
teljandi skemmdir urðu þar.
Stjórnarfrumvarp um Blönduvirkjun:
Heimilað verði að
reisa
allt að 150MW vatnsaflstöð
Á ALÞINGI í gærkvöldi
var lagt fram stjórnar-
frumvarp til laga um virkj-
un Blöndu í Blöndudal í
A-Húnavatnssýslu. Frum-
varpið gerir ráð fyrir, að
ríkisstjórn sé heimilt að
Vorkappreiðar Fáks:
Óðinn á nýjum Islands-
metstíma í 250 m skeiði
VORKAPPREIÐAR Fáks fóru
fram á sunnudaginn á svæði
félagsins á Víðivöllum. Fóru þær
hið bezta fram, að sögn Bergs
Magnússonar framkvæmdastjóra
Fáks, og voru áhorfendur fjöl-
margir. I keppninni bar hæst
sigur Óðins Þorgeirs Jónssonar
í Gufunesi 1 250 metra skeiði, 22,5
sek. Er þetta einu sekúndubroti
betri tfmi en hjá Glettu Sigurðar
Ólafssonar, sem átt hefur tslands-
Hornafjörður:
Ungur piltur beið
bana í umferðaslysi
SAUTJÁN ára piltur beið bana 1
umferðarslysi við Höfn I Horna-
firði aðfararnótt föstudags sfðast-
liðins.
Ekki er Ijóst með hvaða hætti
slysið varð en svo virðist sem
pilturinn hafi misst stjórn á fólks-
bifreið þeirri, er hann ók. Valt
bifreiðin og lenti ofan í skurði
skammt frá Mjólkurstöðinni í
Höfn. Var pilturinn látinn inni i
bifreiðinni þegar að var komið.
Pilturinn hét Aðalsteinn Ing-
ólfsson, til heimilis að Bogaslóð
15 í Höfn og var hann fæddur 6.
apríl 1959.
metið 1 greininni f 27 ár. Ekki er
vfst að met Óðins verði staðfest,
þvf meðvindur var töluverður.
Knapi á Óðni var Aðalsteinn
Aðalsteinsson.
1 2. sæti i skeiðinu varð Fannar
Harðar G. Albertssonar á 23,3
sek., knapi Ragnar Hinriksson, og
þriðji Ljúfur Harðar G. Alberts-
sonar á 24,3 sek., knapi Sigur-
björn Bárðarson.
1 250 metra stökki sigraði Funi
Vilhjálms Hrólfssonar á 19.0 sek.,
en hann var einnig knapi. Annar
varð Sleipnir Harðar G. Alberts-
sonar á 19,1 sek., knapi Sigur-
björn Bárðarson, og þriðji Hreinn
Harðar G. Albertssonar á 19,3
sek., knapi Jóhann Jónasson.
I 350 metra stökki sigraði Loka
Þórdísar H. Albertsson á 25,4
sek., knapi Sigurbjörn Bárðarson.
I öðru sæti varð Óðinn Harðar G.
Albertssonar á 26,1 sek., knapi
Jóhann Jónasson, og þriðji varð
Sóði Sigurþórs Sæmundssonar á
26,3 sek., knapi Björn Baldursson.
1 800 metra stökki sigraði Geys-
ir Harðar og Helga Harðarsonar á
Framhald á bls. 39
Seinni hluti Euwe-mótsins hefst í dag:
Friðrik teflir með
hvítu gegn Timman
Sat afmælisveizlu
Karpovs í gærkvöldi
SEINNI hluti Euwe-
skákmótsins hefst f dag. Skák-
mennirnir fjórir áttu frf f gær
og f gærkvöldi sátu þeir afmæi-
isveizlu f sovézka sendiráðinu f
Haag en hún var haldin f til-
efni af 26 ára afmæli heims-
meislarans Karpovs. Friðrik
Ólafsson teflir við Timman í
dag og hefur hvítt og Karpov
Framhald á bls. 39
Friðrik og Karpov heims-
meistari við taflborðið á
- laugardaginn.
Símamynd AP.
fela væntanlegri Norður-
landsvirkjun eða öðrum
aðila að reisa og reka
vatnsaflstöð við Blöndu í
Blöndudal með ailt að 150
MW afli og gera nauðsyn-
legar ráðstafanir á vatna-
svæði árinnar til að
tryggja rekstur virkjunar-
innar.
Ennfremur að leggja aðalorku-
veitur frá orkuverinu til tenging-
ar við aðalstofnlínu Norðurlands
og meiri háttar iðjuvera, eins og
segir í frumvarpinu. Þá segir í
frumvarpinu, að fella skuli niður
aðflutningsgjöld og söluskatt af
efni, tækjum, vélum og aðalorku-
veitum til virkjunarinnar. Niður-
fellingin nær ekki til vinnuvéla
vegna framkvæmdanna.
Frumvarpinu fylgir ítarleg
greinargerð með aðstöðuupp-
dráttum, drögum að samkomulagi
um bætur vegna Blönduvirkjun-
ar, orkuspá og áætlun yfir raf-
orkunotkun á landinu öllu.
Fíkniefnamálið:
Mennirnir laus-
ir úr gæzlu
MÖNNUNUM þremur, sem setið
hafa í gæzluvarðhaldi undan-
farna daga vegna ffkniefnamáls,
var sleppt um helgina. Höfðu þeir
þá setið inni vikutfma. Að sögn
Ásgeirs Friðjónssonar ffkniefna-
dómara er hér ekki um mikið
magn að ræða en aftur á móti
munu allmargir vera viðriðnir
málið.
42 M.R.-kennarar vilja
Z og skora á alþingi
1 GÆR afhentu 42 kennarar við \
Menntaskólann f Reykjavfk for-
seta efri deildar alþingis áskorun,
þar sem kemur fram að undirrit-
aðir kennarar við skólann skori á
háttvirt alþingi að samþykkja
frumvarp til laga um fslenzka
stafsetningu, sem nú liggur fyrir
alþingi.
Undir áskorunina rita Guðni
Guðmundsson, Jón S. Guðmunds-
son, Magnús V. Finnbogason,
Baldur Ingólfsson, Eiríkur Har-
aldsson, Heimir Þorleifsson, Ólaf-
ur Oddsson, Ólafur M. Ólafsson,
Magnús Guðmundsson, Skarphéð-
inn Pálmason, Jóhannes
Sæmundsson, Ólöf Benediktsdótt-
ir, Gylfi Guðnason, Eiríkur
Hreinn Finnbogason, Björn Búi
Jónsson, Einar H. Guðmundsson,
Fríða Eyfjörð, Ragnheiður Torfa-
dóttir, Guðný Jónasdóttir, Vil-
mundur Gylfason, Bjarni Sigur-
björnsson, Friðfinnur Ólafsson,
Hjalti Jónasson, Þórarinn Guð-
mundsson, Ragna Lára Ragn-
arsdóttir, Hjálmar W. Hannesson,
Steinunn Einarsdóttir. Sigríður
Hlíðar, Bjarni Gunnarsson,
Kristín Ólafsdóttir Kaaber, Guð-
mundur Ólafsson, Ólafur Péturs-
son, Halldór Kristjánsson, Sigurð-
ur Pétursson, Kjartan R. Gisla-
son, Þóroddur Oddsson, Þorbjörg
Kristinsdóttir. Vilhelinína Gunn-
arsdóttir, Atli Heimir Sveinsson,
Björn Björnsson, Yngvi Péturs-
son, Hannes H. Gissurarson.
Hálsbrotnaði
í bílveltu
BlLVELTA varð f Mosfellssveit á
móts við Þverholt aðfararnótt
sunnudagsins. Fjórir ungir menn
voru f bfinum og hlutu þrír þeirra
minni háttar meiðsli en öku-
maðurinn slasaðist meira. Hlaut
hann m.a. hálsbrot. Hann er ekki
talinn vera I Iffshættu. Grunur
leikur á þvf að ökumaðurinn hafi
verið ölvaður.
Flensborgarskóla slitið
á laugardaginn kemur
FLENSBORGARSKÓLA f
Hafnarfirði verður slitið nk.
laugardag og hefjast skólaslitin
kl. 14. Verða nú f annað sinn
útskrifaðir stúdentar frá skólan-
um.
Við skólaslit 1. júní í fyrra
þegar fyrstu stúdentar Flens-
borgarskóla voru útskrifaðir
ákváðu nokkrir eldri nemendur
að stofna Stúdentafélag Hafnar-
fjarðar og var framhaldsstofn-
fundur haldinn í lok desembers
sl. Voru stofnendur milli 50 og 60
þar á meðal flestir nýstúdent-
anna.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Matthías A. Mathiesen, form.,
Vilhjálmur Skúlason varaform.,
Bragi Guðmundsson ritari,
Gunnar Linnet gjaldkeri og Ásta
Lúðvíksdóttir meðstj. I varastjórn
eru Helga Guðmundsdóttir og
Haraldur Sigurðsson.
I tilefni skólaslitanna nú verður
efnt til kvöldfagnaðar þar sem
nýstúdentum verður fagnað og
Framhald á bls. 38
Fjölmenni í Kefla-
víkurgöngunni
HERSTÖÐVARANDSTÆÐING-
AR efndu til Keflavíkurgöngu sl.
laugardag til að leggja áherzlu á
kröfu sfna um hrottför varnarliðs-
ins hér á landi og úrsögn tslands
úr Atlantshafsbandalaginu. Hófst
gangan árla morguns frá hliði
Keflavíkurflugvallar og lauk um
kvöldið með útifundi á Lækjar-
torgi.
manna við áþekk tækifæri á torg-
inu.
Þess má að lokum geta til sam-
anburðar að talið var að 4—6000
manns hafi verið á fundi her-
stöðvarandstæðinga við Miðbæj-
arbarnaskólann eftir Keflavíkur-
gönguna í maí 1961 eða fyrir rétt-
um hálfum öðrum áratug.